Morgunblaðið - 19.01.1988, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1988
59
l*=-F=ir-sii-ci= =12= , F^JK
"ÞFH? ER ENN EIMH R9 3FYRJR HVORT WB 3É HÆGT RE> BORGR RElKMINGINN MEö ÞVI SKILYRÐl f® PENlNGRRNlR
FRRIEKKI I m BYGGOR ÖLDURHÚ3 SEM SNYST EIN5 0& SKOPPflRRKRlNGLFl OFflN A HtTflVElTUGElMUNUM11
Stjörnuhiminn — draumsýn
Til Velvakanda.
Draumgjafi minn! Þú sem skapar
mér draum. — Ég leggst til hvíldar,
bý mig undir svefninn. Og óðar
hefst samband okkar. Eigin vitund
hverfur, en þín vitund tekur við.
Ég skynja hugsun þína, minningar
og líf á þessari stundu. Þú horfir á
stjömuhimin þinnar jarðar. Þú hef-
ur oft séð hann áður. En nú skynja
ég hann einnig. Þín sýn og stjörnu-
athugun verður mér draumsýn. Ég
horfi á himin þinn með þér. Ég
renni með þér augum yfir allstórt
svæði himins. Bjartar stjömur blasa
við augum. Og stjörnumerki gjör-
ólík þeim er sjást frá minni jörð.
Mig langar til að staldra við og
horfa lengur á sum þessara stjörnu-
merkja, en mér verður ekki að
þeirri ósk, því þú ræður ferðinni,
líklega af því að þú skynjar ekki
til mín. Augu þín staðnæmast við
stóran hvítan blett, alskínandi. Mik-
il stjörnuþyrping er þar á himni, lík
kúluþyrpingum minnar vetrar-
brautar, en margfalt stærri að sjá,
eða eins og slíkar stjörnuþyrpingar
sjást héðan í sterkum stjörnusjám.
Heillaður horfi ég með þínum aug-
um á þessa fögm himinsýn. Þú
nýtar þessarar sýnar og ég nýt
hennar með þér. Þessi sýn grópast
í sofandi vitund mína, svo djúpt,
að hún berst skýrt inn í vökuvitund
mína, þegar draumasamband mitt
við þig rofnar.
Um leið og ég vakna verður mér
þegar ljóst, að ég hef farið í eins-
konar heimsókn til annars hnattar,
þar sem þú átt heima, og þú hefur
gerst gestgjafi minn eða sýngjafi
og sýnt mér með þínum eigin aug-
um þann hluta himins þíns, sem
fegurstur er. Þessari heimsókn
minni til þín fylgir magnan nokkur,
því sælukennd fyllir sálu mína, fyrst
eftir að ég vakna. Líklega ert þú
lífmagnaðri, en við jarðarmenn.
Kæri draumgjafi minn! Gjama
vildi ég aftur finna þig og sjá með
þínum augum fleiri furður hnattar
þíns og himins og magnast af
mætti þínum.
Ingvar Agnarsson
Waldheim og vondu mennirnir
Ágæti Velvakandi.
Skúli Helgason, prentari, ritar
þér heldur óhugnanlega grein
fimmtudaginn 14. janúar sl. sem
hann kallar: „Odæðisverk ísraels-
manna“. Greinin er svo full af
hatri, fordómum og viðbjóði að
langt er síðan önnur eins ritsmíð
hefur sést í íslensku blaði.
Greinin er öll svo ofstækisfull og
ómerkileg að mér dettur ekki í hug
að eltast við einstaka liði hennar.
Satt að segja átti ég erfitt með að
átta mig á hvað getur valdið svona
hugarfari, þangað til ég kom að
síðustu setningunni sem er svona:
„Væri ekki tilvalið fyrir alheims-
ráð gyðinga að snúa sér af fullu
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pístla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fýlgja öllu
efni til þáttanns, þó að höfundur
óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæoisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
afli að því að upplýsa heimsbyggð-
ina um fortíð ráðamanna í Israel,
í stað þess að rembast eins og tjúp-
an við staurinn við að að leita að
einhvetjum skít til að kasta í Kurt
Waldheim.“
Þama liggur hundurinn graftnn.
Eins og kunnugt er hefur Waldheim
legið undir miklu ámæli fyrir aðild
sína að stríðsmaskínu nasista. Hann
hefur oftar en einu sinni verið stað-
inn að því að segja ósatt um fortíð
sína. Ekki er ég þess umkominn
að dæma um hvort hann hefur
framið einhver sérstök ódæðisverk
umfram þau sem þýski herinn vann
almennt í stytjöldinni. En hann er
„persona non grata“ í Bandaríkjun-
um og ekki beinlínis hægt að segja
að rigni yftr hann heimboðum ann-
ars staðar frá. Gyðingum er, að
vonum, lítt um manninn gefið.
Þarna er að leita aðalorsakanna
fyrir bræði Skúla Helgasonar. Hann
sækir greinilega hugmyndir sínar
og siðfræði til vinnuveitenda Wald-
heims á árunum 1939—1945. í því
ljósi skulu skrif hans skoðuð.
Óli Tynes, blaðantaður
VISA VIKUNNAR
I Tyrkland:
40 barna faðir
lærði að nota
getnaðarvarnir
I TYRKNESKUR tóbakabóndi, látið aannfvrast af hoilaugtealu-
| Mchmet Yavux, berði að nota fðlki, «om gerði honum heimaókn
getnaðarvamir, cftir að hann og úukýrði getnaðarvamir fyrir
hafði eignaat 40 bðrn »eð fjðrum
... - — -----*----ITyrk
Við getuleysi þarf hann ekki að etja
öflugri en nokkur svarthvít hetja.
Hann fékk sér galla 66° norður
setti mestu frjóseminni skorður.
Hákur
Teg: ELKE Kr. 23.980.
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF SVEFNSÓFUM
H GRHDSUIKJÖR
húsgagiuriiöllin I
REYKJAVlK
PAÐERMAUÐ!
Eigum til svefnsófa fyrir al/a, hjónafóik,
einstaklinga, börn, unglinga og alla hina.
Teg: HELSINKI
Teg: PAX Kr. 3ZA20.-
Kr. 31.280.-
Teg: AFRODITE Kr. 27.680.-
Teg: FRAUKE Kr. 18.260.-