Morgunblaðið - 06.12.1987, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 11
verðlaun, einhver sagði að fyrstu
verðlaun jafngiltu sem svaraði um
fjörutíu þúsund krónum, auk þess
að verða þess heiðurs aðnjótandi,
að næstæðsti maður ríkisins og föð-
urbróðir súltansins þrýsti hönd
sigurvegaranna og afhenti þeim
sigurlaunin.
En við erum sém sagt enn þama
á leikvanginum og nú líður senn
að hápúnkti dagsins; ræða súltans-
ins er næst á dagskrá, þegar allir
hafa leikið listir sínar og fulltrúar
handverksmanna, þar á meðal tvær
konur, sem hafa þótt sérstakar
hannyrðakonur fengu verðlaun. Svo
reis súltaninn úr sæti og ég fékk
að fikra mig í áttina og taka þessa
einu eða tvær myndir. Ég skildi
náttúrlega ekki baun í bala af ræð-
unni, en hins vegar fékk hún
þvílíkar undirtektir að það var eins
og sjálfur fagnaðarboðskapurinn
væri þama fluttur í fyrsta sinn.
Súltaninn er lágur maður vexti, en
Þjóðsöngurinn var leikinn og svo
hóf hann sig til himins í þyrlunni.
Glæsilegur endapúnktur á virðu-
legri afmælisveizlu.
Þessa daga, 18.-20.nóvember
vom einlæg hátíðahöld, flugelda-
sýningar tilkomumeiri en ég hef
áður séð, boð hjá hinum ýmsu ráð-
hermm og sitthvað sem gestum var
gert til gamans. Mér fannst samt
skemmtilegast, þegar ég fór með
Rosemary Heektor á sérstaka
kvennasamkomu á vegum menn-
ingarráðuneytis’ ,f>etta var haldið
í gríðarstóru tj£ fj' þama hafa ugg-
laust rúmast ; ‘im sex hundruð
konur. A öllum a Iri, í litskrúðugum
fotum og fæsta með hárið skýlt.
Þama var þjóðlagasöngur og dans-
ar og frægast' poppsöngvarinn f
Óman kom frah
En mest kor. mér á óvart að
finna viðbrögð kvennanna. Stöpp-
uðu og klöppuðu, blístruðu stráks-
lega og af fullkomnu hamsleysi.
Litli sigurvegarinn og úlfaldinn hans. Ég veit ekki hvað strákurinn
heitir, en úlfaldinn heitir Óður
Þessir kallar voru að æfa sig að dansa og syngja „ eins og súltanin-
inn vill að við gerum.“
hann virkar mynduglégur í fasi.
Og ég hef aldrei nokkum tíma séð
manneskju með jafn falleg augu.
Röddin virtist dálítið þung og al-
vörugefín. En ég var orðin spennt
að vita, hvað súltaninn var að segja,
því að menn voru sem sagt alltaf
að klappa.
Daginn eftir slógu öll blöðin í
landinu ræðunni upp og töldu hana
marka tímamót. Eitt blaðanna sagði
í fyrirsögn: „í ræðu sinni sagði
hans Hátign: Kæm landar mínir.
Gleðjumst á þessu nýja ári endur-
reisnar okkar." Ég las ræðuna
spjaldanna á milli; að sönnu lýsti
súltaninn því yfir að næsta ár yrði
sérstaklega helgað akuryrkju og
rannsóknum í landbúnaði. Hann
lýsti líka þungum áhyggjum vegna-
þess að áfram héldi stríð írana og
Iraka og hann sagði sömuleiðis frá
því, sem ég held að flestir hafí ver-
ið búnir að frétta, að Háskóla-
sjúkrahúsið væri nú að taka til
starfa. Hann hvatti landa sína til
dáða og þakkaði þeim liðið ár. Ann-
að fann ég nú ekki markvert. En
skoðun mín og Ómana fór sýnilega
ekki saman. Eftir ræðuna ætlaði
fagnaðarlátunum aldrei að linna.
Þær máttu eiga það, að þær tóku
dansstúlkum frá Jórdaníu af fullri
kurteisi, en þegar poppsöngvarinn,
sem ég gleymdi því miður nafninu
á, birtist á sviðinu, ætlaði allt um
koll að keyra. Rosemary hnippti í
mig, stóreyg, hún sagðist aldrei
hafa verið vitni að öðrueins. Að
minnsta kosti ekki í Óman. „Þær
væru ekki svona ef mennimir væru
með þeirn," sagði hún og skríkti
við. Eg hafði haldið, að það væri
vonlaust að taka myndavél með,
mín reynsla af því að taka myndir
af konum í þessum heimshluta,
gæti verið betri. Ég dauðsá eftir
því. Kínversk blaðakona sem skaut
í óðaönn, bæði á áhorfendur og
dansara átti gott kvöld með mynda-
vélinni sinni.
Svo var hátíðahöldunum senn
að ljúka og nú tæki við ferð niður
til Salalah við Indlandshaf. Ég hef
lesið ræðu súltansins til vonar og
vara eftir að ég kom heim, það gat
eitthvað verið milli línanna, sem
mér hafði sézt yfir.
Ég hef ekkert fundið milli
línanna.En ég sný ekki aftur með
það, að hann hafði þessi fallegu
augu.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
framhaldsnámskeid
ámskeiðið er ætlað þeim sem kunna grundvallarat-
Ji við notkun á WordPerfect, en vilja læra að notfæra
ir möguleika kerfisins til fulls.
agskrá:
★ Upprifjun á helstu grundvallaratrriðum
við notkun kerfisins.
★ Hausar og fætur.
★ Fjölvar.
★ Reikningur.
★ Kaflakerfi.
★ Textadálkar.
★ Neðanmálsgreinar og aftanmál.
★ Útprentun á eyðublöð.
Tími: 15.-18. des. kl. 13-16.
BSRB og VR styðja sína félaga til
þátttöku á námskeiðinu.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28
Nú bjóðum við í hádeginu glæsilegt jólahlaðborð fyrir
virkilega gott verð. Aðeins kr. 895,-
Rjómalöguð krabbasúpa, bananasalat, blandað ávaxta
salat m/jógúrtsósu, grafsilungur, reyktur lax, spergilkál-
spaté, gulrótarpaté, grænmetispaté, hrognapaté, fisk-
mousse, jöklasalöt, 4 tegundir af síld, sjávarréttir í
sítrónuhlaupi, fylltar sufflébollur m/sjávarréttagóðgæti,
djúpsteikt hörpuskel, djúpsteiktir rækjuhalar, grísakæfa,
grísarúllupylsa, svínasulta, fiskréttur „au gratin", jökla-
brauð, svart pönnubrauð, munkabrauð, þriggja korna
brauðhleifar, rúgbrauð.
HEITIR
RÉTTIR
DAGSINS
Létlsaltaöograuövins-
hjúpaÖ grísalmi (jólaskinka)
Glóöaöur kjúklingur
Bœjoneskinka
Jólagrisarifjasteik
Hangikjöt
Heilar ogkaldar sósur.
6 tegundir meölceti.
Allar tegundirafBaulu-jóg-