Morgunblaðið - 03.11.1987, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
9
Hraðlestrarnámskeið
Vegna mikillar eftirspurnar verður haldið eitt hraðlestr-
arnámskeið til viðbótar á þessu ári. Námskeiðið hefst
fimmtudaginn 5. nóvember nk.
Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn, hvort heldurer
við lestur námsbóka eða fagurbókmennta, skaltu skrá
þig strax á námskeiðið.
Nemendur Hraðlestrarskólans þrefalda að meðaltali
lestrarhraða sinn, jafnvel með meiri eftirtekt á innihald
textans, en þeir hafa áður vanist.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00 í síma 611096.
Hraðlestrarskólinn.
TURBO
BLÖNDUNARTÆKI
Sænsk gæðablöndunartæki
með keramik disk.
Venjulegt flæði 5 l/mín.
Fullt flæði TURBO allt að helm-
ingi meira.
LEITIÐ UPPLYSINGA.
HEILDSALA — SMÁSALA
W VATNSVIRKINN HF.
~ ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
JSílamatkadutinn
12-18
Lúxusbíll
Renault 25 GTX 1985
Ljósbrúnn (sans.), sjálfsk., sóllúga, rafm. í
öllu. Sérstakur bíll. Verð 850 þús.
Ford Mercury Topas LS 1984
Blágrár, 4 cyl., sjélfsk., ekinn 70 þ.km. Raf-
stýrð sæti, cruise control, 2 dekkjagangar
(sportfelgur) o.fl. Verð 520 þús.
Chevrolet Cavalier Type-10 '85
Blásans., beinsk., 4 gíra, aflstýri, útvarp +
segulb. Ekinn 51 þ.km. Verð 520 þús.
Chevrolet Suburban Scottsdale
1980
Brúnn og hvítur, ekinn aðeins 20 þ.km. Beinsk.,
4 gíra (8 cyl.). Sérstakur jeppi. Verð 690 þús.
Pajero Turbo diesel 1987
Grásans., 5 gíra, ekinn aöeins 11 þ.km.
Spoke felgur, breiö dekk o.fl. aukahl. Sem
nýr. Verð 970 þús.
Volvo 740 GLE 1984
Rauðbrúnn, 4 gíra m/overdrive, ekinn að-
eins 35 þ.km. Sóllúga, litaö gler o.fl. Úrv-
alsbíll. Verð 740 þús.
Ford Capri 2.8 Injection '82
79 þ.km. Dekurbfll. V. 390 þ.
Dodge Daytona (sport) '85
47 þ.km. 3 dyra. V. 680 þ.
Ford Sierra 2000 Laser st. '87
Sjálfsk., 14 þ.km. V. 720 þ.
Ford Sierra 1600 5 dyra '85
39 þ.km. 2 dekkjagangar o.fl. V. 430 þ.
Mazda 323 1300 '87
22 þ.km. Útv. + segulb. V. 370 þ.
Toyota Landscrusier '86
12 þ.km. 2 dekkjag. o.fl. V. 875 þ.
Toyota Corolla Twin Cam '85
33 þ.km. 16 ventla. V. 540 þ.
Toyota Tercel 4x4 ’86
20 þ.km. Sem nýr. V. 545 þ.
Subaru 4x4 (afmælisbíll) '88
2 þ.km. Nýr bíll. V. Tilboð.
V.W. Golf CL '86
24 þ.km. 3 dyra. V. 480 þ.
Nissan Patrol langur diesel '84
Hi-roof, 80 þ.km. V. 850 þ.
HAFÐUALLTÁ
HREINU
FÁÐU ÞÉR
&TDK
Varaformaðurinn hættir
Kristín Á. Ólafsdóttir, varaformaður Álþýðubandalagsins, skýrði
frá því á laugardag, að hún hefði ákveðið að gefa ekki kost á sér
til endurkjörs á landsfundinum, sem hefst núna í kringum so-
véska byltingarafmælið. Fetar hún þar með í fótspor Svavars
Gestssonar, flokksformanns, og eru uppi vangaveltur um að
afsögn varaformannsins eigi eftir að auðvelda valið á formannin-
um. Er þá litið á varaformennskuna sem einskonar dúsu fyrir
þann arm í Alþýðubandalaginu, sem verður undir í kosningunni
um formann.
Kenning
Svavars
vitlaus
í samtali við Þjóðvijj-
ann á laugardag segir
Kristin Á. Olafsdóttir, að
ákvörðun sin um að
hætta varaformennsku í
Alþýðubandalaginu sé
fyrst og fremst sprottin
af þvi, að hún sjái ekki
fram á að geta dreift
kröftum sínum lengur
svo vel fari milli varafor-
mennskunnar, borgar-
stjómarstarfa og
einkalifsins. Og hún seg-
in „Ég vil sinna borgar-
mábinnm af meiri
atorku, þau eru niikil-
vægt og tíniafrekt
verkefni. Og ég vil rækja
betur fjölskyldu mína og
vini.“
Blaðamaður Þjóðvilj-
ans spyr, hvort ákvörðun
Kristinar sé i einhvequ
samhengi við þau orð
Svavars Gestssonar, frá-
farandi flokksformanns,
að þeir sem markaðir eru
af innaflokksátökum eigi
að vikja úr forystusætum
í Alþýðubandalaginu.
Kristín svaran
„Nei. Sú kenning að
það yrði flokknum helst
til bjargar að fólk „merkt
átökum" viki brott tor-
veldaði mér satt að segja
þessa ákvörðun, vegna
þess að ég er ósammála
þessu mati og finnst
kenningin vitlaus.
I fyrsta Iagi er mér
ekki (jóst hver á að meta
hina mörkuðu. Eru þeir
einir markaðir sem hafa
tekist á fyrir opnum
tjöldum, eða tejjast kaf-
bátamir með? í öðru lagi
er mér nyög til efs að
þeir sem ekki hafa gert
sér grein fyrir mismun-
andi viðhorfum í flokkn-
um né tekið til þeirra
afstöðu eigi mikið erindi
í forystu. Allra sist nú,
þegar Alþýðubandalag-
inu er lifsnauðsyn að
endurmeta pólitiskar
áherslur sinar og vinnu-
brögð, ætli það á ný að
verða róttækt áhrifaafl i
samfélaginu í stað þess
að sitja í farinu 8 til 13
prósent eða fara enn neð-
ar í fylgi.“
Og síðar spyr blaða-
maður Þjóðvijjans: „Þú
hefur lýst stuðningi við
Ólaf Ragnar Grimsson
sem næsta formann.
Ertu með einhveijum
hætti að hliðra til fyrir
honum?“ Og Kristín Á.
Ólafsdóttír svarar:
„Nei. Hvernig ættí min
varaformennska að
standa í vegi fyrir for-
mennsku Ólafs Ragnars?
Krafan nm samhenta
forystu hjjómar nú hátt,
og samstarf okkar Ólafs
hefur verið einstaklega
gott. Við höfum svipaðar
hugmyndir im væntíng-
ar fólks til Alþýðubanda-
lagsins, svipaðar
hugmyndir nni hvernig
megi gera það að afli til
að móta framtfðarsam-
félag á íslandi."
Fyrir Ólaf
Kristín Á. Ólafsdóttír
heldur þarna uppi vöm-
um fyrir Ólaf Ragnar
Grímsson. Ef hún féllist
á kenningu Svavars um
hina óhreinu flokksfor-
ystu, væri hún jafnframt
að lýsa yfir þvi, að Ólafur
Ragnar ætti ekki að
sækjast eftir formennsk-
unni hvað sem öðm líður
hefur hann verið for-
maður framkvæmda-
stjómar flokksins og er
því jafn ábyrgur fyrir að
flokkurinn hefur fest 8
til 13 prósent og aðrír.
Það er (jóst af orðum
Kristínar, varaformanns-
ins fráfarandi, og
framboði Ólafs Ragnars,
að þau líta bæði þannig
á, að aðrir i flokksforyst-
unni en þau beri ábyrgð
á lélegri stöðu flokksins.
Að þeim tveimur frá-
gengnum standa spjótin
aðeins á einum manni:
Svavari Gestssyni. Hann
er 8 til 13% maðurinn en
ekki þau.
Strax eftir að Kristín
hafði gefið yfirlýsinguna
um afsögn sina fóm að
berast fréttir um það,
hver hlyti varafor-
mennskuna. Bára þær
allar skýr merki þess, að
Ólafur Ragnar Grimsson
teldi sig öruggan með
formennskuna og hann
gætí vel hugsað sér hinn
eða þennan sem vara-
formann með sér. Var
Steingrimur J. Sigfús-
son, alþingismaður,
meðal annars nefndur í
þvi sambandi. En Stein-
grimur var einmitt i hópi
hinna fyrstu er komu til
álita, þegar Svavar til-
kynntí afsögn sína. Er
Steingrímur fulHrúi
mim arms og Svavar.
Sá Steingrimur ástæðu
til þess um helgina að
bera fréttír um varafor-
mennsku sina til baka.
Máttí skilja orð hans á
þann veg, að nafn hans
hefði verið misnotað
vegna átaka innan
flokksins.
Afsögn Kristínar Á.
Ólafsdóttur er ekki ein-
angrað fyrirbæri í
kosningabráttu Ólafs
Ragnars Grimssonar.
Hún á að auðvelda hon-
um á lokastigum bardag-
ans að vejja sér
varaformann, sem eykur
líkumar á því, að kosning
Ólafs Ragnars i for-
mannssætið verði sem
glæsilegusL
Fyrir þá sem vilja ávaxta peninga
á öruggan og áhyggjulausan hátt...
Verðbréfamarkaðs Iðnaðaibankans:
11 -11,5% ávöxtun umfram verðbólgu.
Sjóösbréf 1 eru fyrir þá sem eru að safna og
ætla aö nota peningana ásamt vöxtum og
verðbótum einhvern tíma síðar. Munur á
kaupgengi og sölugengi eraðeins 1%.
Sjóðsbréf 2 eru fyrir þá sem þurfa að lifa af
vöxtunum en þeir eru greiddir út í mars, júní,
september og desember á ári hverju.
Ávöxtun Sjóðsbréfa 1 og 2 er nú 11-1 1,5%
umfram verðbólgu sem jafngildir um 35-36%
ársvöxtum.
Sjóður 1 og 2 fjárfesta aðeins í bankabréfum
og skuldabréfum traustra fyrirtækja. Kaupend-
ur Sjóðsbréfa taka því lágmarksáhættu.
Síminn að Ármúla 7 er 68-15-30. Heiðdvs.
Ingibjörg, Sigurður B. eða Vilborg eru jafnan
reiðubúin að veita allar nánari upplýsinear.
VIB
VERÐBRÉFANIARKAÐUR
IÐNAÐARBANKANS HF.