Morgunblaðið - 06.12.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 23
Fijálst framtak:
Nýir ritstjórar ráðnir
SVANHILDUR Konráðsdóttir
hefur verið ráðin ritstjóri
Mannlífs og tekur hún við því
starfi af Árna Þórarinssyni sem
verið hefur ritstjóri blaðsins í tvö
ár. Þá hefur íris Erlingsdóttir
tekið við ritstjóm Gestgjafans
af Hilmari B. Jónssyni og Elínu
Káradóttur, sem ritstýrt hafa
tímaritinu frá upphafi.
Svanhildur Konráðsdóttir hóf
störf sem blaðamaður við tímarita-
útgáfu Fjölnis hf. eftir stúdentspróf
en var síðan blaðamaður á DV um
tíma. Frá september 1986 hefur
hún starfað sem ritstjómarfulltrúi
hjá tímaritinu Mannlífi.
íris Erlingsdóttir stundar nám
við lagadeild Háskóla íslands. Hún
dvaldi í Bandaríkjunum árið 1982
og stundaði þar háskólanám í
stjómmálafræði, frönsku og
amerískri sögu við University of
Nebraska-Lincoln. Hún var aðstoð-
armaður hjá dr. Paul Schach
prófessor norrænudeildar Univers-
ity of Nebraska-Lincoln árið 1982
og vann þar meðal annars við þýð-
ingar og prófarkalestur úr ensku,
íslensku og dönsku. Hún var flug-
freyja hjá Flugleiðum á árímurn
1984 til 1987 og dagskrárþulur hjá
ríkissjónvarpinu árið 1985 til 1986.
íris hefur skrifað fasta þætti í
Gestgjafanum um skeið en Hilmar
B. Jónsson mun áfram sjá um fasta
Svanhildur Konráðsdóttir
þætti í tímaritinu.
Nýr ritstjómarfulltrúi hefur verið
ráðinn til Mannlífs og er það Kristín
íris Erlingsdóttir
Ólafsdóttir, sem um árabil hefur
starfað sem blaðamaður hjá Þjóð-
viljanum.
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
POTT-
ÞETTAR
AGOÐU
Allar RING bílaperur
bera merkið (D
sem þýðir að þær
uppfylla ýtrustu
gæðakrðfur E.B.E.
RING bílaperurnar
fást á bensínstöðvum
Skeljungs