Morgunblaðið - 19.01.1988, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. JANÚAR 1988
61
Bogi Melsted á Syðrí Brúnavöllum og sonur hans Rúnar strekkja
einangrun utan um lögnina.
un í landi Húsatófta. Sama dag var
gerður samningur um Hitaveitu
útbæja. Það var bor frá ísbor hf.
sem boraði og gekk borunin vel.
Holan getur gefið 80 sekúndulítra
af 73 gráðu heitu vatni. Úr holunni
koma sjálfrennandi 15 sekúndulítr-
ar sem duga fyrir hitaveituna.
Dreifikerfið allt er 12 kílómetrar
og sáu aðstandendur veitunnar um
lagningu kerfisins og náðu þannig
kostnaðinum verulega niður. Menn
gera ráð fyrir því að kostnaður á
hvert býli verði um 700 þúsund
krónur.
„Það var gaman að þessu verki
að því leyti að áhugi manna hefur
verið mikill og allir unnið að þessu
verki með jákvæðu hugarfari. Menn
lögðust á eitt og þetta tókst með
Hitaveitustjórnin, Bjarni Valdi-
marsson Fjalli II, Jón Eiríkson
Vorsabæ og Jón Vigfússon EÉri
Brúnavöllum.
ágætum," sagði Bjarni Valdimars-
son bóndi á Fjalli II en hann er
formaður hitaveitustjórnar útbæja.
Hann sagði að komið í hús væri
vatnið 60 til 70 gráður og að menn
væru í sjöunda himni með þessar
nýju aðstæður og kerfið hefði virk-
að mjög vel í fyrsta kuldakasti
vetrarins. „Það er mikill munur að
fá heita vatnið, ekki síst þegar
menn höfðu ekki möguleika á slíku
áður nema í litlum mæli.“
Dreifikerfið er lagt í plaströrum
frá Berki í Hafnarfirði og einangrað
með einangrun frá Hjúpi hf. á Flúð-
um í Hrunamannahreppi. „Það geta
allir unnið með í svona verki þegar
þetta er lagt í svona efni. Það sem
gildir er samviskusemi, natni og
áhugi," sagði Bjami.
Sig. Jóns.
Bjarni Valdimarsson bóndi á Fjalli II hefur eins og aðrír tekið heitt
vatn inn í véla- og gripahús.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
PILOl
ÞAÐ KÖLLUM VÆ»
HAFNARSTRÆTI 16.101 R.simi 12180
SKO AFSLATT/