Morgunblaðið - 22.11.1987, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
9
HUGVEKJA
Klókindi
eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON
Það að vera klókur getur hvoru
tveggja verið, að vera hygginn
og að vera slóttugur. Það er hrós-
yrði eða skammaryrði. Lífsbar-
áttan kennir okkur þessi klókindi.
Við segjum það okkur til afsök-
unar um leið og við verðum að
horfast í augu við að klókindin
ná allt of langt. Við erum hætt
að greina á milli þess sem er
rétt og rangt á mörgum sviðum
fjármálaafskipta. Einkum er það
skattauppgjör okkar við ríkið
sem hefiir brenglað hugsun okk-
ar. Viðurkennd eru opinberlega
stórfelld skattsvik einstaklinga
og fyrirtækja sem nemur hundr-
uðum milljóna að talið er og öll
þekkjum við söluskattsvikin: Það
kostar ef þú vilt reikning, annars
er það þetta mikið ódýrara.
Og eitt leiðir af öðru. Um leið
og samvizka okkar slævist gagn-
vart uppgjöri við ríkið, er hætt
við að uppgjör við vinnuveitenda
sljóvgist, tímamir verði fleiri en
unnir eru, veikindafrí tekið til
hins ýtrasta og ef við ráðum yfír
sjóðum er freistingin, að fá sér
lán sem á að endurgreiða síðar.
Öll verzlun virðist fá á sig við-
mót klókinda og svo víða, víða
ná angar þessara viðskipta.
Verðbréf hækka eða falla og allt-
af bætast við nýir möguleikar til
að græða fé, sýna slægð eða
hyggindi, eftir því hvort maður
er gerandi eða þolandi. Þegar svo
klókindin eru allsráðandi í pen-
ingaviðskiptunum, nær hugsunin
til annarra þátta mannlífsins og
ef til vill gjörða einnig. Lifa tvö-
földu lífi í blekkingum frásagna,
endalausum afsökunum með til-
búnum aðstæðum allt til þess að
lifa framhjáhald í hjónabandi,
sem reynt er að leyna.
Þetta byijaði allt með hygg-
indum sem varð að slóttugheit-
um, sem eyðilagði innviðinn og
kjölfestuna, eyðilagði hugsunina
og svæfði samvizkuna.
Það voru klókir menn sem
lögðu á ráð saman. Þeir voru
reyndar oftast ósammála, en
sameinuðust við að reyna að
koma höggstað á Jesú. Þetta
voru Farísear og Heródesar-
sinnar. Þeir ætluðu að flækja
hann í orðum, villa um fyrir hon-
um og sögðu: „Meistari, vér
vitum að þú ert sannorður og
kennir Guðs veg í sannleika og
hirðir eigi um neinn, því að ekki
fer þú að mannvirðingum. Seg
oss því, hvað virðist þér? Leyfíst
að greiða keisaranum skatt eða
ekki?“
Hér var vissulega leið klókind-
anna farin. Byijað að hæla og
smjaðra og sagt þvert um hug
og síðan kom spumingin sem
átti að leiða í gildru, því það var
að þeirra hyggjuviti sama hvem-
ig svarað var, hvom tveggja
myndi leiða til dómsáfellingar.
Jesús svaraði þeim og okkur:
„Greiðið keisaranum það sem
keisarans er og Guði það sem
Guðs er.“
Ef greiðslan til Guðs bregst
hjá okkur hygg ég að allar aðrar
greiðslur bregðist.
Hver er greiðsluskylda okkar
til Guðs? Er hún nokkur? Þannig
spyr ég g bið þig, sem þessar
línur lest að hugleiða svarið.
Hugsaðu um lífið, upphaf þess
og enda, lífshlaup þitt, heimili
og tækifærin öll til að leiða til
góðs, til að gleðja, til að vera þú
sjálfur, heill í hugsun og orði,
samvizkusamur í starfi og trú-
verðugur. Hugsaðu um gleðina
sem er tengd þvf að vera treyst
og reýnast trausts verður. Og
hvað um heilbrigði og heilsu og
alla dagana sem gátu orðið öðm
vísi og dagana sem framundan
■ 23. sd. e.Trin.
Mt. 22; 15.-22.
em, sem geta ráðið úrslitum um
hamingju eða óhamingju.
Vonandi tekst sfjómmála-
mönnum okkar að breyta því
skattakerfí sem við búum við í
dag, þannig að við teljum það
sjálfsagt að greiða ríkinu það sem
ríkisins er. Það þarf meira að
koma til en nýtt staðgreiðsiu-
kerfí og breytt söluskattskerfí.
Endumýjunin þarf að ná til hug-
arfarsins. Við megun gjaman líta
á yfírskrift gjaldmiðilsins, sjá þar
slq'aldarmerki og físka og á seðl-
unum sjáum við þá baráttumenn,
sem lögðu gmnn að velferðar-
þjóðfélagi okkar, sem við emm í
dag að grafa undan með öllum
klókindunum.
Við þurfum að leggja okkur
sjálf á vogarskálina sem vegur
útgjöld okkar, útgjöldin til ríkis-
ins og til Guðs. Við getum reynt
að komast undan því, en það er
aldrei hægt til lengdar. Með ein-
um eða öðmm hætti kemur það
okkur í koll og eitt er víst: Að
síðustu emm við krafín reiknis-
skila. Þá emm við áreiðanlega
spurð um það sem við gerðum
eða létum ógert. Þá verðum við
ef til vill vör við að samvizka
okkar svaf ekki, hún hrópaði, en
henni var samt ekki hlýtt, hún
talaði, en mótrökum var beitt,
hún hvíslaði og við þóttumst ekki
heyra.
Við þessi hinztu reikningsskil
verður engum klókindum, —
hvorki hyggindum né slægð, við
komið. Við verðum spurð um
skil okkar við Drottinn Guð, um
skil okkar við lífíð'og okkar nán-
ustu, við samfélagið og okkur
sjálf.
HER ERU UPPLYSINGAR SEIR SKILA HAGNAÐI
<&
téW'
IBK
w
& \
<»
Sérfræðingar Fjárfestingarfélagsins hafa
ávallt kappkostað að gefa sem gleggstar upp-
lýsingar um alla möguleika varðandi
spamað.
Til marks um það höfum við gefíð út marga
veglega bæklinga. í öllum þessum bækling-
um eru haldgóðar upplýsingar um spamað-
arkosti sem skila þérhagnaði þegar á reynir.
FJARFESTINGARFELAGIÐ
Hafnarstræti 7 101 Reykjavík s: (91) 28566
Kringlunni 103 Reykjavík s: (91) 689700
Allt frá árinu 1976 hefur Fjárfestingarfélagið
verið í fararbroddi í öflugri upplýsingastarf-
semi og faglegri ráðgjöf. Komdu við á verð-
bréfámarkaði okkar í Kringlunni og Hafnar-
stræti 7 og ræddu við ráðgjafa okkar. Fáðu
þér upplýsingabæklinga í leiðinni.
Þú getur einnig hringt eða sent okkur svar-
seðilinn og við sendum þér bæklingana um
hæl.
Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa
Gengi: 20. nóv. 1987: Kjarabréf 2,437 - Tekjubréf 1,275 - Markbréf 1,247 - Fjölþjóðabréf 1,060
SVARSEÐILL
Vinsamlegast sendið mér neðangreinda bæklinga:
□ Kjarabréf □ Verðbréfamarkaðurinn
s □ Tekjubréf □ Fjármálareikningur
I □ Markbréf □ Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Nafn:
Nafiinr.:
Heimili:
Staður: