Morgunblaðið - 19.12.1987, Side 33
33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
Koji Soga, markaðsstjóri Mitsubishi Motors Corporation, Káre Foss, fulltrúi norska umboðsins, Stefán
Sandholt, sölustjóri hjá Heklu hf. og Ásgeir Þórsteinsson, þjónustusljóri í bíladeild Heklu.
„Flóðabílar“ Heklu hf.:
Verksmiðjuábyrgð á bílunum
MITSUBISHI-bílarnir, sem lentu í
flóðunum í Drammen í Noregi í
október síðastUðnum, eru nú að
koma á götuna. Þeir hafa verið
skoðaðir af BifreiðaeftirUtinu og
ekki verið gerðar athugasemdir
við ástand þeirra. Þó fæst ekki
skráð sérstaklega í skráning-
arskirteini bifreiðanna athuga-
semd um að þær hafi lent í flóðum.
Forráðamenn Heklu hf. boðuðu í
gær til blaðamannaf undar um
þessa bíla og gerðu grein fyrir
málavöxtum ásamt fulltrúum frá
hinum norska umboðsaðila Mitsub-
ishi og fulltrúa framleiðanda.
Fram kom í máli þeirra, að alls
voru keyptir hingað til lands 362 bílar
af gerðunum Mitspbishi Galant, Colt,
Lancer og Space Wagon. Verð
bflanna á götuna hér er u.þ.b. 65 til
70% af venjulegu verði nýrra bfla
sömu gerðar.
Ástæður þess að bílamir voru ekki
settir á markað í Noregi eru þær,
að sögn Kare Foss, fulltrúa norska
umboðsins, að ekki fékkst afsláttur
á opinberum gjöldum í samræmi við
verðfall á bflunum. Þess vegna var
ekki hægt að bjóða þá á nægilega
lágu verði í Noregi. Hins vegar seldi
norska umboðið sendibfla þar í landi,
sem einnig höfðu lent í sama flóði,
en voru ekki í jafn háum tollaflokki
og fólksbflamir og þess vegna var
hægt að lækka verð þeirra nægilega
mikið. Hingað til lands voru þessir
bflar seldir beint frá hinu norska
umboði til Heklu hf. að frumkvæði
Norðmanna og í samráði við framleið-
andann. Upphaflega var ætlunin, að
starfsmenn Heklu hf. keyptu bflana,
en þar sem um svo marga bfla er að
ræða var hluti þeirra seldur á almenn-
um markaði.
Fulltrúar frá Heklu hf. fóru utan
í byijun desember til þess að skoða
bflana og ganga úr skugga um að
þeir hefðu ekki orðið fyrir alvarlegu,
skemmdum í flóðinu.
í greinargerð frá Heklu hf. um
málið segir, að þar sem vatnsdýpt
var mest hafi flætt þriggja senti-
metra djúpt vatn inn á gólf bflanna
og að í vatninu hafi verið óverulegt
saltmagn, enda að mestu úr Dramm-
en-ánni. Ennfremur að allir bflarnir
hafi farið í sérstaka meðferð úti í
Noregi þar sem þeir voru hreinsaðir
og þurrkaðir og allir viðkvæmir hlut-
ar þeirra prófaðir sérstaklega,
þ. ám. rafkerfi og hemlabúnaður.
Fulltrúar allra hlutaðeigandi aðila
Heklu hf., norska umboðsins og hins
japanska framleiðanda fullyrða, að
þessir bflar séu í fullkomnu lagi og
í alla staði jafn öruggir í umferðinni
og aðrir nýir bflar. Öllum bflunum
fylgir venjuleg verksmiðjuábyrgð.
Bifreiðaeftirlit ríkisins skoðaði
sérstaklega íjórar bifreiðir úr fyrstu
sendingunni að viðstöddum fulltrúum
frá FÍB og Umferðarráði. í niðurstöð-
um eftirlitsins „... kom ekkert það
fram, sem bent gæti til þess, að þær
hafi orðið fyrir þeim skaða að um-
ferðaröryggi sé stefnt í hættu með
því að leyfa notkun þeirra," eins og
segir í greinargerð Heklu hf.
Allir bflamir verða með sérstakri
auðkenningu f ábyrgðarskfrteini, auk
þess sem Hekla hf. mun reyna að
fylgjast með þeim við eigendaskipti
í framtíðinni, skv. óformlegu sam-
komulagi við kaupendur.
Nú eru komnir 117 bílar til lands-
ins af þessum flóðbflum, hinir koma
í tveimur sendingum næstu daga.
Allir eru þessir Mitsubishi-bílar þegar
seldir.
Afmælisbók Pólýfónkórsins:
í ljósi líð-
andi stundar
í TILEFNI30 ára afmælis Pólý-
fónkórsins hefur verið gefin
út bókin „í ljósi líðandi stund-
ar“, sem rekur hinn einstæða
feril kórsins allt frá fyrstu tón-
leikum kórsins 1958 til tónleika
kórsins í Hallgrímskirkju í des-
ember 1986.
í bókinni er fjöldi mynda, þar
á meðal frá utanferðum kórsins
til Ítalíu og Spánar og einstæðum
atburðum eins og er kórinn söng
fyrir páfa í.Vatíkaninu 1985.
Dr. Sigurbjöm Einarsson,
Ragnhildur Helgadóttir, Jón Ás-
geirsson tónskáld og Thor Vil-
hjálmsson eru meðal þeirra sem
rita greinar í bókina, og einnig
er þar að fínna umfjöllun í blöðum
um starfsemi kórsins frá upphafí.
Strax á fyrsta útgáfudegi seld-
ust yfír 200 eintök af bókinni, og
í dag, laugardaginn 19. desem-
ber, áritar Ingólfur Guðbrandsson
stjómandi Pólýfónkórsins bókina
í verslun Pennans í Kringlunni
milli kl. 16 og 19.
Vaka-Helgafell sér um dreif-
ingu á bókinni og fæst hún í öllum
Ingólfur Guðbrandsson stjórn-
andi Pólýfónkórsins.
bókaverslunum.
í tilefni afmælisins hefur einnig
verið gefín út hljómplata með
völdum köflum úr Messíasi eftir
G.F. Hándel og heildarútgáfa
verksins á geisladisk. Um dreif-
ingu plötunnar sér Skífan.
HJALPARSVEITAR SKATA I REYKJAVIK OG HAFNARFIRÐI
SÖLUSTAÐIR:
Snorrabraut 60, Reykjavík (Skátahúsið)
Félagsheimilið Hraunvangi, Hafnarfirði
Blómabúðin Dögg, Bæjarhraun 26, Hafnarfirði
g OPNUNARTÍMI:
Mánudaga-föstudaga kl. 14-22
S/ fU/ Laugardaga og sunnudaga kl. 10-22
STYRKIÐ SKÁTA í STARFI