Morgunblaðið - 03.11.1987, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. NÓVEMBER 1987
/# Eg handuiss um o& {?ac5
er^E^einhi/ers eiabar pamcL."
.. . að ganga hönd í hönd á
lífsins leið.
gera með heila. Getur þú
sýnt þinn?
Rómúlus mikli
Þakkir fyrir frábæra sýningu
En ég er ekki leikdómari eða og þakklátur leikhúsgestur.
ritskýrandi heldur aðeins ánægður 6983-1931
Samþykkt bjórfrum-
varps er tímaskekkja
Til Velvakanda.
Alveg óvænt var auglýst síðasta
sýning á leikritinu „Rómúlus mikli“
eftir Diirrenmatt, en svo heppilega
vildi til að ég hafði tækifæri til
þess að sjá hana og því kvöldi var
svo sannarlega vel varið.
Mig langar til að þakka Þjóðleik-
húsinu fyrir frábæra sýningu og
þó alveg sérstaklega Rúrik Har-
aldssyni, sem lék Rómúlus mikla,
rómverska keisarann, sem vann
markvisst að því að leggja Róma-
veldi í rúst til þess að stöðva
ódæðisverk þegna sinna út um
heimsbyggðina. Sjálfur var hann
líka reiðubúinn til þess að láta lífið
en var neyddur til að lifa og sjá
fram á að sagan endurtekur sig —
þrátt fyrir góðan vilja einstakra
manna — fóm hans var til einskis.
Textinn var eymayndi og þver-
sagnir og hugdettur höfundar
skoplegar, en vöktu jafnframt til
umhugsunar um stöðu mannsins
og samskipti þjóða.
Til Velvakanda
Enn á ný er í uppsiglingu á al-
þingi frumvarp um bruggun og sölu
á sterku öli hér á landi. Frumvörp
um þetta efni hafa sem betur fer
dagað uppi eða verið felid í þinginu
fram til þessa. Nú leggja enn af
stað flutningsmenn, væntanlega
hugsjónamenn um frelsi og jafn-
rétti (varla hafa þeir fjárhagslegan
ábata af þessu) með bjórfrumvarp
í farteskinu.
Því hefur verið lætt inn í fjöl-
miðla að nú sé meirihluti á þingi
fyrir samþykkt slíks frumvarps.
Þetta er áróður. í dag þekkja menn
mæta vel reynslu nágranna okkar
af sterku öli. Unglingar ánetjast
fyrr o. s. frv., o. s. frv. Ég þarf
ekki að tíunda þetta allt. Við vitum
þetta öll.
Þingmenn góðir. Haldið vöku
ykkar. Látið ekki blekkjast. Kallið
ekki yfír afkomendur ykkar enn
einn vimugjafann til viðbótar í nafni
frelsis og mannréttinda. Það er til
ágætt léttöl og pilsner í landinu.
Samþykkt bjórfrumvarps á alþingi
í dag, með alla okkar vitneskju sem
málið varðar, er tímaskekkja.
Ámi ísleifsson
HÖGNIHREKKVÍSI
„TJ
Víkverji skrifar
Einu sinni varð bflaleigu-
fyrirtækið Avis í Banda-
ríkjunum nánast heimsfrægt
fyrir auglýsingar, þar sem
sagði eitthvað á þessa leið: við
erum bara næststærstir en
þess vegna reynum við að gera
betur. Þessi auglýsing frá Avis
riflaðist upp fyrir Víkveija á
dögunum, þegar hann fór til
útlanda með Amarflugi.
Þetta litla flugfélag hefur
lifað af en tæplega meira en
það og starfar í skugga Flug-
leiða, sem er náttúrlega
margfallt stærra og öflugra
fyrirtæki. Samt er það svo, að
þjónusta um borð í þotu Amar-
flugs er persónulegri og betri
en þjónusta um borð í Flug-
leiðavélum. Sjálfsagt er það
vegna þess, að Amarflug er
lítið fyrirtæki, sem á í harðri
samkeppni við stórfyrirtæki og
reynir því að gera betur á ein-
hverju sviði og það tekst. Þetta
er umhugsunarefni fyrir þá
Flugleiðamenn.
XXX
Svolítið meira um flug. Einn
af viðmælendum Víkveija
keypti flugmiða til Israels á
dögunum. Honum kom það á
óvart, að farseðill frá London
til ísraels var 3000 krónum
ódýrari en farseðill frá
Reykjavík til London. Em far-
gjöld milli Islands og Evrópu
orðin of dýr miðað við það, sem
tíðkast annars staðar?
XXX
Regnboginn sýnir um þess-
ar mundir nýjustu mynd
Woody Allens, sem hann nefn-
ir “Radio days“ eða Daga
útvarps I þessari mynd rifjar
Woody Allen upp þá tíma, þeg-
ar útvarpið var jafn þýðing-
armikið í daglegu lífí fólks eins
og sjónvarpið er nú. Athyglis-
vert er að sjá í þessari mjmd,
að þá hafa allar sömu rök-
semdir verið notaðar gegn
útvarpi og nú er beitt gegn
sjónvarpi. Þá hafa menn haft
sömu áhyggjur af neikvæðum
áhrifum útvarps á daglegt líf
fólks og menn hafa af áhrifum
sónvarps nú.
Annars verður enginn svik-
inn af því að sjá þessa mynd
Woody Allens fremur en aðrar
myndir hans. Víkveiji velti því
hins vegar fyrir sér meðan á
sýningu stóð, hvers vegna það
heyrir til undantekninga, að
áhorfendur í kvikmyndahúsum
séu eldri en þrítugir. Hvers
vegna er það?