Morgunblaðið - 30.12.1987, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 30.12.1987, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987 BREYTTUR persónuafsláttun Nú 14.797,- kr. fyrir hvem mánuð Persónnafsláttur í staðgreiðslu opin- berra gjalda hefur verið ákveðinn 14.797 krónur fyrir hvem mánuð á tímabilinu jan.- júní 1988. Breyting á persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið sín skattkort, heldur ber launagreiðanda að hækka persónuafsláttinn við útreikning staðgreiðslu. Til þess að þeir, sem fengu skattkort sín útgefin fyrir 28. desember 1987, fái notið rétts afsláttar ber launagreiðanda að hækka þann persónuafslátt, sem fram kemur á þessum skattkortum og aukaskattkortum (öllum grænum og gulum kortum), um 8.745% (Stuðull 1.08745). Mikilvægt er að launagreiðandi breyti ekki upphæðinni á sjálfu skattkortinu. Sú upphæð á að standa óhreyfð til ársloka. Hins vegar ber að taka tillft til orðinnar hækkunar við útreikning staðgreiðslu. Skattkort sem gefin eru út 28. desember og síðar bera annan lit en þau skattkort sem gefin voru út fram að þeim tíma. Þau skattkort munu sýna réttan persónuafslátt fyrir tímabilið janúar-júní 1988 og þarf því ekki að hækka persónuafslátt þann sem þar kemur fram við útreikning staðgreiðslu. RSI< RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.