Morgunblaðið - 21.01.1988, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
25
Freyr Þórarinsson
„Mér þykja hins vegar
vinnubrögð við gerð
þessa fyrsta fréttabréfs
afar gagnrýniverð og
ekki til þess fallin að
menn taki mikið mark
á boðskapnum.“
sem fjallað er um samband milli
vímuefnaneyslu unglinga og þess
hve oft þeir eyða tómstundum með
foreldrum sínum. Þessu fylgja tvö
línurit sem eiga að sýna niðurstöður
úr könnunum um þessi efni. Það
er skemmst frá því að segja að
þessi línurit hljóta í besta falli að
vera slík oftúlkun á niðurstöðum
að stappar nærri fölsun. Öll hin
margvíslegu tengsl sem þar koma
fram eru nefnilega fullkomlega
beinar línur og þannig niðurstöður
fást ekki í félagsfræðilegum könn-
unum.
Til viðbótar kemur að lárétti
kvarðinn á þessum tveimur línurit-
um er „kvalitatívur" en ekki
„kvantitatívur" og það er ekki til
siðs að sýna þannig niðurstöður
með línutengslum, enda gefur það
lesanda villandi hugmyndir um tölu-
leg tengsl milli hinna mældu
stærða. Miklu algengara og heiðar-
legra er til dæmis að setja svona
niðurstöður fram með súluritum.
Þriðja dæmið tek ég af blaðsíðum
9 til 11, þar sem fjallað er um rann-
sóknir landlæknisembættisins á
lækningu psoriasis-sjúklinga með
böðum í Bláa lóninu í Svartsengi.
Ekki vil ég hætta mér langt út í
það mál, en óneitanlega dettur leik-
manni helst í hug að lækningamátt-
ur lónsins sé sömu gerðar og sá
kraftur sem stafar af dýrlinga-
myndum og vígðu vatni. Niðurstöð-
ur rannsóknarinnar dregur
landlæknir saman með svofelldum
hætti:
„Ljóst var af niðurstöðum rann-
sóknarinnar að jákvæð fylgni er
milli fjölda baða, heildarbaðtíma í
klukkustundum og árangurs af böð-
unum.“ Og svo: „Styðurþessi fylgni
tilgátu um að áhrif séu í beinu hlut-
falli við fjölda baða, en er hins vegar
ekki tölfræðilega marktæk.“ Ef
fylgnin er ekki marktæk hvemig
styður hún þá tilgátuna? Var í al-
vöru prófuð tilgáta um línulegt
samband eða eru það bara skáldleg
tilþrif að tala um að „áhrif séu í
beinu hlutfalli"? Væri réttara að
segja að núll-tilgátu um engan
árangur verði ekki hafnað á grund-
velli þessara gagna?
Hér læt ég staðar numið, þótt
sitthvað fleira megi tína til. Það er
ekki samboðið virðingu landlæknis
og embættis hans að bjóða almenn-
ingi upp á svona óvísindalegt bull.
Höfundur erjarðeðlisfræðingur.
Fyrir skömmu héldu fimm ungir piltar hlutaveltu í Breiðholtinu í
Reykjavík og gáfu ágóðann, 4.050 krónur, til Flugbjörgunarsveitar-
innar í Reykjavík. Piltarnir heita, talið frá vinstri: Finnur Trausti
Finnbogason, Kjartan Sverrisson, Arnar Steinn Friðbjarnarson, Sig-
urvin Friðbjarnarson og Kári Sverrisson. Með þeim á myndinni er
Ingvar Valdimarsson, formaður Flugbjörgunarsveitarinnar, sem tók
við gjöfinni.
Skrifstofutæknir
Athyglisvert
námskeið!
Nú er tækifærið til að mennta sig fyrir allt er
lýtur að skrifstofustörfum. Sérstök áhersla er
lögð á notkum PC-tölva. Námið tekur þrjá
mánuði. Námskeið þessi hafa reynst mjög
gagnleg fyrir skrifstofufólk og þá er hyggja á
skrifstofuvinnu.
I náminu eru kenndar m.a. eftirfarandi greinar:
Almenn tölvufræði, stýrikerfi, tölvusamskipti, ritvinnsla, gagna-
grunnur, töflureiknar og áætlunargerð, tölvubókhald, toll- og
verðútreikningar, almenn skrifstofutækni, grunnatriði við
stjórnun, útfylling eyðublaða, verslunarreikningur, víxlar og
verðbréf, íslenska og viðskiptaenska.
Ncmendur útskrifast sem SKRIFSTOFUTÆKNAR og geta að
námi loknu tekið að sér rekstur tölva við minni fyrirtæki.
Næsta námskeið hefst 2. febrúar.
Innritun og nánari upplýsingar veittar í
símum 687590 og 686790
TÖLVU F RÆÐSLAN
Borgartúni 28
Hvað scgja þau um námskeiðið.
% ýáSt
Sólveig Krístjánsdóttir: Sídastliðinn vetur var ég við nám hjáTölvufræðslunni. Þessi tími er ógleymanlegur bæði vegna þeinrar þekkingar, sem ég hlaut og kemur mér mjög til góða þar sem ég starfa nú, svo og vegna andans sem þama rikti. Þetta borgaði sig.
Sigríður Þórisdóttir: Mér hefur nýst námið vel. Ég er öruggari i starfi og m.a. feng- ið stöðuhækkun. Víðtæk kynn- ing á tölvum og tölvuvinnslu i þessu námi hefur reynst mér mjög vel. Maður kynnist þeim fjöimörgu notkunarmöguleikum sem tölvan hefur upp á að bjóða. Þetta nám hvetur mann einnig til að kanna þessa möguleika ogfærasérþáinyt.
• sjjS’At,
Jóhann B. Ólafsson: Ég var verkamaður áður en ég fór i skrifstofutækninámiö hjá Tötvufræðslunni. Ég bjóst ekki við að læra mikið á svo skömm- um tíma, en annaðhvort var það að ég er svona gáfaöur, eða þá að kennslan var svona góð (sem ég tel nú að frekar hafi verið), að nú er ég allavega orðinn að- stoðarframkvæmdarstjóri hjá íslenskum tækjum. Ég vinn svo til eingöngu á tölvur, en tölvur voru hlutir sem ég þekkti ekkert inná áður en ég fór i námið.
Á skrifstofu Tölvufræðslunnar cr hægt að fá bæklinga um námið, bæklingurinn cr ennfremur sendur í pósti til þeirra sem þess óska
SKEIFUNNI 15 SIMI 91-691600, 691610
Verð staðgr. 572.000
með ryðvörn. Átfa öra ryðvarnaróbyrgð
Allar gerðir til afgreiðslu strax. Sýningarbllar í Volvosal.
Opið íVolvosal mán. -fös. 9-18 laugardaga 10-16