Morgunblaðið - 19.01.1988, Side 49
49
leiða með Iíkum hætti og aðrar
neytendahreyfíngar hafa gert.
Eflum sjúkrasamlögin
Jákvæðasta lausnin er að endur-
hæfa sjúkrasamlögin sem ábyrg
félagasamtök og að þau annist það
hlutverk að vera hagsmunaaðili al-
mennings gagnvart heilbrigðiskerf-
inu, þ.m.t. samningsaðili um
verðlagningu á hvers konar heil-
brigðisþjónustu og móti þannig
heilbrigðiskerfíð í landinu. Það verði
hlutverk sjúkrasamlaganna að
ákveða endurgreiðslur sjúklinga
fyrir heilbrigðisþjónustu m.a. með
það fyrir augum að skapa kostnað-
arvitund í heilbrigðisþjónustunni.
Auðvitað verður ekki hjá því
komist að ríkið leggi sjúkrasamlög-
unum til fjármagn, t.d. vegna stærri
verkefna og til að jafna aðstöðu
þeirra um að veita sambærilega
MORG UNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1988
þjónustu í öllum umdæmum sjúkra-
samlaga. Stækka þarf sjúkrasam-
lagsumdæmi, þau verði t.d. miðuð
við heilbrigðishéruð. Það verður
hlutverk heilbrigðishéraða að
byggja upp heilbrigðisþjónustuna
með framtaki heimaaðila og með
stuðningi ríkisvaldsins.
Sjúkrasamlögin fari
meö umboð fólksins og
hafí Qárhagslega
ábyrgö
Hið félagslega vald verði hjá
sjúkrasamlögum sem fari í raun
með umboð almennings. Sjúkra-
samlögin verði byggð upp á lýðræð-
islegan hátt. þAð á að vera þeirra
verksvið að stuðla að nýmælum í
heilbrigðisþjónustu, gæta þjónustu-
hagsmuna og koma á eðlilegum
samanburði við einkavæðingu, þar
sem það á við. Þetta er í samræmi
við ríkjandi hugsunarhátt með þátt-
töku almennings við að móta
þjóðfélagið í daglegri önn líðandi
stundar.
Það er vægast sagt furðulegt að
við íslendingar erum að fullkomna
— býrókratíið — í heilbrigðiskerfinu
á sama tíma og helstu þjóðir komm-
únismans leysa sem óðast fjötra
ríkisforsjár. Það er ljóst að þeir
menn sem hér ráða ferðinni eru
ekki í takt við samtímann.
Breyttir þjóðfélags-
hættir kalla á vinnu-
brögð í takt við tímann
Nýir þjóðfélagshættir kreíjast
nýrra viðbragða og aukinnar þátt-
töku fólksins félagslega. Sjúkra-
samlögin á íslandi eiga að baki
merka sögu um samhjálp fólksins
til að leysa vandamál sín. Þátttaka
ríkis var fyrst og fremst hugsuð til
eflingar því mikla framtaki. Þennan
félagslega grundvöll á að virkja á
ný og opna kerfið með fullri ábyrgð
almennings. Hvort reka megi
sjúkratryggingar á algjörum trygg-
ingagrundvelli er ekki ljóst. Ég tel
mig ekki dómbæran á það hér og
nú. Ríkisvaldinu ber að stuðla að
uppbyggingu heilbrigðiskerfisins,
sem stjórnað sé af félagslegri
ábyrgð, með aðhaldi almennings í
bestu merkingu þeirra orða. Þetta
verður best gert með því að efla
sjúkrasamlögin.
Höfíindur er framkvæmdastjóri
Fjórðungssambands Norðlend-
inga. Greinin er byggð á erindi,
sem hann tluttiá ráðstefhu á veg-
um Sjúkrasamlags Reykjavíkur.
Háskólatón-
leikar í Nor-
ræna húsinu
AÐRIR Háskólatónleikar á vor-
misseri verða haldnir í Norræna
húsinu miðvikudaginn 20. janúar
kl. 12.30-13.00.
Á tónleikunum flytja þær Ágústa
Ágústsdóttir sópransöngkona og
Agnes Löve píanóleikari fimm ljóð
eftir Mathilde Wesendonk við tón-
list eftir Wagner.
GEISLASPILARAR
Hringið í okkur V|
eða verið velkomin á staðinn Mr
HALLARMULA, sími 37737 OG 36737
ið getið komið til
okkar og borðað úr
trogunum á staðnum
eða farið með matinn
heim og svo bjóðum við
auðvitað einnig uppá
hinar rómuðu
þorraveislur okkar
heimsendar eða sendar
á vinnustað
N
A U ú eru allar kirnur,
krókar og trog stútfull
af landsins besta
þorramat hjá
listakokkunum í
Múlakaffi, enda eins
gott ef við eigum ekki
að láta éta okkur út á
gaddinn
N
■■ ui ú þegar þorrinn
gengur í garð erum við
tilbúin með glæsilegan
afrakstur margra
mánaða vinnu til að
tryggja þúsundum
vandlátra og þakklátra
viðskiptavina
Múlakaffis bezta
þorramat markaðarins
Ef þið fáið ekki
vatn 1 munninn yfir
þorrakræsingunum
frá Mula.ka.ffi,
ja, þá er eitthvað að