Morgunblaðið - 19.12.1987, Síða 75
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1987
75
KNATTSPYRNA || HANDKNATTLEIKUR
Stórmót
í innanhúss-
knattspymu
á Akranesi
Dregið í riðla í gær
Reykjavíktirúrvalið tekur
þátt ísterku móti í París
KNATTSPYRNA
Stórmót íþróttafréttamanna í
innanhússknattspyrnu verður
á Akranesi laugardaginn 9. janúar.
Keppt verður þá um nýjan bikar
þar sem KR-ingar unnu bikar þann
sem keppt hefur verið um - til eign-
ar. Þeir hafa alltaf fagnað sigri í
Stórmótinu - tvisvar á Selfossi og
einu sinni á Akranesi.
Mótið, sem er boðsmót, hefur alltaf
vakið mikla athygli og verið pró-
fraun okkar bestu félagsliða fyrir
Islandsmótið í innanhússknatt-
spymu.
Átta lið taka þátt í mótinu og leik-
ið verður í tveimur riðlum. Dregið
var í riðla í gær og verður riðlaskipt-
ingin þannig:
A-RIÐILL: Akranes, Fram,
Keflavík og KA.
B—RIÐILL: Valur, KR, Þór og úr-
valslið Samtaka íþróttafrétta-
manna.
Hollendingar náðu
eftirsóttu
Hollandi var skipað í fjórða
aðalsætið í riðlunum í loka-
keppni Evrópukeppni landsliða
sem fram fer í Vestur Þýskalandi
í júní komandi. Áður höfðu gest-
gjafamir verið settir yfír fyrsta
riðil og England yfír 2. riðil vegna
góðrar frammistöðu á HM. Ítalía
og Holland skipa sem sagt næstu
virðingarsæti, en það leysist ekki
hvort liðið fer í hvom riðil fyrr
en við dráttinn.
Hollenska liðið hlaut þennan virð-
ingarsess eftir 3-0 sigur gegn
Grikklandi á útivelli á dögunum,
leik' sem mikill styrr stóð yfír.
Þjóðimar sem ekki vom dregnar
í merkisdilka á þennan hátt vom
Sovétríkin, Spánn, Danmörk og
írland. Það verður sem sé leikið
í tveimur Qögurra liða riðlum.
Frakkar hafa óskað eftir því að leikmenn sem leika í V-Þýskalandi leiki með -
Alfreð Qfslason. Frakkar vilja ólmir að hann leiki með Reykjavíkurúrvalinu
í París.
Reykjavíkurúrvalið í handknatt-
leik mun fara til Parísar í apríl
1988 og taka þar þátt í höfuð-
borgarkeppni i handknattleik.
Parísarúrvalið ásamt úrvalslið-
um frá Bukarest í Rúmenfu og
Austur-Berlín taka einnig þátt
í mótinu, sem verður 16. og
17. apríl.
Við fengum boð frá París að
senda lið til keppninnar (To-
umoi des Capitales) fyrir stuttu og
höfum sent tilkynningu um að við
mætum. til leiks með Iið,“ sagði
Þórarinn Einarsson, varaformaður
Handknattleiksráðs Reykjavíkur, í
viðtali við Morgunblaðið í gær.
Þórarinn sagði að keppnin færi
fram í nýju íþróttahúsi í París.
„Húsið tekur 15 þús. áhorfendur.
Þeir sem halda keppnina reikna
með að 30 þús. áhorfendur koma
til með að horfa á leikina.
Frakkamir óskuðu eftir því að við
sendum okkar starkasta lið til
Parísar og óskuðu eftir því að við
kölluðum á leikmenn sem leika í
V-Þýskalandi, Bjama Guðmunds-
son, Alfreð Gíslason, Sigurð Sveins-
son og Pál Ólafsson, til að leika
með Reykjavíkurúrvalinu. Það
verða mjög sterk úrvalslið í keppn-
inni, sem fer fram í þriðja skipti,"
sagði Þórarinn.
Þess má geta að HKRR fær uppi-
hald frítt fyrir átjan manna hóp og
þá hafa Frakkamir boðist til að
taka þátt í ferðakosnaði Reykjavík-
urúrvalsins. „Þetta er mjög spenn-
andi verkefni," sagði Þárarinn.
■ PAUL Davis, miðvallarspilar-
inn leikni hjá Arsenal, sem hefur
átt við meiðsli að stríða, leikur með
Arsenal gegn Everton á Highbury
í dag. Leikurínn
FráBob verður sýndur beint
Hennesyí J íslenska sjónvarp-
Englandi inu. Davies mun
taka stöðu Martin
Hayes. George Graham, fram-
kvæmdastjóri Arsenal, sagðií gær
að Davis og Steve Williams væru
tveir af bestu miðvallarspilumm
Englands.
I STEVE Archibald kom frá
Spáni til Englands í gær. Black-
burn hefur fengið hann lánaðann
frá Barcelona út þetta keppn-
istímabil. Archibald þarf ekki að
kvarta yfír iaununum sem hann fær
hjá Blackbum. Hann fær kr. 6.7
milljónir í laun og einnig ýmsar
aukagreiðslur. Þetta segir að kapp-
inn sé með kr. 402 þús. í vikulaun.
Góður vasapeningur það. Black-
bum hefur ekki tapað tólf leikjum
í röð í 2. deildarkeppninni. „Ég mun
leggja mig allan fram við að hjálpa
félaginu að tiyggja sér 1. deildar-
sæti. Feta þannig í fótspor Kevin
Keegan, þegar hann átti stóran
þátt í að Newcastle endurheimti
1. deildarsæti sitt,“ sagði Archi-
bald, þegar hann kom til Englands
S gær.
■ MARK Lawrenson, vamar-
maður hjá Liverpool, mun ekki
Reuter
Steve Archlbald sést hér á E1
Prat-flugvellinum í Barcelona í gær.
Hann var þá á leið til Englands.
leika með félaginu gegn Sheffield
Wed. í dag. Lawrenson meiddist
á hné á æfíngu.
■ CHRIS Wood, landsliðsmark-
vörður Englands, skrifaði undir
nýjan fimm ára samning við Gals-
gow Rangers í gær. Wood var
orðaður við Man. Utd.
■ ASTON Villa seldi sóknar-
leikmanninn Mark Burke til
Middlesborough í gær á 50 þús.
sterlingspund. Þetta er dágóð
summa fyrir leikmann sem lék í
varaliði Villa.
■ PAUL Bracewell hjá Ever-
ton, sem hefur átt við þrálát meiðsli
að stríða, lék sinn fyrsta leik með
Everton 118 mánuði á fimmtudags-
kvöldið. Hann lék þá með varaliði
Everton gegn Tranmere.
Coventry sigraði QPR í London
Þrír leikir fóm fram í 1. deild
ensku knattspymunnar í gær-
kvöldi. Luton og Southampton
gerðu 2:2 jafntefli og jafnaði Mick
Harford fyrir Luton
Frá Bob eftir að Colin Clarke
Hennessy hafði skorað tvíveg-
/Englandi js fyfj,. gestina.
Coventry 'gerði bet-
ur á gervigrasi QPR og vann 2:1.
Mark Falco skoraði sitt fyrsta mark
fyrir QPR á 30. mínútu, en Co-
ventry svaraði með tveimur skalla-
mörkum á síðustu átta mínútum
leiksins eftir undirbúning frá Gynn.
Ifyrst Keith Houchen, sem kom inná
sem varamaður og síðan Ceryl Reg-
is.
John Fashanu skoraði fyrir Wimble-
don gegn Norwich á 14. mínútu og
það reyndist eina mark leiksins.
John O’Neil, sem Norwich keypti
frá QPR fyrir 100 þúsund pund,
meiddist illa, og Robert Fleck, sem
hefúr skorað þijár þrennur fyrir
Rangers á tímabilinu, tókst ekki
að skora í sínum fyrsta leik með
Norwich.
í 2. deiid gerðu Aston Villa og WBA
markalaust jafntefli að viðstöddum
rúmlega 20 þúsund áhorfendum og
Ipswich vann Shrewsbury 2:0.
I.deild
LUTON - SOUTHAMPTON 2:2
QPR - COVENTRY 1 : 2
WIMBLEDON - NORWICH 1 : 0
Robart Flock tapaði ( sfnum fyrsta
leik með Norwich.
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR SAMTALS
Laikir U J T Mörk U J T Mörk Mörk Stig
UVERPOOL 18 8 1 0 25: 3 5 4 0 18: 8 43: 11 44
ARSENAL 19 7 0 2 21: 6 5 3 2 12: 8 33: 14 39
NOTT. FOREST 17 5 2 1 19: 4 5 2 2 17: 11 36: 15 34
EVERTON 19 7 2 1 20: 5 2 4 3 8: 7 28: 12 33
MAN. UTD. 18 5 4 0 16: 8 3 4 2 15: 11 31: 19 32
QPR 20 5 3 2 13: 8 4 2 4 10: 16 23: 24 32
WIMBLEDON 20 4 5 1 15: 9 3 2 5 11: 14 26: 23 28
CHELSEA 19 6 3 0 17: 9 2 0 8 11: 21 28: 30 27
LUTON 19 4 4 3 17: 11 3 0 5 9: 12 26: 23 25
SOUTHAMPTON 20 3 3 3 13: 12 3 4 4 16: 18 29: 30 25
DERBY ■ 18 3 3 3 8: 6 3 3 3 8: 13 16: 19 24
COVENTRY 20 2 4 4 10: 17 4 2 4 11: 11 21: 28 24
WESTHAM 19 3 4 3 11: 12 2 4 3 10: 12 21: 24 23
NEWCASTLE 18 2 3 4 8: 12 3 4 2 14: 15 22: 27 22
TOTTENHAM 19 5 1 4 13: 11 1 3 5 4: 11 17: 22 22
OXFORD 19 5 1 3 17: 14 1 3 6 5: 17 22: 31 22
SHEFF. WED. 19 4 1 5 12: 15 2 2 5 8: 18 20: 33 21
PORTSMOUTH 19 3 4 3 11: 12 1 3 5 5: 22 16: 34 19
WATFORD 19 3 2 4 7: 9 1 3 6 5: 15 12: 24 17
NORWICH 20 2 2 5 10: 14 2 i 8 4: 14 14: 28 15
CHARLTON 19 2 3 5 8: 13 1 2 6 9: 17 17: 30 14
KNATTSPYRNA / ENGLAND