Morgunblaðið - 30.12.1987, Page 33

Morgunblaðið - 30.12.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987 33 Fyrsta umræða um kvótafrumvarpið í neðri deild: Hart deilt um smábátaákvæði Sjávarútvegsráðherra: Nauðsynlegt að breyta reglum um smábáta Arni Gunnarsson: Get aldrei samþykkt greinina um smábáta FYRSTU umræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um stjórnun fiskveiða lauk í neðri deild Al- þingis í gærmorgun kl. hálfsex, eftir um níu klukkustunda um- ræður. Meiningin hafði verið að afgreiða einnig frumvarp ríkis- stjórnarinnar um söluskatt til nefndar og annarrar umræðu á þessum fundi, en frá því var horfið eftir að fulltrúar stjórnar- andstöðunnar höfðu hótað málþófi. Kvótafrumvarpið var því afgreitt tU nefndar og ann- arrar umræðu, en framhald fyrstu umræðu söluskattsfrum- varpsins var frestað til kl. 13 í gær og ákveðið að umræður um það mál skyldu ekki standa leng- ur en í þrjár klukkustundir. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, mælti fyrir frum- varpinu. í framsögu sinni kom hann inn á málefni smábátaeigenda og taldi ráðherrann ljóst að ef smá- bátaeigendur nytu rýmri heimilda en aðrir varðandi botnfisksveiðar yrði það til þess að sjómenn myndu sækja I ríkara mæli í þess konar útgerð. Sumir segðu að þessi afli smábáta væri svo lítill að hann skipti engu máli en það bæri að hafa i huga að hann nálgaðist nú það að vera 10% af þorskafla. Hin mikla fjölgun smábáta hefði líka orðið til þess að nauðsynlegt var að breyta reglum. Það væri þó mik- ilvægur þáttur í okkar þjóðlífi að sem flestir gætu farið á sjó og því hefði verið ákvæði að hafa línu- og handfæraveiðar smábáta ftjálsar enn um sinn. Auðvitað væru skiptar skoðanir um þetta mál og menn reyndu að leita lýðræðislegra sátta um það. Það hefði verið gert og málið hlotið meiri umflöllun í þjóðfélaginu og meðal hagsmunaaðila en flest önnur mál. Hjörleifur Guttormsson (Abl/ Al) sagðist leggja áherslu á að leita sem mestrar lýðræðislegrar sam- stöðu um þetta mál því fátt væri mikilvægara en að sæmilegur friður næðist um fiskveiðistefnuna. Nú væri því mikið haldið á lofti að frumvarpið þyrfti að afgreiða fljótt. Þetta segðu ráðherramir sem hefðu skilað mjög stórum þingmál- um þegar vika var liðin af aðventu. Þingmenn þyrftu að átta sig á því að ef þeir ætluðu að fara yfir þetta mál sem þyrfti þá væri ekki hægt að binda sig við dagatalið. Það væri með ólíkindum ef tækist að afgreiða frumvarpið sem lög á 2 dögum svo viðunandi væri fyrir alla. Menn hlytu að leita leiða til sátta sem meirihluti þingmanna gæti sætt sig við. Hjörleifur sagði ráðherra vera að skerða veiðimöguleika fjölda þess fólks sem stundaði smábátaút- gerð með því að setja aflamark á netaveiðar þeirra. Þetta stefndi af- komu fjölda fólks í hættu og væri verið að búa til vanda sem enginn þörf væri á að búa til. Hann sagð- ist treysta því að nægjanlegur vilji væri í deildinni til að knýja fram breytingar svo smábátaeigendur byggju ennþá við sömu aðstæður og þeim væru ætlaðar í núgildandi lögum. Árni Gunnarsson (A/Ne) sagði andstöðu sína við frumvarpið aðal- lega byggja á andstöðu við 10. grein þess, þá er fjallar um smábátana. Þegar hann las hana fyrst hefði hann verið sannfærður um að um mistök væri að ræða en svo hefði ekki reynst vera. Þessi grein væri honum svo á móti skapi að hann gæti aldrei samþykkt hana. Áhrif hennar á ýmis byggðarlög gætu orðið mjög alvarleg. Það. væri mis- rétti ef mönnum væri ætlaður afli sem þeir gætu ekki lifað á. Jón Sæmundur Sigurjónsson (A/Nv) sagði í jómfrúræðu sinni á Alþingi að starfsáætlun ríkisstjóm- arinnar og stefnumál Alþýðuflokks- ins væru ekki í anda núgildandi laga um stjómun fískveiða og þessa fmmvarps er væri til umræðu. Helstu gagnrýnisatriðin væru að kerfíð væri „staðnað og miðstýrt" og minnti helst á „sovéskt fram- leiðslukerfí". Það byndi kvóta við skip og byggðasjónarmið fengju ekki að njóta sín. Hann sagðist þó líklega munu samþykkja fmmvarp- ið með semingi. Geir Gunnarsson (Abl/Rn) sagði að nú væm ýmsar afleiðingar kvótans að koma í ljós og andstað- an við hann því meiri en áður. Kerfíð útilokaði að nýir menn kæm- ust inn í útgerð og kæmi í veg fyrir eðlilega þróun og endumýjun. Nokkuð hefði verið komið til móts við þá sem mótmæltu mismunun milli norður-suður svæðanna en ekki væri nóg gert. Það þyrfti að setja inn ákvæði þess efnis að veiði- réttur héldist á svæðinu þó togari væri seldur. Umræðumar um fmmvarpið nú' hefðu aðallega einkennst af deilum milli byggðarlaga og hagsmunaað- ila í sjávarútvegi. Ekki væri mikið rætt um hver árangurinn hefði ver- ið af núverandi kerfí og hvort rétt væri að halda áfram á sömu braut. Geir sagði að við hefðum að und- anfömu búið við meira fjárhagslegt góðæri vegna ytri aðstæðna en áður hefði þekkst en samt safnað upp skuldum. Talið væri að hliðstætt góðæri hefði verið í sjónum og hefðu fiskistofnamir því átt að fara vax- andh Þingmaðurinn spurði hvort það sama hefði samt ekki orðið upp á í sjónum og í efnahagslífínu og verið gengið á stofna þó við hefðum möguleika á að efla ýmsa þeirra. Sighvatur Björgvinsson (A/Vf) sagði mikilvægt að reynt væri að ná sem mestri einingu um þetta mál, a.m.k. f stjómarliðinu. Það . hefði legið fyrir þegar fyrir kosning- ar að vestfírskir jafnaðarmenn myndu ekki styðja ríkisstjóm sem beitti sér fyrir óbreyttu kvótakerfí. Þvl hefði verið haldið á lofti að mikill tími hefði farið í að ná sam- komulagi við hagsmunaaðila og sagði Sighvatur að sá tími hefði betur verið notaður til að ná sam- komulagi milli stjómarflokkanna. Ekki hefði heldur náðst fullkomin eining milli hagsmunaaðila því full- trúi VMSÍ og smábátaeigendur væm óánægðir. Sighvatur sagði það liggja ljóst fyrir að ekki væri til staðar viljugur þingmeirihluti til að samþykkja fmmvarpið eins og það lægi fyrir á þessari stundu. Því kæmi til með að mæða mikið á þeirri nefnd er fengi málið til umfjöllunar. Umræður um stjómun fiskveiða hefðu fyrst farið af stað vegna verndunarsjónarmiða. Þessi um- ræða, sem áður var kjamaumræð- an, hefði smátt og smátt dottið niður og væri nú nánast horfín úr myndinni. Það sem málið snérist um nú væri að verið væri að skipta verðmætum milli tiltölulega fárra einstaklinga. Kvótakerfið væri sér- réttinda, og forréttindakerfi. Það væri verið að koma því kerfí á að auðlindir þjóðarinnar allrar yrðu framseljanlegar í braski og fram- seljanlegar til erfða. Ekki væri um lítil verðmæti að ræða. Sighvatur sagði að á næsta ári væri gert ráð fyrir að 25% af kvótanum myndu ganga kaupum og sölum en það væru verðmæti upp á um 4-500 milljónir króna sem verið væri að afhenda einstakling- um fyrir ekkert. íslenskir sjómenn fengju ekki eyri af „þessu braskfé". Einnig gagnrýndi þingmaðurinn að verið væri að setja veiðar á út- hafsrækju undir kvótakerfíð. Taldi hann að þau svæði sem hefðu haft frumkvæði af þessum veiðum væru nú svipt möguleikanum á að halda áfram þessu uppbyggingarstarfi. Matthías Bjarnason, formaður sjávarútvegsnefndar neðri deild- ar, sagðist telja það útilokað að hægt yrði að afgreiða þetta mál frá nefndinni á svo skömmum tfma sem ætlast væri til. Það yrði ekki af- greitt á fseribandi eftir pöntun frá ríkisstjórninni. Matthías sagði að ekki væri ver- ið að, deila um nauðsyn þess að hafa stjómun á fískveiðum. Það sem vakti fyrir mönnum væri að vemda fiskistofna en ekki að skipa eitthvað miðstýringarvald. Það væri að hans mati mikils virði að byija frumvarpið á því að slá því föstu að fískistofnamir væra sameign þjóðarinnar en svo kæmu greinar þar sem fískistofnamir væra eign fárra útvaldra. Matthías minntist einnig á gild- istíma laganna. Sagði hann að vilji hefði verið fyrir því að hafa gildis- tímann tvö ár og hverfa síðan frá miðstýringunni. Flokkssystkin hans í efri deild hefðu samt samþykkt þriggja ára gildistíma. Sagði hann sjávarútvegsráðherra, sem væri „einlægur kvótamaður og mikill skömmtunarsinni", alltaf vera að vinna sigra. Matthías sagðist telja að frumvarpið þyrfti að verða manneskjulegra en það væri. Taka þyrfti tillit tii smábátaeigenda sem hefði verið gefið talsvert freisi í núgildandi lögum. Stefán Valgeirsson (SJF/Ne) sagði smábátaeigendur vera fáa en samt þyrfti að taka tillit til þeirra með því að breyta 10. gr. Hægt væri að ná sáttum og sagðist hann , vilja hafa þessi ákvæði um smábát- ana eins og þau væra í núgildandi lögum. Ýmis önnur atriði í fram- varpinu sagðist hann vilja breyta en 10. greinin vægi þyngst. Hreggviður Jónsson (B/Rn) sagði þingmenn Borgaraflokksins vera almennt á móti kvótakerfínu, en þrátt fyrir það hefðu þeir komið fram með ýmsar breytingartillögur í efri deild við umræðu þar, sem þeir teldu raunhæft að næðu fram að ganga. Lagði Hreggviður einnig fram þessar tillögur. Hreggviður taldi kvótalögin vera andstæð meg- insjónarmiðum stjómarskrárinnar um þrískiptingu ríkisvaldsins. Með lögunum ætti í fyrsta lagi sér stað stórkostlegt valdframsal frá lög- gjafarvaldi til framkvæmdavalds, þannig að Alþingi réði engu en ráðuneytið öllu. I öðra lagi væri dómsvald fært í hendur ráðuneytis- ins frá dómstólum. Til bóta á þessu Iagði Hreggviður til að Alþingi kysi sérstaka framkvæmdanefnd hlut- fallskosningu til þess að fara með mest af því valdi, sem ráðherra væri nú falið við úthlutun kvóta. Einnig yrði komið á sérstökum dómstól til þess að dæma í málum vegna brota á kvótareglum. Hreggviður lagði það og til að tekin yrði brott 10. gr. framvarps- ins, er takmarkaði veiðar smábáta. „Smábátamir munu ekki ofveiða og munu ekki breyta miklu í heild- arveiðinni. Þingmenn Borgara- flokksins munu því standa þétt að baki smábátaeigendum." Kristín Halldórsdóttir(K/Rn) taldi að kvótaframvarpið hefði verið vel undirbúið af hálfu sjávarútvegs- ráðherra og ætti hann þakkir skildar fyrir að hafa tryggt stjóm- arandstöðunni aðstöðu til þess að fylgjast með undirbúningi og um- ræðum í ráðgjafanefnd. Hún taldi hins vegar miður að einungis sjón- armið ráðherrans og ráðuneytisins hafí þar verið skýrð og útfærð, en breytingarhugmyndir ekki fengið raunveralega umræðu. Kristín gat þess, að Kvennalist- inn hefði á sínum tíma stutt núverandi kvótalög, enda hafí þing- menn listans þá ekki séð betri kosti. Þingmenn Kvennalistans hefðu nú hins vegar í ljósi reynslu af núverandi lögum mótað eigin drög að nýjum kvótareglum. Um reynslu núverandi laga sagði Kristín að markmið kvótakerfís væra að mati Kvennalistans eftir- farandi: Hindran ofveiði og upp- bygging. stofna, aukin hagkvæmni í útgerð, bætt meðferð sjávarafla, hámarksnýting afla, bætt kjör fólks er vinni í sjávarútvegi og sanngjöm dreifíng atvinnu og arðs eftir byggðarlögum. Kristín taldi fyrsta markmiðið ekki hafa náðst. Um annað markmiðið sagði hún að sum- ir héldu því fram að það hefði náðst m.a. vegna kvótakerfisins. „Úr þessu hefur dregið veralega hin síðustu ár vegna aukinnar aðsóknar í sóknarmark og þar af leiðandi aukinnar fjárfestingar. Um þriðja markmiðið sagði Kristín að meðferð afla hefði batnað mikið og væri þar helst að þakka aukinni fræðslu til handa þeim sem aflann vinna, sem ráðuneytið hefði staðið fyrir. Kristín taldi og hugsanlegt að kvótakerfið ætti þar einnig hlut að máli, þar eð magn væri gefinn hlutur, en gæði réði tekjum. Kristln taldi mik- ið vanta á að fjórða markmiðinu væri náð; væri miklum verðmætum kastað á glæ. Kristín taldi og langt í frá að fímmta markmiðinu væri náð; kjör þessa fólks væra smánan- leg, einkum fiskvinnslufólks. Úm síðasta markmiðið sagði Kristín, að niðurstaðan væri mjög umdeilanleg. „Kvótinn, sem útgerðarmenn hafa fengið á silfurfati, hefur hleypt verði skipa upp, þannig að illa stæð- ar útgerðir hafa séð sér leik á borði og selt skip sín með hundraða millj- óna gróða úr byggðarlaginu, en fólkið hefur setið eftir með sárt ennið og misst atvinnu sína.“ Kristfn kynnti tillögur Kvenna- listans að nýjum kvótalögum og kvaðst hún nokkuð bjartsýn á að þær næðu fram að ganga. í grófum dráttum felast tillögur þeirra í því að 80% aflans yrði skipt á byggðar- lög eða útgerðarstaði með hliðsjón af meðalafla síðustu fímm ára en 20% í sameiginlega sjóði til sölu eða leigu. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir (B/Rvík) kvaðst fyrst og fremst vera á móti þessu frumvarpi vegna 10. gr. um veiðar smábáta. Taldi hún að þetta ákvæði ef af lögum yrði myndi hafa í för með sér gífur- lega byggðaröskun, sem nú þegar væri orðin nógu slæm. Taldi hún almennt óþarft að takmarka veiðar smábáta umfram það sem Drottinn gerði; veður sæju til þess að þeir þyrftu að vera inni stóran hluta af vertíð. Ingi Björn Albertsson (B/Vl) fagnaði þeirri yfírlýsingu Matthías- ar Bjarnasonar um að fyllsta samstarf yrði haft við stjómarand- stöðuna við meðferð framvarpsins í sjávarútvegsnefnd. Væri óvenju- legt að heyra slíka yfírlýsngu frá stjómarliða. Ingi Björn ræddi mikið um 10. gr. framvarpsins um smá- báta, sem hann taldi að myndi hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir smá- bátaútgerð og atvinnumál I mörgum smærri byggðarlögum, sem að veralegu leyti byggðu allt sitt á smábátaútgerð. Tók hann sem dæmi Grímsey. Sagði hann að vegna dafnandi smábátaútgerðar hefði íbúum Qölgað veralega í byggðarlaginu. Gildistöku 10. gr. taldi hann hins vegar myndu hafa I för með sér 30% minnkun afla að landi í Grímsey. „Er þetta byggða- stefna núverandi ríkisstjómar?" spurði Ingi Bjöm. Friðjón Þorðarson (S/Vl) sagði að það væri margt sem huga þyrfti að við skoðun kvótaframvarpsins í nefnd. Taldi hann nauðsynlegt að hlúa vel að smábátaútgerð. „Smá- bátamir hafa fengið að veiða frjálsir undanfarin ár og eiga þeir það fylli- lega skilið. Hér á þingi era margir einlægir vinir smábátaeigenda, eins og mátt hefur heyra af umræðum og er eins gott að þeir standi við orð s(n.“ Friðjón taldi 2 ár vera nægilega langan gildistíma. Steingrimur J. Sigfússon (Abl/Ne) sagði um gildistíma fram- varpsins, að það væri vissulega til hagræðis rekstrarlega fyrir útgerð- ina að hafa gildistlmann langan, en með 3-4 ára gildistíma væri hins vegar verið að festa kerfið í sessi sem væri ófært vegna margra ágalla. Taldi hann því nauðsynlegt að sigla einhvem meðalveg. Steingrímur taldi kvótakerfíð eins og það væri samkvæmt núgild- andi lögum hafa í för með sér ýmsar slæmar aukaverkanir, eins og yfír- verð á skipum og öryggisleysi landverkafólks. Taldi hann einu leiðina úr þessum ógöngum vera að tengja kvóta við byggðarlög. Steingrímur beindi ennfremur þeirri fyrirspum til sjávarútvegs- ráðherra hvort kannað hefði verið hvort ákvæði 17. og 18. gr. um úrskurðar- og sektunarvald ráð- herra stæðust gagnvart stjómar- skránni. Fjármálaráðherra um tekjuöflunar- frumvörpin: Hækka ekki framfærslu- kostnað meðalfjölskyldu FYRSTU umræðu um söluskattsfrumvarpið var framhaldið í neðri deild í gær og var frumvarpinu vísað til fjárhags- og viðskiptanefnd- ar að þeim loknum. Samkomulag hafði náðst um að hafa umræður stuttar og tókst að halda þeim nokkurn veginn innan þess tíma- ramma sem menn höfðu gefið sér. Nokkrir þingmenn boðuðu þó að þeir myndu koma með athugasemdir sínar við aðra umræðu sem ætlunin er að fari fram i dag. Þingmenn Borgaraflokksins, þau Hreggviður Jónsson, Ingi Bjöm Albertsson, Albert Guðmundsson og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir gagnrýndu framvarpið, aðallega fyrir að leggja ætti söluskatt á matvæli. Boðuðu þau breytingartil- lögur við þessi ákvæði og fleiri. Einnig var þeirri fyrirspum beint til fjármálaráðherra hvemig ætti að standa að niðurgreiðslum á físki. Steingrímur J. Sigfússon (Abl/Ne) sagði að verið væri að ræða um að setja á einhveija hæstu skattpró- sentu í heimi. Sá samanburður sem stundum hefði verið gerður við ná- grannalöndin til að réttlæta þessa breytingu væri alls ekki sanngjam. . Jón Baldvin Hannibalsson, fjár- málaráðherra, sagði að aðalatriðið væri að heildaráhrífín af þessum breytingum væra þau að fram- færslukostnaður meðalfjölskyldu hækkaði ekki. Bammargar fjöl- skyldur og einhleypingar yrðu betur settar en áður vegna hliðarráðstaf- ana. Fjármálaráðherra sagði að niður- greiðsla á neyslufíski yrði á smásölustigi og myndi byggjast á framlögðum söluskattsskýrslum. Niðurgreiðslan myndi ná til fersks físks til daglegrar neyslu og einnig saltaðs og reykts físks. Niður- greiðslan næði ekki til mötuneyta og veitingastaða og tegunda á borð við rækju og humar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.