Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
Hvað er það sem fær 84 börn á aldrinum
6-15 ára til að koma tvisvar í viku í kjallara
Myndlistar-og handíðaskóla íslands við Skip-
holt í Reykjavík og sitja þar tvær kennslu-
stundir í senn? Ónóg eða jafnvel engin
kennsla í myndlist í grunnskólanum og áhugi
forráðamanna og þeirra sjálfra á því að hlúa
að og efla það þroskandi afl sem myndskynj-
un einstaklingsins óneitanlega er.
nglingarnir
hafa sumir
hverjir sótt
þessi nám-
skeið ár eftir
ár og sum
hver sýna því
áhuga að gera einhvers konar
myndmennt að framtíðarstarfi.
Litlu börnin eru frjálsleg og þau
eru þarna bara af því að þeim
finnst gaman, segja þau, en
þegar myndir þeirra eru skoð-
aðar kemur í ijós að þær eru
talsvert frábrugðnar því sem
gerist um myndir barna á
þessu aldursskeiði. Námskeið
Yngstu bömin em sex og sjö ára, taliö frá vinstri: Ótter Mertin Norðfjörð, Katrfn Júlfa Ólafsdóttir, Katrfn
Atladóttlr, Slgrún Dögg Helgadóttlr, Hanna Krlatfn Thoroddsen, Eva E. Thoroddsen og Ævar Bjarnason.
þessi hafa verið fastur liður í
starfsemi skólans um árabil.
Þeim var á sínum tíma komið
á fót svo nemendur í kennara-
deild skóians gætu þjálfað sig
í kennslu en nú hefur fræðsla
myndmenntarkennara flutzt í
Kennaraháskólann. Að sögn
Bjarna Daníelssonar skóla-
stjóra Myndlistar- og handí-
ðaskóla Islands hefur þess
vegna komið til greina að
leggja þessa grein skólastarfs-
ins niður þótt ekki hafi af því
orðið.
„Ég hef ekki viljað leggja
barnadeildina niður," segir
Bjarni, „og það kemur ekki sízt
til af því að þar er veitt tilsögn
í myndmennt sem er mun list-
rænni en sú sem fer fram í
grunnskóla víðast hvar. Til-
sögn eins og þá sem hér fer
fram er hægt að fá víðar, t.d.
hefur Myndlistarskólinn í
Reykjavík verið með sambæri-
Elztu nemendumlr önnum kafnir vlö myndir f tengslum við mannréttlndi, tallö frá vinstri: Eydfs Hauks-
dóttlr, Magnús Quöni Magnússon, Qunnur Róbertsdóttir, Blrgitta Alsop, Herborg Hauksdóttir, Kristfn
Scheving og loks Hrafnhlldur Qunnlaugsdóttir kennari.
Eydfs og Magnús Quöni sem fyrir nokkrum ámm fékk verðlaun f
samkeppni sem efnt var tll f tengslum vlð Scandinavia Today. Verö-
launamyndin var af hátföahöldum f fslenzkri svelt 17. júnf, en myndin
var sföan prentuö sem veggspjald.
Sjálfvalið verkefni um dýr. Hér var sérstök áherzla Iðgö á Ittafrnði.
Myndln er f fmmlltum og efniö er þekjulitur. Þegar dýramyndimar
vom skoðaðar vaktl sérstaka athygli hve formin vom einföld og
sterk. Skjaldbakan er eftlr Óttar Martln Norðflörð sem er sjö ára.