Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.12.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 289. tbl. 75. árg._______________________________LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Æðisgengnar Gert Gijdssen dómari og þeir skákmeistaramir, Garrí Kasparov og Anatólíj Karpov, bera hér saman bækur sínar eftir að síðasta skákin í heimsmeistara- einvíginu fór í bið. Karpov var í óskaplegu tímahraki, Reuter lokasekúndur hafði aðeins tæpa mínútu á síðustu átta leikina, og sauð upp úr meðal áhorfenda þegar héldu fyrir misskilning, að hann hefði ekki náð mörkunum. Grænland: Vaxandi áhyggjur af alnæmi Nuuk. Frá N J. Bruun, fréttaritara Morg- unblaðsins. í Grænlandi hafa menn vaxandi áhyggjur af útbreiðsiu alnæmis þar í landi en nú hafa tveir menn bæst í hóp smitaðra og eru þá sjö alls. Er einn kominn með öll sjúk- dómseinkenni og er þar um að ræða ínúfta, þann fyrsta, sem sýk- ist af sjúkdómnum. Ole Groth, yfirlæknir sjúkrahúss- ins í Nuuk, segir, að allt fram á síðasta sumar hafi vísindamenn talið, að af erfðafræðilegum ástæðum væri fnúftum lítt hætt við að sýkjast af alnæmi jafnvel þótt þeir smituðust af því. Jens Misfeldt, landlæknir á Grænlandi, segir, að ástæða sé til að óttast skjóta útbreiðslu sjúk- dómsins í landinu og bendir á, að sárasótt sé þar 700 sinnum algeng- ari en í Danmörku. Smithættan sé mikil enda lauslæti mikið meðal ungs fólks. Bandaríkin: Sovéskum sendimanni vísað burt Washington, Reuter. SOVÉSKUM sendimanni hjá Sam- einuðu þjóðunum var í gær vísað frá Bandaríkjunum og honum gefið að sök að hafa „misnotað stöðu“ sína. Er það orðalag jafnan notað um njósnir. Charles Redman, talsmaður ut- anríkisráðuneytisins, sagði, að Mfkhaíl Katkov, öðrum ritara við sovésku sendinefndina hjá SÞ, hefði verið skipað að koma sér burt úr landinu hið bráðasta þar sem hann hefði misnotað stöðu sína og verið „staðinn að verki" í New York í fyrradag. Brottrekstur Katkovs á sér stað þegar aðeins vika er liðin frá því að leiðtogar ríkjanna undirrituðu sam- . komulag um útrýmingu skamm- og meðaldrægra kjamorkueldflauga, en á þessu stigi þykir ólíklegt, að brottvísunin hafi alvarlegar afleið- ingar fyrir samskiptin. Bandaríkin: Þingnefndir ákveða nýjar skattaálögur Skimað eftir kafbátum. Svíþjóð: Kafbátaferð- unum fækk- ar ekkert Stokkhóimi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. ÖRUGGAR sannanir eru fyrir þvf, að ókunnir kafbátar hafa margsinnis farið inn fyrir sænska lögsögu á þessu ári. Kemur þetta fram f nýrri skýrslu frá Bengt Gustafsson, yfirmanni sænska hersins. Er ekki sagt berum orð- um, að Sovétmenn eigi f hlut en Carl Bild, leiðtogi Hægriflokksins, segir ástæðulaust að vera með feluleik f því efni. Á þessu ári hefur 30 sinnum verið skýrt frá ókunnum kafbátum við Svíþjóð og er enginn vafi talinn leika á um tfu tilfelli. Hafa vélarhljóðin verið tekin upp, ummerki eftir kaf- báta hafa fundist á sjávarbotni og náðst hafa myndir af sjónpípum. Níkolaj Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, er væntanlegur til Stokkhólms 11. janúar nk., og hafa talsmenn borgaraflokkanna krafist þess, að Ingvar Carlsson forsætisráð- herra tali tæpitungulaust við hann um kafbátsferðimar. Varð til að stöðva gengisfall dollarans og valda mikilli hækkun í Wall Street Washíngton, London, Reuter. Skattanefndir beggja deilda Bandarikjaþings hafa orðið sammála um að hækka skatta á næstu tveimur árum um 23 milljarða doll- ara. Varð þessi ákvörðun til að stöðva gengisfall dollarans, í bili að minnsta kosti, og f Wall Street hækkuðu hlutabréf mikið f verði. Skattahækkanimar koma í fram- haldi af samkomulagi þingsins og ríkisstjómarinnar um að minnka íjárlagahallann um 76 milljarða dollara á tveimur ámm. Verða skattamir hækkaðir um níu millj- arða dollara á næsta ári en um 14 árið 1989. Lenda þeir að mestu.á fyrirtækjum og felast að sumu leyti í breyttum bókhaldsreglum. Þá verða ríkisútgjöld einnig lækkuð, skattaeftirlit hert og ríkiseignir seldar. Áhyggjur af vaxandi fjár- laga- og viðskiptahalla í Banda- ríkjunum áttu mestan þátt í verðhruninu, sem varð í október sl. Ronald Reagan forseti hótaði í gær að beita neitunarvaldi gegn útgjaldaafgreiðslu þingsins og með- fylgjandi ráðstöfunum í skattamál- um ef þingmenn héldu sig ekki við samkomulag þings og stjómar um niðurskurð. Pulltrúar beggja þing- deilda em nú að fjalla um 600 milljarða dollara útgjaldafmmvarp, það hæsta í sögunni, til að ríkis- stofnanir geti starfað eðlilega út Qárlagaárið. Þegar viðskipti hófust í kauphöll- inni í Tókýó var gengi dollarans lægra en nokkm sinni fyrr, 125,55 jen fyrir dollarann, en hækkaði nokkuð þegar fréttir bámst um skattahækkanasamkomulagið í Washington. Fréttimar höfðu einn- ig þau áhrif í Wall Street, að Dow Jones-vísitalan hækkaði um 50,90 stig í gær og hefur þá hækkað um 108 stig í vikunni. Er það mesta hækkun, sem um getur á einni viku. Haft var eftir heimildum í Bonn í gær, að leiðtogar sjö-ríkja-hópsins svokallaða hefðu ræðst mikið við í síma um nánari samvinnu í efna- hagsmálum, en ekkert hefur enn verið ákveðið með fund eða sameig- inlega yfirlýsingu. Reuter Þær eru dálftið hugsi þessar starfsstúlkur í kauphöllinni f Tókýó, enda var gengi dollara gagnvart jeni lægra en nokkru sinni fyrr þegar viðskiptin hóf- ust. Síðasta skákin heimsmeistaraeinvíginu í bið: Ahorfendur öskruðu og veinuðu af hugaræsingu Kasparov á örlitla sigurvon — Karpov nærri fallinn á tíma Sovilía. Reuter. SÍÐASTA skákin f einvfgi þeirra Garrfs Kasparov og Anatólíjs Karpov um heimsmeistaratitilinn f skák fór í bið f gær og var Kasparov talinn hafa dáUtlar sigurlfkur. Við borð lá, að Karpov félli á tíma og var spennan meðal áhorfenda þá svo mögnuð, að margir veinuðu af hugaræsingu. „Karpov átti í dag í höggi við tvo herramenn, Kasparov og klukk- una,“ sagði stórmeistarinn Eduard Gufeld um skákina, sem fór rólega af stað en breyttist síðan í æðis- gengið kapphlaup Karpovs við tímann. Hafði hann aðeins tæpa mínútu fyrir átta leiki áður en skákin fór í bið og þegar tölvu- klukkan í forsalnum varð of fljót til að sýna, að tíminn væri liðinn, öskruðu áhorfendur og veinuðu af æsingi og töldu víst, að Karpov væri búinn að tapa. Kasparov tefldi varlega, forðað- ist uppskipti og styrkti stöðu sína smám saman. Þegar Karpov var í mesta tímahrakinu fómaði Ka- sparov peði fyrir sóknarfæri en Karpov tókst þó að koma í veg fyrir yfirvofandi ófarir. Hann er hins vegar peði undir í biðskák- inni. Sovéski stórmeistarinn Tamas Georgadze sagði það vera sitt mat, að helmingslíkur væri á sigri Kasp- arovs og jafntefli. Ef Kasparov vinnur skákina á morgun, sem hefst klukkan 15.30 að fsl. tíma, verður það einsdæmi í skáksögunni því að það hefur ekki komið fyrir áður, að nokkur hafi þurft að vinna síðustu skákina í heimsmeistaraeinvígi og látið verða af þvi. Sjá skákskýringu á bls 40.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.