Morgunblaðið - 19.01.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1988
Hefur meira
en helmingur
spádóma hans
þegar ræst?
Vísindamenn geta ekki útskýrt þá, þjóðar-
leiðtogar líta ekki framhjá þeim,
almenningur um allan heim les þá og við
ættum alls ekki að láta undir höfuð leggjast
að líta í þá, því í spádómum um nánustu
framtíð mannkyns kemur lítil eyja í Norður-
höfum og merkur leiðtogi þaðan mjög við
sögu.
Framtíðarsýnir sjáenda
Franska stjórnarbyltingin, Adolf Hitler
og nasisminn, kjarnorkuárásir á Japan,
morðið á Olof Palme, útbreiðsla alnæmis.
Nostradamus sagði fyrir um þessa atburði.
Og hann spáir að lítil eyja í Norðurhöfum
muni gegna veigamiklu hlutverki á erfiðum
tímum mannkynsins og lýsir merkum leið-
toga sem þaðan kemur.
Jafnframt segir frá ævafornum spádóm-
um Hópi-indíána, spádómum Gamla testa-
mentisins um Eldeyjuna í vestri, kínversk-
um spádómi um íslendinga og hyernig spá-
dómar Pýramídans mikla vísa á ísland.
IÐUNN
Vfsindi
Af hvetju þjást gíraff-
ar ekki af hvapbólgu
Sverrir Ólafsson
Það er ekki óalgengt að við
fínnum fyrir þrýstingi í höfðinu
þegar við beygjum okkur eftir
hlut sem við höfum misst í gólfíð.
Blóðið streymir hratt fram í höf-
uðið og ef við stöndum lengi í
boginni stöðu er eins víst að við
kafroðnum áður en við réttum úr
okkur að nýju. En hvemig skyldi
gíraffa líða í höfðinu þegar hann
teygir það niður að yfírborði jarð-
ar, t.d. til að drekka?
Þekking lífeðlisfræðinga á
blóðrásarkerfí gíraffans hefur
lengi verið nokkuð takmörkuð.
Augljóst er að það þarf að búa
yfír ýmsum eiginleikum, sem
óþekktir eru hjá öðrum smærri
dýrum, til þess að stýra blóðflæði
sem spannar allt að því fjögurra
metra hæðarfall í þyngdarsviði
jarðarinnar. Ef blóðrásar- og
þrýstijöfnunarkerfí gíraffa starf-
aði á nákvæmlega sama hátt og
hjá manninum er víst að þessi
hávöxnu dýr mundu sárþjást af
hvapbólgu og öðrum sjúkdómum
sem varða vökvaröskun í líkaman-
um. Hvapbólga (eða bjúgur) er
skaðleg þar sem hún hindrar eðli-
legan flutning næringarefna frá
blóðinu til veflanna.
Nýlegar rannsóknir, sem gerð-
ar voru af vísindamönnum frá
Danmörku, Svíþjóð og Banda-
ríkjunum, skýra af hveiju gíraffar
þjást ekki almennt af þessum
sjúkdómum. Þær veita nýjar upp-
lýsingar um mjög breytilegan
bláæðaþrýsting í fótum og í hálsi
þessara dýra. Niðurstöður þessar
munu stórauka skilning lífeðlis-
fræðinga á blóðrásarkerfí gíraffa.
Þær sýna m.a. að meginbláæðin
í hálsinum, ,jugular-æðin“, er
venjulega mjög samandregin, en
það samræmist ekki hugmyndum
sem nýlega voru settar fram um
að blóðrásarkerfi hálsins og höf-
uðsins líkist helst vökvasugu, þ.e.
þeirri uppsetningu sem gjaman
er notuð til að flytja vökva á milli
mishárra staða.
Vegna hæðar sinnar er gíraff-
inn gott rannsóknarefni á mögu-
leikum dýra til að sigrast á
miklum blóð- og vökvaþrýstingi,
sem orsakast afvirkni þyngdar-
sviðsins. Ýmsir lífeðlisfræðilegir
ferlar, sem miða að þessu marki,
eru ekki einstakir á meðal gíraffa,
Geimvísindin geta nýtt sér aukna þekkingu á blóðrásarkerfi
gíraffa.
jafnvel þó virkni þeirra kunni að
vera auðgreinanlegri hjá þeim.
Rannsóknir vísindamanna hófust
með sérstökum „gíraffaleiðangri"
til Afríku árið 1985. Athuguð
voru átta dýr af blönduðu kyni
og var hæð þeirra á bilinu 3—4
metrar og þyngd 400—650 kg. í
upphafi voru gíraffamir svæfðir
á meðan blóðþrýstimælum var
komið fyrir á ýmsum stöðum í
líkamanum.
Undir venjulegum kringum-
stæðum er blóðþrýstingur gíraff-
ans mestur neðst í fótunum og
fer síminnkandi með aukinni hæð.
í slagæðum höfuðsins, á 3,5
metra háu dýri, er þrýstingurinn
Brids
Arnór Ragnarsson
Samvinnuferðir/-
Landsýn vann
í bikarkeppninni
Sveit Samvinnuferða/Landsýnar
sigraði sveit Pólaris í úrslitaleik
bikarkeppni Reykjavíkur sem fram
fór um helgina. Lokatölur urðu 166
stig gegn 110. í sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar spiluðu: Helgi
Jóhannsson, Björn Eysteinsson,
Svavar Bjömsson, Hrannar Erl-
110 mm Hg (760 mm Hgjafngild-
ir 1013 millibörum) lægri en í
hjartahæð, sem er um það bil tvö-
falt meira en sama gildi hjá
manninum. í fótum gíraffans er
meðalþrýstingurinn í slagæðum
w.þ.b. 310 mm Hg, en í manns-
fæti mundi slíkur þrýstingur
fljótlega leiða til bjúgmyndunar.
Blóðþrýstingurinn í jugular-
æðinni breyttist andstætt þessari
reglu,
þ.e.a.s. hann jókst með aukinni
hæð. Þrýstingsstigullinn reyndist
mestur 9 mm Hg á 90 sm hæðar-
aukningu.
ingsson, Matthías Þorvaldsson og
Ragnar Hermannsson.
Samvinnufcrðir/Landsýn tapaði
fyrstu lotu 19—42, vann aðra og
ijórðu lotu 65—11 og 60—35 en
þriðja lota varð jafntefli 22—22.
Auk þess sem spilin voru sýnd á
sýningartöflu var innanhússmynd-
band í gangi og þótti sú framkvæmd
takast mjög vel. Keppnisstjóri var
Haukur Ingason.
Bridsfélag
Breiðfirðinga
Vegna Reykjavíkurmóts í sveita-
Vfsindamennimir mældu blóð-
þrýstinginn í slagæðum og
bláæðum svo og vökvaþrýsting í
vefjum, bæði hjá dýrum í kyrr-
stöðu og á hreyfingu. Hjá kyrr-
stæðum dýrum kom í ljós að gildi
þessara stærða voru mjög svipuð
því sem við var að búast, ef geng-
ið var einungis út frá virkni
þyngdarsviðsins. Þegar dýrin voru
á hreyfíngu voru niðurstöðumar
mjög breytilegar, en sveiflan var
mest í bláæðaþrýstingnum og
nam allt að +(+)250 mm Hg.
Niðurstöður athugana sýna að
það eru fyrst og fremst tveir
keppni hefur aðalsveitakeppni
félagsins legið niðri. Næsta fimmtu-
dag, þann 21., verður síðasta
umferð spiluð.
Stjóm félagsins óskar öllum
spilafélögum gleðilegs árs og þakk-
ar liðin ár.
Ennfremur sendum við nýárs-
kveðju til keppnisstjóra, Isaks
Sigurðssonar, og stjómanda þessa
þáttar í Morgunblaðinu með þakk-
læti fyrir samstarfíð á síðasta ári.
Staðan í sveitakeppninni þegar
einni umferð er ólokið: