Morgunblaðið - 21.01.1988, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1988
ÓLYMPÍULEIKARNIR í CALGARY
Vetrarólympíuleikamir verða
settir í Calgary 13. febrúar
Fyrsta skipti sem vetrarólympíuleikarnir eru haldnir í Kanada
Niels
Kristjánsson
skrifarfrá
Calgary
Hvar og hvemig er nú þessi
Calgary? Nafnið er komið úr
skosku og þýðir tært vatn, borgin
stendur þar sem tvær ár, Bow og
Elbow, renna saman
í suðvesturhluta Al-
berta-fylkis, en
Alberta-fylki er eitt
af vesturfylkjum
Kanada og nær að Klettafjöllunum
í vestri. Fyrsta byggð var virkið
Fort Calgary sem var byggt 1875,
og 1883 kom sfðan fyrsta jám-
'■'sbrautin og síðan hefur borgin verið
í stöðugum vexti og búa hér nú um
650 þús. manns.
Vlðfyrstu kyrinl er ekkert
f borglnni sem mlnnlr á
skfðaíþróttina
Borgin er þekktust fyrir mikla kú-
rekahátíð sem kölluð er Stanpede
og er haldin árlega, en á seinni
ámm er borgin þekktust fyrir olíu-
iðnað. Við fyrstu kynni er ekkert í
borginni sem minnir á skíðaíþrótt-
ina, en þegar nánar er að gáð má
sjá til vesturs í útjaðri borgarinnar
gnæfa eins og risa fomaldareðlur
skíðastökkpallana sem byggðir voru
fyrir Ólympíuleikana.
Það er að óreyndu erfitt að gera
sér í hugarlund hversu mikið fyrir-
tæki Óljmipíuléikar eru. Undirbún-
ingur er ótrúlega mikill og hefur
staðið yfír síðan borginni var falið
að sjá um leikana, alls staðar má
sjá ólympíumerki og alls kyns
skreytingar og nú stendur yfír
blómatíð hjá minjagripasölum. Ein-
hver líkti þessu við snjóbolta sem
búið er að rúlla af stað niður brekku
og stöðugt stækkar og eykur hrað-
ann með vaxandi þunga.
Jólaljósln ekki tekln nlftur fyrr
en eftlr Ólympíuleika
Til þess að auka stemmninguna
hefur borgarstjórinn beint þeim til-
í mlftborg Calgary mun ólympíueldurinn loga á 190 metra háum tumi alla leikdaganna. Tumin og ólympíukyndillinn
hæsti kyndill í víðri veröld.
mælum til borgarbúa að taka ekki
niður jólaljósin fyrr en eftir leikana,
eins munu fyrirtæki sem em til
húsa í háhýsum miðborgarinnar
hafa öll ljós kveikt á kvöldin og
nóttunni. Fyrir utan þá sem starfa
á fullum launum við Ólympíuleik-
ana hafa um 10 þúsund sjálfboða-
liðar verið fengnir til starfa við
ýmis störf er tengjast leikunum.
ÖIl uppsetnjng og prófun á tækjum
viðvíkjandi leikunum er nú lokið að
undanskilinni skautahöllinni sem
hýsa mun ísknattleikinn, en sá stað-
ur er í fullri notkun þar til 1.
febrúar.
Það hefur valdið töluverðum
áhyggjum hve lítið hefur snjóað hér
undanfama tvo vetur, síðasti vetur
var sá hlýjasti í hálfa öld og þó
þessi sem nú stendur yfir hafi ekki
verið eins hlýr hefur hann verið
álíka laus við snjó. Til þess að ekki
þurfí eins að reiða sig á veðurguð-
ina hafa tæki til þess að búa til
snjó verið notuð með fullum afköst-
um alla daga vikunnar síðan hiti
fór niður fyrir frostmark og telja
menn að ekki þurfí að hafa áhyggj-
ur af því að aflýsa þurfí neinu nema
ef vera skyldi að veðrið bregðist
við á hinn veginn og verði slæmt.
30 sm snjólag getur horflft
á elnum sólarhrlng
Hér um slóðir er staðbundið fyrir-
brigði sem kallað er „shinook" sem
á íslensku er kallað hnjúkaþeyr.
Þetta eru hlýir vindar sem blása
ofan af Klettafjöllunum vegna
ríkjandi vestanáttar, þessir vindar
geta valdið því að hiti getur farið
úr +20°C í +10—15°C hluta úr
degi og getur 30 sm snjólag horfíð
á einum sólarhring. Til að reyna
að sjá þessar veðrabreytingar fyrir
og gera langtíma spár hefur heill
herskari af veðurfræðingum verið
fenginn á staðinn ásamt 20 milljóna
króna (ísl.) tölvubúnaði.
„V*5f ■
' - *'Æ-'
Skautahöllln er staðsett á svæði háskólans í Calgary. Hún er sú fyrsta sinnar tegundar með 400 metra keppnis-
brautum. Ólympíuþorpið er einnig staðsett á lóð háskólans. *
Stœrstl kyndlll (vfftri varöld
í hjarta borgarinnar er tum sem
er 190 metrar á hæð og hefur á
toppnum verið komið fyrir miklum
gasbrennara og mun þar loga eldur
alla daga leikanna, en tuminn og
ólympíukyndillinn em svipaðir í lag-
inu og mun þetta vera stærsti
kyndill í víðri veröld. 88 dögum
fýrir leikana var ólympíueldurinn
tendraður með viðhöfn í Grikklandi
og til þess notuð sólarorka. Þegar
eldurinn kom til Kanada hófst 18
þúsund kílómetra langt boðhlaup
um öll fylki landsins. Fjöldi manns
á öllum aldri, kynjum og kynþáttum
taka þátt í hlaupinu og þykir mikið
til um að fá að komast í svo náin
kynni við anda Ólympíuleikanna.
Til marks um áhugann fyrir boð-
hlaupinu má nefna að á miðviku-
dag, þann 13. janúar sl., hlupu 53
með kyndilinn 291 km frá Shabaqua
Comes Ontario til Dryden Ontario
en 12.899 manns höfðu sótt um að
hlaupa með kyndilinn þessa leið.
Boðhlaupið endar síðan á opnunar-
athöfninni þann 13. febrúar
næstkomandi.
Opnunarhátfðin verður á
McMahon-leikvanginum
Töluverð leynd hefur verið yfír því
hvað boðið verður uppá á opnunar-
hátíðinni sem fer fram á McMahon-
leikvanginum. Leikvangurinn tekur
nú um 80 þús. manns í sæti eftir
að töluverðar breytingar höfðu ver-
ið gerðar á honum. Ekki langt frá
fyrmefndum tumi í miðbænum hef-
ur verið útbúið mjög smekklegt
torg, Olympic Placa, en þar fara
fram allar verðlaunaafhendingar á
kvöldin eftir keppni. Þar fara líka
fram alls kyns listasýningar og
verður borgin reyndar öll undirlögð
af listaviðburðum og alls kyns sýn-
ingum.
Rétt við háskólann var byggð geysi-
stór skautahöll, Olympic Oval, sem
Ljósmynd/Níels Kristjánsson
eru svipaðir í laginu og mun þetta vera
notuð verður fyrir skautahlaupið.
Skautahöllin skartar 400 m langri
hlaupabraut, tekur 4.000 manns í
sæti og þykir verkfræðilegt afrek
í alla staði. Þetta er í fyrsta skipti
í sögu vetrarólympíuleikanna sem
hægt er að halda skautahlaupið
innan dyra, þetta gerir íþróttina
óháða veðri og vindum og er spenn-
andi að sjá hver útkoman verður.
Búist er við að talsvert af heimsmet-
um muni fjúka, en Kanadamenn
gera sér vonir um að vinna til gull-
verðlauna í skautahlaupinu.
ísknattlelkur er nánast
trúaratrifti í Kanda
Listdansinn á skautum fer fram í
skautahöll sem heitir Father David
Bower Arena og er ein af mörgum
skautahöllum í borginni. Það er
rétt að geta þess að þar sem ísknatt-
leikur er nánast trúaratriði í
Kanada þá er ekki skortur á innan-
hússskautasvellum. Ein er sú
bygging sem mest ber á í borginni,
en það er Olympic Saddledone sem
er stærsta skautahöllin og ber mest
á sérkennilegri lögun þaksins, sem
minnir á söðul, og þaðan er nafnið
komið. Þakið eitt og sér þykir mik-
ið undur en innandyra er öllu þannig
fyrir komið að enginn þeirra 18
þúsunda sem sæti eru fyrir, er
lengra en 60 metra frá svellinu og
hvergi eru súlur eða bitar til að
byrgja sýn.
Olympic Saddledone er heimavöllur
Calgary Flames-ísknattleiksliðsins
héma og hefur liðið verið sigursælt
þetta árið og verið í 1. sæti í 1.
deild langan tíma. Við hliðina á
Olympic Saddledone er Internation-
al Broadcast Céríter (IBC) sem er
miðstöð þeirra fjarskipta sem tengj-
ast leikunum. Þar eru ógrynni af
sjónvarps- og útvarps-stúdíóum og
gafst undirrituðum tækifæri til að
beija staðinn augum og hef ég aldr-
ei á ævinni séð jafnmikið af
tækjabúnaði og alls kyns rafmagns-
HÉR í Calgary-borg líftur senn
að því aft mesti viðburður í
sögu borg&rinnar hefjist, en
þaft eru XV. vetrarólympíuleik-
arnir sem hefjast 13. febrúar
nk. Þetta er ífyrsta skipti sem
vetrarólympíuleikarnir eru
haldnir f Kanada. Kanada-
mönnum er því umhugað að
framkvœmdin gangi snurftu-
laust og verði landi og þjóð til
sóma. Calgary-borg sótti fyrst
um að fá að halda vetrar-
ólympíuleika 1959, en það var
ekki fyrr en 1981 að sá draum-
ur varð að veruleika og er það
Ralp Klein borgarstjóra aðal-
lega að þakka.