Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 ÁST OG SÁRSAUKI Békmenntir JennaJensdóttir Christine Nöstlinger. Vinur minn Lúki. Þýðandi: Jórunn Sigurðardóttir. Kápumynd: Brian Pilkington. Mál og menning 1987. Höfundurinn er fæddur í Aust- urríki 1937. Hann stundaði nám í grafík við Wiens Akademi en sneri sér fljótlega að ritstörfum. Fyrsta bamabók höfundar, Feuerrote Fri- edrike vakti strax athygli. Lítil, rauðhærð telpa sem býr við háð og stríðni leikfélaga sinna uppgötvar töframátt er felst í hári hennar og með hjálp hans flýr hún inn í kynja- veröld þá er sagan gerist í. Höfundurinn er mjög þekktur og hefur hlotið margs konar viður- Njarðvíkur- kirkja MESSUTILKYNNINGAR frá sókn- arprestinum í Njarðvík brengluðust hér í blaðinu í gær. í Innri-Njarðvík- urkirlq'u verður fjölskyldumessa í dag, sunnudag kl. 11. í Ytri- Njarðvíkurkirkju verður bamastarf kl. 11 í umsjá Sigfríðar Sigurgeirs- dóttur. kenningu og verðlaun fyrir ritverk sín, m.a. þýsku bamabókaverðlaun- in 1973 fyrir söguna Niður með agúrkukónginn og H.C. Andersen- verðlaunin 1984. Vinur minn Lúki kom út 1978. Sagan gerist í Vín og segir aðallega frá táningunum Lúka og Maríönnu, fjölskyldum þeirra, vinum og kenn- umm. Maríanna segir söguna og at- burðarásin einkennist því af tilfinn- ingalegum viðhorfum hennar í vandamálavafstri litríkra daga. Fjölskyldur þeirra Lúka hafa búið í sömu blokkinni frá því táningam- ir vora í bamavagni. Maríanna er einkabam en Lúki á tvö yngri systkini. Móðir Marí- önnu er sálfræðingur og faðir hennar arkitekt. Móðir Lúka er matmóðir mikil og heimili hennar er opið bömum í blokkinni á máltíð- um þegar foreldrar þeirra era ekki heima. Sambandið milli Lúka og Maríönnu hefur verið innilegt, eðli- legt og sjálfsagt frá fyrstu tíð. Að vísu hefur Maríanna verið sterki aðilinn, nánast ráðið öllu, en um leið vemdað Lúka hvenær sem þörf hefur verið. Meira að segja setið með honum í skammarkrók í skól- anum, saklaus sjálf. Skyndileg breyting verður á þessu öllu eftir að Lúki hefur dval- ið í Englandi sumarlangt og þau setjast í áttunda bekk um haustið. Klæðaburður og hegðun Lúka hafa ekki einungis breyst heldur er per- sónuleiki hans orðinn svo ókunnur fyrir Maríönnu að hún veit ekki sitt ijúkandi ráð. Hið uppreisnargjama háttemi Lúka teygir sig inn í skólastofuna og umsjónarkennarinn þeirra „Sól- hlífin", ekki gömul en skapvond, gefst upp. Maríanna erfiðar látlaust í því að leita réttra viðbragða sinna vegn yfirdrifinnar, óskiljanlegrar framkomu Lúka við fólk og um- hverfi allt. Sú vemdartilfinning sem vaxið hefur innra með henni gagnvart Lúka margsærist en næmi hennar skerðist ekki. Samhliða öllu því uppnámi sem hegðun Lúka veldur Maríönnu kemst hún að ýmsu í einkalífi foreldra sinna, sem ókunn- ur maður fræðir hana um án þess að vita að hún er dóttir þeirra. Óviðkomandi því fær Maríanna að vita hjá foreldranum sjálfum að þau era mjög vel fjáð, þótt lífshætt- ir þeirra í blokinni og sparsemi á öllum sviðum beri vott um hið gagn- stæða. Lúki kynnist fullorðinni, ríkri stúlku sem er trúlofuð. Sam- band þeirra leiðir hann út í skulda- fen og misferli. Fortölur og góð ráð era virt að vettugi. En allt tekur enda. Lúki stendur frammi fyrir uppgjöri og hlífðarlausum eftirköst- um. Sjálfsrýni hans í algera umkomuleysi er mætt af skilningi og vináttu hjá Maríönnu er hefur leitað hann uppi. Þýðandi hefur lagt rækt við sinn þátt. Það er vandi að halda hinu sérkennilega samblandi af kímni og alvöra sem felast í stfl höfundarins. ' “*** |j|| ím§:......-...M m"*1 fOvNMiMilÍ ■ ' i //",ý & \ i \ B O F : O R M SKÁPAR ifi) ■ Danska fyrirtækið BOFORM leitar eftir traustum umboðsaðila á íslandi, til að annast sölu á skápasamstæðum fyrir eldhús, baðherbergi, forstofur og skrifstofur. Boformvörur eru þekkt gæðaframleiðsla og því er leitað eftir aðila sem er með sérverslun á þessu sviði þar sem gæði og hönnun eru í fyrirrúmi. Boformfyrirtækið mun annast markaðssetningu á fram- leiðslu sinni, veita trausta þjónustu og ábyrgjast stöðuga vöruþróun. Vinsamlegast hafið samband við: BOFORM OVE SKOU • HASSERISGADE 2 ■ 9000 AALBORG Leikskóli í byggingu. Egilsstaðir: Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson Mikil gróska í byggingastarfsemi EgilflstöAum. MIKIL gróska er í bygginga- starfsemi hér á Egilsstöðum um þessar mundir. Unnið er að upp- steyptu kennsluhúsnæðis Menntaskólans og bygging Safnahúss er að hefjast. Verið er að innrétta hús Dvalarheimilis aldraðra og nýjan leikskóla. Flugleiðir eru að byggja nýja vörugeymslu á Egilsstaðarflug- velli. Auk þess er verið að byrja á allmörgum íbúðarhúsum en nokkur samdráttur hefur verið í byggingu þeirra að undan- förnu. Jafnframt þessu er Egils- staðabær með áhaldahús í byggingu og áformar byggingu sambýlishúss með söluíbúðum fyrir aldraða með tilheyrandi þjónustuaðstöðu. Það má því segja að öll fyrirtæki í byggingariðnaði hafi næg verkefni framundan. Enda hafa menn keppst við í haust til að nýta sem best það einstaklega hagstæða tíðarfar sem hér hefur verið. Hins vegar veldur skortur á iðnaðarmönnum talsverð- um erfiðleikum. Einkum vantar trésmiði og pípulagningamenn en enginn pípulagningameistari starf- ar nú á Egilsstöðum. Þessi skortur á pípulagningameisturum veldur mönnum vissulega áhyggjum og erfíðleikum því fyrír utan mikla vinnu við nýbyggingar áformar Hitaveita Egilsstaða og Fella nú að breyta sölufyrirkomulagi sínu ur sölu um magnhemla yfir í sölu um rennslimæla en við þá fram- kvæmd skapast mikil verkefni fyrir pípulagningamenn. Björn Sveinsson hitaveitustjóri segist ekki sjá fram á annað en til að vinna þetta verk verði að fá aðkomumenn. Guðmundur Pálsson byggingaf ulltrúi. Guðmundur Pálsson, byggingar- fulltrúi á Egilsstöðum, segir það slæmt a hér sé ekki starfandi pípu- lagningameistari því vissulega séu verkefnin næg og slíkum manni yrði tekið fagnandi ef hann flyttist á svæðið annaðhvort Egilsstaði eða Fellabæ. Hér hafi starfað tveir pípu- lagningameistarar þar til í sumar og báðir haft kappnóg að gera fyr- ir sig og sína starfsmenn. Annar hafi horfið að öðram störfum hér á staðnum en hinn farið til náms er- lendis. — Björn. i Anna Margrét Ellasdóttir, Málfríður Vilmundardóttir sem vann fyrstu verðlaun í hárgreiðslu í Frístælkeppninni á Akureyri, Jón Stefnir og Sigrún K. Ægisdóttir. Á myndina vantar Sigurkarl Aðal- steinsson sem hafnaði I fyrsta sæti í hárskurði i Frístælkeppninni á Akureyri. Forsíðukeppni Hárs og fegurðar: Jón Stefnir FORSÍÐUKEPPNl timaritsins Hárs og fegurðar lauk nýverið. Úrslit urðu þau að Jón Stefnir hársnyrtistofunni Saloon Ritz hafnaði í fyrsta sæti, í öðru sæti var Sigrún K. Ægisdóttir hár- greiðslustofunni Hótel Sögu og i þriðja sæti Anna Margrét Elías- fyrstasæti dóttir frá Saloon Ritz. Fyrstu verðlaunin era ferð til New York á Intemational Beauty Show dagana 12.-15. mars á næsta ári. Tímaritið Hár og fegurð hefur staðið fyrir þremur keppnum á þessu ári og hafa keppendur verið á annað hundrað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.