Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 21

Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987 21 Hefðbundin gengislækk- un í jólapakkanum frá Jóni eftir Svavar Gestsson Annir á alþingi. Það er ekkert nýtt, en aldrei fyrr hefur öllu tekjukerfí ríkisins verið umsteypt á tveimur vikum. Hvað er að ger- ast? Þingmenn Alþýðubandalagsins hafa tekið á móti skattaárásum ríkisstjómarinnar með myndar- legum hætti á þessum síðustu þingvikum. Enginn má við margn- um. Þingmeirihluti stjómarflok- kanna er slíkur að hugsanlegt er\ að stjóminni takist að koma í gegn skattafrumvörpum sínum. Hvað er í þeim frumvörpum? 1. Þegar rikisstjórnm tók tíl starfa ákvað hún skatta á þjóð- ina sem nema á næsta ári 3.700 millj. kr. 2. Þegar ríkisstjórain lagði fram fjárlagafrumvarpið var bætt við 2.000 millj. kr. á ári. 3. Þegar fjárlagafrumvarp- ið er tekið til 2. umræðu er bætt við 2.050 miljj. kr. Samtals er hér um að ræða heildarskattahækkun sem nem- ur 7.750 miiy. kr. Þá er gert ráð fyrir því að veltubreytingar og aukin söluskattsinnheimta skili i viðbót um 1.000 milþ'ón- um króna. Samtals era hér á ferðinni auknar tekjur ríkisins upp á 8.750 milljónir króna eða um 1.500 millj. kr. frá því að rfldsstjórain kom til valda. Matarskatturinn er lang- hæsti liðurinn i þessari skatt- lagningu eða 5.750 millj. kr. Þar með er ríkisbúskapurinn orðinn 24,7% af landsframleiðslu og hefur aldrei verið hærri að mati Þjóðhagsstofnunar, a.m.k. ekki síðustu 15 árin. Ríkissjóður í jaf nvægi — en_______ Það er mikilvægt að ríkissjóður sé í jafnvægi en það hrekkur skammt þegar aðrar efnahags- stærðir byggja á veikum grunni. Þá er hinn trausti ríkissjóður eins og hús sem er reist á sandi. Hvem- ig eru aðrar efnahagsstærðir: Minnkandi kaup- máttur launa 1. Kaupmáttur launa fer lækk- andi þessar síðustu vikur. Hann mun einnig versna næstu vikur vegna þess að breytingar ríkis- stjómarinnar á óbeinum sköttum munu ekki skila sér sem verð- lækkanir heldur sem verðhækkan- ir. Hallarekstur út- flutningsgreina 2. Utflutningsatvinnuvegimir eru reknir með stórfelldum halla þannig að rætt er um óhjákvæmi- lega gengislækkun strax eftir áramótin, ekki aðeins af forráða- • mönnum iðnaðarins heldur einnig af opinberum aðilum eins og Seðlabankanum. Hæstu ránvextir í heimi 3. Vextir eru hærri en nokkm sinni hefur áður verið og mikið hærri en í samkeppnislöndum okkar. Vaxandi verðbólga 4. Meðan verðbólga fer stöðugt lækkandi í helstu viðskiptalöndum okkar fer verðbólga vaxandi hér á landi. Verðbólguhraðinn er margfalt meiri en í viðskiptalönd- um okkar. Meiri viðskiptahalli á næsta ári 5. Viðskiptahallinn í ár er á fímmta milljarð króna og spáð er Svavar Gestsson „Það er mikilvægt að ríkissjóður sé í jafn- vægi en það hrekkur skammt þegar aðrar efnahagsstærðir byggja á veikum grunni. Þá er hinn trausti ríkissjóður eins og hús sem er reist á sandi.“ verulegri aukningu viðskiptahall- ans á næsta ári. Óhjákvæmileg viðbrögð 6. Ráðstafanir ríkisstjómar- innar í skattamálum, skattalækk- anir, kalla óhjákvæmilega á viðbrögð verkalýðshreyfíngarinn- ar og samtaka launafólks þegar kemur fram á næsta ár. Þannig er ljóst að verkalýðshreyfíngin getur ekki liðið þá kauplækkun sem felst í flárlagafrumvarpi ríkisstjómarinnar. Hinn trausti ríkissjóður byggist því á veikum forsendum. Ríkis- sjóður sem tekur til sín 24,7% landsframleiðslunnar í helsjúku hagkerfí getur ekki talist traustur jafnvel þó að hann sýni reiknings- legt jafnvægi. Ríkissjóður lifír ekki á loftinu, forsenda þess að hann sé traustur og að kaup- máttur launa standist er meðal annars sú að útflutningsatvinnu- vegimir séu ekki í hættu. Það em þeir nú. Hvað gerir ríkis- stjómin? Fjármálaráðherra hefur lýst því yfír að ríkisstjómin telji óhjá- kvæmilegt að gripið verði til umtalsverðra efnahagsaðgerða. Hveijar gætu þær verið? Fj ármálaráðherra sagði á Al- þingi eina nóttina fyrir nokkm að ekki yrði gripið til hefðbundinnar gengisfellingar. Hvað er óhefð- bundin gengisfelling? Það hefur ekki enn komið fram, en ráð- herrann benti á tvennt: 1. Forráðamenn atvinnuveg- anna hafa ekki krafíst gengis- lækkunar. Það er eðlilegt q'ónarmið þeirra vegna þess að gengisfelling er skammgóður vermir og hún breytir aðeins augnablik stöðu atvinnugreina því auðvitað hlýtur fólk að krefjást hærri launa í kjölfar gengislækk- unar, auðvitað hefur hún í för með sér aukna verðbólgu og þar með aukinn kostnað útflutnings- greinanna á ný. 2. Ráðherrann taldi að ríkis- stjómin yrði því að leita annarra leiða. Hveijar em þær? í fyrsta lagi taldi hann nauð- synlegt að ríkisstjómin reyndi að stuðla að jákvæðri niðurstöðu kjarasamninga. Ef ráðherra á við kjarasamninga sem byggjast á forsendum fjárlaganna er hann að gera kröfíi um að samið verði um kauplækkun. Engin ríkisstjóm hefur verið fíær því en núverandi ríkisstjóm að stuðla að jákvæðu andrúmslofti í kringum kjara- samninga. Allar hennar ráðstaf- anir til þess að kalla á viðbrögð launafólks á íslandi sem hlýtur að kreQast bóta fyrir þá kjara- skerðingu, einkum láglaunafólks, sem felst í ráðstöfunum ríkis-" stjómarinnar til þessa. Það er því beinlínis hlálegt að ráðherrann sem ber meginábyrgð á þessum efnahagsráðstöfunum skuli nú allt í einu eftir það sem á undan er gengið muna eftir hinu vinnandi fólki í landinu og ætlast til þess að það þakki fyrir kjaraskerðing- una og matarskattinn! Það er til of mikitn mælst að ekki sé fastar að orði kveðið. í annan stað kvað ráðherrann nauðsynlegt að tekið yrði á vanda- málum fj ármagnsmarkaðarins. Ja héma, frá höfundum ránvaxta- stefnunnar. Alþýðuflokkurinn bar þá stefnu fram fyrstur flokka hér á landi þar sem Sjálfstæðis- flokkurinn lék undir á fyrstu fíðlu. Viðskiptaráðherra Alþýðuflokks- ins hefur algerlega hafnað því að ríkisstjómin gripi inn í vaxtaokrið á nokkum hátt. Samt em raun- vextir hærri hér en nokkurs staðar annars staðar, ránvextir sem em að sliga almenning og atvinnulíf. Markaðslögmálin verða að fá að sanna sig sagði ráðherra við- skiptamála í útvarpinu að kvöldi 16. desember. Viðskiptaráðherrann hafnar því að tekið verði á vöxtunum. Hvað er þá eftir til ráða? Það er bersýnilegt að ríkisstjómin undirbýr hefðbundna gengislækk- un „fljótlega" svo notað sé orð Qármálaráðherra. Nú hefúr ijár- málaráðherra pakkað gengisfell- ingunni í orð og í fjárlagafrum- varp sem er reist á sandi. Um jólin tekur ríkisstjómin utan af pakkanum og innihaldið en Hefð- bundin gengisfelling. Þannig er fastgengisstefíian orðin sagn- fræði. Höfundur er þingmaður fyrir Al- þýðubandaiagið ÍReykjavík. AUPING ER HANNAÐUR FYRIR ÞIG! 1 m 2 AUPING, Hollenski rúmbotninn er einn fullkomnasti rúmbotn á markaðinum í dag. AUPING rúmbotninn er byggður upp á sérofnu neti sem lagar sig að líkamanum. AUPING botninn er loftdrifinn og með einu handtaki ér hægt að stilla höfðalagið á meðan legið er í rúminu, Hægt er að hækka botninn til höfða og einnig til fóta. Fólk eyðir stórum hluta ævinnar í rúmum sínum ýmist við afslöppun, lestur eða svefn. AUPING er því án efa lykill að betra lífi. Og leitin að réttri mýkt er óþörf. AUPING botnar eru fáanlegir í öll rúm frá Ingvari og Gylfa og flest önnur rúm. AUPING er hannaður fyrir þig. VERÐIÐ ER SANNGJARNT Grensásvegi 3, sími 681144, (áður ingvar og Gyifi).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.