Morgunblaðið - 06.12.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 31
Þórhildur Gunnarsdóttir, formaður Lionessuklúbbsins Eir í
Reykjavík (t.v.), afhendir Auði Axelsdóttur, starfsmanni Kvennaat-
hvarfsins, hluta af gjöf klúbbsins til athvarfsins.
Kvennaathvarf-
inu færðar gjafir
frá Lionessum
LIONESSUKLÚBBURINN Eir í
Reykjavík færði Kvennathvarf-
inu að gjöf borðbúnað og eld-
húsáhöld 2. desember sl. Var þar
meðal annars um að ræða matar-
stell fyrir þrjátíu manns, bolla-
pör, potta og önnur eldhúsáhöld.
„Þetta kemur sér mjög vel,“
sagði Auður Axelsdóttir, starfs-
maður hjá Kvennaathvarfinu, í
samtali við Morgunblaðið, „enda
höfðu þær samband við okkur til
að fá upplýsingar um hvað vantaði
helst." Samtök um kvennaathvarf
eiga fimm ára afmæli í dag, og
gengur reksturinn nokkuð vel, að
sögn Auðar. „Þau sveitarfélög sem
við höfum leitað til með fjárbeiðnir,
þar á meðal Reykjavíkurborg, hafa
veitt okkur mjög góða fyrirgreiðslu,
og kunnum við þeim bestu þakkir.
Hins vegar hefur ríkið skorið niður
fjárveitingar til athverfsins á þessu
ári.“
Nýi Álafoss hf.:
Stofnsetur
vmnumíðlun
FORRÁÐAMENN nýja Álafoss
hf. hafa komið á fót vinnumiðl-
un fyrir það fólk, sem ekki fær
endurráðningu hjá fyrirtækinu,
og óskar eftir aðstoð við vinnu-
leit. Við samruna gamla Álaf oss
og Ullariðnaðar Sambandsins
var um 140 manns sagt upp
störfum hjá fyrirtækjunum, um
70 manns á Akureyri og 60
starfsmenn hjá Álafoss f Mos-
fellsbæ.
Hafa tveir starfshópar verið
skipaðir til að vinna að þessu
máli, annar á Akureyri en hinn í
Mosfellsbæ og er Jón Sigurðarson,
forstjóri nýja Álafoss hf., formað-
ur beggja hópanna. Vinnumiðlun-
in vinnur í samráði og samvinnu
við viðkomandi starfsmannafélög
og verkalýðsfélög að þessu verk-
efni.
Náttfari
Sautján sakamál íslensk og
Kjörin bók fyrir þá sem hafa gaman af laglegri fléttu og
drjúgri spennu. Sigurður Hreiðar Hreiðarsson hefúr valið
eða skrifað íslensku málin og þýtt þau erlendu.
Morðið á leigubílstjóranum, Ásmundarsmyglið, Hassið í
kassanum, Einn agnarlítill leðurflipi, Þegar amma gerðist
spæjari, Hittumst í helvíti.
Þessi heiti gefa góða fyrstu vísbendingu um innihald bók-
armnar.
\bók
góð bók
E.BACKHANIS/Á