Morgunblaðið - 03.11.1987, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
Hólmavík
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Hólmavík.
Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 3263
og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í síma
91-83033.
Aliðlunin
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Ármúla 19 -108 Reykjavík - 4? 689877
Bókhalds- og
ritarastöður
Virkt og gamalgróið fyrirtæki í Reykjavíkurborg
óskar að ráða í stöðu aðalbókara, ritara og til
skrifstofustarfa. Ath. góð laun í boði.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu okkar.
Sjáumst.
RAFVEITA HAFNARFJARÐAR
Lokunarmaður
Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða lokunar-
mann með rafiðnaðarmenntun eða aðra
þekkingu á rafmagni sem gerir hann hæfari
til starfsins. Laun skv. launakerfi starfs-
manna Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknum skal skila fyrir 10. nóvember á
sérstökum eyðublöðum til rafveitustjóra sem
veitir nánari upplýsingar.
Rafveita Hafnarfjarðar.
Hafnarfjörður
Smáralundur
Stuðningsfóstra. Fóstra eða þroskaþjálfi
óskast á dagheimilið Smáralund.
Upplýsingar gefur Erla Gestsdóttir, forstöðu-
kona, í síma 54493.
Víðivellir
Stuðningsfóstra. Fóstra eða þroskaþjálfi
óskast á dagheimilið Víðivelli.
Upplýsingar gefur Þórelfur Jónsdóttir, for-
stöðukona, í síma 52004.
Skóladagheimili
Fóstra eða starfsmaður óskast til afleysinga
við skóladagheimilið Kattholt.
Upplýsingar gefa Inga Þóra Stefánsdóttir og
Guðrún Árnadóttir, forstöðukonur, í síma
54720.
Álfaberg
Fóstra óskast til starfa við leikskólann
Álfaberg.
Upplýsingar gefur Júlíana Harðardóttir, for-
stöðukona, í síma 53021.
Arnarberg
Stuðningsfóstra. Fóstra eða þroskaþjálfi
óskast á leikskólann Arnarberg.
Upplýsingar gefur Oddfríður Jónsdóttir, for-
stöðukona, í síma 53493.
Félagsmálastjórinn I Hafnarfirði.
Hárgreiðsla
Hárgreiðslusveinn óskast hálfan eða allan
daginn á hárgreiðslustofu sem opnar um
mánaðamót nóv-des.
Upplýsingar gefur Björk í síma 46333.
Ægisborg
Við í Ægisborg viljum ráða fóstrur og starfs-
fólk til starfa nú þegar. Um er að ræða störf
í sal og við stuðning.
Nánari upplýsingar gefa Elín Mjöll forstöðu-
maður og Auður yfirfóstra í síma 14810.
Blindrabókasafn
íslands
Aðstoðarmann vantar í tæknideild safnsins.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
686922.
Tölvusetning
Vanur starfskraftur óskast nú þegar í tölvu-
setningu. Hálfsdagsvinna kemur til greina.
Há laun í boði fyrir góðan starfskraft.
Tilboð merkt: „Akkur - 2535“ sendist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir 10. nóv. 1987.
Vélfræðingur
Innflutningsfyrirtæki vill ráða vélfræðing til
ýmiskonar starfa.
Leitum eftir vandvirkum og laghentum fag-
manni með starfsreynslu við dieselvélar til
sjós. Aldur innan við 40 ár. Tungumálakunn-
átta, þýska og/eða enska, æskileg.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störí sendist auglýsinga-
deild Mbl. fyrir 7. nóvember merktar: „V -
6124“.
MAX MAX
Margvfsleg störf
Hjá okkur er alltaf mikið að gera og nú viljum
við bæta við starfsfólki í eftirtalin störf:
a) Saumastörf
Störf við saumaskap á fjölbreyttum og vönd-
uðum hlífðarfatnaði.
Vinnutími kl. 8.00-16.00.
b) Bræðsludeild
Vinnsla á 100% vatnsheldum sjó- og regn-
fatnaði fyrir kröfuharða viðskipavini okkar.
Vinnutími kl. 8.00-16.00.
c) Kvöldvakt
Vinnutími mán.-fim. kl. 17.00-22.00.
1. Almenn saumastörf.
2. Bræðsludeild.
3. Sníðastofa.
Öll okkar starfsemi er í MAX-húsinu, Skeif-
unni 15 (einum besta stað í bænum, t.d.
v/strætisvagna).
Launakerfi okkar bjóða betri laun en margan
grunar, og starfsandi í fyrirtækinu er mjög
góður.
Viljir þú slá til og vinna hjá okkur þá líttu við.
Umsóknareyðublöð eru á staðnum.
MAX HF.,
VINNUFATAGERÐ ÍSLANDS HF.
og BELGJAGERÐIN,
leiðandi fataframleiðendur,
Skeifunni 15, sími 685222.
Ertþú?
snyrtileg, með aðlaðandi framkomu, langar
að vinna 2-4 daga í viku, finnst gaman að
umgangast fólk og getur hafið störf strax.
Við leitum að starfskrafti sem er með þekk-
ingu á snyrtvörum og getur unnið sjálfstætt.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Snyrtileg - 6132“.
Atvinna óskast
Laghentur maður, sem hefur stúdentspróf
frá MH, meistararéttindi í rennismíði, sveins-
réttindi í bifvélavirkjun og hefur gert við
rafeindastýrð leiktæki undanfarin ár, óskar
eftir vel launaðri atvinnu.
Þeir atvinnurekendur, sem áhuga hafa, geri
svo vel að senda tilboð til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir föstudagskvöld 6. nóv. merkt: „Stúd-
ent - rennismiður - bifvélavirki - 2537".
Ritari - enska
Stórt iðnfyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða
starfsmann til ritarastarfa. Viðkomandi þarf
að geta unnið sjálfstætt og hafa frumkvæði
til verka. Enskar bréfaskriftir og telexvinna
eru veigamestu hlutar starfsins og þarf við-
komandi að vera fær um að annast allar
bréfaskriftir fyrirtækisins, þar með talið að
semja og svara bréfum og telex á eigin spýtur.
í boði eru góð laun og góð vinnuaðstaða.
Hlutastarf kemur til greina.
Með umsóknir verður farið sem trúnaðarmál
og öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
9. nóvember merkt: „Ritari - enska".
Starfsfólk
í tæknideild
Vegna aukinna verkefna óskum við að ráða
starfsfólk í tæknideild okkar.
Um er að ræða vinnu við verkefni á sviði
skrifstofu- og tölvubúnaðar.
Við leitum að fólki með rafeindavirkja- og/eða
tæknifræðimenntun.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að
skila umsóknum sínum til afgreiðslu Mbl.
merktum: „E - 6131“ fyrir mánudaginn 9.
nóvember nk.
Með umsóknir verður farið sem trúnaðarmál
og þeim öllum svarað.
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10,
sími686933.
^IRARIK
■BL. ^ RAFMAGNSVEITUR RfKISINS
Rafmagnsveitur
ríkisins
óska eftir að ráða rafvirkja við gæslu í stjórn-
stöð byggðalínu á Rangárvöllum á Akureyri
til tveggja ára. Viðkomandi þarf helst að
geta hafið störf 1. desember nk.
Reynsla við rekstur rafveitukerfa er æskileg.
Upplýsingar um starfið veitir svæðisrafveitu-
stjóri Rafmagnsveitna ríkisins á Akureyri.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf sendist svæðisrafveitu-
stjóra á Akureyri eða starfsmannastjóra í
Reykjavík fyrir 15. nóvember nk.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118,
105 Reykjavík.