Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
F AT ASKÁP AR ~|
MARGAR STÆRE(i
HENTA ALLSST
AÐ
VERÐ FRÁ
Kr. 5.901.-
Greiðslukjör
við allra hæfi!
" M ra f* n
LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022
Eitthvað
fyrir þig?
Tölvufræðslan mun í janúar endurtaka hin vinsælu
námskeið fyrir skrifstofufólk sem haldin hafa verið
sl. ár. Um er að ræða þriggja mánaða fjölbreytt nám
í vinnuaðferðum á skrifstofum, með sérstakri áherslu
á notkun PC-tölva, sem nú eru orðnar ómissandi við
öll skrifstofustörf.
í náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagna-
grunnur, töflureiknar og áætlanagerð, tölvubókhald, toll- og
verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við stjórn-
un, uppsetning skjala, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur,
víxlar og verðbréf, íslenska og viðskiptaenska.
Nemendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að
námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki.
NÁMIÐ HEFST 5. JANÚAR 1988
Á skrifstofu Tölvufræðslunnar er hægt að fá bækl-
inga um námið, bæklingurinn er ennfremur sendur
í pósti til þeirra sem þess óska.
Innritun og nánari upplýsingar veittar
í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 23
Pall Þorkelsson
-Minning
Fæddur 17. nóvember 1906
Dáinn 15. nóvember 1987
Okkur langar til að kveðja góðan
vin og starfsfélaga, Pál S. Þorkeis-
son. Palli, eins og við kölluðum
hann, er dáinn. Hann var alltaf til
i að spjalla og taka í spil. í Ræsi
var hádegis- og morgunkaffið fast-
ur punktur. Þá gátum við spilað
við Palla og hina karlana. Ævinlega
var pláss fyrir eina eða fleiri í við-
bót við borðið og spilareglumar
voru yfirleitt miðaðar við aðstæður
hveiju sinni.
Eftirminnilegar eru sendiferðim-
ar sem við fómm með honum. Með
þeim rúntum bjargaði hann okkur
frá daglegum störfum. Vandamálið
var að það mátti bara ein fara með
í einu.
Þó að Páll væri enginn unglingur
þá vann hann fram á síðasta dag
og er óhætt að fullyrða að þannig
vildi hann hafa það.
Við vottum aðstandendum hans
samúð okkar.
Guðrún Helga, Helga Hrönn,
Jóna Pála og Tóta.
Tveim dögum áður en Páll vinur
minn Þorkelsson kvaddi áttunda
tug æfí sinnar sagði hann einnig
skilið við jarðlíf sitt. Rólegur og
yfírvegaður, sem var hans ein-
t
Innilegar þakkir kæru ættingjar og vinir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og bróður,
ÁGÚSTAR OTTÓS JÓNSSONAR
frá Gróf,
Tjarnarbraut 23,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við Guðmundi Benediktssyni lækni og
starfsfólki á deildum 11 og 13 G Landspítalanum. Einnig karlakórn-
um Þröstum fyrir hans framlag við útförina.
I stað þakkarkorta munum við láta andvirði þeirra renna til Krabba-
meinsfélags Islands.
Þóra Bachmann Stefánsdóttir,
Stefán G. Ágústsson, Sjöfn Jónasdóttir,
Jónína Ágústsdóttir, Ragnar Öm Ásgeirsson,
barnabörn og systkinin frá Gróf.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andiát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR,
Sauðhúsvelli,
V-Eyjafjöllum.
Guðjón Sigurðsson,
Þóra Sigurðardóttir,
Jóna Kristín Sigurðardóttir,
Magnús Sigurðsson,
Sigmar Sigurðsson,
Þorberg Olafsson,
Halldóra Jóhannsdóttir,
Einar Ó. Ágústsson,
Jónína Jónasdóttir,
Inga Björg Ragnarsdóttir,
Margrót Jóna Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabamabörn.
t
Alúðar þakkir færum við öllum þeim, sem með hlýju handtaki,
samúöarkveðjum, blómum og krönsum auðsýndu okkur samúð
og virðingu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
EYÞÓRS ÓSKARS SIGURGEIRSSONAR,
Kjarrhólma 36,
Kópavogi.
Hrafnhildur Sveinsdóttir,
dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa,
AÐALSTEINS GUÐMUNDSSONAR,
Dúfnahólum 2.
Garða Jónsdóttir,
Erla Aðalsteinsdóttir, Sigurður Oddsson,
Hinrik Aðalsteinsson, Friðlín Valsdóttir,
Ómar Aðalsteinsson, Eila Stefánsdóttir,
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför bróður míns,
GUNNARS BJARNASEN
frá Vestmannaeyjum.
Anton Bjarnasen.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför föður
míns,
STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR
frá Eystri-Hól f Landeyjum.
Jóhanna Stefánsdóttir
og fjölskyída.
kenni, settist hann í stólinn sinn
og sofnaði svefninum langa. Páll
hafði marga mannkosti, sem veitti
honum vináttu góðra manna. Hann
átti heiða og heiðarlega hugsun,
var sérlega traustur og ábyggilegur
og vann öll sín störf af kostgæfni
og alúð, enda vildu menn ekki missa
hann úr störfum og því þurfti hann
ekki að fara milli vinnustaða á
langri æfí sinni.
Páll var Vestfírðingur, fæddur á
Þúfum í Vatnsfírði, sonur hjónanna
Petrínu Bjamadóttur og Þorkels
Guðmundssonar. Systkinin frá Þúf-
um voru ellefu fædd, þrjú dóu í
bemsku, eftirlifandi nú eru Amdís,
Halldóra, Ingunn og Gunnar. ÖU
voru þau atgervisfólk, farsæl og vel
látin, samfundaglöð og söngvin,
sérstaklega minnist ég þegar þeir
bræður, Páll og Guðmundur, köftiðu
djúpt í bassanum.
Páll stundaði nám á Hvanneyri
árin 1927 til 1929. Halldór skóla-
stjóri vandaði val starfsfólks síns
og byggðist hans búskaparfarsæld
ekki minnst á mannþekkingarhæfí-
leika hans. Páll var ráðinn ársmaður
á Hvanneyri strax að námi loknu
og var þar til dauðadags Halldórs
1936. Hann var bílstjóri staðarins,
enda þarfnaðist bú og skóli mikilla
flutninga á aðföngum og afurðum,
en Halldór seldi vikulega til
Reykjavíkúr margskonar matvæli.
Þegar til Reykjavikur kom réðist
Páll starfsmaður hjá Dósaverk-
smiðjunni við Rauðará, en árið 1944
hóf hann störf hjá bifreiðaverk-
stæði Ræsis og vann lengi við
bílasprautun, sem var eitt vanda-
samasta verk, sem á slíkum stað
var unnið á þeim tíma. Hann skipti
ekki oftar um vinnustað.
Arið 1937 kvæntist hann Sigríði,
dóttur Halldórs skólastjóra, hinni
ágætustu konu. Hún lést 2. nóv.
1956. Þau eignuðust 2 böm,
Tryggva, sem dó á bezta aldri, og
Halldóru, sem giftist Herði Adólfs-
syni, verzlunarmanni í Reykjavík.
Böm þeirra em: Sigríður Þórhalla,
Ema, ívar, Einar Páll, Hörður og
Svava Björg.
Páll verður jarðsunginn í Foss-
vogskapellu mánudaginn 23.
nóvember kl. 1.30. Þar býst ég við
að sjá nokkur eldri andlit Hvanneyr-
inga frá ij'órða tug aldarinnar.
Gunnar Bjarnason
Nú er elsku afí okkar horfínn.
Við kveðjum hann með söknuði
og hugann fullan af ljúfum minn-
ingum. Hann kvaddi svo skyndilega
lífsins amstur. Kraftur og ótrúlegt
þrek fylgdi afa til hinztu stundar
Að geta skilað fullum vinnudegi,
áttræður, er ekki öllum gefíð.
Tryggð hans og hollusta við þá er
hann umgekkst var hans aðals-
merki.
Við höfum engan vitað eins fróð-
an og áhugasaman um landið okkar
eins og afa. Hann tók sér ferð á
hendur sl. sumar norður í land,
gekk um holt og hæðir eins og
unglingur og skoðaði ótal staði.
Ekki var hægt að sjá nein merki
um þreytu, en ánægjan skein út
úr svip hans, svo mjög naut hann
þess að vera úti í náttúmnni.
Við bamabömin og bamabama-
bömin geymum öll minninguna um
Pál afa í hjörtum okkar og biðjum
algóðan Guð um að blessa hann og
varðveita.
Megi hann hvfla í friði.
Sigriður Þórh., Erna, ívar,
Einar Páll, Hörður og
Svava Björg.