Morgunblaðið - 03.11.1987, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 03.11.1987, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987 Kór Austurbæjarskóla æfir með Sinfóníuhjjómsveitinni. Morgunblaðið/Sverrir Sinfóníuhljómsveit íslands: Grunnskólanemendur taka þátt í skólatónleikum SINFÓNÍ UHLJ ÓMS VEIT ís- lands heldur skólatónleika þessa viku, þar sem nemendur úr Tón- menntaskóla Reykjavíkur og Tónskóla Sigursveins leika með hljómsveitinni og kórar grunn- skóla Reykjavikur syngja. Jón Stefánsson sá um undirbún- ing tónleikanna, en stjómandi er Páll P. Pálsson. Að sögn Jóns Stef- ánssonar var undirbúningnum þannig háttað að tónmenntakenn- umm grunnskólanna voru sendar snældur með þeim verkum sem flutt verða og þeir sáu síðan um að æfa nemendur fyrir tónleikanna. Þannig hafí nemendumir æft verkin í skól- unum áður en þeir mættu til æfíngar með Sinfóníuhljómsveitinni sem fram fór í gær. Með þessu fyrirkomulagi vill hljómsveitin stuðla að því að þátt- taka nemenda í tónleikunum verði almenn og að þeir sem hvorki leika né syngja fái tækifæri til að kynn- ast verkunum sem leikin verða áður en þeir heyra þau á tónleikunum. Að sögn Jóns Stefánssonar hefur Sinfóníuhljómsveitin heimsótt hvem grunnskóla annað til þriðja hvert ár og honum sýndist að áhugi nemenda á skólatónleikunum hefði farið vaxandi á undanfömum ámm. Erfitt en skemmtilegt Blaðamaður Morgunblaðsins hitti þijá unga tónlistarmenn á æfíngu sem fram fór í gær. Ingólf- ur Vilhjálmsson, 11 ára úr Álfta- mýrarskóla, sagðist leika á hrossabrest á tónleikunum, en ann- ars leiki hann á klarinettu. Honum fannst gaman að taka þátt í þessu verkefni og sagðist vel geta hugsað sér að gerast tónlistarmaður i framtíðinni. Ester Brendansdóttir, 10 ára, leikur á fiðlu og píanó og syngur auk þess með Kór Austurbæjar- skóla. Hún sagðist hafa æft á fíðlu í 3 ár og hafa hlustað talsvert á sígilda tónlist. Hún og Sólveig Ein- arsdóttir, sem er 12 ára og einnig í Austurbæjarskóla, voru sammála um að verkin sem þær flytja séu skemmtileg og gaman hefði verið að æfa þau, þótt æfíngamar hefðu verið erfíðar. Verkin sem flutt verða em Ung- verskur dans númer 5 eftir Brahms, Ave veram, Menúett úr sinfóníu númer 39 og Tumi fer á fætur eft- ir W.A. Mozart, Leikfangasinfónían eftir L. Mozart, Ritvélin eftir Leroy Anderson og Á veiðum eftir J. Strauss. Þess má geta að verkin vom samin þegar tónskáldin vom ung, nema Leikfangasinfónían sem faðir W.A. Mozarts samdi fyrir böm. Tvennir skólatónleikar verða í dag, þriðjudag, þeir fyrri verða klukkan 10 í Réttarholtsskóla, og þeir seinni í Fossvogsskóla klukkan 11.30. Á miðvikudag verða tónleik- ar í Breiðagerðisskóla klukkan 10 og í Laugamesskóla klukkan 11.30. A fimmtudag er leikið í Austurbæj- arskóla klukkan 10 og 11.30, og síðustu tónleikamir verða í Hlíða- skóla á föstudag á sama tfma. $ W Ester Brendansdóttir og Sólveig Einarsdóttir úr Morgunblaðið/Emilía Austurbæjarskóla Akureyri: Tíu ára stúlka varð fyrir bíl TÍU ára gömul stúlka varð fyrir bíl á Akureyri sfðdegis í gær. Slysið varð um klukkan hálf fjög- ur á Hlíðarbraut norðan við Austursíðu, en að sögn lögreglunn- ar á Akureyri er ekki vitað nákvæmlega með hvaða hætti það varð. Stúlkan var flutt á sjúkrahús, en ekki er talið að hún hafí slasast alvarlega. Dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir mök við dóttur sína MAÐUR í Reykjavík hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa haft kynferðismök, önnur en samræði, við dóttur sína. Maðurinn, sem er 44 ára gam- all, var ákærður í lok ágúst fyrir að hafa haft kynferðismök, önnur en samræði, við þessa dóttur sína. Þá var hann einnig ákærður fyrir sams konar brot gegn annarri yngri dóttur og fyrir að hafa haft sam- ræði við hana í eitt skipti. Loks var hann ákærður fyrir kynferðismök gegn ungum syni sínum. Sakadóm- arinn taldi ósannað að maðurinn hefði gerst brotlegur gegn yngri dótturinni og syninum og var hann því sýknaður af ákæm að því leyti. Brot mannsins gegn eldri dóttur- inni teljast varða við 1. mgr. 200. greinar hegningarlaganna, sbr. 202. grein sömu laga. Var hann því dæmdur í fjögurra ára fangelsi. Dóminn kvað upp Pétur Guð- geirsson, sakadómari. Sækjandi málsins var Egill Stephensen, full- trúi ríkissaksóknara, en veijandi Jón Oddsson, hæstaréttarlögmaður. Yfir 4.000 tonn brædd fyrstu vik- una á Siglufirði Siglufírði. RÚMLEGA 4.000 tonn af loðnu hafa nú borist á land hér á Siglu- firði á þeirri einu viku sem liðin er siðan byijað var að landa og hefur bræðsla gengið vel. Jón Finsson GK landaði um 1.000 tonnum aðfaranótt mánudagsins og von var á Skarðsvík SH í gærkvöldi með um 700 tonn. Matthías ÞAÐ ER DRAUMUR AÐ S0FA MEÐ B0RÁS Nú þarftu eKKi lengur að Kvíða fyrir þvT að fara í háttinn. Nann er sænskur og alveg frábær, þú verð- ur að prófa hann. B0RÁ5 5ængurfatnaður er sænsk gæðavara úr 100% mjúKri bómull og fæst í öllum helstu heimilis- og vefnaðarvöruverslunum landsins. ENGIN SLAGSMÁL VIÐ K0DDAVERIN B0RÁ5 5ængurfatnaðurinn er nefnilega sér- saumaður fyrir almennileg íslensk heimili. Roddaverin eru 50x70 cm. Engin afgangsbrot sem lafa útaf eða sem verður að troða undir. Eða þá þessi slagsmál við að troða stóra og góða kodd- anum sínum inn í alltof lítið koddaver. NEITAKK! Ég tek sænska B0RÁ5 sængurfatnaðinn fram yfir allt annað - þú líka. borás ■ borá
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.