Morgunblaðið - 23.01.1988, Side 1
64 SIÐUR B OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
18. tbl. 76. árg.
LAUGARDAGUR 23. JANUAR 1988
Prentsmiðja Morgfunblaðsins
Frakkar og Vestur-Þjóðveijar:
Aukið samstarf
í öryggismáliim
París. Reuter.
FRAKKAR og Vestur-Þjóðverjar
undirrituðu í gær samning um
formlegt samstarf í öryggis- og
efnahagsmálum. Hafa ríkin með
Hættir Sihan-
ouk samstarfi
við khmerana?
Salnt-Gennain-en-Laye, Frakklandi.
Reuter.
NORODOM Sihanouk prins, leið-
togi einnar skæruliðahreyfingar-
innar í Kambódíu, er tilbúinn til
að hætta samstarfinu við Rauða
khmera með ákveðnum skilyrð-
um. Rauðu khmerarnir eru
sakaðir um að hafa myrt hundruð
þúsunda manna þegar þeir réðu
landinu.
Norodom Ranariddh prins, sonur
Sihanouks, sagði, að morðæði Rauðu
khmeranna hefði hvílt eins og skuggi
yfir tveggja daga friðarviðræðum
föður síns og Huns Sens, forsætis-
ráðherra Kambódíu, en hann og
stjóm hans sitja í umboði Víetnama.
Þeir réðust inn í landið árið 1978
og hafa þar nú rúmlega 100.000
hermenn.
í skæruliðasamsteypu Sihanouks
eru þijár hreyfingar og Rauðir
khmerar langöflugastir. Þeir hafa
til þessa ekki viljað taka þátt í friðar-
viðræðum við núverandi stjómvöld.
Ranariddh sagði, að faðir sinn væri
ekki fráhverfur tveggja flokka stjóm
með Hun Sen og án Rauðu khme-
ranna en ef Víetnamar héldu
hersetunni áfram yrði baráttan gegn
þeim tekin upp að nýju og við hlið
Rauðu khmeranna.
Hun Sen vill að víetnamska herlið-
ið fari úr landi á tveimur árum eftir
að um semst með honum og Sihano-
uk en Sihanouk segist tilbúinn til
samninga þegar öðrum áfanga
brottflutningsins er lokið.
Sjá frétt á bls. 26.
sér samstarfsráð, sem m.a. á að
skipuleggja fyrstu frönsk-þýsku
herdeildina.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti og Helmut Kohl, kanslari
Vestur-Þýskalands, undirrituðu
samninginn í þeim sal í Elysee-höll
þar sem þeir Charles de Gauile og
Konrad Adenauer settu nöfn sín
undir sögulegan vináttusamning
fyrir 25 árum upp á dag. í sameigin-
legri yfirlýsingu kváðust þeir Kohl
og Mitterrand vera vissir um, að
ekki væri hægt að tala um evrópska
einingu fyrr en tekið hefði verið upp
náið samstarf í öryggis- og vamar-
málum.
Bretar og ítalir hafa gagnrýnt
fransk-þýska samninginn og segj-
ast óttast, að hann muni verða til
að reka fleyg á milli Evrópu og
Bandaríkjanna en Kohl og Mitter-
rand segja, að samningurinn sé í
anda Atlantshafsbandalagssáttmál-
ans og Brussel-sáttmálans um
vamir Vestur-Evrópu.
Sjá nánar á bls. 24.
Reuter
Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, og Francois Mitterrand Frakklandsforseti skiptast á undirrit-
uðum samningi um nána samvinnu ríkjanna í öryggis- og efnahagsmálum.
Hvalveiðarnar:
Bandaríkjastjóm setur
Japönum urslitakosti
Hótar refsiaðgerðum skjóti þeir einn einasta hval í Suðurhöfum
Washington. Reuter.
WILLIAM Verity, viðskiptaráð-
herra Bandaríkjanna, hefur
hótað Japönum refsiaðgerðum
skjóti þeir nokkurn hval í Suður-
höfum en þangað eru nú komin
japanskt verksmiðjuskip og tveir
hvalveiðibátar. Er það haft eftir
embættismönnum í Washington,
Breska stjórnin ber fram harðorð mótmæli við Rúmeniustjórn:
Fölsuðu heillaóskaskeyti
frá Englandsdrottningu
- í tilefni af sjötugsafmæli Nicolaes Ceausescus
London. Reuter.
BRESKA stjómin bar i gær fram mjög harðorð mótmæli við
sendiherra Rúmena i London vegna falsaðra heillaóska frá Elísa-
betu Englandsdrottningu til Nicolaes Ceausescus Rúmeniufor-
seta, sem verður sjötugur á þriðjudag. Var heillaóskaskeytið
falsaða birt i tímaritinu Lumea og i þvi á drottning varla orð
yfir rúmenska mikilmennið.
David Mellor, utanríkisráð-
herra Breta, kallaði í gær á sinn
fund Stan Soare, sendiherra Rúm-
ena í London, og tjáði honum, að
skeytið væri „falsað og móðgun
við hennar hátign". I því var
meðal annars þetta:
„Við Bretar dáumst að rúm-
ensku þjóðinni, einörðum vilja
hennar til að vera sjálfstæð og
öðrum óháð, og okkur finnst til
um áhrif hennar á alþjóðavett-
vangi. Þér, hr. forseti, eruð leið-
togi á heimsmælikvarða og
mannkostir yðar, reynsla og áhrif
eru almennt viðurkennd."
Ceausescu hefur ráðið ríkjum í
Rúmeníu í 22 ár og þora þar fáir
að-mæla því í mót, að hann sé
allt að því guðleg vera. Efnahags-
málin eru hins vegar í kaldakoli
og matar- og orkuskortur ollu því
raunar í nóvember sl., að þá kom
til uppþota og árása á skrifstofur
kommúnistaflokksins.
Talmaður breska utanríkis-
ráðuneytisins sagði, að rúmenski
sendiherrann hefði tekið við mót-
mælunum en svarað þeim í engu.
Sagði hann einnig, að í febrúar í
fyrra hefðu rúmenskir fjölmiðlar
birt falsaða orðsendingu til Ceau-
sescus frá Margaret Thatcher
forsætisráðherra.
að Japönum hafi verið settir
þessir úrslitakostir á miðviku-
dag.
Talsmaður japanska sendiráðsins
í Washington vildi ekkert um málið
segja en samkvæmt Packwood-
Magnuson-lögunum ber Banda-
ríkjastjóm að beita refsingum það
riki, sem brýtur bann Alþjóðahval-
veiðiráðsins við hvalveiðum. Japanir
ætla að veiða 300 hvali í vísinda-
skyni en umhverfísvemdarsamtök
segja, að vísindin séu aðeins höfð
að yflrvarpi.
Hermt er, að Verity hafi hótað
að refsa Japönum veiði þeir einn
einasta hval áður en lokið er at-
kvæðagreiðslu innan Alþjóðahval-
veiðiráðsins um ályktun frá Bretum
en í henni biðja þeir Japani um að
hætta hvalveiðum. Eiga niðurstöður
hennar að liggja fyrir 14. febrúar.
Bandaríkjastjóm getur einnig
beitt Pelly-lögunum en þau banna
fískútflutning til ríkja, sem em
brotleg að hennar mati, en Japanir
geta auðveldlega bmgðist við því
og beint kaupum sínum annað.
Packwood-Magnuson-lögin kveða
hins vegar á um, að veiðikvótar
brotlegxa ríkja skuli helmingaðir en
á síðasta ári veiddu Japanir 100.000
tonn innan bandarískrar lögsögu.
Bandaríkin:
Náðarhöggið fyrir Hart?
Washington. Reuter.
GARY Hart, sem berst fyrir því
að verða útnefndur frambjóðandi
bandariska Demókrataflokksins í
kosningunum á hausti komanda,
viðurkenndi í gær að hafa tekið
við ólöglegum framlögum £ for-
kosningabaráttunni árið 1984.
Dagblaðið The Miami Herald
sagði á miðvikudag, að Hart hefði
fengið rúma 15.000 dollara frá
Hollywood-leikstjóranum Stuart
Karl árið 1984 en ekki gefíð það
upp og Washington Post bætti um
betur í gær og fullyrti, að óuppgefin
framlög ájþessu ári næmu 60.000
doliumm. I gær viðurkenndi Hart,
að gleymst hefði að gefa upp fram-
lagið frá Stuart Karl en önnur ekki.
Kvaðst hann mundu skila fénu.
Óháðir stjómmálaskýrendur og
keppinautar hans telja, að þessi
uppákoma geti orðið til að veita
kosningabaráttu Harts náðarhöggið
og í skoðanakönnunum kemur fram,
að hann er nú í fjórða sæti í lowa
þar sem kosið verður 8. febrúar.