Morgunblaðið - 13.01.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1988
17
Tæki til að bijóta þvagfærasteina
Meðfylgjandi mynd var tekin
þegar handlækningadeild Land-
spítalans veitti móttöku gjöf frá
kvennadeild Reykjavíkurdeildar
Rauða Kross íslands. Um er að
ræða tæki til að bijóta þvagfæra-
steina. Á myndinni er stjórn
kvennadeildar Rauða Kross Is-
lands með formanni, Karitas
Bjargmundsdóttur, Margréti
Magnúsdóttur hjúkrunarfræðingi,
Agli Jacobsen þvagfæraskurð-
lækni, Hjalta Þórarinssyni pró-
fessor og Kristjáni Antonssyni
innkaupastjóra Ríkisspítalanna.
Tvær milljónir til
hjálparstarfs Rauða
krossins í Eþíópíu
RAUÐI kross íslands hefur gefið
tvær milljónir króna til hjálpar-
starfs Alþjóðarauðakrossins i
Eþíópíu. Þar af er ein milljón
framlag frá ríkisstjórninni en ein
milljón er framlag úr hjálparsjóði
RKI. Fé þetta verður notað til
kaupa á mjöli, sykri og olíu sem
keypt er þar sem það er hag-
kvæmast m.t.t. innkaupsverðs og
flutningskostnaðar.
Svo sem fram hefur komið í frétt-
um er Ijóst að mikil hungursneyð er
nú yfírvofandi í Eþíópíu, einkum í
norðurhéruðunum þar sem erfítt hef-
ur verið um vik fyrir hjálparstofnanir
vegna átaka skæruliða og stjóm-
valda. Alþjóðarauðikrossinn hefur
þegar hafið matvæladreifingu til um
einnar milljónar Eþíópíubúa en alls
er áætlað að um 6 milljónir manna
muni þurfa matvælaaðstoð á næstu
mánuðum vegna uppskerubrests.
í lok síðasta árs þegar ljóst var
að hungursneyð var yfirvofandi sendi
Alþjóðarauðikrossinn landsfélögum
Rauða krossins um heim allan beiðni
um aðstoð sem nemur nær 3.500
milljónum ísl. kr. til hjálparstarfsins
í Eþíópíu.
Álþjóðarauðikrossinn hefur nú um
30 manna erlent starfslið í Eþíópíu
auk fjölda innlendra starfsmanna
sem vinna í nánu samstarfi við
eþíópíska Rauða krossinn sem er
öflugt og vel skipulagt félag og hef-
ur innan sinna vébanda starfsfólk
og fjölda sjálfboðaliða með mikla
reynslu af hjálparstarfí. Þessir aðilar
hafa í sameiningu auk þjálfaðs fólks
yfir að ráða birgðageymslum og
flutningatækjum til geymslu og
dreifingar á matvælum um gervallt
landið og geta þannig tryggt að
hjálpin berist fljótt og örugglega til
þeirra sem hennar þurfa.
(Fréttatilkynning)
i¥’;'4p l
lHflggg
Hraðaðu þér til
umboðsmannsins og
tryggðu þér númer -
< NÚNA!
Risavaxnir
vinningar í sjónmáii!
45 milljónir
koma á þitt númer
fara undraveróir
hlutir að gerast!
Happdrætti Háskólans hefur hæsta vinnings-
hlutfall í heimi! 70% af veltunni fara til vinnings-
hafa! Allir vinningar eru greiddir út í beinhörð-
um peningum sem vinningshafar ráðstafa að
eigin vild. Vinningarnir eru undanþegnir skatti!
Vinningarnir 1988: 9 á 5.000.000 kr./ 108 á 1.000.000 kr./
108 á 500.000 kr/ 324 á 100.000 kr./ 1.908 á 25.000 kr./
10.071 á 15.000 ki./ 122.238 á 7.500 kr/ 234 aukavinningar
á 25.000 kr./ Samtals 135.000 vinningar á 1.360.800.000 kr.
m'M
** -
" . í r. - dfc