Morgunblaðið - 13.01.1988, Page 1

Morgunblaðið - 13.01.1988, Page 1
64 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 9. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Óeirðir á Gaza-svæðinu: Israelar hefta för sendimanns SÞ Gaza, Reuter. ÍSRAELSKIR hermenn skutu til bana einn mann og særðu tvo á Gaza-svæðinu í gær. Það gerðist í þann inund er Marrack Gould- ing, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, gerði tilraun til að aka bifreið sinni inn i Jabalya-flóttamannabúðirnar þar sem átökin áttu sér stað. Öryggisverðir meinuðu honum að- gang að búðunum. „Mér var ekki hleypt inn í búð- imar, en hyggst kynna mér ástandið í öðrum flóttamannabúð- um,“ sagði Goulding í viðtali við fréttamann Reuíers-fréttastof- unnar. Jabalya-flóttamannabúð- imar eru hinar stærstu á Gaza-svæðinu og em þar um það bil 60.000 flóttamenn. Sett hefur verið útgöngubann á sjö af átta flóttamannabúðum á Gaza-svæð- Kanada: DC-10 þotu lent vegna sprengju- hótunar Engan sakaði Edmonton, Reuter. DC-10 Þota Canadian Airlines á leið frá Amsterdam tU Vancouv- er í Kanada lenti í gærkvöldi á flugveUi í Edmonton vegna sprengjuhótunar að sögn kanadísku fréttastofunnar Canadian Press. Fyrstu fréttir greindu frá þvi að vélinni hefði verið rænt. Allir farþegamir 268 að tölu og 13 manna áhöfn komst heil á húfí út úr flugvélinni á flugvellinum í Edmonton. Að sögn starfsmanna flugfélagsins barst áhöfninni „handskrifuð sprengjuhótun" á meðan hún var í loftinu. Ekki var vitað seint í gærkvöldi hveijir hefðu staðið á bak við sprengjuhót- unina. Lögregla fór um borð strax og vélin hafði lent og leitaði að sprengju með hjálp sérþjálfaðra hunda. inu. Fréttaflutningur af ástandinu hefur verið takmarkaður og rit- skoða stjómvöld nú allar fréttir sem sendar em þaðan. Yitzhak Shamir forsætisráð- herra ísraels hefur lýst því yfír að ísraeiar muni ekki greiða götu sendinefndar á vegum Sameinðu þjóðanna sem ætlað er að kynna sér ástandið á herteknu svæðun- um og leita leiða til að tryggja öryggi hálfrar annarrar milljónar Palestínumanna sem þar búa. Samkvæmt óopinbemm tölum hafa nú 35 Palestínumenn fallið og 250 særst síðan óeirðir hófust á herteknu svæðnum þann 9. des- ember. Reuter Palestínskar konur hafa mótmæli I frammi vegna ástandsins á Gaza-svæðinu er Marrack Goulding sendi- maður Sameinuðu þjóðanna kemur af fundi með Rashad Shawa fyrrum borgarstjóra í Gaza. Goulding var í gær meinaður aðgangur að flóttamannabúðum á Gaza-svæðinu. Svíar og Sovétmenn semja um umdeilt hafsvæði: Besti samningur sem smá- þióð hefur gert við stórveldi - segir Ingvar Carlsson forsætisráðherra Svíþjóðar Stokkhólmi, Reuter. SVÍÞJÓÐ og Sovétríkin komust í gær að samkomulagi um skipt- ingu umdeilds hafsvæðis á Eystrasalti. Ingvar Carlsson for- sætisráðherra Svía fagnaði samkomulaginu en í 19 ár hefur verið deilt um hvar draga eigi miðlínu milli landanna. Nikolaj Ryzhkov, forsætisráðherra Sov- étríkjanna, sagði að loknum fjögurra stunda fundi með Carls- son að samningurinn væri „enn einn grundvöllur góðrar sambúð- ar nágrannaríkjanna". „Samkomulagið er ákjósanlegt, eftiahagslega, herfræðilega og hvað varðar öryggi okkar," sagði Carls- son á blaðamannafundi. „Aldrei hefur smáþjóð komið jafn vel út úr samningaviðræðum við risa- veldi.“ Deilt hafði verið um yfír- ráðarétt yfír 8.500 fermflna svæði milli eynnar Gotlands og Lettlands- strandar, hinu svokallaða „Hvíta svæði“. Samkvæmt samningnum fá Svíar þijá íjórðu hluta svæðisins í sinn hlut og Sovétmenn fjórðung svæðisins. Aður höfðu Sovétmenn krafist þess að miðlína yrði dregin milli meginlands Svíþjóðar og Lett- lands en þá hefði hið umdeilda svæði, með gjöfulum fiskimiðum, komist undir sovésk yfírráð. Fiskveiðiflotar beggja ríkja munu fá að veiða á svæðinu öllu og verða settir kvótar á sfldveiðar og þorsk- Yankee-kafbátur eftir lengingu Reuter Norska rikisstjórnin birti í gær þessa mynd af sovéskum kjarnorkuknúnum Yankee-kafbáti. Kafbáturinn hefur verið lengdur um tiu metra til að koma megi fyrir í honum stýriflaugum af gerðinni SS-N-21. Áður var slikum kafbátum ætlað að bera langdrægar kjarnorkuflaugar en þeir þurftu að sigla suður fyrir ísland til að flaugar þeirra næðu til skotmarka í Bandaríkjun- um. Sovétmenn hafa nú tekið nýrri og fullkomn- ari eldflaugakafbáta í notkun og bera þeir flaugar sem ná til Bandaríkjanna frá Barents- hafi. veiðar. Að sögn Carlsons er nú ekkert því til fyrirstöðu að hafnar verði rannsóknir á sjávarbotninum en menn vonast til þess að þar megi fínna olíulindir og önnur dýr jarðefni. Á mánudag lýsti Ryzhkov því yfír að Sovétmenn hygðust fylgja eftir yfírlýsingum Gorbatsjovs frá því í haust um minnkandi hemaðar- umsvif á norðurslóðum. Til að undirstrika að hugur fylgdi máli bauð hann fulltrúum Norðurland- anna að fylgjast með flotaæfíngum Sovétmanna í Barentshafí og er það í fyrsta skipti sem Sovétmenn leyfa öðrum þjóðum en Varsjárbanda- lagsþjóðum slíkt. Sjá „Barentshafið innifalið . . .“ á bis. 24. Hætta skapast verði fallið frá umbótum - segir Míkhaíl Gorbatsjov Moskvu, Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, sagði á fundi með ritstjórum og menntamönnum að umbótaáætlanir sínar mættu mótspyrnu bæði vinstri manna og afturhaldsafla í Sovétríkjun- um, en ef fallið væri frá þeim nú hefði það hörmulegar afieiðingar í för með sér. Gorbatsjov sagði að ef umbótun- um yrði hætt nú hefði það mjög alvarlegar afleiðingar í for með sér, því ekki myndi verða unnt að fá fólk til að styðja svo viðamikið verk- efni í annað sinn. Hann sagði ennfremur að ríkisstjómin í Kreml hefði komist að þeirri niðurstöðu að einungis einstaka einstaklingar og nokkrir smáhópar væm á móti umbótunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.