Morgunblaðið - 19.11.1987, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1987
75
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLEIKUR
Morgunblaðið/Júlfus
Krlstján Arason lék frábærlega (fyrri hálfleik eins og reyndar allt íslenska
liðið.
Hvað sögðu þeir?
Elnar ÞorvarAarson
„Ég er mjög ánægður með sigur-
inn. í fyrri hálfleik gekk allt upp
hjá okkur í sókn-
inni, en það var
smá kæruleysi til
að byija með^ í
seinni hálfleik. Ég
bjóst við Pólveijum sterkari. Þeir
eiga þó örugglega eftir að leika
betur."
Krlstján Arason
„Ég er mjög ánægður með allan
íeikinn. Við spiluðuð frábærlega
í fyrri hálfleik. Þeir áttu ekkert
svar við stórleik okkar. Þeir verða
örugglega erfíðari á morgun (í
kvöld). Þeir eru ekki þekktir fyrir
að gefast svo auðveldlega upp.“
Þorglis Óttar Mathioson
„Það er ekki oft sem við rúllum
Pólveijum upp. Það gekk bókstaf-
lega allt upp í sókninni í fyrri
hálfleik. í seinni hálfleik spiluðu
við góða vöm og ég er ánægður
með það. Pólveijar léku ekki sinn
besta leik og verða örugglega erf-
iðir við að eiga í seinni leikjunum."
AHroAGIslason
„Þetta var mun betra hjá okkur
en ég bjóst við. Þetta var einn
besti leikur okkar í lengri tíma
ef frá eru taldar fyrstu 10 til 15
mínútumar í seinni hálfleik.
Pólska liðið var gott fyrir utan
markverðina sem ekki áttu sinn
besta dag. Leikurinn á morgun
(í kvöld) verður erfíður því þeir
tapa ekki tveimur leilqum f röð
svona stórt."
Bogdan Kowalczyfc, þjálfarl
„Ég er ánægður með úrslitin. Það
heppnaðist allt hjá okkur ( fyrri
hálfleik. Þessi leikur var betri en
leikimir í Sviss f byijun október.
Ef við eigum að vinna pólska liðið
í kvöld þá verða leikmenn að
leggja sig 100 prósent fram og
einbeita sér að leiknum. Pólveijar
verða mun erfíðari þá.“
Zonon Lakomy, þjálfarl
„íslenska liðið lék frábærlega í
fyrri hálfleik en í seinni náðum
við að hanga f því. Við getum
leikið betur en í þessum leik. Við
emm með mjög ungt lið, meðal-
aldurinn um 23 ár, þetta er eitt
yngsta lið sem Pólveijar hafa teflt
fram. Einar Þorvarðarson, Alfreð
Gfslason og Kristján Arason léku
best íslensku leikmannanna. Þar
em á ferðinni leikmenn J fremstu
röð f heiminum í dag.“
Valur
Jónatansson
skrifar
Goliat var skot
inn á bólakaf
13 skot í röð rötuðu í netamöskva Pólveija
þegar íslendingar unnu auðveldan sigur, 28:21
Wieslaw Goliat, markvörður
Pólverja var ekki öf undsverður
í Laugardalshöllinni f gœr-
kvöldi. Þessi gamalkunni
markvörður, sem hefur leikið
88 landsleiki, var hreinlega
skotinn á bólakaf - þrettán
fallbyssuskot íslendinga f röð
rötuðu í netamöskvana fyrir
aftan hann. íslensku leikmenn-
irnir, sem fóru á kostum, náðu
100% skotnýtingu á 19 mfn.
kaf la í fyrri hálfleik - breyttu
stöðunni þá úr, 0:1, f 13:7 og
lögðu þar með grunninn að
öruggum sigri, 28:21.
Goliat átti ekkert svar við skot-
um íslendinga. Hann bað um
að vera tekinn af leikvelli þegar
Sigurður Sveinsson, sem var þá
búinn að vera inn á
SigmundurÓ. í 32 sek., skoraði,
Steinarsson 16:9. íslensku ieik-
skrifar mennimir vom yfír,
17:11, í leikhléi.
Island - Pólland
28 : 21
Laugardalshðll, vináttulandsleikur (
handknattleik, miðvikudagur 18. nóv-
ember 1987.
Gangur leikains: 0:1, 2:2, 4:2, 7:5,
10:6, 12:6, 14:8, 16:9, 17:11. 19:14,
20:17, 25:17, 25:20, 28:20, 28:21.
Mðrk talands: Alfreð Glslason 7/1,
Páll Ólafeson 6, Kristrján Arason 6/2,
Þorgils Óttar Mathiesen 3, Karl Þráins-
son 3, Sigurður Sveinsson 1, Sigurður
Gunnarsson 1 og Guðmundur Guð-
mundsson 1.
Varin skot: Einar Þorvarðarson 10. 8
langskot, 3 eftir hraðupphlaup, 3 úr
homi og 1 eftir gegnumbrot.
Mörk Pollands: Dziuba 7/8, Wenta
4, Plechoc 3, Bugaj 3, Subocl 1, Lebied-
zinski 1, Lukaszewicz 1 og Pryzewski
1.
Varín skot: Goliat 1 og Robert 5.
Dómaran Bolstad og Anthonsen.
Þeir ráku tslendinga af leikvelli í 8
min. Geir Sveinsson 4, Krístján Ara-
son 2 og Guðmund Guðmundsson
2. Pólveijar voru reknir einu sinni
af velli.
Áhuga- og kwnilaysl
Yfirburðir íslenska liðsins vom svo
miklir í fyrri hálfleik að það kom
engum á óvart þegar þeir sýndu
kæmleysi í seinni hálfleik. Pólveijar
náðu að minnka muninn í þijú
mörk, 20:17, þegar 14 mfn. vom
búnar af seinni hálfleiknum. Þá
settu íslensku leikmennimir aftur á
fulla ferð - komust í 24:17. Pólveij-
ar skomðu þá ekki mark í 11 mín.
Sigur íslands var f ömggri höfti og
lokatölur urðu, 28:21.
Kristjár. Arason fór á kostum í fyrri
hálfleik - skoraði þá mörg gullfal-
leg mörk. Einnig lék Alfreð Gfsla-
son vel. Skoraði falleg mörk og
átti lfnusendingar sem gáfu mörk.
Þessir tveir leikmenn íslands ásamt
Páli Ólafssyni og Einari Þorvarð-
arssyni, sem varði 10 skot, vom
bestu menn íslenska liðsins, sem
hafði mikla jrfírburði í leiknum.
Pólveijar eiga langt í land að kom-
ast aftur í hóp bestu handknatt-
leiksþjóða heims.
Morgunblaðið/Júllus
Karl Þrálnsson skoraði þijú mörk gegn Pólveijum f gærkvöldi. Hér er eitt
þeirra f fæðingu.
Atli Hllmarsson veikur
Frábær nýting
jr
Islenska landsliðið náði frábærri
sóknamýtingu í fyrri hálfleik
gegn Pólveijum. 17 mörk vom skor-
uð úr 22 sóknum, sem er 77.2%
nýting. Nýtingin var ekki eins góð
f seinni hálfleiknum. Þá vom 11
mörk skomð úr 24 sóknarlotum,
sem er 45.8% nýting. Alls vom 28
mörk skomð úr 46 sóknum, sem
er mjög góð nýting, eða 60.8%.
Sigurður Gunnarsson og Sigurður
Sveinsson náðu 100% nýtingu.
Skomðu báðir eitt mark úr einu
skoti. Alfreð Gfslason skoraði sjö
mörk úr átta skotum. Tapaði knett-
inum einu sinni. 77.7% nýting.
Þorgils Óttar Mathiesen skoraði
þijú mörk úr þremur skotum. Tap-
aði knettinum einu sinni. 75%
nýting.
Kristján Arason skoraði sex mörk
úr tíu skotum. 60% nýting.
Páll ólafsson skoraði sex mörk úr
nfu skotum. Tapaði knettinum einu
sinni. 60% nýting.
Karl Þráinsson skoraði þijú mörk
úr þremur skotum. Tapaði knettin-
um einu sinni. 60% nýting.
Guðmundur Guðmundsson skoraði
eitt mark úr tveimur skotum. Tap-
aði knettinum einu sinni. 25%
nýting.
Geir Sveinsson tapaði knettinum
einu sinni og eitt sinn vom dæmdar
tafir á ísland.
Atli Hilmarsson lék ekki með
fslenska landsliðinu gegn Pól-
veijum f gærkvöldi. Hann átti við
veikindi að strfða.
Atli sagði f samtali við Morgun-
blaðið að hann reiknaði ekki með
að geta verið með f kvöld. En vonað-
ist hins vegar til að geta verið með
um helgina.
í kvöld leika íslendingar annan leik
við Pólveija sem hefst kl. 20.80 f
Laugardalshöll. U-21 árs liðið leikur
á undan við ísraelsmenn og hefist
hann kl. 18.30.
KNATTSPYRNA
Einsdæmi í sjö ár
- Bjami fyrsti leikmaðurinn sem hafnartilboði frá Gautaborg síðan 1980
Eins og fram kemur hér á opn-
unni tók Bjami Sigurðsson ekki
ilboði frá IFK Gautaborg, en ákvað
æss í stað að framlengja samning-
inn við Brann.
-rá Bjami er fyrsti leik-
riagnúsi maðurinn sfðan
ngimundarsyni 198O, sem hafnar
tilboði frá IPK
lautaborg. í Svíþjóð var almennt
áð fyrir því gert að Bjami gengi
il liðs við Svíþjóðarmeistarana. A
íþróttasíðu í Aftonbladet í gær
stendur f fyrirsögn „velkominn í
hópinn“ og birt er mynd af Bjama
og Anders Bemmar, formanni
Gautaborgar, þar sem þeir takast
f hendur eftir leik Brann og Gauta-
borgar fyrir skömmu. Bemmar átti
von á jákvæðu svari frá Bjama
þrátt fyrir tilboð Brann, „þvf Brann
hefur ekki upp á sömu tækifæri að
bjóða í Evrópu," er haft eftir form-
anninum.
Gautaborg er besta og vinsælasta
liðið f Svíþjóð og margir leikmanna
liðsins á undanfömum ámm hafa
hafnað hjá ýmsum þekktum liðum
í Evrópu. Liðið stefnir hátt á næsta
keppnistímabili og fer í heimsreisu
eftir áramótin til að undirbúa sig
sem best fyrir komandi átök, en
þess má geta að Jón Karlsson,
bæklunarlæknir, er einn af læknum
liðsins.
Guðmundur ger-
breytti leiknum
Guðmundur A. Jónsson, mark-
vörður úr Pram var hetja
fslenska handknattleikslandsliðsins
skipuðu leikmönnum 21 árs og
yngri, er liðið sigraði landslið Portú-
gals f Laugardalshöllinni f gær-
kvöldi. Lokatölur urðu 27-20 fyrir
ísland, en staðan var 16-16 er Guð-
mundur kom inn á og 20 mínútur
til leiksloka. Guðmundur tók sig til
og hélt hreinu í 14 mínútur, varði
þá 9 skot, öll úr dauðafærum, en
strákamir skoruðu á meðan hvert
markið af öðru. Staðan í hálfleik
var 14-11 fyrir ísland.
Mörk fslenska liðsins dreifðust á
þó nokkra, Héðinn Gilsson skoraði
5, Siguijón Guðmundsson, Skúli
Gunnsteinsson, Gunnar Beinteins-
son og Konráð Olavson skoruðu 4
hver, Ámi Friðleifsson 3, Þorsteinn
Guðjónsson, Bjarki Sigurðsson og
Einar Einarsson eitt hver. tslenska
liðið klúðraði 4 vítaköstum í leikn-
um.