Morgunblaðið - 19.01.1988, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1988
9
Karlmannaföt, verðfrá kr. 2.995,-
Terylenebuxur, kr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,- og 1.795,-
Gallabuxur nýkomnar, kr. 795,- og 850,-
Peysuro.fi. ódýrt.
Andrés I Skólavörðustíg 22, sími 18250.
HRAÐLESTRARNAMSKEK)
Næsta hraðlestrarnámskeið hefst
þriðjudaginn 2. febrúar nk.
Viljir þú margfalda lestrarhraða þinn og
læra árangursríkar aðferðir í námstækni,
skaltu skrá þig strax á námskeiðið.
Skráning öll kvöld kl. 20.00-22.00
í síma 611096. ---
HRADLESTRARSKOUNN
Að læra af sögunni
Á sunnudaginn hófu þeir Páll Heiðar
Jónsson og Dagur Þorleifsson að nýju
að flytja sagnfræðilega þætti á rás 1 í
Ríkisútvarpinu, þar sem lýst er átökum
milli austurs og vesturs á dögum kalda
stríðsins, það er frá Potsdam-ráðstefn-
unni 1945 til Kúbu-deilunnar 1962.
Samantekt þeirra félaga minnir á, hve
hart var tekist á milli kommúnistaríkja
og ríkja hins frjálsa heims á þessum
árum. Þar er því einnig lýst, hvernig mat
manna á slíkum átökum hefur breyst
eftir að allir helstu deiluaðilarnir urðu
gráir fyrir kjarnorku-járnum. Af þessari
sögu er ekki unnt að læra annað en frek-
ar hafi þróast í betri átt á þeim tíma, sem
liðinn er frá spennunni í kalda stríðinu,
þrátt fyrir alkunna útbreiðslu kjarnorku-
vopna. Við samskipti austurs og vesturs
er staldrað í Staksteinum í dag og vitnað
í Franz Josef Strauss, forsætisráðherra
Bæjaralands, sem telur okkur standa á
þeim sögulegu tímamótum, að stríð og
byltingar séu úreltar a.m.k. í Evrópu, ef
árvekni sé gætt í öryggismálum.
Strauss og
Gorbatsjov
Af mörgum hefiir
Franz Josef Strauss, for-
sætisráðherra Bæjara-
lands og formaður
kristilega flokksins þar,
sem á aðild að sambands-
stjóminni í Bonn, verið
talinn einn síðasti fulltrúi
kaida stríðsins í evrópsk-
um stjómmálum. Þetta
orðspor hefur hvorki
dregið úr vinsældum
hans heima fyrir, en ná-
lægt 60% kjósenda i
Bæjaralandi kjósa hann
til æðstu starfa áratug
eftir áratug, né komið í
veg fyrir samskipti hans
við forystumenn í kom-
múnistaríkjunum. Ný-
lega var Strauss tíl að
mynda i Moskvu og
ræddi við Míkliaíl Gor-
batsjov, flokksleiðtoga.
Fór Strauss loflegum
orðum um Gorbatsjov að
þeim fundi loknum.
Skömmu áður en
Strauss fór til Moskvu
birtist grein eftir hann í
nýju ársQórðungsriti um
Evrópumálefiii Europ-
ean ASkirs, sem er gefið
út í Hollandi. Þar veltir
hann því fyrir sér hvert
Gorbatsjov stefiii. Ef
hugmyndir hans séu þær,
sem við höldum, kunni
þær að leiða til umbóta
í Sovétríkjunum og í ai-
þjóðlegum samskiptum.
Vilji aðalritarinn slikar
breytingar og komi þeim
í framkvæmd séum við
ef tU vili á merkum tíma-
mótum i mannskynssög-
unni. Þess vegna eigum
við að styðja stefiiu, sem
gefi Gorbatsjov tækifæri
tíl að sýna hvað i honum
býr. En oft sé langt bU á
milli vona og verka. Við
lifiim ekki enn á guUöld
friðar og réttlætis, raun-
ar sé hún ekki í sjónmáli.
Strauss segir, að glas-
nost og perestrojka séu
hugtök í kommúniskri
hugmyndafræði, sem
eigi ekkert skylt við skýr-
ingar Vesturlandabúa á
þcim. Gorbatsjov vilji
' ekki umbylta sovéska
kerfinu, heldur auka af-
köst þess. Hann vijji
draga úr vigbúnaði en
ekki hvería frá sovésk-
um hernaðaryfirburðum.
Hann vilji losa um hlekk-
ina á þjóðum Austur-
Evrópu en ekki fjarlægja
þá.
Stríð úrelt
í grein sinni segir
Strauss, að vijji vestræn-
ar þjóðir gegna þeirri
sögulegu skyldu sinni að
varðveita frelsi sitt verði
þær ávaUt. að hafa þetta
kjörorð Atlantshafs-
bandalagsins í huga:
Enginn friður án ár-
vekni. Hafi Vestur-
landabúar vilja til að
haga sér í samræmi við
þetta verði styijaldir úr
sögunni sem leið til að
ná pólitískum markmið-
um, að minnsta kosti þar
sem ríki úr austri og
vestrí standa öflugust
andspænis hvert öðru,
það er í Evrópu. Þessi
staðreynd leiði ekki til
þess að framvinda sög-
unnar muni stöðvast,
mennirnir ráði henni og
þess vegna sé þar um
sifellda hreyfingu að
ræða.
Siðan segir Franz Jos-
ef Strauss: „Engar
sögulegar breytingar í
Evrópu eiga eftir að ger-
ast á vígvellinum eða í
götuvirkjum byltingar-
manna. Agreiningurinn
milli stjómkerfanna
verður leiddur til lykta
með hugarorku, fyrir til-
stilli vísinda og tækni.
Akvarðanimar verða
teknar í rannsóknastof-
um vísindamanna með
störfúm þróunar-verk-
fræðinga í nútímalegum
verksmiðjum. Þetta ger-
ist á sviði rafeindatækni
og ör-rafeindatækni,
geimvísinda, líf- og
erfðatækni og á öðrum
rannsóknasviðum nú-
timavisinda, sem ekki
eru enn innan sjónmáls.
Ég er sannfserður um
að lýðræðislegir stjórn-
arhættir Vestur-Evrópu,
Norður-Ameríku og Jap-
ans munu sigra í þessum
átökum. Hvers vegna?
Vegna þess að sá vinnur
sigur, sem leyfir fijálsa
miðlun upplýsinga,
fijálsar umræður og
jafiiframt frelsi í rann-
sóknurn."
Strauss segir, að flest
bendi til þess að mikil-
vægi landamæra í
hefðbundnum skilningi
muni minnka jafnt og
þétt. Þar komi til sú stað-
reynd, sem vonandi sé
rétt, að styijaldir eða
byltingar eigi ekki eftir
að valda sögulegum
breytingum í Evrópu.
Visindi og tækni hafi í
för með sér efnahagsleg-
ár kröfúr, sem ýtí
landamærum til hliðar.
Bylting i fjölmiðlatækni
ryðji hindnmum milli
þjóða í burtu. Þegar
fram líði stundir eigi
landamæri eftir að vera
stjórnsýslumörk í stað
pólitískra viglína. Þessi
breytíng á landamærum
eigi að ná til allra þjóða
í Evrópu, jafiit í austri
! og vestri.
EFTIRLAUNAREIKNINGU R VIB:
Nýtt ár meðnýjum og góðum venjum!
□ Eftirlaunareikningar VIB em veröbréf í eigu einstaklinga skráð
á nafn hvers eiganda.
□ Eftirlaunareikningar VIB em alveg óbundnir en þeir eru ávaxt-
aðir eins vel og frekast er unnt án þess að taka of mikla áhættu.
□ Flestir greiða mánaðarlega í eftirlaunareikningsinn. VIB sér um
að senda gíróseðla eða minna á reglulegar greiðslur með öðrum
hætti.
□ Síminn að Ármúla 7 er 68 15 30. Heiðdís, Ingibjörg, Siguröur
B., Vilborg og Þórólfur gefa allar nánari upplýsingar.
VIB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Armula 7, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30