Morgunblaðið - 03.11.1987, Blaðsíða 17
rí?or ff 5TTTO AfTTTT/jWWT OT(TA TOT/TTOITOT/
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
—
26, 4. hæð
, 621301
Píanóverk Snorra
Sigfúsar Birgissonar
Tónllst
Egill Friðleifsson
Það gerist ekki á hveijum degi,
að tónskáldin okkar efna til tónleika
og leika eigin verk. Slíkt átti sér
þó stað er Snorri Sigfús Birgisson
tónskáld og píanóleikari lék á veg-
um Tónlistarfélags Kristskirkju í
safnaðarheimilinu á Hávallagötu sl.
laugardag.
Það ætti að vera óþarfi að gera
ítarlega grein fyrir Snorra, svo eft-
irminnilega sem hann hefur kvatt
sér hljóðs með tónverkum sínum
og hljóðfæraleik. Á það skal aðeins
minnst að Snorri er gagnmenntaður
tónlistarmaður, sem numið hefur
bæði austan hafs og vestan. Og
meðal kennara hans má finna jafn
ólíka menn og tólftónameistara
þeirra Norðmanna, Finn Mortensen,
og hinn fræga Ton De Leuw í
Amsterdam. Snorri Sigfús hefur
skapað sér sitt eigið tónmál og eru
mörg verka hans bæði frumleg og
spennandi.
„Æfingar fyrir píanó“ skiptist í
Snorri Sigfús Birgisson
21 stuttan þátt, suma örstutta, sem
eru ólíkir innbyrðis. Unnendur
íslenskrar samtímatónlistar hafa
haft gott tækifæri til að kynnast
þessum píanóæfingum Snorra, því
verkið var gefið út á hljómplötu af
Tónverkamiðstöðinni í fyrra, þar
sem höfundur sjálfur sat við hljóð-
færið. Og engu virðist Snorri hafa
gleymt frá því platan var hljóðrit-
uð. Hann kann sýnilega vel við sig
á tónleikapallinum, enda snjall pían-
isti sem ekki á í vandræðum með
að gera verkum sínum góð skil. Sem
fyrr segir eru „Æfingamar" ólíkar
innbyrðis. Stundum teygir hann sig
fram á ystu nöf, þ.e. notar jaðartón-
ana óspart, en hann á einnig til að
þræða greiða götu hefðarinnar, eins
og t.d. í V þætti þar sem C-dúrinn
hljómar kunnuglega í eynim.
En raunar hófust tónleikamir á
öðm verki, „Píanólögum fyrir byij-
endur", sem er ólíkt einfaldara og
auðleiknara, enda ætlað byijendum
eins og titlillinn vísar á. Lögunum
er raðað 'i fjögur hefti, sem nú
hafa verið gefin út, og verða vænt-
anlega til að opna vitund nýnema
fyrir tóni samtímans. Þama bregð-
ur víða fyrir frumlegri hugsun og
laglegri útfærslu, m.a. skýrri notk-
un yfirtóna. Anna Guðný Guð-
mundsdóttir aðstoðaði Snorra
dyggilega í fjórhentu lögunum.
Tónlistarfélag Kristskirkju á
þakkir skildar fyrir framtakið, en
félagið boðar fleiri tónleika í fram-
tíðinni og er það vel.
LÆKKUM
VÖRUVERÐIÐ
SENDUM
UM LAND
HVERS
AÐ BOR
GÓÐ ENDI
EGNA
MEIRA?
RT VERÐ
SLA
Þ£!R
SÖLU-
IR
Starfsmenn Bylgjunnar sem sjá um heilsuvikuna
Heilsuvika Bylgjunnar
Bylgjan verður með heilsuviku
dagana 2. - 6. nóvember þar sem
rætt verður um allt sem viðkem-
ur heilsu í heila viku.
Það em frétta- og dagskrárgerða-
mennimir Þorsteinn Vilhjálmsson,
Valdís Gunnarsdóttir, Páll Þor-
steinsson, Ásgeir Tómasson, Jón
Gústafsson og Hallgrímur Thor-
steinsson, sem ætla að sjá um
heilsuvikuna og fræða hlustendur
um það er lítur að heilsu. Þau ætla
einnig að skokka, fara í sund og
stunda fleiri íþróttir til komast í
gott form fyrir jólin og hvetja hlust-
endur til að gera slíkt hið sama.
ER FRABÆR GJOF
Leikfélagi, sem áeftiraðendast lengi. Þýsku dúkkurnar fráZapf eru
vönduð leikföng, sem ekki láta á sjá við misjafna meðhöndlun ungra
eigenda. Póstsendum — Góö aðkeyrsla, næg bílastæöi.
ILaugllWPMÚSl
avegi 164
simi
21901,
elifci 3P
Listaverkakort eftir meistara Kjarval
þaö 9. í rööinni.
★
3 klippmyndir eftir Sigrúnu Eldjárn.
★
6 vetrarljósmyndir eftir Rafn Hafnfjörð.
★
Glæsileg kort, tiivalin fyrir fyrirtæki og
félagssamtök.
★
Einnig mikið úrval af hefðbundnum
kortum.
★
Nú er rétti tíminn til að panta jólakortin.
V*
STJORNU
KORT
LT LITBRÁ hf
SÍMAR 2 29 30 og 2 28 65
HÖFÐATÚN 12 - 105 REYKJAVlK