Morgunblaðið - 06.12.1987, Page 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
Rætt við
Gunnar Þórðarson
um nýjaog
forvitnilega
plötu hans
„í LOFTINU
Gunnar Þórðarson
í nýja hljóðverinu, þar sem
platan var unnin.
Velþess
að taka áliættuna
„ÞETTA er eins og himnaríki fyrir mig, að vera kominn með
þessa aðstöðu hérna heima,“ sagði Gunnar Þórðarson
tónlistarmaður þegar við sóttum hann heim fyrír skömmu. Gunnar
er hér að tala um nýja hljóðverið, sem hann er búinn að koma
sér upp í risinu heima hjá sér á Ægisgötunni. Síðast þegar ég
ræddi við Gunnar var hann með hljóðfæri sín og upptökutæki í
litlu herbergi á Skarphéðinsgötunni, raunar var herbergið svo
Utið að við komumst varla fyrir tveir í þvi. „Þetta er allt annað
líf, 24 rása „mixer“ í hæsta gæðaflokki miðað við það sem gerist
hér á landi“, segir hann léttur í bragði, enda hefur hann fulla
ástæðu til að vera hress yf ir þessum breytingum á högum sinum.
Fáir íslenskir tónlistarmenn hafa á undanfömum árum eytt meiri
tima í hljóðverum en einmitt Gunnar, bæði við upptökur á
hljómplötum oggerð auglýsinga. Og hann hefur svo sannarlega
ekki setið auðum höndum eftir að nýja hljóðverið kom til sögunnar
því þar hefur hann á síðustu vikum og mánuðum unnið að gerð
nýjustu hljómplötu sinnar „í loftinu". Það hafði kvisast út að
platan sú værí býsna f orvitnileg og ætti eftir að koma mörgum
á óvart. Til að svala forvitni minni í þeim efnum hitti ég Gunnar
að máli skömmu áður en platan kom á markað, hlustaði með
honum á hana og spjallaði við hann um innihaldið.
Þetta er afrakstur
af samvinnu okk-
ar Ólafs Hauks
Símonarsonar,
en við höfum
haft nokkuð náið
samstarf á
síðustu árum,“
sagði Gunnar þegar ég spurði hann
um aðdragandann að gerð plötunn-
ar. „Hann samdi textana og síðan
samdi ég til lögin utan um þá. Þetta
er fyrsta platan mín sem er öll
unnin með þessum hætti. Fram að
„Borgarbrag" var það nær undan-
tekningalaust þannig að ég samdi
lögin fyrst og fékk síðan einhvem
til að gera texta við þau. A „Borgar-
brag“ var það ýmist, að lögin komu
á undan, eða þá textamir. Ég get
hins vegar ómögulega gert upp á
milli hvort- formið mér fínnst þægi-
legra. Þetta er bara spuming um
að koma sér niður á ákveðin vinnu-
brögð og í þessu tilfelli var ákveðið
að hafa þennan hátt á. Það hefði
líka verið illmögulegt að vinna þessa
plötu öðruvísi þar sem hún er byggð
upp á ákveðnu „thema“ þar sem
fjallað er um ljósvakabyltinguna á
Islandi. Þetta er því eins konar
söngleikur þar sem textamir skipta
að sjálfsögðu verulegu máli. Ég
held líka að menn verði að hlusta
á plötuna í heild til að fá eitthvað
út úr henni," segir hann og laumar
síðan út úr sér glottandi: „Þetta er
með öðmm orðum heilsteypt og
metnaðarfullt verk.“
Ég hef einmitt heyrt að þetta sé
þitt metnaðarfyllsta verk til þessa
og eigi eftir að koma mörgum á
óvart. Ertu sammála því?
„Ég hef alla vega lagt mjög mik-
ið í þetta, en sjálfsagt er annarra
að dæma um hvort þetta sé það
metnaðarfyllsta sem ég hef lagt út
í. Raunar er það þannig með flesta,
að yfírleitt finnst þeim sú plata sem
þeir eru að vinna hverju sinni vera
sú besta. Ég get hins vegar tekið
undir það að þessi plata á ömgg-
lega eftir að koma einhveijum á
óvart. Platan flokkast að vísu undir
poppplötu og þar er að fínna ýmis-
legt í þeim dúr, en í mörgum
laganna fer ég ekki hefðbundnar
leiðir. í þeim lögum fer út fyrir
þetta hefðbundna form og var
reyndar búinn að ákveða það fyrir
löngu, að fara ótroðnnar slóðir á
minni næstu plötu. Ég vildi gera
eitthvað annað en þessa dæmigerðu
„gunnaþórðarplötu" og það hef ég
nú gert. Ég er klár á að það eiga
eftir að verða skiptar skoðanir um
tónlistina á plötunni, að minnsta
kosti hluta hennar og reyndar text-
ana líka og það verður spennandi
að sjá hvemig viðtökumar verða.
An.iars er erfitt fyrir mig að leggja
dóm á þetta. Eigum við ekki bara
að setja þetta á svo að þú getir
dæmt um það sjálfur?"
Þú ert í loftinu
Enginn er eyland heitir fyrsta
lagið, sungið af Björgvin Halldórs-
syni. „Þetta er svona samantekt á
innihaldi plötunnar, eins konar efn-
isyfirlit," segir Gunnar. Lagið er
með með þungum takti og grípandi
frösum og að uppbyggingu minnir
það um margt á „Gaggó Vest“.
„Brassið", (samhljómur málmblást-
urshljóðfæra), gegnir veigamiklu
hlutverki í laginu en það er reyndar