Morgunblaðið - 19.01.1988, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1988
TTSKUHUS
Austurstræti 10a, 4. hæð, sími 22226.
Símar 35408 og 83033
AUSTURBÆR SELTJNES
Síðumúli Fornaströnd
Ármúli SKERJAFJ.
HLIÐAR Einarsnes
Hamrahlíð Bauganes
Stigahlíð 49-97 (Einbýlishús) MIÐBÆR
Tjarnargata 3-40 Tjarnargata 39-
VESTURBÆR
Birkimelur Hringbraut 37-77 Hringbraut 74-91 Lindargata 39-63 o.fl. Hverfisgata 4-62 Laugavegur 32-80 o.fl.
nimyuiaui/■+-01 Luuyu.v-vjui ut ww.n.
Jltargitttfclttfrife
AF ERLENDUM VETTVANGI
Eftir ALASTAIR MATHESON
Ihlutun Líbýu í austri
Til skamms tíma bar lítið á ihlutun Líbýu í málcfni ríkja i Aust-
ur Afríku, ef frá er talin örvænting-arfull tilraun Líbýumanna
árið 1979 til að koma i veg fyrir að hersveitum Miltons Obotes
fyrrum forseta tækist að steypa Idi Amin þáverandi einræðis-
herra Uganda af stóli með stuðningi hers Tanzaníu.
þekktir voru fyrir andstöðu við
Moi og stjóm hans, svo sem Og-
inga Odinga fyrrum varaforseta.
Einnig voru þeir beðnir að benda
á tengiliði við leynisamtokin Kwa-
kenya. Þá var einum stúdentanna
falið að koma upp aðstöðu í hafn-
arborginni Mombasa þar sem
unnt væri að hafa miðstöð fyrir
njósnir um ferðir bandarískra her-
skipa um höfnina.
Þaðan átti einnig að fylgjast
með öðrum aðgerðum flota
Bandaríkjanna á Indiandshafi,
sem stundum hefur viðkomu í
Mombasa í fylgd flugvélamóður-
skips, en í áhöfnum herskipanna
eru um 10.000 sjóliðar og land-
gönguliðar.
Fyrir þessa starfsemi var stúd-
entinn sem fyrstur játaði á sig
sök, Richard Nixon Wekessa,
Muammar Gaddafi, forseti
Líbýu.
herstjómina í Uganda, sem vom
erfið fyrir, sérstaklega með tilliti
til náinna tengsla Líbýu við Yow-
eri Museveni forseta frá því hann
hrifsaði völdin í Kampala árið
1986. Mikið magn vopnabúnaðar
hefur verið flutt flugleiðis í venju-
legu áætlunarflugi frá Líbýu til
Entebbe- flugvallar í Uganda, og
nú fá Líbýumenn kaffí frá Uganda
í skiptum fyrir olíu.
Daniel arap Moi, forseti Kenya, á fjöldafundi.
Anýliðnu ári neyddust yfirvöld
í Kenýa hins vegar til að
reka úr landi sex líbýska sendifull-
trúa, þeirra á meðal tvo af for-
stöðumönnum sendiráðsins í
Nairobi. Höfðu jrfirvöld í Kenýa
sakað alla þessa menn um undir-
róðursstarfsemi gegn stjóm
Daniels arap Moi for- seta, og var
gefið í skyn að fleira byggi þar
undir.
Síðastur til að vera rekinn úr
landi á nýliðnu ári var forstöðu-
maður sendiráðs Líbýu (charge
d’affaires) sem staðinn hafði verið
að því að múta stúdentum við
Nairobi- háskólann, virtasta há-
skóla landsins, til að starfa fyrir
Líbýu. Áttu þeir meðal annars að
fá samstúdenta sína til fylgis við
sósíalíska byltingarstefnu Líbýu.
Stúdentaleiðtoginn Robert
Wafula Buke, sem nú afplánar
fimm ára fangelsisdóm, viður-
kenndi að hafa fengið andvirði
1.200 dollara frá forstöðumanni
sendiráðsins til að standa undir
kostnaði við framboð sitt til for-
mennsku í stúdentafélaginu,
SONU.
Buke tókst ekki aðeins að
tryggja eigið kjör í formannssæt-
ið, heldur einnig kjör flestra
félaga sinna og Líbýuvina í stjóm-
ina, og þar með að fella fráfarandi
stjóm, sem hafði lítil afskipti haft
af stjómmálum. Sendiráðsmaður-
inn var aisæll með þessi úrslit,
því hann hafði Iengi verið að reyna
að afla Líbýu stuðnings meðal
stúdenta við háskólann, sem oft
hefur verið gróðarstía fyrir and-
ófsmenn gegn yfirvöldum.
Hvatt til andófs
Á sigurhátíð eftir kosningamar
fóru nýju stjómendur stúdentafé-
lagsins mörgum niðrandi orðum
um Moi forseta og hvöttu stúd-
enta til andstöðu við ríkisstjóm-
ina. (Aðeins örfáum dögum áður
hafði fráfarandi félagsstjóm boðið
forsetanum til tedrykkju.)
Daginn eftir handtók öryggis-
lögreglan Buke og meðstjómend-
ur hans, og vakti það mikla reiði
róttækra stúdenta sem efndu til
mikilla óeirða helgina á eftir og
lentu í átökum við vel búnar liðs-
sveitir óeirðalögreglunnar. Tára-
gasmökkur sveif yfir miðborg
Nairobi meðan á átökunum stóð,
og margir hlutu meiðsli, þéirra á
meðal fjórir erlendir blaðamenn
og einn stúdent sem fékk skot í
handlegg, þótt aldrei hafí verið
gefin fyrirmæli um að skjóta.
Þegar Buke kom fyrir rétt
minntu ákærur saksóknara á ann-
að mál frá því í marz í fyrra þegar
þrír fyrmrn stúdentar við Keny-
atta- háskólann í úthverfi höfuð-
borgarinnar hlutu allir fangelsis-
dóma eftir að hafa játað á sig
njósnir fyrir líbýska sendiráðið í
embættistíð annars forstöðu-
manns sendiráðsins.
Sá forstöðumaður virtist hafa
ætlað að ganga lengra. Þegar
stúdentamir þrír, sem allir höfðu
verið reknir úr háskólanum og
voru að leita aðstoðar við að fá
aðra skólavist, höfðu samband við
hann, hét hann þeim aðstoð ef
þeir tækju fyrst að sér verkefni á
vegum Líbýu.
Fól hann þeim að gera skýrslur
um ýmsa stjómmálamenn, sem
dæmdur til tíu ára fangelsisvistar
(en dómurinn var síðar mildaður
í 15 mánaða fangelsi eins og í
málum hinna tveggja).
Þjálfaðir í Líbýu
Annað sem gæti reynst afdrifa-
ríkara fyrir Kenýa kom fram um
mitt síðasta ár, þó ekki fyrir dóm-
stólum. Þá kom í ljós að um 200
unglingum, þeirra á meðal nokkr-
um sem strokið höfðu að heiman,
hafði verið smyglað úr landi til
Uganda á vegum líbýskra sendi-
ráðsmanna sem þar voru í útlegð
frá Kenýa. í Kampala, höfuðborg
Uganda, fengu ungmennin ný
skilríki áður en þeir voru sendir
áfram flugleiðis til Tripoli. Nú eru
þessir unglingar í herþjálfun í
eyðimerkurbúðum þar sem meg-
ináherzla er lögð á þjálfun í
skæruhernaði og spellvirkjum.
Álitið er að unglingamir frá
Kenýa hafi nú gengið til liðs við
mun fjölmennari hóp frá öðrum
Afrlkulöndum, þar á meðal 500
manns frá Zaire. Hafa útsendarar
Líbýustjómar sérstaklega valið
hvem og einn þessara liðsmanna,
sem f framtíðinni er ætlað að snúa
til heimalanda sinna í þeim til-
gangi að grafa undan rílqandi
stjómvöldum.
Moi forseti hefír sent Muammar
Gaddafí forseta Líbýu persónu-
lega orðsendingu þar sem hann
krefst þess að unglingamir verði
sendir heim hið bráðasta, þar sem
þeir „þarfnist enn umhyggju for-
eldra sinna". Ekkert svar hefur
borizt.
Þetta mál hefur sízt orðið til
þess að bæta samskipti Kenýa við
Ahrifanna gætir víðar
í Tanzaníu hafa menn ekki
gleymt þeim mannskæðu bardög-
um sem hersveitir landsins áttu í
utanvið Kampala eftir að líbýskar
hersveitir höfðu verið fluttar í
skyndi flugleiðis til aðstoðar við
sundraðan her Idi Amins. Tókst
þeim að te§a sókn Tanzaníuhers
og hersveita Miltons Obote meðan
Amin flýði til Líbýu á leið sinni í
útlegð.
Áhrifa Líbýu gætir jafnvel allt
suðaustur til eyríkisins Máritíus
langt úti á Indlandshafi, en þar
hefur sendiráði Líbýu tvívegis
verið lokað og starfsmönnum þess
vísað úr landi.
í fyrra skiptið vísaði Ramgool-
am þáverandi forsætisráðherra
starfsmönnum sendiráðsins úr
landi vegna afskipta af innan-
iandsmálum árið 1982, og í síðara
skiptið vísaði Jugnauth forsætis-
ráðherra þeim úr landi árið 1984
vegna bréfs frá Gaddafi sem
dreift hafði verið í eyríkinu og
ráðherrann sagði að væri „móðg-
un við kristna trú“.
Erfitt er að staðhæfa hve náin
tengsl eru milli Líbýu og múham-
eðstrúarmanna í Austur Afríku.
Þó hafa Gaddafí og múslímar úr
trúflokki Sjita verið sakaðir um
ábyrgð á átökum að undanfömu
milli ýmissa sértrúarflokka
múslíma, þar á meðal tveggja al-
varlegra uppþota í hafnarborginni
Mombasa í fyrra þegar verið var
að fagna afmæli spámannsins
Múhameðs.
Höfundur er blaðamaður við
brezka blaðið The Observer.