Morgunblaðið - 19.01.1988, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1988
17
sjálfum við — frekar er að menn
dáist að stórhugnum að baki.
Það er og nokkuð mikið atriði
fyrir hinn almenna borgarbúa, þeg-
ar þrengja á byggð á einum
fegursta stað í hjarta borgarinnar
og beinlínis draga fortjald þvert
yfir norðurhluta Tjarnarinnar og
byrgja útsýni gangandi vegfarenda
að hluta til fyrir fullt og allt. Að
auki verða undir því bílastæði fyrir
200 bíla, sem óhjákvæmilega mun
skapa meiri röskun, ónæði og
mengun en ráð er gert fyrir. Ég
vil láta það alveg vera að deila á
sjálfa bygginguna í þessu stutta
greinarkomi mínu, en hún er vafa-
lítið hin frambærilegasta, en það
er rétt, að hún stingur í stúf við
þær byggingar, sem fyrir eru. Hvort
það sé til fegurðarauka eða ekki
er mál, sem kemur staðsetningunni
lítið við, en má vera mat hvers og
eins.
Meðal áhugamála minna á ferða-
lögum ytra er að skoða sem mest
af byggingum stórborga sem ég
heimsæki, almenningsgarða og
umhverfi. Tekið hef ég þá eftir
því, að víða er farið með slík opin
svæði svo og svæði, sem eiga sér
forsögulegt gildi, sem heilög vé,
sem drottinssvik þætti að hrófla við.
Er maður svo dáist að því, sem
vel hefur tekist, hugsar maður með
aðdáun og hlýhug til þeirra, er hér
stóðu að verki, en fyllist annars
vegar gremju í garð þeirra, sem
auðsjáanlega hafa misþyrmt um-
hverfi og náttúru.
Hér dæmir maður sjálfsagt sam-
kvæmt eðlislægu mati en ekki eftir
því, hvar menn standa í pólitík né
hver hafi verið borgarstjóri á staðn-
um!
Málið snýst þannig engan veginn
um borgarstjórann, nema að því
leyti að hann vill fá sitt hús á þenn-
an stað. Ekki einu sinni hugmyndin
að ráðhúsi við Tjömina er frá hon-
um komin, því hún er af miklu eldri
toga og hugmyndirnar hafa alla
jafna verið fáránlegar og óaðskilj-
anlegar, enda viðbrögð almennra
borgara í samræmi við það.
í áratugi hafa borgaryfirvöld
haft tækifæri til að huga vel og
gaumgæfílega að sínu ráðhúsi án
þess að nokkuð hafí verið aðhafst,
en byggðin sjálf um leið þanist út.
Drög að hugmyndinni hafa þó allan
tímann verið til í skúffum og jafn-
an, er hróflað var við þeim, renndu
menn hýru auga til Tjarnarsvæðis-
ins.
En þrátt fyrir stækkun borgar-
innar og þrengingu byggðar eru enn
til ágæt svæði undir ráðhús, svo
sem margur hefur bent á í skrifum
sínum og nú síðast Guðrún Péturs-
dóttir hér í blaðinu laugardaginn
9. jan.
Hugmynd hennar um byggingu
á Hafskipslóðinni fyrrverandi gegnt
Seðlabankanum er snjöll og vel
þess virði að vera tekin til athugun-
ar.
Það hefur víða verið sótt að fögr-
um og sögulegum opnum svæðum
á höfuðborgarsvæðinu á undan-
gegnum árum og óbætanleg mistök
verið framin svo sem á Laugarás-
hæðinni — allt í senn hvað háhýsin,
lághýsin nýju og guðshúsið áhrærir
— hér skortir samræmi og vist-
fræðilega tilfínningu. Þegar er farið
að ganga á friðað svæði undir bíla-
stæði við kirkjuna, sem er í hróp-
andi ósamræmi við hinn litla
ósnortna reit sem geymir menjar
frá ísöld. En um þetta svæði hef
ég ritað áður og fjalla því ekki nán-
ar um, enda of seint að forða hér
slysunum.
En það er ekki of seint að forða
slysi, hvað staðsetningu ráðhússins
snertir og öðrum slysum, sem í kjöl-
farið munu fylgja og því vil ég vísa
til hinnar heillegu götumyndar er
nú blasir við. A þessu svæði væri
hægt að gera svo ótalmargt sem
til fegurðar og yndisauka yrði fyrir
borgarbúa, ef vilji væri fyrir hendi,
og íeið gera Tjarnargötu að feg-
urstu götu borgarinnar. Veita um
Tjarnarsvæðið ljósi, lofti og lífi.
Bæjarstjórar Hafiiarfiarðar og Kópavogs:
r-
Fasteigjiagj öld hækkuð
vegna útsvarshlutfalls
Gjöldin óbreytt
í Reykjavík,
Garðabæ, Sel-
tjarnarnesi og
Mosfellsbæ
FASTEIGNAGJÖLD í Hafnarfírði
og Kópavogi hækka frá því i fyrra
vegna 6,7% útsvarshlutfalls í ár,
að sögn Guðmundar Árna Stefáns-
sonar bæjarstjóra Hafharfjarðar
og Kristjáns Guðmundssonar bæj-
arstjóra Kópavogs. Fasteigna-
skattur af íbúðarhúsnæði í
Hafiiarfírði hækkar úr 0,375% í
0,425% af fasteignamati en úr 1%
í 1,25% af atvinnuhúsnæði. Skatt-
urinn hækkar hins vegar úr
0,421% í 0,5% af fasteignamati
íbúðarhúsnæðis í Kópavogi en úr
1,15% í 1,25% af atvinnuhúsnæði.
Sveitarfélög hafa leyfi til að
hækka eða lækka hlutfallið um
25% frá viðmiðunartölum sem eru
0,5% af fasteignamati íbúðar-
húsnæðis en atvinnuhúsnæðis 1%.
Guðmundur Ámi Stefánsson, bæj-
arstjóri sagði að fasteignaskattur á
íbúðarhúsnæði í Hafnarfírði væri
0,425% af fasteignamati en hefði
verið 0,375% í fyrra. „Fasteigna-
skattur af atvinnuhúsnæði er hins
vegar 1,25% en var 1% í fyrra.
Hækkunin stafar aðallega af óvissu
vegna útsvarsprósentunnar í ár.
Tekjur bæjarins af þessum skatti
verða um 115 milljónir króna í ár,“
sagði Guðmundur Árni. Skatturinn
var hins vegar 79,6 milljónir króna
í fyrra, að sögn Gunnars Rafns Sig-
urbjömssonar, bæjarritara í Hafnar-
firði, og er því hækkunin frá því í
fyrra um 44,5%.
„Utsvarsprósentan
þyrfti að vera 7,5%“
Kristján Guðmundsson, bæjar-
stjóri sagði að fasteignaskattur í
Kópavogi væri 0,5% af fasteigna-
mati íbúðarhúsnæðis en atvinnuhús-
næðis 1,25%. „í fyrra var fasteigna-
skatturinn hins vegar 0,421% af
fasteignamati íbúðarhúsnæðis en at-
vinnuhúsnæðis 1,15%. Tekjur okkar
af fasteignaskattinum voru um 164
milljónir króna í fyrra en verða um
245 milljónir króna í ár eða um 49,4%
hærri en í fyrra. Fasteignamat í
Kópavogi hækkaði frá því í fyrra um
24% á sérbýli, þ.e.a.s. einbýlishúsum
og raðhúsum, en 34% á öðm hús-
næði. Við teljum að tekjur okkar af
útsvarinu lækki frá því í fyrra með
því að vera með 6,7% útsvarspró-
sentu og því hækkum við fasteigna-
gjöldin. Utsvarsprósentan þyrfti að
vera a.m.k. 7,5% en hún var 10,2%
í fyrra. Við komum hins vegar til
móts við fólk með því að vera t.d.
með 10 gjalddaga á árinu og veitum
15% afslátt af gjöldunum ef þau em
að fullu greidd fyrir 1. febrúar næst-
komandi," sagði Kristján.
Páll Guðjónsson, bæjarstjóri sagði
að fasteignaskattur af íbúðarhús-
næði í Mosfellsbæ væri 0,375% af
fasteignamati en atvinnuhúsnæðis
1%. „Þetta hlutfall er óbreytt frá því
í fyrra,“ sagði Páll. „Tekjur okkar
af þessum skatti verða 25,6 milljónir
króna í ár en vom hins vegar um
20,5 milljónir króna í fyrra. Hækkun
á milíi ára er því um 25%. Lögin um
fasteignamatið segja að það skuli
endurspegla svokallað staðgreiðslu-
verðmæti húsnæðis en það er m.a.
reiknað út frá þeim kaupsamningum
sem gerðir em hveiju sinni. Það er
spuming hvort fasteignaskatturinn
ætti ekki frekar að vera ákveðið gjald
fyrir hvern rúmmetra því kostnaður
sveitarfélaganna lækkar ekki þó fas-
teignamatið lækki,“ sagði Páll.
Fasteigiiaskattstekjur
borgarinnar 1.100 millj.
Davíð Oddsson, borgarstjóri, sagði
að fasteignaskattur í Reykjavík væri
0,421% af fasteignamati íbúðahúsn-
æðs en atvinnuhúsnæðis 1,25%, sem
væri sama hlutfall og undanfarin ár.
„Tekjur okkar af þessum skatti vom
817 milljónir króna í fyrra en verða
um 1.100 milljónir króna á þessu ári
en það er um 34,6% hækkun. Ný
íbúðarhús og til dæmis Kringlan
hækka fasteignamatið mikið í
Reykjavík," sagði Davíð.
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri
sagði að fasteignaskattur á Seltjarn-
arnesi væri 0,375% af fasteignamati
íbúðarhúsnæðis en atvinnuhúsnæðis
1%. „Hlutfallið er búið að vera
óbreytt í mörg ár. Fasteignagjöldin
voru 21,503 milljónir króna í fyrra
en eru 27,906 milljónir króna í ár
sem er um 29% hækkun. Innifalið í
þessari tölu er mikið af nýjum bygg-
ingum og ef þær em ekki taldar með
er hækkunin 24%, sem mér sýnist
lafa í verðbólgnnni," sagði Sigurgeir.
Ingimundur Sigurpálsson, bæjar-
stjóri sagði að fasteignaskattur af
íbúðarhúsnæði í Garðabæ væri
0,375% en 0,75% af fasteignamati
atvinnuhúsnæðis. „Ég held að þetta
hlutfall sé búið að vera óbreytt frá
upphafí. Tekjur okkar af fasteigna-
skattinum vom 36,9 milijónir króna
í fyrra en verða um 45,7 milljónir
króna í ár eða um 24% hærri en í
fyrra," sagði Ingimundur.
ÚTSALA
ÚTSALA
Skólavörðustíg 17a, sími 25115
MICROSOFT
HUGBÚNAÐUR
WORD V 4,0
MULTIPLAN V 3,03
CHART V 3,0
PROJEGT V 4,0
COBOL V 2,2
C COMPILER V 5,0
FORTRAN V 4,01
PASCAL V 3,32
%
SKRIFSTOFUVELAR
Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37
Akureyri: Tölvutæki - Bókval
Kaupvangsstræti 4, sími: 26100
MIÐSTOÐVAR
matvöruviðskiptanna eru
opnar sem hér segir
Laugalæk, sími 686511
Virka daga kl. 8-19
Föstudaga kl. 8-20
Laugardaga kl. 8-16
Hamraborg, Kópavogi, sími 41640
Alla daga frá kl. 8-20
Gardatorgi, Garðabæ, sími 656400
Virka daga kl. 8-19
Föstudaga kl. 8-20
Laugardaga kl. 8-18
Verið ávallt velkomin