Morgunblaðið - 03.11.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
49
Minning:
Henrik Sigurðs-
son rennismiður
Fæddur 23. október 1940
Dáinn 26. október 1987
{ dag verður jarðsunginn frá
Fossvogskapellu vinur minn, mágur
og veiðifélagi, Henrik Sigurðsson,
sem andaðist aðfaranótt 26. októ-
ber síðastliðins, 47 ára að aldri.
Það er tæpast í mannlegu valdi
að lýsa þeim söknuði og harmi sem
þessi óvænta dánarfregn hefur
valdið okkur öllum sem hann
þekktu, því svo mjög var hann okk-
ur kær.
Henni var fæddur þann 23. októ-
ber 1940 og ólst upp í foreldrahús-
um, fyrst á Laufásvegi 26 og síðar
Laugarásvegi 55 í Reykjavík. Hann
var sonur hjónanna Kristínar Hen-
riksdóttur, Erlendssonar héraðs-
læknis á Höfn í Homafírði, og
Sigurðar Egilssonar, Vilhjálmsson-
ar athafnamanns og forstjóra í
Reykjavík.
Henni var elstur 5 systkina sem
eru auk hans: Helga, Súsanna, Ing-
unn og Egill Vilhjálmur.
Snemma bar á sérstakri hand-
lagni hjá Henna og heillaðist hann
af hverskonar véltæknibúnaði.
Strax á unga aldri var hann iðinn
við að gera brúkleg aflögð heimilis-
tæki og áhöld, sem hann gjaman
gaf systkinum sínum sem leikföng
í bæjarleikinn. Það var því eðlilegt
að leið hans lægi í Iðnskólann, þar
sem hann lauk námi í almennri
vélfræði og rennismíði. Til frekara
náms dvaldist hann eitt ár við
vélsmíðar í Danmörku.
Að loknu námi hóf Henni störf
á renniverkstæði Egils Vilhjálms-
sonar hf. og síðan í umbúðaverk-
smiðjunni Sigurplasti, þar sem hann
sá um rekstur og viðhald véla og
starfaði þar á annan áratug sem
verkstjóri. Ég veit að vöxtur og
viðgangur fyrirtækisins stóð og féll
með atorku og ósérhlífni Henna,
sem vann þar margra manna verk,
oft við erfíð skilyrði.
Fyrir nokkmm árum gekk hann
til liðs við starfsmenn renniverk-
stæðis Egils Vilhjálmssonar hf.,
sem keyptu það og reka nú undir
nafninu vélaverkstæðið Egill hf. og
þar starfaði Henni með félögum
sínum til dauðadags.
Þótt svo Henni kvæntist ekki,
átti hann auðvelt með að blanda
geði við aðra og var bæði félags-
lyndur og skyldurækinn, ekki sfst
í Félagi jámiðnaðarmanna, þar sem
hann lagði dijúgt af mörkum í fé-
lagsbústað þeirra í Kerlingarskarði.
Einmitt þama fóru saman tveir
sterkustu eðlisþættir hans, sem
voru trygglyndi við aðra og einlæg
aðdáun á stórbrotnu landslagi og
náttúru íslands. Hann notaði hvert
tækifæri sem gafst til þess að ferð-
ast, jafnt um sveitir landsins sem
víðáttur óbyggðanna, og þá gjaman
til silungsveiða. Á unglingsárum
starfaði Henni hjá Skógræktinni,
en það hefur ugglaust átt sinn þátt
í að skapa umhyggju hans fyrir
gróðurfari og lífríki landsins og
búið honum þann þekkingarbrunn,
sem reyndist okkur veiðifélögum
hans ótæmandi.
Ég hef sterkan grun um að leið-
ir okkar Henna hafí fyrst legið
saman, þegar ég var 10 ára snáði
hjá Páli Stefánssyni á Þverá við
Laufásveg, í þamæsta húsi við
æskuheimili Henna. Páll átti sögu-
frægan páfagauk sem böm úr
nágrenninu komu að skoða. Ég var
gjaman sendur til dyra og minnist
ég systkinahóps, þar sem bróðir fór
fyrir tveim systrum til að skoða
páfagaukinn. Ég trúi því að þá
hafí ég litið konuefni mitt í fyrsta
sinn, og eftir að við Helga hófum
búskap 15 árum síðar, tengdumst
við Henni órofa vináttuböndum.
Það var með ólíkindum hve víða
við Henni áttum sameiginleg
áhugamál, en af þeim vil ég öðrum
fremur nefna áhuga okkar fyrir
stangveiði og ferðalögum. Þær eru
ógleymanlegar ánægjustundimar
sem við ásamt hinum veiðifélögun-
um höfum átt í veiðiferðum við ár
og vötn síðastliðin 23 ár.
Á þessari kveðjustund er okkur
félögum Henna ljóst, að aldrei
framar munum við eignast þann
sterka og persónulega andblæ í
hópi okkar sem Henni lagði til, og
sem við ef til vill guldum ekki nægi-
lega að verðleikum. Eftir lifír
minningin um góðan dreng, sem
gerði engum manni reikning fyrir
hjálpsemi sína og velvild, og gekk
aldrei svo af mannafundum að eftir
stæði sár mótheiji. Blessuð sé minn-
ing vinar míns og mágs, Henriks
Sigurðssonar.
Fyrir hönd veiðifélaga sendi ég
foreldrum, systkinum og ættingjum
öllum innilegar samúðarkveéjur
með bæn um guðsblessun og líkn
í þungri sorg.
Guttormur P. Einarsson
Vetur er genginn í garð. Ferill
sólar er lækkandi. Laufín falla af
tijánum í haustvindinum. Hringrás
náttúrunnar verður ekki stöðvuð.
Svo er einnig í lífí okkar mann-
anna, en við vitum ekki hvenær
kallið kemur.
Henni, eins og við vinnufélagam-
ir kölluðum hann, vann afmælis-
daginn sinn, föstudaginn 23.
október eins og venjulega hress og
kátur en mánudagsmorguninn eftir
var hann látinn. Utfor hans verður
gerð frá Fossvogskapellu í dag.
Henrik var sonur hjónanna
Kristínar Henriksdóttur og Sigurð-
ar Egilssonar. Henni lærði renni-
smíði á verkstæði Egils Vilhjálms-
sonar hf. og vann þar lengi eftir
það. Hann fór til Danmerkur og
vann þar um tíma, en kom aftur
til starfa hér heima. Sigurplast hf.
naut einnig hans starfskrafta á
tímabili.
Henni var starfandi á renniverk-
stæði Egils Vilhjálmssonar hf. þgar
það var selt í febrúar 1984. Þá
geðist hann meðkaupandi ásamt
vinnufélögum sínum þar og stofnað
var Vélaverkstæðið Égill hf. Henni
helgaði svo þessu nýja fyrirtæki
starfskrafta sína af frábærri elju
og dugnaði til dauðadags. Honum
var mjög annt um að starfsemin
gengi sem best og lagði sitt af
mörkum til að svo gæti orðið. Oft
þurfti að glíma við margbreytileg
verkefni en Henni var útsjónarsam-
ur að sjá ut hvemig þau yrðu best
unnin.
Það verða mikil viðbrigði að sjá
hann ekki lengur við rennibekkinn.
Henni gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum í fyrirtækinu, var m.a. í
stjóm þess þegar hann lést.
Henni var greindur vel og lagði
til margar góðar hugmyndir. Hann
hafði fastmótaðar skoðanir á ýms-
um málum og gat verið fastur fyrir
ef því var að skipta og hélt þá skoð-
unum sínum fram með rökstuðn-
ingi.
Henni var mjög starfssamur og
fjótur til ef á þurfti að halda. Hann
var mjög kappsamur og ætlaði sér
vart af á stundum. Þá var hann
góður félagi og glaðsinna í góðra
vina hópi.
Henni var í Félagi jámiðnaðar-
manna og vann þar ötult starf.
Sérstakan áhuga hafði hann á upp-
byggingarstarfi á jörðinni Kljá í
Helgafellssveit á Snæfellsnesi er
stéttarfélagið á. Undirrituðum em
ógleymanlegar þær mörgu ferðir
er við ásamt fleiri félögum okkar
fórum þangað í bflnum hans. Á
milli þess sem farið var að Kljá
voru vinnuferðir ræddar og verkeftii
skipulögð og undirbúin svo vinnu-
tíminn nýttist sem best þegar að
Kljá væri komið. Henni var mjög
áhugasamur í slíku starfí og tók
af virkum áhuga þátt í þeim verk-
um.
Þegar ákveðnar vom ferðir sem
hann var oft hvatamaður að þá var
hann alltaf til í að leggja til bfl og
bflstjóra. Vinnudagamir vom oft
langir þegar farið var í svona ferð-
ir, frá föstudegi til sunnudags, svo
beið vinnan á verkstæðinu daginn
eftir, en aldrei var kvartað, slíkur
var áhuginn.
Tijáræktin að Kljá tók hug hans
fanginn. Þar var áhuginn síst minni
en á öðmm sviðum en nú getur
hann ekki lengur notið þess með
félögum sínum að sjá þann gróður
dafna í framtíðinni.
Vinnufélagar hans muna góðan
dreng og þakka fyrir samfylgdina,
samstarf og samvinnu alla á liðnum
ámm.
Innilegar samúðarkveðjur til for-
eldra hans, systkina, annarra
skyldmenna og vina.
Vinnufélagar
Óli S. Runólfsson
í dag þegar við kveðjum góðan
vin okkar Henrik Sigurðsson, eða
Henna eins og við vinimir kölluðum
hann, langar okkur með fáeinum
orðum að þakka fyrir allar þær
ánægjustundir sem við áttum með
honum.
Nú er stórt skarð höggvið í okk-
ar litla ferðahóp sem við kölluðum
HBS en þar var Henni ávallt nefnd-
ur kóngurinn, enda alltaf í farar-
broddi og aðalhvatamaðurinn að
flestum okkar ferðum.
Ymsar myndir renna upp í hug-
ann t.d. Henni standandi upp í mitti
úti í Krossá til að leita að vaði og
þegar hann fékk bömin okkar öll
til að tína fyrir sig krækiber og
stormaði svo í næstu ísbúð og bað
um 14 ísa. Þó að liðin séu 14 ár
síðan þetta var, tala bömin ennþá
um beijamóinn sem endaði í ísbúð-
inni. Á þessu má sjá að hann var
ekki bara félagi okkar heldur einn-
ig bamanna okkar.
Henni var mjög hógvær í dag-
legri umgengni og miklaðist ekki
af verkum sínum, en vann verk sín
vel og af kunnáttu.
Það verður erfitt að fara í HBS-
ferðir á komandi ámm, þegar
Henna vantar, en í hugum okkar
verður hann alltaf með okkur, því
að minning um góðan vin lifír, þó
að hann hafí nú farið í sína hinstu
ferð, allt of fljótt.
Foreldrum hans og systkinum
vottum við okkar innilegustu sam-
úð.
Palla, Ósk, Bjössi,
Adda, Valdi og Stjáni.
Gæða ísskápar
Gorenje HDS 201K rúmar 260
lítra. Þar af er 185 litra kælir
og 65 litia djúpfrystir.
Sjálfvirk affrysting.
Hæð 138 cm, breidd 60 cm,
dýpt 60 cm.
Verð aðeins kr.
28.310.
- stgr.
- látið ekki happ úr hendi
sleppa.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 sími 691600
ZentiS
örugg gæði -
6 MISMUNANDI GERÐIR
• KIWISULTA
• BLÁBERJASULTA
• JARÐABERJASULTA
• APRIKÓSUSULTA
• HINDBERJASULTA
• ÁVAXTASULTA BLÖNDUÐ
Heildsölubirgdir:
■ Þ.Marelsson
lii
Hjallavefii 27, 104 Reykjavik
S? 91-37390 - 985-20676
ZENTIS VO'RUR FYRIR VAN'DLATA