Morgunblaðið - 06.12.1987, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 13
þróun við — breyta landnýtingunni.
en þá er þrautin oft þyngri. Menn
vilja halda fast við gamla siði og
venjur, mönnum er ekki sýnt að
breyta til um ræktunaraðferðir eða
lifnaðarhætti og gömul viðhorf til
efnahags eru lífseig. Þessi síðast-
töldu atriði eru oft miklu erfiðari
viðfangs en sjálf framkvæmd skóg-
ræktarinnar.
Þeir sem skipulagt hafa hjálpar-
starf meðal vanþróaðra þjóða hafa
lengi glímt við spuminguna um
hver þessara þátta vegi þyngst. Á
mynd nr. 2 er ein leiðin rakin.
Pyrst er gengið út frá fjórum hefð-
bundnum framleiðsluþáttum:
Jarðvegi, þekkingu, vinnuafli og
fjármagni, og þeir þættir síðan
raktir sundur eins ogmyndin sýnir.
Reitimir sem afmarkaðir em með
tvöföldu striki tákna þá þætti sem
auðveldast er að fást við og þar sem
bestur árangur hefur náðst. Niður-
staðan er í rauninni sú að einkaeign
á landi gefi betri raun en sameign
og ennfremur að betra sé að land
gangi í erfðir en að það erfíst ekki.
Þetta á við um nýskógrækt. Reitim-
ir sem markaðir em með brotnu
striki tákna það þegar ríkið á skóg-
inn, nýskógræktin er fjármögnuð
með ríkisframlagi. Stundum hefur
gefist vel að hafa þann hátt á.
Til að skýra þetta betur em tek-
in hér tvö dæmi, annað frá Suður-
Kóreu en hitt frá Indlandi.
í Suður-Kóreu vom skógamir
afar illa leiknir eftir heimsstyijöld-
ina síðari og Kóreu-stríðið. I
upphafi áttunda áratugarins ákvað
ríkisstjómin þar að endurreisa
sveitir landsins. Þar var hlutur
skógræktar mjög stór.
í fylkinu Gujarat á Indlandi var
efnt til umtalsverðrar skógræktar
í eigu einstaklinga á áttunda ára-
tugnum með fjárhagsaðstoð Ai-
þjóðabankans, en þar var mikill
viðarskortur, sem nú hefur verið
bætt úr.
Þetta em tvö dæmi um verkefni
sem hafa tekist vel. Menn hafa
rannsakað ferilinn gaumgæfilega
til þess að finna skýringu á þessum
góða árangri. Á mynd nr. 3 er
reynt að bera saman niðurstöður í
þessum tveim dæmum. Þá kemur
reyndar margt svipað í ljós. Til
dæmis þar sem segir í kóreska
dæminu „Byijað á breiðum gmnd-
velli" sem í raun fól í sér samræmda
uppbyggingu í sveitum, svipar til
þess þáttar í Gujarat sem kallast
„Sterkur pólitískur stuðningur".
í báðum dæmunum er mikil
áhersla lögð á almenna þátttöku
og frumkvæði íbúa. Mikilvægi þátt-
anna annars vegar í Kóreu „Tekjur
fljótt" og hins vegar í Gujarat
„Sýnilegur árangur snemma" eru
sambærilegir.
„Aðstoð og ráðgjöf" annars veg-
ar og „Góð tækniaðstoð" hins vegar
eru sömuleiðis sambærilegir þættir.
Loks virðist eignaréttur á landi
og umráðaréttur á framleiðslunni
hafa úrslitaþýðingu í báðum tilvik-
um.
Þessi tvö tilteknu dæmi í Suður-
Kóreu og Indlandi sýna ásamt
mörgum fleirum að hægt er að
stöðva jarðvegseyðingu og græða
land upp að nýju — hægt er að
rækta skóg þar sem hann er horf-
inn — hægt er að breyta landnýt-
ingu og hafa áhrif á ræktunarhætti.
Hins vegar er mikilvægt að
mönnum sé ljóst í upphafi hver eru
markmið með nýskógræktinni og
hvert skal stefna. Ekki er nóg að
fara bara á vettvang og byija að
planta. Plöntun er heldur ekki alltaf
sjálfsögð eða nauðsynleg. Stundum
er bæði ódýrara og fljótvirkara að
endurheimta gróður með friðun,
sérstaklega þegar um er að ræða
vemdar- eða útivistarskóg.
í lok erindisins gerði Márten
Bendz samanburð á aðstæðum hér
á landi og þeim sem algengastar
eru í svokölluðum vanþróuðum
ríkjum heims að þvi er varðar mikil-
vægustu atriði til þess að nýskóg-
rækt megi takast. Hann sagðist þó
ekki nógu kunnugur innviðum
íslensks þjóðfélags til að gera slíkan
samanburð svo verulega marktæk-
ur væri. En þau atriði sem hann
telur skipta hvað mestu máli í þess-
Sjá bls. 14c
iuilia súna ós 19 tgalnyabunM
Barnabókadagskrá
Æskunnar og Ibby
B ARN ABÓKARÁÐIÐ, íslands-
deild IBBY og Bókaútgáfan
Æskan gangast sameiginlega fyr-
ir bamabókadagskrá mánudag-
inn 7. desember kl. 20.30.
Karl Helgason mun rekja útg-
áfusögu barnablaðsins Æskunnar
en á þessu ári eru 90 ár frá því
að blaðið kom fyrst út. Er það þar
með eitt elsta blað sem géfíð er
út á íslandi í dag.
Einnig verður lesið úr þrem
bókum sem koma út hjá Æskunni
nú fýrir þessi jól: Eðvarð Ingólfs-
son les úr bók sinni Pottþéttur
vinur. Hrafnhildur Valgarðsdóttir
les úr bókinni Leðuijakkar og spa-
riskór en handrit hennar að þessari
unglingasögu fékk verðlaun Stór-
stúku íslands fyrr á þessu ári.
Loks mun Stefán Júlíusson lesa
úr bók sinni Ásta litla lipurtá sem
hefur nú verið endurútgefin.
Dagskráin verður haldin í fé-
lagsheimiii templara, Hallarseli,
Þarabakka 3, 2. hæð, suðurdyr.
(Nánar tiltekið í Mjóddinni í Breið-
holti.)
Jólafundur Húsmæðra-
félags Reykjavíkur
HÚSMÆÐRAFÉLAG
Reykjavíkur heldur sinn árlega
jólafund í Domus Medica við
Egilsgötu þriðjudaginn 8. des-
ember nk. kl. 20.30.
Jólafundur Húsmæðrafélags
Reykjavíkur er árviss viðburður
en Húsmæðrafélagið var eitt
fyrsta félagið sem hélt jólafund
fyrir allar bæjarkonur og eru nú
orðin yfír 50 ár síðan fyrsti jóla-
fundurinn var haldinn.
Alla tíð hefur verið vandað til
þessara jólafunda og nú verður
m.a. á dagskrá að Vigdís Einars-
dóttir flytur hugvekju og Bergrós
Jóhannesdóttir les jólasögu. Þá
koma fram 4 einsöngvarar, Ingi-
björg Marteinsdóttir, Einar Om
Einarsson, Eiríkur Hreinn Helga-
son og Stefanía Valgeirsdóttir og
syngja þau við undirleik Guðna
Gunnarssonar.
Þá verður og tískusýning frá
Verðlistanum og sýna félagskonur
fatnaðinn þaðan. Þá verður jóla-
happdrætti og kaffíhlaðborð frá
Veitingahöllinni. Jólafundurinn er
öllum opinn á meðan húsrúm leyf-
ir.
CD PIOIMEER
SJÓNVÖRP
HeIÐAt\
lambiÐ
. i i
'
Nú kynnum við ljúffenga lambakjöts-
rétti í hádeginu á sunnudögum
SUNNUDÁGUR 6. DES»
IIeilsteiktur lambavöðvi meö sveppum, grœnu
blómkáli og hunangssósu.
Gráfikjurjómais.
SUNNUDAGUR 13. DES.
Innbakaóur lambavöövi meö blómkáli, gulrótum
og mintsósu.
Holtsrjómaís.
Verð kr. 695,- fyrir fullorðna
og kr. 350,- fyrir börn.
Njótið hádegis á 'Holti með allrifjölskyldutini.
AUSTURSIRÆII H «542345
i Wffl
K 'Wm' ...kornasi
.éi.t J5Ít9fnu6ÓTg 6b tfyb go .iÖXÍ1£nÖ|B mUBB9(| ÍJlI
MARTIN