Morgunblaðið - 19.01.1988, Blaðsíða 53
MORG' INBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANUAR 1988
53
Kristín var gæfusöm í einkalífi
sínu, eignaðist hún eina dóttur,
Þórdísi Toddu, hjúkrunarfræðing,
gifta Erlingi Þorsteinssyni, lækni,
og tvö mannvænleg og yndisleg
barnabörn. Það fór ekki framhjá
neinum hið kærleiksríka andrúms-
loft er ríkti á heimili þeirra, en hjá
þéim bjó Kristín alla tíð eftir að þau
stofnuðu sitt heimili.
Við hjónin og Bergdís dóttir okk-
ar þökkum henni heils hugar fyrir
áralánga vináttu og tryggð um leið
og við sendum fjölskyldu hennar
og vinum innilegustu samúðar-
kveðjur.
Sigríður og Jón S.
Jakobsson.
Nú er elsku hjartans amma okk-
ar dáin, sem okkur þótti svo
óendanlega vænt um. Þessi yndis-
lega kona, sem vakti yfir okkur
hvenær sem við þurftum á því að
halda, kona, sem skildi mann, skildi
vandamál unglingsins, unglings,
sem var að lifa tíma sem hún hafði
lifað lyrir mörgum áratugum, en
skildi þau svo vel að það var eins
og hún væri nýbúin að ganga í
gegnum það sama, fyrir örskammri
stundu. Hvemig þetta var hægt,
var erfítt að skilja, en svona var
næmi hennar ótrúleg á mannlegar
tilfinningar.
Amma okkar var vel af guði
gerð, hún hafði yndislega jafnaðar-
lund. Aldrei nokkum tíma munum
við eftir því að amma væri ekki í
góðu skapi. Það var ekki til í henn-
ar hugarheimi að vera ekki í góðu
skapi. Alltaf var hún fylgjandi öllum
framfömm og nýjungum, sem hún
hélt að gætu orðið manninum til
bóta og var um leið tilbúin að leggja
því málefni lið. Sama var að segja
sæi hún einhvem sem átti bágt, þá
var hún strax tilbúin að leggja allt
sitt honum til handa og gerði það
að því marki sem henni var mögu-
legt og hefði hver maður getað
verið stoltur af þó betur væri stæð-
ur.
Hún var stórbrotin manneskja
og efum við að við komum til með
að hitta nokkra stórbrotnari á
lífsleiðinni að öllum öðmm ólöstuð-
um, hvar sem á það er litið.
Hún hafði miklar og góðar gáf-
ur, notaði þær vel og hafði þá
eiginleika að geta séð hlutina í víðu
samhengi, vegið þá og metið frá
því sjónarhomi sem gaf þeim sem
farsælasta lausn.
Mikla unun hafði hún af því sem
við kom mönnum og málleysingjum
og mátti hvergi auma sál sjá. Þótt
viðkomandi væri víðs fjarri varð hún
ekki róleg fyrr en hún hafði lagt
hönd á plóginn honum til hjálpar
þó um langan veg væri að fara.
Ömmu okkar óskum við guðs
blessunar og alls þess besta sem
hægt er að húgsa sér og hlökkum
til að sjá hana þegar okkar tími er
kominn.
Við þökkum henni fyrir allt sem
hún hefur gert fyrir okkur í gegnum
þá yndislegu tíð sem við höfum átt
með henni og ekki verður þökkuð
með orðum.
Guð vaki yfir elsku ömmu okkar
alla tíð.
Þorsteinn og Guðrún Kristín
Bíömmtofa
FriÖfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- éínnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Ingibjörg Daða-
dóttir Kveðjuorð
Fæddl7.maíl884
Dáin 30. desember 1987
Ég vil með nokkrum orðum
minnast Ingibjargar Daðadóttur,
Stykkishólmi, mætrar konu og
frænku minnar. Hún var fædd að
Dröngum á Skógarströnd 17. maí
1884 og því 103 ára er hún lést
30. desember sl. Foreldrar Ingi-
bjargar voru María Andrésdóttir,
systir skáldkvennanna Ólínu og
Herdísar og Daði Daníelsson, en
þau áttu alls 15 börn. Böm þeirra
urðu mjög langlíf. Ég var samtíða
Ingibjörgu í Stykkishólmi og manni
hennar, Sigurði Magnússyni hrepp-
stjóra. Þau samskipti voru mér
mikils virði og blessa ég þau. Alltaf
kom Ingibjörg þannig fram að eftir
var tekið hennar prúðmennsku og
elskulegheitum og mörgum yljaði
hún um hjartarætur með nærveru
sinni. Hún hafði góð áhrif á um-
hverfið. Þetta em mínar minningar
og þakkarefni. Það geta sjálfsagt
fleiri undirstrikað.
Ég vil minnast þessarar mann-
kostakonu og þakka þá sólargeisla
sem hún færði á götu mína. Guð
blessi hana eiljflega.
Árni Ketilbjarnar
t
ARNÓR STEINASON,
Narfastöðum,
andaðist í sjúkrahúsinu á Akranesi þ. 16. þessa mánaðar.
Útför hans fer fram á Leirá, laugardaginn 23. þessa mánaðar kl. 14.30.
Aðstandendur.'
t
Móðir mín,
GUÐRÍÐUR SIGURBORG FINNSDÓTTIR,
andaðist í sjúkrahúsi Akraness 17. janúar.
Garðar Kjartansson.
t
SIGURÐUR ÓLASON
hæstaréttarlögmaður,
lést í Borgarspitalanum aðfaranótt 18. janúar.
Aðstandendur.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki era
tekin til birtingar framort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta
ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar era birtar af-
mælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Áhersla lögð á að handrit séu vel frá gengin, vélrituð með tvö-
földu línubili.
Lregsteinar
MARGAR GERÐIR
Mamom/Gmíi
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
+
Eiginmaður minn,
HELGI FINNLAUGSSON,
Lambhaga 10,
Selfossi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju miðvikudaginn 20. janúar kl.
13.30. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12.00 sama dag.
Blóm og kransar afþakkaöir, en þeir, sem vilja minnast hins látna,
eru beðnir að láta Krabbameinsfélagið njóta þess.
Fyrir hönd barna og annarra vandarrianna,
Ragnhildur Benediktsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
Ásvallagötu 31,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. janúar
kl. 13.30.
Ásdís B. Óskarsdóttir, Gísli Jónsson,
Jón Kr. Óskarsson, Sigurborg H. Magnúsdóttir,
barnabörn oy barnabarnabörn.
+
v GUÐJÓN JÓNSSON
bóndi, Árnanesi,
verður jarðsunginn miðvikudaginn 20. janúar kl. 14.00 frá Bjarnar-
neskirkju.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Guttormur Rafnkelsson.
+ Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGÓLFS HELGASONAR, Höfðabrekku 16, Húsavik. Helga Ingólfsdóttír, Skúli Skúlason, Guðrún Ingólfsdóttir, Þorbjörg Ingólfsdóttir, Guðmundur Steinsson, Halldór Ingólfsson, Guðrún Þorgrimsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ■*
+ Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför elskulegrar dóttur okkar og systur, ÞÓRUNNAR HJÖRDÍSAR GESTSDÓTTUR. Sérstakar þakkir faerum við konum úr systrafélagi Víðistaðasóknar fyrir ómetanlega hjálp og Kór Víðistaöasóknar fyrir góðan söng og hluttekningu. Guð blessi ykkur öll. Þórunn Benjamínsdóttir, Gestur Guðjónsson og systkini.
+ Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför SIGURLÍNU JÓNSDÓTTUR, Kirkjubraut 7, Akranesi. Sigurlaug Sigurðardóttir, Vilhelmína Elísdóttir, Benedikt Sigurðsson, Heiðrún Þorgeirsdóttir, Helgi Sigurðsson, Arný Kristjánsdóttir, Sigrún Rafnsdóttir, Einar Guðíeifsson, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför BRYNDÍSAR PÁLMADÓTTUR. Anna Soffía Steindórsdóttir, Gunnlaugur P. Steindórsson, Guðrún Haraldsdóttir, Sigurður Pálsson, Gunnlaugur Þór Pálsson, Steindór Gunnlaugsson, Hrefna Njáisdóttir, Haraldur Páll Gunnlaugsson, Bryndís Dögg Steindórsdóttir.
+ Innilegar þakkir fyrir samúö og vinarhug við andlát og útför GUÐNA SKÚLASONAR, Grýtubakka 20. Herdís Karlsdóttir.
<