Morgunblaðið - 22.11.1987, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
62
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA / UNGLINGAMEISTARAMÓT ÍSLANDS í SUNDI
Morgunblaðið/A.P.
Unglingameistaramótið í sundi fór fram í Sundhöll Reykjavíkur helgina 6. til 8. nóvember. Ágætur árangur náðist í
mörgum greinum. Á myndinni eru sigurvegaramir í 400 m bringusundi stúlkna: Pálína Bjömsdóttir, Vestra, Alda Vikt-
forsdóttir, ÍA og Elsa M. Guðmundsdóttir, Óðni frá Akureyri.
Aðeins 1
a brertir
„Oflugt foreldrafélag
í Bolungarvík"
- segir Hannes Már Sigurðsson
HANNES Már Sigurðsson frá
Boiungarvík var einna sigur-
sœlastur keppenda á þessu
unglingameistaramóti f sundi.
Hann er frá Bolungarvík en
œfir nú í vetur með ÍA, en hann
stundar nú nám við Fjölbrauta-
skólann á Akranesi. Við
spurðum Hannes af hverju
Akranes hefði orðið fyrir valinu
er hann ákvað að fara f lengra
nám.
Aðalástæðan er sú að Hugi
Harðarson, sem nú þjálfar á
rAkranesi, var þjálfari í Bolung-
arvík. Hann er mjög hæfur þjálfari
og ég ákvað þvf að
Andrés koma frekar hingað
Pétursson en að fara t.d. til
skrifar Reykjavíkur. Mér
líkar mjög vel á
Akranesi og það gengur bara
Hinn fímmfaldi sigurvegari, Hannes
Már Sigurðsson.
þokkalega að samræma sundið og
námið.
Það eina sem hægt er að kvarta
yfir er að laugin á Akranesi er svo
lítil að fáir geta æft í einu. Þetta
stendur nú allt til bóta því nú er
verið að byggja stærri laug uppi á
Skaga.“
Hvað varst þú gamall þegar þú
byijaðir að æfa sund?
„Ætli ég hafí ekki verið átta ára
gamall heima á Bolungarvík. Þar
æfa nú um 60—70 kakkar .sund og
er það að öllum líkindum vinSælasta
íþróttagreinin."
Hver er ástæðan fyrir hinum mikla
sundáhuga á Bolungarvík?
„Það var gerð ný laug þar árið
1977. Þá strax fór að myndast
öflugur kjami foreldra, sem studdi
við bakið á krökkunum. Síðan höf-
um við verið heppin með þjálfara
og foreldrafélagið hefur stutt
dyggilega við bakið á sunddeild-
inni.“
Við þökkum Hannesi, þessum
fímmfalda sigurvegara á þessu
unglingameistaramóti, kærlega fyr-
ir spjallið.
„Þetta er spurning um að
skipuleggja sinn tíma“
- segir hin efnilega sundkona Ingibiörg Amardóttir
Fálagi Hugrúnar f landsliðinu
er hin efnilega Ingibjörg Arnar-
dóttir úr Ægi. Hún er eins og
Hugrún aö streöa viö aö ná
Ólympfuiágmörkunum og æfir
þvf jafn mikið og Hugrún. Viö
spurðum Ingibjörgu hvort hún
heföi tfma til aö gera nokkuð
annaö en aö æfa sund?
■ ú, þótt sundið taki ansi mik-
ffS inn tíma þá gefur maður sér
tíma til að gera aðra hluti. Þetta
er bara spuming um að skipuleggja
sinn tíma vel.“
Hvaðan færð þú þennan mikla
áhuga á sundi? „Það er sjálfsagt
frá foreldrum mínum. Þau hafa
stutt vel við bakið á mér og án
þeirra stuðnings hefði ég ekki hald-
ið þetta út. Ég byijaði að æfa sund
11 ára gömul og þetta hafa verið
lærdómsrfk 4 ár sem ég hef æft
sund með Ægi. Hvort ég held áfram
eftir að ólympíuleikunum lýkur
verður tíminn að skera úr um. Fyrst
er það jú að ná lágmörkunum fyrir
Seoul og það er nú það sem mér
er efst í huga núna.“
Við þökkuðum þeim Hugrúnu og
Ingibjörgu fyrir spjallið og óskuðum
þeim velfamaðar í keppnum í
framtíðinni og vonum að þau nái
takmarki sínu að komast til Kóreu
á næsta ári.
Ingibjörg Amardóttir, Ægi.
„Mikilvægt að
klára laugina
á Akranesi"
- segirÁrsæll Þ. Bjamason
íslandsmethafi drengja
ÁRSÆLL Þór Bjarnason frá
Akranesi er einn hinna nýju
efniiegu sundmanna ofan af
Skaganum. Viö spuröum Ársæl
af hverju hann heföi valið sund
sem sfna keppnisfþrótt?
Það má segja að það hafí verið
tilviljun. T gegnum skólasund
var ég hvattur til að byija að æfa
og nú eru það um 2 ár síðan ég
byijaði. Það em um
Andrés 80 krakkar sem æfa
Pétursson 8und á Akranesi,
sktifsr þar af 14 í svoköll-
uðum A-flokki.
Andinn er mjög góður í liðinu og
það er ein aðalástæðan fyrir því að
ég hef haldið áfram að æfa.“
Nú settir þú nýtt íslandsmet
drengja á þessu móti. Hvað rekur
þig áfram til að æfa svona mikið?
„Ætli það sé ekki löngunin að vera
betri en sá næsti. Maður æfír svona
6—7 sinnum á viku og maður verð-
ur að keppa að einhverju til að
halda einbeitninni. Maður verður
að hugsa jákvætt til að ná árangri
í svona íþrótt og andinn í Akranes-
liðinu er það góður að þar næst
alltaf upp jákvæður hugsunarhátt-
ur.“
Hvemig er sundáhuginn á Akra-
nesi?
„Hann er nokkuð góður en mætti
Ársæll Þór Bjamason, ÍA.
vera betri. Það sem helst stendur
okkur fyrir þrifum er að það er
ekki enn búið að koma upp almenni-
legri laug uppi á Skaga þrátt fyrir
fögur loforð. Það er mikilvægt að
laugin verði klámð ef við ætlum
okkur að halda í við keppinauta
okkar annars staðar af landinu."
Við þökkum þessum mikla keppnis-
manni, Ársæli Þ. Bjamasyni, fyrir
spjallið og vonum að hann haldi
áfram að bæta árangur sinn.
Hugrún Ólafedóttir, HSK
„Sundáhuginn
er örugglega
medfæddur“
- segir Hugrún Ólafsdóttirfrá Þoriákshöfn
Ein af okkar efnilegustu sund-
konum er Hugrún Ólafsdóttir
frá Þorlákshöfn. Hún keppir fyrir
íþróttalið staðarins, Þór, en á
Unglingameistaramótinu keppir
hún fyrir Héraðssambandið
Skarphéðin, HSK. Við byijuðum
á því að spyija Hugrúnu hve oft
hún æfír í viku.
„Núna æfi ég tvisvar á dag flesta
daga vikunnar. Þetta verður
svona stfft fram í janúar en þá
fer ég út til að reyna að ná
Ólympíulágmörkunum. Þetta er
auðvitað mjög lýjandi en meðan
áhuginn er fyrir hendi þá heldur
maður áfram."
Hvað heldur þú að þú getir haldið
áfram að æfa svona mikið?
„Ég hef sett markið að komast á
Olympíuleikana f Seoul á næsta
ári og þá þýðir ekkert annað en
að æfa og æfa. Hvað tekur við
eftir það verður að koma í ljós
og fer það sjálfsagt eftir árangrin-
um þangað til.“
Hvað þarf maður að hafa til að
ná langt í sundinu?
„Það er fyrst og fremst að æfa
vel. Sjálfsagt em einhveijir betur
fallnir til þess líkamlega en aðrir,
og svo má sjálfsagt segja að sund-
áhuginn sé meðfæddur hjá sumu
fólki.
Ert þú í þeim hópi?
„Já, ég held ég verði að segja það
því annars hefði ég varla haldið
þetta út svona lengi.“