Morgunblaðið - 03.11.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
21
Morgunblaðið/Guðmundur Ingi Waage
Björgunarsveitarmenn úr Borgamesi hafa hér dregið bátinn á þurrt í fjörunni vestan við bæinn Akra
í Hraunhreppi á Mýrum.
Lítill vélbátur strandar á Mýrum:
Skipbrotsmanni bjarg-
að um borð í þyrlu
Borgarnesi.
Borgarnesi.
VÉLBÁTURINN Helgi ÍS 233
strandaði á skeri út af Skutulsey
á Mýrum um kvöldmatarleytið á
laugardag. Eigandi bátsins,
Kristján Eggertsson, var einn um
borð og var hann sóttur af þyrlu
Landhelgisgæslunnar, TF Sif,
sem flutti hann á Borgarspítal-
ann í Reykjavik. Við strandið
hafði Kristján skollið með höfuð-
ið fram í mælaborðið, en meiðsli
hans voru ekki alvarleg. Aðeins
leið rúm klukkustund frá því að
þyrlan var kölluð út og þar til
hún var aftur lent í Reykjavík.
Landhelgisgæslunni barst til-
kynning um strandið laust fyrir
klukkan 19.00 á laugardagskvöldið
og var TF Sif send á vettvang með
lækni innanborðs. Þyrlan var komin
að bátnum um klukkan 19.40.
Kristján var síðan hífður um borð
í þyrluna og gekk björgunin vel
þrátt fyrir fremur erfiðar aðstæður,
slagveðursrigningu og myrkur. TF
Sif var komin aftur til Reykjavíkur
laust eftir klukkan 20.00.
Björgunarsveitimar á Akranesi
og í Borgamesi vom í viðbragðs-
stöðu þar til að þyrla Landhelgis-
gæslunnar hafði náð manninum úr
bátnum. Var þá ákveðið að fresta
frekari björgunaraðgerðum þar til
á sunnudag vegna veðurs. Strax í
birtingu fóm menn frá Björgunar-
sveitinni Brák í Borgamesi vestur
á Mýrar. Fundu þeir bátinn ekki á
strandstað og óttuðust því að hann
hefði jafnvel brotnað. Við nánari
athugun kom ( ljós að hann hafði
losnað af strandstaðnum utan við
Skutulsey og rekið um 10 kflómetra
gegnum boða og sker þar til hann
tók niðri á svonefndu Akranesi, sem
er sandrif vestan við bæinn Akra í
Hraunhreppi á Mýmm. Báturinn
var nánast óskemmdur og gátu
björgunaraðilar ekið að bátnum á
torfæmbfl sínum og dregið bátinn
á þurrt. Báturinn var síðan fluttur
með vömbifreið til Reykjavíkur.
Talið er að vél bátsins hafi misst
afl vegna óhreininda í olíu og bátinn
því rekið að landi.
TKÞ
Vöruskiptajöfnuður
óhagstæður um IV2
milljarð í september
Vöruskiptajöfnuðurinn í sept-
ember var óhagstæður um
tæplega 1,5 milljarð króna. Á
sama tíma í fyrra var hann óhag-
stæður um 89 milljónir króna á
sama gengi. Alls voru fluttar út
vörur fyrir rúma fjóra milljarða
króna i september en inn fyrir
tæplega 6 milljarða.
Vömskiptajöfnuður var hag-
stæður um 837 milljónir króna
fyrstu níu mánuði ársins. Þá vom
fluttar út vömr fyrir 39,6 milljarða
króna en inn fyrir 38,7 milljarða
kr. fob. Á sama tíma í fyrra var
vömskiptajöfnuðurinn hagstæður
ura 4,6 milljarða á sama gengi.
í fréttatilkynningu frá Hagstofu
íslands kemur fram að fyrstu níu
mánuði þessa árs var verðmæti
vömútflutningsins 15% meira á
föstu gengi en á sama tíma í fyrra.
Sjávarafurðir vom um 78% alls út-
flutnings og vom 16% verðmætari
en á sama tíma í fyrra. Útflutning-
ur á áli var 22% meiri, en útflutn-
ingur kísiljáms var 18% minni en
á sama tíma í fyrra. Útflutnings-
verðmæti annarrar vöm var 14%
meiri, reiknað á föstu gengi, fyrstu
níu mánuði þessa árs en á sama
tíma í fyrra.
Þá segir í tilkynningunni að inn-
fluttar vömr fyrstu níu mánuði
ársins vom 29% verðmætari en á
sama tíma i fyrra. Innflutningur til
álverskmiðjunnar var 8% meiri en
í fyrra, en olíuinnflutningur um 6%
minni en í fyrra. Það sem af er
árinu hafa skipakaup verið mun
meiri en í fyrra, en hins vegar hafa
ekki átt sér stað nein meiri háttar
kaup á flugvélum eða flugvélahlut-
um.
Notaðu
höfuðið!
- þegar þú velur Racquetball spaða. ~
* Útsölustaðir:
SPARTA Laugavegi49, HAGKAUPKringlunni, ÚTILÍFGlæsibæ.
MMAGNÚSSON
S: 62 3636
borás
Bjarni Þ. Halldórsson,
Umboðs og Heildverslun,
Vesturgötu 28 sími: 29877