Morgunblaðið - 19.12.1987, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
Jóhanna Bogadóttir verður með sýningu á vinnustofu sinni nm
helgina.
Jóhanna Bogadóttir
sýnir í vinnustofu sinni
JÓHANNA Bogadóttir heldur
myndlistarsýningu á vinnu-
stofu sinni að Hjarðarhaga 48,
4. hæð, helgina 19.-20. desem-
ber.
Á sýningu Jóhönnu verða nýj-
ar grafíkmyndir, málverk og
teikningar ásamt eldri verkum.
Jóhanna hefur verið með
vinnustofu í París síðastliðna
mánuði og hélt nýlega sýningu
í London í boði íslendingafélags-
ins þar á 1. des. hátíð í Royal
Festíval Hall.
Vinnustofusýning Jóhönnu er
opin kl. 14.00-22.00 um helgina.
Jólasöngvar í Bústaðakirkju
Barnaverndarráð íslands vegna aug-
lýsinga um stríðsleikföng:
Alþingi taki auglýsing-
ar sem snerta böm til
ítarlegrar umfjöllunar
Helgileikur í
Fríkirkjunni
ásunnudaginn
FJÓRÐA í aðventu, sunnudaginn
20. desember, verður helgileikur
fluttur í Fríkirkjunni í Reykjavík
og hefst sýningin kl. 15.00.
Flytjendur helgileiksins eru
heimilisfólk sambýlisins í Skaftholti
í Gnúpveijahreppi. Leikurinn íjallar
um faeðingu frelsarans og hafa leik-
aramir lagt mikla vinnu í undirbún-
ing sýningarinnar. Leikstjóri er
Amþrúður Sæmundsdóttir.
Aðstandendur flytjenda ætla að
bjóða upp á kaffisopa að lokinni
sýningunni.
(Fréttatilkynning)
Barnaguðs-
þjónusta í
Dómkirkjunni
Á MORGUN, sunnudag, verður
barnaguðsþjónusta i Dómkirkj-
unni og hefst hún kl. 11.
Það er áratuga hefð, að sunnu-
daginn fyrir jól sé aðeins ein messa
í Dómkirlqunni, bamaguðsþjónusta
á morgunmessutímanum. Svo verð-
ur einnig að þessu sinni.
Bömin úr kirkjuskólanum sýna
þar helgileik, sem túlkar jólaguð-
3pjallið. Leiknum stjóma þau Egill
Hallgrímsson og Ólafía Siguijóns-
dóttir, sem leiða bamastarf
Dómkirkjunnar í vetur. Lúðrasveit
Laugamesskólans leikur undir
stjóm Stefáns Þ. Stephensen. Sr.
Þórir Stephensen talar við bömin
um jólin. Loks verður almennur
söngur, sem Dómkórinn leiðir, og
Marteinn H. Friðriksson leikur á
orgelið.
Jafnan hefur verið flölmennt við
þessar athafnir, og foreldrar eða
afar og ömmur hafa gert mikið að
því að koma með bömunum. Er
þess vænst, að svo verði enn og við
getum skapað ánægjulega stund í
Dómkirkjunni á morgun
(Frá Dómkirkjunni)
Leiðrétting-
FÖÐURNAFN dr. Einars Stef-
ánssonar, augnlæknis, misritað-
ist undir mynd af honum á bls.
161 Morgunblaðinu í gær og biðst
blaðið afsökunar á þvi. Föður-
nafn Einars komst hins vegar
rétt til skila i fréttinni um að
honum hefði verið veitt prófess-
orsembættið í augnlæknisfræði
við Háskóla íslands.
GENQISSKRÁNING
Nr. 241. 18. desember 1987
Kr. Kr. Toll-
EIn.Kl.0a.1S Kaup Sala gangl
Dollarí 36,13000 36,25000 36,59000
Sterlp: 66,40700 66.62800 66,83200
Kan. dollari 27,66900 27,76100 27,99900
Dönskkr. 5,79150 5,81070 5,77360
Norskkr. 5,69110 5,71000 5.73200
Sænskkr. 6,12060 6,14090 6,13210
Fi. mark 9,00550 9,03540 9,05420
Fr.franki 6,59610 6,61800 6,55910
Belg. franki 1,06590 1,06940 1,06700
Sv. franki 27,46480 27,55610 27,24500
Holl. gylllni 19,83420 19,90010 19,79230
V-þ. mark 22,32040 22,39450 22,32460
lt. líra 0,03031 0,03041 0,03022
Aust. sch. 3,16860 3,17910 3,17280
Port. esc. 0,27260 0,27350 0,27220
Sp. peseti 0,32850 0,32960 0,33090
Jap. yen 0,28584 0,28679 0,27667
Irsktpund 59,32500 59,5230 59,23000
SDR 50,29870 50,46580 50,20290
ECU 46,00970 46,16260 46,04300
Tollgengi fyrir desember er sölugengi 30.
nóv.
Sjólfvirkur símsvari gengisskráningar er
62 32 70.
Flskvarð 6 uppboðsmörk-
uðum 15. desember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Meðal- Magn Halldar-
verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 34,46 30,7 1.058.483
Ýsa 37,15 17.7 656.343
Karfi 17,09 72,1 1.232.230
Ufsi 17,12 68,3 1.168.983
Steinb. 18,51 4,3 80.810
Langa 24,14 4,9 98.810
Koli 34,00 2,5 86.034
Annað 26,38 2,9 131.916
Sam- 22,27 202,7 4.513.082
tals
Selt var aðallega úr Otri, Eini og
Krossvík. Selt verður aðallega úr
Krossvík og Stakkavik nk. mánudag.
AÐ VENJU liðinna áratuga er
allri fjölskyldunni boðið til sér-
stakrar guðsþjónustu i Bústaða-
kirkju næsta sunnudag, þann
fjórða i aðventu. Þar flytja böm-
in sig úr baraaguðsþjónustunni
yfir í tíma hinnar almennu
messu, klukkan tvö síðdegis, og
er áherzla lögð á undirbúning
jólanna og höfðað til allra aldurs-
hópa.
Kórinn úr Breiðagerðisskólanum
flytur nokkur verk og bömin úr
Fossvogsskóla sýna helgileik, sem
unnið hefur sér fastan og vinsælan
sess í þessari guðsþjónustu. Þá mun
Einar Öm Einarsson tenórsöngvari
syngja og við hljóðfærið er Jónas
Þórir. En mikil áherzla er lögð á
almennan söng og fá allir kirkju-
gestir í hendi sérstakt söngvablað,
enda hefur aldrei skort á, að vel
sé tekið undir. Þá verður lesin saga,
en fram að þessu hefur ætíð verið
frumflutt saga eftir Ingólf Jónsson
frá Prestbakka í þessari guðsþjón-
ustu við nálægð jóla.
„Bamavemdarráði íslands hafa
borist áskoranir frá eftirtöldum aðil-
um: Friðamefnd fóstrufélags ís-
lands, Samtökum herstöðvaand-
stæðinga, Félagi þroskaþjálfa,
Fóstrufélagi íslands, Kennarasam-
bandi íslands og Menningar- og
friðarsamtökum íslenskra kvenna.
Þar er skorað á bamavemdarráð að
beita sér fyrir banni á auglýsingum
um stríðsleikföng.
Af þessu tilefni telur bamavemd-
arráð ástæðu til þess að láta frá sér
fara eftirfarandi yfirlýsingu:
Bamavemdarráð Islands fagnar
því að hafin er umræða hér á landi
um áhrif auglýsinga á böm. Bann á
framleiðslu, sölu og auglýsingum á
stríðsleikföngum hefur verið til um-
ræðu víða um heim. Umræðan hefur
snúist mikið um hvort slík leikföng
séu skaðleg fyrir böm og hvort bann
við sölu og auglýsingum á þess-
háttar leikfongum eigi rétt á sér.
Bamavemdarráð telur að áhrif
auglýsinga og fjölmiðla á böm séu
tvímælalaust mikil, en erfítt geti
verið að meta hversu óheillavænleg
þau eru. Því verði að taka meginaf-
stöðu til 1) á algjörlega að banna
auglýsingar sem hafa böm sem
markhóp og 2) ef svo er ekki, hvaða
auglýsingar á að heimila.
Ráðið bendir á að lítil sem engin
umræða hefur farið fram um þessi
mál hér á landi. Meira hefur borið
á kröfum um að banna skuli auglýs-
ingar um stríðsleikfong vegna þeirra
slæmu áhrifa sem þær hafi á böm.
Ráðið dregur í efa að slíkt bann eitt
og sér dragi úr ofbeldi og ofbeldis-
hugsunarhætti. Bamavemdarráð
vill eindregið hveija einstaklinga,
foreldra og faghópa til umræðu og
skrifa um þessi mál. í slíkri umræðu,
mætti leitast við að skilgreina hvað
eru stríðsleikföng, meta áhrif þeirra
á böm og ræða leiðir til þess að
bregðast við þeim vanda.
Vill barnavemdarráð jafnframt
hvetja til þess að Alþingi taki augiýs-
ingar, sem snerta böm sérstaklega,
til ítarlegrar umfjöllunar og setji
ákveðnar reglur eða lög þar að lút-
andi.
Bamavemdarráð telur að umfjöll-
un um stríðsleikföng sé hluti af
stærra máli sem brýnt er að taka
afstöðu til. í umræðu um auglýsing-
ar- á stríðsleikföngum og hættu á
skaðsemi þeirra vill ráðið því hvetja
til að umræðan snúist meira um
hvemig sé hægt að stuðla að bættum
uppvaxtarskilyrðum og andlegri
veliíðan bama. Það er eindregin
skoðun ráðsins að ef böm fá þá
grundvallartilfinningu í uppeldinu
að þau séu elskuð og virt og geti
treyst öðrum, hafí þau ekki eins
mikla þörf fyrir að fá útrás fyrir
neikvæðar tilfínningar og böm sem
verða þessa ekki aðnjótandi. Böm
sem verða oft fyrir því í umgengni
við fullorðna, eða sjá mikið af mynd-
efni, þar sem tjáningarmáti og
hegðun fullorðinna einkennist af
yfirgangi og valdbeitingu, munu
ekki skynja að friður og samvinna
séu sérstaklega eftirsóknarverð.
Uppeldi og samskiptahættir sem
minnka slíkt eru sennilega áhrifa-
ríkastir tíl að draga úr óeðlilegri
eftirsókn í stríðsleikföng.“
(Frá Bústaðakirkju.)
Kasparov heldur enn í vonina
Skýk
Margeir Pétursson
Þegar 24. og síðasta skákin
í einvígi Kasparovs og Karpovs
í Sevilla fór í bið i gær, hélt
Kasparov enn í vonina um að
vinna skákina og jafna metin.
Hann hefur drottningu, biskup
og fjögur peð, en Karpov
drottningu, riddara og þijú
peð. Kasparov á sem sagt peði
meira i endatafli, en peðin eru
öll á sama væng og það gerir
vinningstilraunir erfiðar. Þrátt
fyrir að staðan sé einföld er
hún geysilega vandmetin.
Líklega ætti Karpov að halda
jafntefli með beztu vöra, sem
þó verður vafalaust Iöng og
ströng. Ef honum tekst það
hefur hann endurheimt heims-
meistaratitilinn.
Spádómar um úrslit eru mjög
vafasamir, því margir klukkutím-
ar eru vafalaust eftir af skákinni.
Spænski landsliðsþjálfarinn,
sovézki stórmeistarinn Tamas
Georgadze, hitti líklega nærri
markinu þegar hann sagði að það
væru helmingslíkur á sigri Kasp-
arovs.
Þótt 23. skákin hafi verið hrika-
lega spennandi hefur þessi nú
þegar slegið henni alveg við.
Lfkléga verða þessar tvær skákir
þær frægustu í margra alda sögu
skáklistarinnar. Hún fór þó rólega
af stað, Kasparov fór að dæmi
Karpovs, leitaði á ný mið, tefldi
rólega og beið færis. Upp kom
afbrigði Réti byijunar, sem þeir
Botvinnik, Smyslov, Tal, Korchnoi
og Larsen hafa allir beitt, en nú
á dögum nýtur það lítilla vinsæida
á meðal stórmeistara.
Karpov hefði lfklega átt að geta
jafnað taflið, en mistókst það og
eftir 21 leik hafði Kasparov vissa
stöðuyfírburði. Þá virtist Karpov
fara alveg úr sambandi, hann fann
enga áætlun, þótt hann notaði
mikinn tíma og sífellt hallaði und-
an fæti. Það má teljast afrek af
hans hálfu að vera ekki með
gjörtapað tafl nú, eftir að hafa
átt þijár mínútur eftir á tólf ieiki
og aðeins tæpa mínútu á þá átta
síðustu, í þessari líka hörmungar-
stöðu.
Undir lokin var allt orðið vit-
laust í leikhúsinu þar sem einvígið
fór fram, skiljanlega réðu áhorf-
endur ekkert við sig í æsingnum.
Spánveijarnir fara líklega að taka
skákina fram yfír nautaatið. Há-
marki náði sefjunin þegar raf-
magnsklukka í forsalnum sýndi
tíma Karpovs útrunninn. Áhorf-
endur sáu ekki á skákklukkuna
sjálfa og héldu að Karpov væri
fallinn á tíma. Þá upphófust gífur-
leg læti, en Karpov átti í raun
nokkrar sekúndur eftir og fallvís-
irinn hékk því uppi „á lakkinu"
eins og stundum er sagt.
Skákunnendur mega vera
þakklátir Karpov og Kasparov
fyrir þessa stórkostlegu sýningu,
hvemig svo sem einvígið fer hafa
þeir báðir sýnt yfirburðasnilld sína
og ættu báðir skilið að vera heims-
meistarar.
24. einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Enski leikurinn
1. c4 - e6 2. Rf3 - Rf6 3. g3
- d5 4. b3 - Be7 5. Bg2 - 0-0
6. 0-0 - b6 7. Bb2 - Bb7 8. e3
- Rbd7 9. Rc3
Einmitt vegna svarleiks
Karpovs er hér oftar leikið 9. De2.
9. - Re4 10. Re2!?
Þetta er ný hugmynd í stöð-
unni, en leikurinn sýnir vel að
Kasparov vill fyrir alla muni
forðast uppskipti. Hér hefur
áður verið leikið 10. Dc2 og
De2.
10. - a5 11. d3 - Bf6 12. Dc2
- Bxb2 13. Dxb2 - Rd6!?
Sérstaklega með tilliti til stöð-
unnar í einvíginu vekur það furðu
að Karpov skuli ekki hafa leikið
13. — Ref6, sem er traustari leik-
ur. Riddarastaðsetningin á d6 á
ekki við, eftir að staðan opnast
og hvítur hefur sett hrók á d
línuna.
14. cxd5 - Bxd5 15. d4 - c5
16. Hfdl — Hc8 17 Rf4 — Bxf3
Með þessum uppskiptum er
Karpov að viðurkenna að honum
hefur ekki fyllilega tekist að jafna
taflið, því í framhaldinu verður
biskup hvíts mjög öflugur. Leikur-
inn er þvingaður, því eftir 17. —
Ba8? 18. dxc5 - Rxc5 19. De5
— Rce4 20. Rh5 tapar svartur
a.m.k. peði.
18. Bxf3 - De7 19. Hacl -
Hfd8 20. dxc5 - Rxc5 21. b4!
Þetta er eina áætlunin sem
gefur hvítí möguleika á að halda
frumkvæðinu. 21. — axb4 22.
Dxb4 - Da7 23. a3 - Rf5
Frá og með þessum leik virðist
Karpov tefla án skynsamlegrar
áætlunar, en leikur þessum ridd-
ara fram og tíl baka. Eini tilgang-
urinn með leiknum virðist vera sá
að skipta upp á hrókum, en nyt-
samari leikur vár 23. — g6, eða
23. — h6. Þá kom 23. — Da5!?
vel til greina, en Karpov hefur
greinilega verið dauðhræddur við
að taka af skarið í skákinni.
24. Hbl - Hxdl-F 25. Hxdl -
Dc7?! 26. Rd3! - h6
Karpov hefur nú teflt svo óná-
kvæmt að hann er lentur í
nauðvöm. Nú lendir hann í mjög
óþægilegri leppun á c línunni, en
eftir 26. - Rxd3 27. Hxd3 - g6
28. Hb3 — Hb8 29. a4 er staðan
þá þegar orðin vonlaus. Hins veg-
ar kom til greina að „lofta út“
með 26. — g6. Ef Karpov hefði
leikið þeim leik, hefði hann ekki
tapað peðinu á f7 í framhaldinu.
27. Hcl - Re7 28. Db5 - Rf5!
29. a4 - Rd6 30. Dbl - Da7
31. Re5!
Eitraður leikur að fá á sig í
tímahraki. Það er vart um annað
að ræða fyrir Karpov en að taka
peðið sem boðið er upp á. Hvítur
hótaði bæði 32. Rc6 og 32. a5!
31. — Rxa4 32. Hxc8+ — Rxc8
33. Ddl! - Re7 34. Dd8+ -
Kh7 35. Rxf7 - Rg6 36. De8
Kasparov uppsker laun frá-
bærrar taflmennsku með því að
vinna peð. Það er hæpið að hann
hafi getað haldið áfram sókninni.
T.d. 36. Rd6 - Rc5 37. h4 —
Dal+ 38. Kh2 — Ddl og svartur
hefur mótspil.
36. - De7 37. Dxa4 - Dxf7 38.
Be4 - Kg8 39. Db5 - Rf8 40.
Dxb6 - Df6 41. Db5 - De7.
í þessari stöðu fór skákin í
bið og Kasparov sem hefur
hvítt lék biðleik.