Morgunblaðið - 19.01.1988, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1988
15
Vínartónleikar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Vínartónleikar eru að verða
föst hefð hjá Sinfóníuhljómsveit
íslands og þá um leið fengnir til
samstárfs tónlistarmenn frá
Vínarborg. Að þessu sinni voru
það söngkonan Silvana Dussmann
og fiðluleikarinn Peter Guth. Leik-
in voru lög eftir Johann Strauss
yngri en aðeins eitt, Vínargeð,
eftir föður hans, Johann Strauss
eldri. Það sem gerði flutning
Vínargeðs skemmtilegan var
hljóðfæraskipanin, tvær fiðlur,
lágfiðla og kontrabassi, sem
tíðkaðist að vera danshljómsveit-
imar á þeim tíma þegar verkið
var samið. Þeir sem fluttu þessa
hugljúfu danstónlist voru, auk
hljómsveitarstjórans, Guðný Guð-
mundsdóttir, Helga Þórarinsdóttir
og Jón Sigurðsson og var flutn-
ingur þeirra góður og eitt
skemmtilegasta atriði tónleik-
anna.
Söngkonan Silvana Dussmann
söng m.a. aríur úr Vínarblóði,
Leðurblökunni og Sígaunabarón-
inum eftir Johann Strauss yngri.
Dussmann er ágæt söngkona og
lét sig ekki muna um að taka þátt
í smá kampavínsglensi. Kirkju-
kórinn og kór Fjölbrautaskólans
á Akranesi sungu með í lögum
úr Sígaunabaróninum og í Dón-
árvalsinum og gerðu það með
prýði. Það var auðheyrt að hljóm-
sveitin skemmti sér hið besta og
lék með töluverðri Vínarsveiflu
og það sem kom þægilega á
óvart, að undirraddimar voru
leiknar sérlega veikar og hryn-
rænt léttar.
Peter Guth og Silvana Guss-
mann eru frábærir tónlistarmenn
og ekki að efa að þau kunna fleira
fyrir sér en að leika Vínarvalsa,
sem í höndum Austurríkismanna
eru orðnir táknrænir fyrir lífsgleði
og kátínu. Það ríkti ósvikin kátína
á tónleikunum, kátína sem er
sprottin upp úr þeirri frumþörf
mannsins að skemmta sér og
gleðjast. Sá sem stýrði þessum
gleðileik, fiðluleikarinn Peter
Guth, var ekki aðeins að skemmta
tónleikagestum, heldur einnig
sjálfum sér en þar { er fólginn
galdurinn að gleðjast á góðri
stund í góðum félagsskap.
Selfoss:
Árfoss hf. með nýja
tollvöruskemmu
Talsverð aukning í flutningum Eim-
skips og Flugleiða austur fyrir flall
SelfossL
ÁRFOSS hf. á Selfossi flutti nýlega starfeemi sína í nýja tollvöru-
skemmu sem fyrirtækið reisti við Gagnheiði. Á síðastliðnu ári varð
10-20% aukning í vöruafgreiðslu fyirtækisins.
Arfoss hf. hefur umboð fyrir Eim-
skip hf. og flugfrakt Flugleiða og
hefur á sinni könnu alla þjónustu
sem þessi fyrirtæki veita, þar með
talda flutninga innanlands á vegum
Eimskips. Unnt er að koma með
vörumar á afgreiðslu fyrirtækisins
sem síðan sér um að koma henni
rétta boðleið með Eimskip. Vörur
sem fluttar eru inn með Eimskip eða
flugfrakt Flugleiða eru tollafgreidd-
ar á Selfossi og að henni lokinni
geta innflytjendur sótt vörur sínar í
vöruskemmuna. Að þessari þjónustu
er mikið hagræði sem Sunnlendingar
nýta sér í vaxandi mæli.
Nýja vöruskemman er 600 fer-
metrar og mögulegt að stækka hana
um helming. I öðrum enda skem-
munnar er gert ráð fyrir skrifstofu-
húsnæði og geymslu minni pakka.
Auk þess að afgreiða vörumar sjá
starfsmenn Árfoss um tollskýrslu-
gerð fyrir þá sem þess óska. Þessi
nýja skemma gerir að verkum að
unnt er að taka allar vömr i hús,
þar með talið timbur og annað bygg-
ingarefni. Vömflutningabílum er
ekið inn í skemmuna og þeir losaðir
þar.
Uppistaðan í flutningum fyrirtæk-
isins er hráefni til iðnaðar. Einstakl-
ingar nýta sér einnig þjónustuna í
auknum mæli og verslanir sem flytja
vömr sínar inn beint.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Kjartan Ólason og Magnús Guðmundsson, starfemenn Arfoss hf.
Hin nýja vöruskemma Árfoss við Gagnheiði á Selfossi.
Utsala Utsala Utsala
...allt að 0% afsláttur
Verð áður
Herraföt
Buxur lJdQ9T-
Sokkar
Peysa
Skíðabuxur
Bolur IA9&:
Barnaföt
Úlpur
Úlpur 1.999-
Peysur 7J99T
Skyrtur
Buxur J&9r-
Háskólabolir
Leikföng & giafa
Útvegsspilið 1£89--
Skólaborð/stóll 2J599-
Laserbyssur 2jm-
Vínglös.Tulip J&9-
Vcrð nú
Verð áður Verð núl
999-
49-
6994
Púðar.glansefni
299-
299-
Dömuföt
Skyrtur
Frakkar
Dúnúlpur
Pils
Poplin blússur
Kanvasbuxur
Gallabuxur
999-
2.999-
^A99: 2.999-
\J99^ 1.299-
IA9&- 799-
\£&9r-
\£&9r-
Skór
999-
999-
1 99-j1 Hælaskór dömu \J289T-
Mokkasíur dömu
Kuldaskór bama
Leðurökklaskór 2^90= 1.999-
Ökklaskór dömu \J299r 1.299-
699-!
899-
799-
■
Bókamarkaðurinn ;
er í fullum gangi.
Fjöldi góðra bóka með
30 - 70% aíslælli
m
HBB
Æó- ; *
HAGKAUP
Kringlunni Skeifunni Kjörgarði Akureyri Njarðvík
MARGRA ÁRA ÞRÓUN
í EINNI TÖLVU
- IBM PS/2