Morgunblaðið - 19.01.1988, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1988
35
Veitingahús ía græn-
meti og ávexti í flugi
FYRIRTÆKIÐ Rekstrarvörur
liefur hafið innflutning á fersk-
um ávöxtum og grænmeti frá
Hollandi, tilbúnu til matreiðslu,
og verður það flutt til landsins
með flugi tvisvar í viku. Um er
að ræða sérþjónustu við hótel og
veitingahús. Hægt er að flytja á
annað hundrað tegunda inn að
sögn Kristjáns Einarssonar, eig-
anda Rekstrarvara.
Rekstrarvörur eru umboðsaðili
fyrir hollenska fyrirtækið Bakker,
sem er einn stærsti dreifingar- og
söluaðili á grænmeti og ávöxtum í
Evrópu. Grænmetið kemur hingað
með flugi, þvegið og tilbúið til mat-
reiðslu. Kristján sagði verðið fylgja
heimsmarkaðsverði og ekki vera
hærra en gerðist og gengi. Stærst-
ur hluti þess grænmetis sem flutt
væri inn kæmi með flugi og því
væri þetta grænmeti ekki dýrara
en í verslunum.
Hann sagði að fyrirtæki sitt hefði
gert tilraun með innflutning í haust
sem nokkrir matreiðslumenn hefðu
tekið þátt í. Einn þeirra, Sverrir
Halldórsson, aðstoðaryfirmat-
reiðslumaður á Holiday Inn, sagði
reynsluna hafa verið góða. Matjurt-
imar hefðu verið fyrsta flokks og
geymsluþolið væri um það bil helm-
ingi meira en á því grænmeti sem
keypt væri út úr búð. „Við viljum
fá sjaldgæfar tegundir grænmetis
og ávaxta og með þessu móti er
hægt að útvega okkur nánast hvaða
tegund sem er. Maturinn verður
ólíkt fjölbreyttari þegar hægt er að
breyta til eftir árstíðum," sagði
Sverrir.
Ekki er fyrirhugað að bjóða versl-
unum þessa þjónustu en Rekstrar-
vömr sérhæfa sig í þjónustu við
hótel og veitingahús. Fyrirtækið
sýnir grænmeti á ávexti á Hótel
Holiday Inn við Sigtún kl. 14 til 17
í dag.
Rekstrarvörur kynna um 70 teg-
undir grænmetis og ávaxta á
Holiday Inn í gær og í dag. F.v.:
Sverrir Halldórsson, aðstoðar-
yfirmatreiðslumaður, Jóhann
Jakobsson, yfirmatreiðslumaður,
Kristján Einarsson, eigandi
Rekstrarvara og Úlfar Finn-
björnsson, matreiðslumaður.
Morgunblaðið/Sverrir
Loðnuaafli orðinn 100 þús-
und tonn frá áramótum
LOÐNAN er nú að ganga suður
með Austfjörðum. Nokkur skip
Eldey hf. hefur
keypt Vött SU 3
Heldur fljótiega á veiðar sem Eldevjar-Hjalti
Kcfkavík.
STUTT er á milli skipakaupa hjá
Eldeýjarmönnum þessa dagana.
A föstudaginn var gengið frá
kaupunum á Boða GK frá
Njarðvík og daginn eftir keyptu
þeir Vött SU 3 frá Eskifirði.
Vöttur er skráður 170 tonn og
var kaupverð hans 70 miljjónir.
Auk þess var tnikið magn veiðar-
færa að andvirði 10 miiljóna
keypt með skipinu. Vöttur verð-
ur afhentur um helgina og fer
þá á línuveiðar sem Eldcyjar-
Hjalti og selur afla sinn hjá
Fiskmarkaði Suðurnesja. Boði
GK fékk nafnið Eldeyjar-Boði
og hefúr hann þegar hafið veið-
ar.
Jón Norðfjörð stjómarformaður
Eldeyjar hf. sagði í samtali við
Morgunblaðið að Vöttur SU væri
ákaflega vel búinn tækjum, um
borð í bátnum væri beitingavél,
búið væri að skipta um vél í skip-
inu, byggja yfir það og skipta um
brú. Jón bjóst við að sama áhöfn
yrði áfram á bátnum til að bytja
með, en hann hefur verið gerður
út frá Eskifirði.
„Víð höfum verið að svipast um
eftir togskipi og gerðum tilboð í
Eini HF sem hentar vel til slíkra
veiða, en við höfum ekki orðið var-
ir við nein viðbrögð af hálfu eiganda
bátsins. Því erum við famir að svjp-
ast um eftir öðrum skipum sem
gætu hentað til slíkra veiða og hug-
myndir eru um að kaupa jafnvel tvö
slík skip,“ sagði Jón erinfremur.
-BB
hafa fengið afla út af Gerpi, en
veiðin hefúr aðallega verið litlu
norðar. Mjög mikil veiði hefúr
verið síðustu daga og víða er
þróarrými á þrotum. Aflinn frá
áramótum er orðinn tæp
100.000 tonn.
Auk þeirra skipa, sem áður er
getið, tilkynntu eftirtalin um afla
á föstudag: Helga II RE 330 og
rifna nót til Raufarhafnar, Börkur
NK 1.180 til Noregs, Sighvatur
Bjarnason VE 700 til Vestmanna-
eyja, Keflvíkingur KE 630 til
Raufarhafnar, Eskfirðingur SU
610 til Eskifjarðar, Beitir NK
1.250 til Neskaupstaðar, Gullberg
VE 620 til Seyðisfjarðar, Víkur-
berg GK 590 til Seyðisfjarðar og
Albert GK 750 til Seyðisfjarðár.
Á laugardag fengu eftirtalin
skip afla: Súlan EA 800 í Krossa-
nes, Hilmir SU 1.020 til Noregs,
Hákon ÞH 1.000 til Noregs, Magn-
ús NK 520 til Seyðisfjarðar ísleifur
VE 740 til Seyðisfjarðar, Hrafn
GK 640 til Reyðarfjarðar, Sigurður
RE 1.400 til Vestmannaeyja, Guð-
mundur Ólafur ÓF 600 til Ncs-
kaupstaðar, Húnaröst ÁR 620 til
Hornafjarðar, Bergur VE 530 til
Reyðarfjarðar, Gígja VE 770 til
Raufarhafnar, Örn KE 750 í
Krossanes, Pétur Jónsson RE
1.050 til Sigluíjarðar, Víkingur
AK 1.100 til Akraness, Rauðseý
AK 710 til Vopnafjarðar, Bjarni
Ólafsson AK 1.150 til Seyðisfjarð-
ar, Svanur RE 710 til Raufar-
hafnar, Grindvíkingur GK 1.000
til Bolungarvíkur, Eldborg HF
1.200 til Eskifjarðar, Guðmundur
VE 900 til Seyðisfjarðar, Þórður
Jónasson EA 580 í Krossanes, •
Höfmngur AK 930 til Raufar-
hafnar, Jón Finnsson RE 600 til
Seyðisfjarðar, Hilmir II SU 580 til
Reyðarfjarðar, Fífill GK 580 til
Raufarhafnar, Guðrún Þorkels-
dóttir SU 680 til Eskifjarðar,
Harpa RE 500 til Reyðarfjarðar
og Erling KE 550 til Raufarhafnar.
Á sunnudag vom eftirtalin skip
með afla: Galti ÞH 500 til Þors-
hafnar, Jón Kjartansson SU 1.100
til Eskifjarðar, Skarðsvík SH 650
til Raufarhafnar, Dagfari ÞH 520
til Reyðarfjarðar, Sjárvarbog GK
820 til Reyðarfjarðar, Rauðsey AK
550 til Vopnafjarðar, Gísli Ámi
RE 650 til Siglufjarðar, ísleifur
VE 740 til Eskifjarðar, Keflvíking-
ur KE 540 til Raufarhafnar, Gígja
VE 770 til Þórshafnar, Bergur VE
530 til Eskifjarðar og Víkurberg
GK 590 til Raufarhafnar.
Síðdegis á mánudag höfðu eftiii-
talin skip tilkynnt um afla: Esk-
firðingur SU 620 til Eskifjarðar,
Hrafn GK 650 til Grindavíkur,
Húnaröst ÁR 620 til Homafjarðar,
Albert GK 700 til Grindavíkur,
Fífill GK 500 til SeyðisQarðar,
Pétur Jónsson RE 750 til Seyðis-
fjarðar, Magnús NK 530 til
Raufarhafnar, Guðrún Þorkels-
dóttir SU 700 tii EskiQ'arðar,
Bjarni Ólafsson AK 1.150 til Seyð-
isfjarðar, Gullberg VE 620 til
Seyðisfjarðar, Guðmundur Ólafuh
ÓF 600 til Neskaupstaðar, Beitir
NK 1.050 til Neskaupstaðar, Höfr-
ungur AK 930 til Raufarhafnar,
Öm KE 750 til Færeyja, Guðmund-
ur VE 700 til Neskaupstaðar,
Þórður Jónasson EA 650, löndun-
•arstaður óákveðinn.
INNLENT
Leitað að tvennum hjónum
í jeppaferð á hálendinu
Höfðust við um nóttina í kofa við Hlöðufell
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-Sif, leitaði í gærmorgun að
tvennum þjónum sem farið
höfðu á tveimur bílum frá
Reykjavík upp á hálendið á
sunnudagsmorgun og ætluðu
að koma til byggða á sunnu-
dagskvöld en höfðu ekki skilað
sér. Þyrlan fann fólkið um há-
degisbilið í gær við kofa
Ferðafélags íslands við Hlöðu-
fell, en þar höfðu hjónin látið
fyrirberast um nóttina ásamt
fjórum öðrum mönnum. Kon-
urnar tvær voru fluttar til
Reykjavíkur í þyrlunni en karl-
mennirnir voru á leiðinni til
byggða í gærdag með bílana.
Bima Amaldsdóttir, önnur
kvennanna, sagði við Morgun-
blaðið við komuna til Reykjavíkur,
að þau hjónin hefðu farið á tveim-
ur jeppum, Ford Bronco og Lada
sport, frá Reykjavík kl. 10 á
sunnudagsmorgun. Ætlunin var
að fara upp Uxahryggi, uppfyrir
Skjaldbreiði og koma síðan niður
um kvöldið hjá Gullfossi. Birna
sagði að eiginmennimir, Birgir
Axelsson og Hjalti Berg, væm
vanir svona ferðum og fyrir þá
hefði aldrei komið neitt, en þetta
hefði verið í fyrsta skipti sém hún
og Bergþóra Guðmundsóttir fóm
með.
„Veðurspáin var mjög góð fyrir
sunnudaginn en veðrið fór fljót-
lega að versna og tók að dimma,"
sagði Bima. „Við vissum af
Hlöðufellsleið og ákváðum að
breyta um áætlun og fara hana.
Fljótlega lentum við í slæmu færi.
Það var mikið krap og vatn á slóð-
inni og okkur miðaði hægt. Síðan
festum við Broncoinn og vomm á
ijórða tíma að ná honum upp aft-
ur og þá kom ýmislegt fyrir. Við
reyndum að draga hann upp og
eitt sinn slitnaði kaðallinn og slóst
svo fast í afturrúðuna að hún
mélaðist inn um allan bíl án þess
þó að valda meiðslum. Síðan fór
dekk á bílnum af felgunni en við
vomm með tjakk og rafmagns-
pumpu og náðum að koma
dekkinu á aftur.
Við vomm alveg til klukkan
10 um kvöldið að ná Bronconum
upp. og gáfumst þá upp og snér-
um við að skálanum sem við
vissum af við Hlöðufell. Þar hitt-
um við fólk sem við höfðum hitt
áður og ákváðum að stoppa við
og bíða morguns.
Við höfðum þijár talstöðvar og
reyndum að kalla í bæinn en náð-
um ekki engin þeirra náði. Þær
vom ekki nægilega sterkar og auk
þess var veðrið orðið slæmt, of-
anhríð og hvasst.
Eg held að við höfum ekki ver-
ið í neinni hættu en mér leist
ekki á blikuna þegar bfllinn var
svona lengi fastur. Ég reyndi þó
að vera bjartsýn og þegar við
vomm komin í skálann og gátum
hitað þar aðeins upp þá leið okkur
betur. Okkur fannst verst að geta
ekki látið ættingjana vita því við
vomm bæði hjónin með lítil böm
í pössun og vissum að farið yrði
að óttast um okkur þá um kvöld-
ið. Og þegar ég vaknaði upp um
nóttina missti ég alveg kjarkinn.
En baráttuhugurinn kom þó strax
aftur um morguninn þegar við
sáum að veðrið var orðið gott,“
sagði Bima.
Lögreglan á Selfossi var látin
vita kl. 6.30 á mánudagsmorgun
að hjónin hefðu ekki komið til
byggða á tilsettum tíma en ákveð-
ið var að bíða birtingar og kalla
þá þyrlu Landhelgisgæslunnar út.
Þyrlan fór í loftið kl. 10.45 og
reyndi fyrst að kanna svonefndan
Eyfirðingaveg upp frá Gjábakka
til að en lenti í hríðarbil og snéri
frá. Þyrlan reyndi þá að fara upp
hjá Laugarvatni en lenti þá aftur
í byl. Flugmenn þyrlunnar bmgðu
þá á það ráð að lenda við Mið-
dalsá hjá Miðdalskoti og bíða þess
að veðrið gengi yfir. Sú bið tók
hálftíma og lagði þyrlan-aftur af
stað kl. 11.55 í átt að kofanum
við Hlöðufell. Skömmu seinna
sáust bílamir fjórir á Hlöðufell-
svöllum og fólkið hjá.
Birna sagði að þau hefði verið
í þann mund að leggja af stað til
byggða þegar þyrlan lenti. Bílarn-
ir vora þó orðnir bensínlitlir utan
einn og var fyrirhugað að koma
hinum þremur eins lagt og ben-
sínið entist.
„Við hlustuðum á útvarpið um
morguninn en þegar ekkert var
sagt um okkur í 10 fréttunum
vomm við róleg. Það var því ekki
laust við að okkur brygði þegar
við sáum þyrluna," sagði Bima.
Það var afráðið að konumar færa
með þyrlunni til Reykjavíkur og
lenti þyrlan á Reykjavíkurflug-
velli kl. 12.35. Karlmennimir
héldu í átt til byggða með bflana
og í gærdag lögðu 3 menn frá
björgunarsveitinni á Selfossi af
stað á móti þeim með bensín og
matvæli.
Bima sagði að aðbúnaðurinn í
skálanum hefði ekki verið nægi-
lega góður. Þau hefðu samt sem
áður verið þokkalega vel útbúin
og vel klædd, og að mennimir
Qórir sem þau hittu hefðu verið
mjög vel útbúnir. Þó sagði hún
að fleiri teppi hefðu átt að vera
með í förinni, auk álhitapoka eða
svefnpoka.
„Ég er ennþá hrædd og hef
ömgglega fengið hálfgert áfall.
En það var gaman að þessu fram
að því áð bíllinn festist og ég
gefst ekkert upp þótt svona hafi
farið, en fer betur útbúin næst,“
sagði Birna Amaldsdóttir.