Morgunblaðið - 06.12.1987, Síða 69
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. DESEMBER 1987
C 69
Bréfkorn
til stjórn-
ar SYR
Hann Tommi er týndur
Tommi, stór og fallegur högni,
fór að heiman frá sér í Snælands-
hverfi í Kópavogi sunnudaginn 15.
nóvember og hefur ekki sést síðan.
Hann er ársgamall, blíður og róleg-
ur og mjög gæfur. Tommi er
gulbröndóttur en hvítur að framan
og á bringunni og maganum, og
hefur hvítar loppur. Þegar hann
hvarf var hann með ljósbláa leðuról
um hálsinn með rauðu merki, þar
sem skráð var nafn hans og síma-
númer. Ef einhver hefur orðið var
við köttinn Tomma eða veit hvar
hann gæti verið niður kominn núna
er sá hinn sami vinsamlegast beðinn
að hafa samband í síma 42139 eða
688943.
Til Velvakanda
Mér finnst vera orðið tímabært
(og þótt fyrr hefði verið) að geta
lélegra samgangna milli Seljahverf-
is annars vegar og Hóla- og Fella-
hverfís hins vegar. Einkum er mér
hugleikið það bága ástand þeirra
fjölmörgu nemenda sem þurfa að
sækja Fjölbrautaskólann í Breið-
holti úr Seljahverfí. Leið 18 ekur
reyndar um Jaðarsel, um kl. 7.30
en skóli hefst hins vegar kl. 8.10,
þannig að það eru um það bil 40
mínútur sem líða frá því að vagninn
fer um Jaðarsel þar til skóli hefst,
en þessi tími nægir hverri bifreið
til þess að aka til Keflavíkur án
þess að ekið sé hratt. Ekki ætti að
þurfa að taka nema um 7 til 10
mínútur að aka frá Jaðarseli að
F.B. Vitað er að sárafáir nemendur
notfæra sér þessa lélegu þjónustu
SVR og ýtir þetta vafalaust undir
það að nemendur fjárfesti ótíma-
bært í bifreiðum um leið og þeir fá
aldur til, þannig að kaup og rekstur
eigin bifreiðar verður fljótt fjár-
hagslegur baggi á þeim og jafnvel
áhyggjuefni. Vil ég nú sicora á
stjóm SVR að gera nú skjóta brag-
arbót á þessari þjónustu við
nemendur búsetta í hverfínu.
Barnakarl í Seljahverfi
Um innf lutning á plöntum
Til Velvakanda.
Vegna fyrirspumar í Velvakanda
þann 13. nóvember sl., um hver
veiti leyfi fyrir innflutningi á plönt-
um, get ég upplýst eftirfarandi:
Innflutningur á plöntum er frjáls,
svo fremi sem þeim fylgja heilbrigð-
isvottorð, gefíð út af réttum aðila
(opinber stofnun í hverju landi). Á
þessu eru þó tvær takmarkanir.
1) Landbúnaðarráðuneytið get-
ur takmarkað innflutning á plöntum
eða plöntuafurðum til að vemda
innlenda framleiðslu af sömu teg-
und.
2) í gildi er bann við innflutningi
á barrtijám frá löndum utan Evr-
ópu.
Reglur um innflutning plantna
em orðnar gamlar og eru nú í end-
urskoðun. Rannsóknastofnun
landbúnaðarins annast framkvæmd
þessara reglna. Stofnunin getur
veitt undanþágur frá kröfunni um
heilbrigðisvottorð. Til þess að
mönnum sé ekki mismunað, hefur
ákveðinni stefnu verið fylgt í þess-
um undanþágum. Ekki er amast
við því þótt farþegar taki með sér
einstaka blómvendi (afskorin blóm).
Farþegum frá Norðurlöndunum er
heimilt að taka með sér einstaka
pottaplöntur (stofuplöntur). Við
búferlaflutninga frá einhveiju
Norðurlandanna er heimilað að
teknar séu með stofuplöntur sem
tilheyra eðlilegri búslóð. Loks er
heimilað að menn taki með sér tak-
markað magn blómlauka frá
Norðurlöndum og Hollandi án vott-
orðs, sé um órofnar verslunar-
umbúðir að ræða.
Ástæðan fyrir því að svo mjög
er takmarkað við Norðurlönd í und-
anþágum er sú, að þau vandamál
(sjúkdómar og meindýr) sem hér
er við að glíma eru svipuð og á
hinum Norðurlöndunum og því
minni hætta á að með plöntunum
berist nýir sjúkdómar eða meindýr.
Þegar ný reglugerð hefur tekið
gildi, sem verður væntanlega á
næsta ári, verður hún kynnt þannig
að sem flestum verði ljóst hvaða
reglur gilda um innflutning á plönt-
um.
Sigurgeir Ólafsson, Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins.
Þesslr hringdu ..
Reiðhöllin -
afléttið
kvöldbanni
Ragnheiður og Ásthildur -
höfðu samband:
„Við grátbiðjum Bobby og Tony
um að halda áfram að fá erlenda
tónlistarmenn til landsins þó tón-
leikar Coek Robin í Reiðhöllinni
hafí ekki verð betur sóttir. Þá
skorum við á yfírvöld að aflétta
banni á tónleika í Reiðhöllinni
eftir kl. 19, því það var að öllu
leyti þessu banni að kenna að
tónleikamir voru svona illa sóttir.
Hvers vegna er ekki bannaður
aðgangur að Lækjartorgi eftir kl.
19? Það eru jafn erfiðar samgöng-
ur milli Lækjartorg8 og t.d.
Breiðholts og Reiðhallarinnar og
Breiðholts eftir að skemmtistaðir
loka.“-
Ráðhúsið er á
viðeigandi stað
Gestur hringdi:
„Ráðhús Reykjavíkur á skilyrð-
islaust að vera á mjög virðulegum
stað og það er alveg tilvalið að
reisa það við Tjörnina. Og enn vil
ég segja eins og ég sagði hér í
Velvakanda þegar Reykjavíkur-
borg átti stórafmæli, að dugur,
dáð og drengskapur hefur jafnan
einkennt störf Davíðs Oddssonar
borgarstjóra."
Stapinn er í
Njarðvík
Bogi Þorsteinsson hringdi:
„Ég var ekki ánægður með
fréttaflutning Moggans af skák-
mótinu sem haldið var í Stapa í
Njarðvík fyrir skömmu því frétta-
menn virtust halda að Stapinn
væri í Keflavík. Ein fréttaklausan
bar meira að segja fyrirsögnina
„Titilveisla í Keflavík" og varð
mér þá nóg boðið. Þessi misskiln-
ingur virtist einnig ríkjandi í
ljósvakafjölmiðlunum."
Eru
stóru-brandaj ól
núna?
Erna hringdi:
„Við erum héma nokkur sem
höfum verið að deila um hvort
jólin núna geti kallast stóm-
brandajól eða hvort þau séu
einungis venjuleg brandajól. Get-
ur einhver þjóðháttafræðingur
upplýst okkur um þetta?"
Dökkbláar buxur
Dökkbláar buxur urðu eftir á
blakmóti í Digranesi 22. nóvem-
ber en hvítur háskólabolur tekinn
í misgripum fyrir þær. Vinsamleg-
ast hringið í síma 97-71139.
Svört taska
Stór svört taska með litlum skó
hangandi á hliðinni tapaðist f
Hollywood hinn 21. nóvember.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hafa samband við Sigríði í síma
22480 frá kl. 8 til 17.
„ Fyrsti varctíbrsct'irtn okkar."
Varðar ekkert um sfðustu
ósk þfna um vélbyssu.
HÖGNI HREKKVÍSI
*»V