Morgunblaðið - 03.11.1987, Side 44

Morgunblaðið - 03.11.1987, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987 Málf ræðiþekking við lok gnumskóla í molum í byijun janúar síðastliðinn fól menntamálaráðuneytið þeim Baldri Hafstað, kennara við Kennaraháskóla íslands, og dr. Benedikt Jóhannessyni að gera úttekt á kennslu í íslensku og stærðfræði í framhaldsskólum. I greinargerð frá ráðuneytinu seg- ir að ástæður þessa hafi verið m.a. þær að nánast ekkert eftirlit hefði verið með kennslu í fam- haldsskóium og engar upplýsing- ar legið fyrir um hvernig ástandið væri f raun og veru, en ððru hveiju hefði komið upp veruleg gagnrýni á starfsemi skólanna, til dæmis frá Háskóla íslands. Þá segir í greinargerð menntamála- ráðuneytisins að vitað sé, að ýmislegt hái starfsemi skólanna, meðal annars skortur á hæfum kennurum og hentugum kennslu- gögnum. Könnun þeirra Baldurs og Benedikts fór fram á tímabil- inu janúar til mai á þessu ári og liggja niðurstöður nú fyrir. Sam- kvæmt þeim virðist ástandið í þessum efnum ekki sem skyldi og verður hér drepið á nokkur atriði úr skýrslu Baldurs Hafstað um íslenskukennslu í framhaldsskól- um. Könnunin var framkvæmd þannig að Baldur og Benedikt heimsóttu flesta framhaldsskólana og áttu við- töl við hlutaðeigaijdi kennara og skólastjóra. I erindisbréfí þeirra sagði m.a.: Hvaða námsefni er kennt (í íslensku/stærðfræði) á einstökum námsbrautum framhaldsskólanna og hvemig samrýmist það námsskrá. Einnig er æskilegt að fá umsögn kennara um það námsefni sem notað er svo og viðhorf þeirra til námskrár- innar. Hvemig er kennslunni hagað (ein- staklingsbundin vinna, fyrirlestrar o.s.frv.)? Hvemig er námsmati háttað og hverjar eru prófkröfur? Hvemig er háttað samvinnu við aðra kennara í skólanum og/eða í öðmm skólum? Að mati ráðuneytisins em skýrsl- umar báðar vel unnar og gefa gott yfirlit yfír stöðuna í hvorri grein fyrir sig. Skýrslumar er þó ólíkar, einkum hvað varðar niðurstöður og tillögur til úrbóta, sem orsakast fyrst og fremst af því að í stærðfræði er Gluggað í skýrslu um íslensku- kennslu í fram- haldsskólum gífurlegur kennaraskortur sem ekki er í íslensku. Skortur á góðu kennsluefni Eina af ástæðunum fyrir slakri kunnáttu nemenda í móðurmálinu töldu kennara þá að góðar kennslubækur vantaði í ýmsum greinum og ennfremur kennsluleið- beiningar. Annað atriði sem á við um suma minni skóla er mikil hreyf- ing á kennumm sem leiðir til að festa skapast ekki í kennslustarfínu. Ennfremur er getið um aðstöðuleysi kennara og nemenda. í skýrslunni koma fram efasemdir um aðferðir þær sem beitt er við stafsetningarkennslu. Kennarar telja þó að nemendum fari eitthvað fram á námstíma sínum í fram- haldsskóla, en margir séu þó afar slakir við stúdentspróf. Mæla kenn- arar með að herða tökin, m.a. með könnunarprófum í efri áföngum framhaldsskóla. Tilfinnanlegan skort telja kennarar vera á góðu kennsluefni í stafsetningu. Binda þeir vonir við að athugun, sem nú er unnið að á stafsetningarkunnáttu nemenda í framhaldsskólum, leiði til nýs og bætts kennsluefnis í grein- inni. í einum framhaldsskóla bentu kennarar á að sláandi munur væri á getu nemenda í stafsetningu eftir því úr hvaða grunnskóla þeir kæmu. Tóku þeir dæmi af grunnskóla þar sem lengi hafði verið áhugasamur íslenskukennari, og af öðrum grunn- skóla, þar sem voru sífelld kennara- skipti. Almennt um stafsetningarkennsl- una segir Baldur í skýrslu sinni að núverandi kennsluaðferðir virðist ekki duga til framfara. Hún sé of einangruð í kennslunni, og ekki fylgt eftir í seinni áföngum og meðal ann- arra kennara. Þekkja ekki punkt frá kommu Kennara greinir allmikið á um hvemig haga beri kennslu í mál- fræði. Sumir telja sig sjá nokkum árangur varðandi notkun móður- málsins eftir beinharða málfræði- kennslu. Aðrir halda því fram að málfræðin hafí lítið sem ekkert „yfír- færslugildi" og „málfræðistaglið" sé gagnslaust. Yfirleitt ber mönnum saman um að málfræðiþekking við lok gmnnskóla sé í molum og að ekki sé hægt að ganga út frá for- þekkingu nemenda. Algengast er að heyra kennara tala um að „orð- flokkagreining sé í rúst“ og setn- ingafræðileg kunnátta þannig að menn þekki ekki punkt frá kommu. Einn menntaskólakennari komst svo að orði að við upphaf framhalds- skóla stæðu nemendur eins að vígi og 11 ára böm fyrir 30 ámm. Þá benda kennarar á að nemendum þyki „málfræðistaglið" leiðinlegt, skilji ekki tilgang þess og að tiltölu- lega fáir nemendur séu nógu þroskaðir við upphaf framhaldsskóla til að fást við ýmislegt sem mál- fræðibækumar geyma. Kennarar hafa rætt um að sam- starf þyrfti að vera nánara milli gmnn- og framhaldsskóla í mál- fræðikennslu sem annarri kennslu í móðurmálinu. Hugmyndir hafa kom- ið fram um að í gmnnskóla ætti að einskorða sig við tiltölulega af- markaða málfræðiþætti, raunin sé sú að þar sé margt kynnt en fátt kennt. Niðurstaða Baldurs varðandi mál- fræðina er í stuttu máli sú að ekki hafi tekist að glæða áhuga nemenda á námsgreininni og tengja hana breyttum aðstæðum í framhalds- skólum. Samvinna við gmnnskóla í þessu efni sem öðmm sé allt of lítil. Gott yfirlit yfir íslenskar bókmenntir Samkvæmt skýrslunni virðist ástandi vera einna skást hvað varðar bókmenntakennsluna og að við stúd- entspróf hafí menn fengið allgóða yfírsýn yfir íslenskar bókmenntir. Hins vegar sé lítið lesið af sígildum verkum í íslenskum þýðingum. Fyrst og fremst em fagurbókmenntir lesn- ar. Þrátt fyrir allmikla bókmennta- kennslu heyrast áleitnar raddir um að auka þurfí bóklestur, nemendur geti komist yfír miklu meira en kennarar ætlist til. Lesa mætti fleiri sígild verk í íslenskum þýðingum, og ekki þyrfti að einskorða sig við fagurbókmenntir. Nefnd vom dæmi þess að nemendum hefði þótt lítið til koma að lesa nýútkomna íslenska skáldsögu eftir að hafa lesið sígild verk, íslensk og erlend, á önninni á undan. Aðrir bentu á að í sumum tilfellum gæti reynst heppilegt að stuðla að því að nemendur læsu af- þreyingar- eða spennubækur því til væri fólk sem aldrei hefði lokið við bók þótt komið væri í framhalds- skóla. í tengslum við bókmenntakennsl- una hefur dálítið verið reynt að stuðla að eigin bókmenntasköpun nemenda, þeim til dæmis gefínn kostur á að skrifa ljóð eða smásögu í staðinn fyrir annað verkefni. Svindl í sjálfsvöm f skýrslunni kemur fram að kenn- arar telji að sinna þurfi ritleikni í ríkara mæli en fyrr enda hafí for- svarsmenn Háskóla fslands látið í ljós þá skoðun að mjög marga nem- endur, sem þar hefja nám, skorti tilfínnanlega leikni í að setja mál sitt fram á skýran hátt. Þótt rit- leikni sé ætlað verulegt rúm í nýju námskránni hafa kennarar bent á að þeir sjálfir hafí ekki fengið næga þjálfun í að kenna hana, og ekki sé heldur til nægilegt námsefni. Margir kennarar eru sammála um að hinar svokölluðu heimildaritgerðir hafí gengið sér til húðar í því formi sem þær hafa viðgengist. í fyrsta lagi íþyngi þær nemendum um of vegna þess að þær tíðkist í fleiri námsgreinum en íslensku. í öðru lagi hafí ekki verið staðið nógu vej að kennslu í uppsetningu texta. f þriðja lagi hafí borið á að nemendur hafí notast við annarra manna rit- gerðir til að spara sér vinnu eða einfaldlega af því að þeir ráða ekki við það verkefíii sem ætlast er til af þeim. í skýrslunni er þetta kallað „svindl í sjálfsvöm". Bent er á að tölvubyltingin auðveldi slíkt svindl ef menn standa í því á annað borð og ef eftirliti er ábótavant. í fjórða lagi er bent á að heimildaritgerðir útheimti gífurlega vinnu af hálfu kennarans hvað varðar yfírferð, sem oft sé ekki nógu gagnrýnin og græði þá nemendur lítið á þessari vinnu. Niðurstaða skýrslunnar hvað varðar ritleikni er sú að þrátt fyrir að nemendur hafi í auknum mæli þurft að skrifa ritgerðir í framhalds- skólum virðist þeim ekki hafa farið fram í textasmíð. Vinnsla texta virð- ist ekki vera undir nógu góðu eftirliti kennara, og yfírferð ónákvæm og ómarkviss með tilliti til málfars, stíls og rökfestu. Kennarar eru almennt sammála um að hinn munnlegi þáttur íslenskukennslunnar hafi orðið út- undan í kennslunni, jafnvel þótt í kennsluáætlunum sé gert ráð t.d. upplestri og málfundum. Ástæður fyrir þessu séu einkum tvæn að kennara skorti víða þjálfun til að leiðbeina um efnið og að hópar séu yfírleitt stærri en svo að auðvelt sé við það að fást. Þó er gert ráð fyrir að ástandið muni fara batnandi á næstunni enda sé nú þegar farið að undirbúa námskeið í meðferð talaðs máls og unnið að kennslugögnum auk þess sem hin nýja námskrá geri ráð fyrir aukinni áherslu á mælt mál í öllum íslenskuáföngum. Lítíð samstarf, slæm aðstaða, mikið vinnuálag íslenskukennurum í framhalds- skólunum ber saman um að auka þurfi samstarf við móðurmálskenn- ara í grunnskólum. Einnig hefur verið kvartað undan litlum samskipt- um við Háskóla íslands. Þá kom fram í viðtölum við skólameistara að fagleg samskipti við ráðuneyti hafí ekki verið ýkja mikil á undanf- ömum árum. Þau hafí þó aukist þegar framhaldsskóladeild mennta- málaráðuneytisins var stofnuð og farið var að vinna að samræmingu námsskrár allra framhaldsskóla. Það vekur athygli að mjög víða í skólum virðist nokkuð skorta á að aðstaða til vinnu og náms sé viðun- andi. Víða hafa nemendur ekki afdrep í skólahúsnæði til vinnu utan kennslustunda, aðeins er rúm fyrir örfáa nemendur á lestrarstofum skólabókasafna og litlu fé varið til bókakaupa. Með tilliti til íslensku- náms er þetta óviðunandi, segir f skýrslunni. í skýrslunni kemur fram að mjög hæfír íslenskukennarar hafí sagt skilið við stéttina vegna lágra launa. Aðrir hafí gripið til óhóflegrar yfir- vinnu eða annarra starfa jafnhliða fullri kennslu, og leiði slíkt til „fúsks og starfsafglapa". Þá er bent á að íslenskukennarar hafí sömu kennslu- skyldu og aðrir kennarar þótt fæstir efist um að þeir hafi sérstöðu meðal kennara vegna mikillar heimavinnu. Hvað varðar menntun íslensku- kennara í framhaldsskólum eru langflestir þeirra með tilskildar prófgráður, það er að minnsta kosti BA-próf í greininni og próf í uppeld- is- og kennslufræðum. Hins vegar hafa þeir sjálfír bent á að þeim fínn- ist þá stundum skorta kennsluleikni í ákveðnum greinum. Sumir kennar- Vestmannaeyjar: Dagur öryggis — JC-dagurinn Vestmannaeyjum. JC-DAGUR var haldinn í Eyjum um fyrri helgi. JC-Vestmannaeyjar stóð fyrir björgunar- og öryggistæigasýningu I og við slökkvistöð- ina. Þar sýndu og kynntu fjölmargir aðilar, sem að björgunar- og öryggismálum vinna, hverskyns björgunartæki, þar á meðal sjúkr- bíla, björgunarbíla, slökkvibíla og björgunarbáta. Fjölmargir Eyjamenn og þó sérstaklega yngsta kynslóðin mættu á sýninguna. Á hveiju ári vinna öll JC-félög á fslandi að einu sameiginlegu máli, undir ákveðnu kjörorði. í ár settu JC-menn öryggi landsmanna á odd- inn undir kjörorðinu „Öryggismál". í tilefni dagsins gaf JC-Vestmanna- eyjar út myndarlegt rit, __ helgað öryggismálum bæjarbúa. í ritinu eru greinar um flest er snýr að öryggi Eyjamanna. JC-menn stóðu svo fyrir öryggismálasýningu í og við slökkvistöðina í Eyjum. Þar sýndu þeir aðilar sem vinna að ör- yggi bæjarbúa tól sín og tæki. Meðal þeirra sem stóðu að sýning- 'unni má néfna slökkviliðið, lögregl- una, Hjálparsveit skáta, Björgunar- félagið, Félag farstöðvareigenda, Slökkvitækjaþjónustuna, Stýri- mannaskólann, Vinnueftirlit ríkis- ins og Bátaþjónustuna. Lýstu margir yfír undrun sinni hve mikið væri til af öryggistækjum í Eyjum og voru að vonum örugg- ari með sig á eftir. í ræðum sem haldnar voru af þessu tilefni voru menn sammála að þakka JC-Vest- mannaeyjum fyrir þetta framtak þeirra. Forseti JC-Vestmannayja er Guðrún Erlingsdóttir. — Bjarni Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Fjölmargir aðilar sem að björgunar- og öryggismálum vinna sýndu og kynntu hverskyns björgunar- tæki, þar á meðal sjúkrbila, björgunarbíla, slökkvibíla og björgunarbáta. Pjölmargir Eyjamenn og þó sérstaklega yngsta kynslóðin mættu á sýninguna. 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.