Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
Síðasta sýning á
„Föðurnum“ hjá LR:
Leikararhafa
skilað sínum
hlutverkum
með sóma
- segirSveinn
Einarsson leik-
stjóri verksins
LEIKFÉLAG Reykjavikur sýnir
leikritíð Faðirinn eftír sænska
skáldið Augnst Strindberg í
síðasta sinn f kvöld, sunnudag.
Aðsókn að leikritinu hefur verið
þokkaleg, en hefði mátt vera
meiri, að sögn Sveins Einarsson-
ar sem leikstýrði verkinu.
„Aðsóknin fór hins vegar vax-
andi,“ sagði Sveinn. „Það er ef til
vill blöðunum að þakka því þessi
uppfærsla fékk mjög góða dóma í
þeim. Hins vegar hafa sjónvarps-
stöðvarnar ekki sýnt henni neinn
áhuga og finnst mér það dálftið
undarlegt. Þeir, sem séð hafa sýn-
inguna, hafa látið vel af henni og
er það vissulega ánægjulegt. Þetta
verk hefur gert miklar kröfur til
leikaranna en þeir hafa skilað
sínum hlutverkum með sóma. Nú
eru liðin eitt hundrað ár síðan
Faðirinn var fyrst frumsýndur en
það var f Kaupmannahöfti," sagði
Sveinn.
8JABNI GI5L450*
Morgunblaðið/Ágúst Btöndal
Bjarni Gíslason, báturinn með engin veiðarfæri, aðeins einn
sfldarháf.
Neskaupstaður:
V eiðarfæralaus
á síldveiðum
Neskaupstað.
Á síldarvertfðinni ber margt
skemmtilegt fyrir augu. Fyrir
skömmu kom hér vélbáturinn
Bjarni Gfslason frá Hornafirði
og landaði sfld í bræðslu. Eitt-
hvað þóttí mönnum vanta um
borð f þennan vel hirta og fal-
lega bát og þegar betur var að
gáð kom S ljós að engin voru
veiðarfærin, aðeins einn sfldar-
háfur sem þeir á Bjarna notuðu
til að háfa úr nótum annarra
báta sem fengu stærri köst en
þeir höfðu þörf fyrir.
Eftir þessa löndun var aflinn
orðinn um 300 lestir og sjálfsagt
hefur bæst við síðan. Að sögn
sfldarsjómanna kemur það sér oft
vel að hafa svona fleytu á miðun-
um sem ávallt er iaus og tilbúin
að koma til aðstoðar þeim hinum
sem eru með nótimar úti og þurfa
aðstoðar við.
— Ágúst
Hrafn Gunnlaugsson dagskrársljóri um „Mann vikunnar;
Dagskrárstj óra að
ákveða efni þátta
Ekki vettvangnr fyrir umdeild mál segir, Sonja B. Jónsdóttír
„DAGSKRÁRSTJÓRI er ráðinn
tíl að ákveða um hvað sjónvarps-
þættír fjalla. Þegar dagskrár-
stjóri tekur svona ikvörðun og
umsjónarmaður vreystír sér ekki
tíl að fjalla vtm málið, þótt hann
hafi um það : rjálsar hendur er
ekki annað að :<era en ,tð skipta
um umsjónarmann,' uegir Hrafn
Gunnlaugsson . lagskrárstjóri
innlendrar dagskrárgerðar sjón-
varpsins þegar leitað var álits
hans á gagnrýni á gerð þáttarins
„Maður vikunnar".
ítjóðvijjinn greindi frá pví á fÖBtu-
dag að Ilrafn Gunnlaugsson
dagskrárstjóri !\já Sjónvarpinu hafi
rekið Sonju B. Jónsdóttur frétta-
mann úr starfi. Sonja 'iafi neitað
að vinna að þættinum ;,Maður vik-
unnar" sem Hrafn nafði ákveðið
að skyldi Qalla um Margréti Harð-
ardóttur arkitekt ráðhússins sem
fyrirhugað er að reisa við Reykja-
víkurtjöm. Hún hafi viljað að
þátturinn fyallaði um séra Auði Eir
Vilhjálmsdóttur og dætur hennar
Döllu og Yrsu sem báðar eru
prestvigðar. Hrafn hafí þá rekið
Sonju og ráðið Baldur Hermanns-
son í hennar stað til að gera þátt
um Margréti Harðardóttur.
Sonja starfar enn
sem fréttamaður
Sigrún Stefánsdóttir, sem haft
hefur umsjón með vikulegum þátt-
um um „Mann vikunnar" í Ríkis-
sjónvarpinu, er um þessar mundir
I nokkurra vikna leyfí frá störfum.
Sopja B. Jónsdóttir fréttamaður
hefur í Qarveru hennar haft umsjón
með þáttunum. Egill Eðvarðsson
staðgengill Hrafns í starfí réð Sonju
til starfans. Sonja kveðst hafa lagt
þann skilning i ráðninguna að hún
væri ráðin til að annast þættina
meðan Sigrún væri fjarverandi.
Hrafn segir svo ekki vera, einungis
hafi verið ráðið í ainn þátt í einu.
Þættimir eru unnir á vegum Tnn-
lendrar dagskrárgerðardeildar sem
Hrafn veitir forstöðu en ekki frétta-
deildar þár lem Sopja er vinnur
fullt starf. Sonja hefur meðfram
aðalstarfi aínu gert tvo þætti um
„Mann vikunnar". Hún heldur
áfram starfí við Fréttadeild og vinn-
ur einnig að jiferð tveggja þátta um
menningarmál fyrir Innlenda dag-
skrárgerðardeild þrátt fyrir að hún
hafi nú verið ,.leyst undan því að
vinna við bessa þætti," eins og
Hrafn Gunnlaugsson orðaði það.
„Dagskrárstjóra
að ákveða um hvað
sjónvarpsþættir fjalla“
„Dagskrárstjóri er ráðinn til að
ákveða um hvað sjónvarpsþættir
fjalla. Þegar dagskrárstjóri tekur
svona ákvörðun og umsjónarmaður
treystir sér ekki til að fjalla um
málið, þótt hann hafí um það fijáls-
ar hendur er ekki annað að gera
en skipta um umsjónarmann," sagði
Hrafn Gunnlaugsson. „Eina
pólitíska lyktin sem ég fínn af þessu
máli er það að Sonja, sem er yfir-
iýstur andstæðingur ráðhússins,
hefur þama séð sér leik á borði til
að gera málið tortryggilegt. Hins
vegar vek ég athygli á að ég skrif-
aði í sumar greín I Morgunblaðið
sem ég kallaði „Vartan í Mið-
bænum“. Þar varaði ég við þing-
húsinu og því að reist væm stórhýsi
í Kvosinni. Ég hef ekki tekið af-
stöðu til staðsetningar ráðhússins.
Kynningin var í gangi meðan meðan
ég var við kvikmyndatökur erlendis
f sumar og þetta pólitíska mold-
virðri er nýskollið á. Hins vegar hef
ég séð teikningar af húsinu og ég
er sammála dómnefndarmönnum
um það að þetta er n\jög falleg
bygging. Þetta er eitt ílf fáum
íslenskum arkitektúrverkum sem
mér fínnst virkilega bera af og það
er það sem ég vildi láta varpa ijósi
á >g þennan komunga nrkitekt,
'jjessa ungu konu, sem gæti orðið
oins konar Guðjón Samúelsson
dagsins í dag, því ef af ráðhúss-
byggingunni verður, mun hún setja
jafnmikinn svip á Miðbæinn og
byggingar Guðjón gerðu. Ef menn
vi\ja endilega sjá það í pólitísku
aamhengi, þá er sennilega ekki til
það mál sem ekki er hægt að sjá $
slfku samhengi.
Sonja B. Jónsdóttir kvaðst hafa
litið svo á að hún væri ráðin til að
annast gerð þáttanna um „Mann
vikunnar í fíarveru Sigrúnar Stef-
ánsdóttur. „Eg taldi að þessi þáttur
væri ekki vettvangur fyrir jafnum-
deilt mál og ráðhúsið við Tjömina
er. Þættinum var ætlað var fíalla
um hvunndagshetjur og fínna já-
kvæða og skemmtilega fleti á
málum. Um pólitísk mál, eins og
ráðhúsmálið er orðið, er fíallað af
fréttum og í Kastljósi. Þar var
reyndar rætt við Margréti Harðar-
dóttur fyrir viku sfðan." Soi\ja sagði
að sér hefði fundÍBt sem með því
að fíalla um ráðhúsmálið á þessum
vettvangi væri Sjónvarpinu misbeitt
í pólitísku máli og að þvf hefði hún
ekki viljað standa.
Eftir að Hrafn Gunnlaugson
leysti Sor\ju frá störfum við „Mann
vikunnar" réð hann Baldur Her-
mannsson til að vlnna að þætti um
Margréti Harðardóttur arkitekt.
Þátturinn var á dagskrá í gær-
kvöldi, laugardag.
Sól á heimsenda
Saga eftir Matthías Johannessen
ÚT er komin i\já AB bókin Sól á
heimsenda, saga eftir Matthías
Johannessen. I fréttatilkynningu
sem Morgunblaðinu hefur borist
frá Almenna bókafélaginu kemur
eftirfarandi meðal annars fram:
Ritstörf Matthíasar Johannessens
eru orðin mikil og margvísleg. Ljóð-
skáld er hann þó fyrst og fremst,
en samtalsbækur hans hafa einnig
þótt frábærar og hafa markað tíma-
mót í þeirri bókmenntagrein hér á
landi. Tvö smásagnasöfn hefur hann
einnig sent frá sér, Nítján þætti,
1981 og Konungur af Aragon
1986.
Og enn leggur Matthías á nýjar
leiðir og sendir frá sér alllanga sögu,
sem hann nefnir Sól á heimsenda.
Hlýtur slíkt að vekja athygli hans
fíölmörgu lesenda — hvemig tekst
ljóðskáldinu við sagnagerð?
Sól á heimsenda er 135 bls. að
Matthfas Johannessen
stærð og prentuð og bundin í Prent-
verki Akraness.
Listasafn ASÍ:
Málverkasýning
Tryggva Olafssonar
Tryggvi Ólafsson hefur opnað
málverkasýningu í Listasafni
ASÍ, Grensásvegi 16. Á sýning-
unni er hátt á fimmta tug
málverka, flest frá þessu ári, en
einnig hefur Tryggvi valið nokk-
ur eldri verk sem honum eru
sérstaklega hugleikin og birtast
í listaverkabók um hann, sem
Listasafn ASÍ og Lögberg-bóka-
forlag gefa út.
í fréttatilkynningu frá Listasafni
ASÍ segir einnig: „Tryggvi hefur
fyrir löngu skipað sér sess meðal
virtustu listmálara íslenskra. Hann
var einn af SÚM-hópnum á sfnum
tfma, og á áttunda áratugnum vakti
hann einkum athygli fyrir myndir
sem túlka tilfínningar hans gagn-
vart fréttum af ógnum styijalda
þeirra sem geisuðu í Asíulöndum.
Þær myndir eru meðal þess athygl-
isverðasta og áhrifaríkasta, sem
sést hefur f pólitískri list nú á
tfmum.
Myndefni Tryggva og aðferðir til
þess að koma boðskap sínum á
framfæri hefur breyst mikið frá
þessum tíma. Myndir hans eru full-
ar af táknum, jafnt í lit sem
formum, en á síðustu tímum hafa
formin einfaldast og smáatriðum
er kippt burt svo inntak myndanna
standi eitt eftir.
Tryggvi stundaði nám við Mynd-
lista- og handfðaskóla íslands
1960—61, en flutti síðan til Kaup-
mannahafnar þar sem hann nam
við konunglegu listaakademíuna.
Hann hefur verið búsettur í Kaup-
mannahöfn upp frá því.
Tryggvi hefur haldið um tuttugu
einkasýningar hér heima og í Dan-
mörku. Hann hefur einnig tekið
þátt í hátt á þriðja tug samsýninga
víða um Evrópu.
Sýningin í Listasafni ASÍ verður
opin alla virka daga kl. 16—20 og
um helgar kl. 14—22. Henni lýkur
sunnudaginn 6. desember."
Ríkisútvarpið þjálf-
ar rafeindavirkja
ERFITT hefur reynst fyrir
Ríkisútvarpið og stærri tölvufyr-
irtæki að fá rafeindavirkja til
starfa. Að sögn Magnúsar Hjálm-
arssonar yfirmanns tæknideildar
Rikisútvarpsins, hyggst Rikisút-
varpið halda 18 mánaða nám-
skeið og þjálfa fólk tíl starfa.
Talið er að utanríkisráðuneytið
muni óska eftir að ráða rúmlega
60 rafeindavirkja til starfa við lór-
an- og ratqjárstððvar á næstu árum
þegar fslendingar taka við rekstri
þessara stöðva. Magnús sagði að
því hefði Rfkisútvarpið ákveðið að
reyna nýjar leiðir til að ráða fram
úr þessum vanda. Þörf væri fyrir
fíóra til fímm rafeindavirkja en lítið
framboð af mönnum með þessa
menntun. Innan við tuttugu raf-
eindavirkja útskrifast frá Iðnskól-
anum á ári.
„í stað þess að fá menn sem Iðn-
skólinn hefur inenntað í rafeinda-
virkjun, þá ætlum við að reyna að
fara svipaða leið og víða er farin
erlendis. Auglýst var eftir mönnum
með stúdentspróf og bárust milti
20 og 30 umsóknir. Við ætlum síðan
sjálfír að halda 18 mánaða verklegt
og bóklegt námskeið í rafeinda-
virkjun fyrir þá,“ sagði Magnús.