Morgunblaðið - 23.01.1988, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 23.01.1988, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988 27 Dimmalætting Sovéskir togar í Færeyjum Færeyingar hafa heimilað Sov- étmönnum að stunda veiðar á kolmunna í lögsögu sinni og fengið leyfi til þorskveiða í so- véskri lögsögu. Þá hafa tvær af þremur skipasmíðastöðvum í Færeyjum gert samninga um viðgerðir og viðhald á sovéskum togurum. Athygli beindist að þessum ráðstöfunum nýlega vegna frásagnar í breska viku- ritinu The Economist og hefur Morgunblaðið greint frá við- brögðum Atla Dams lögmanns við grein blaðsins. Telur hann öryggi Færeyinga ekki ógnað, þótt þar kunni að vera nokkur hundruð sovéskir sjómenn samtímis, jafnvel þótt einhveijir þeirra séu úr leynisveitum Rauða hersins. Myndirnar eru frá skip- asmíðastöðvunum tveimur, sem hafa gert verksamninga við Sovétmenn. Annars vegar sést Dimmalætting skipasmíðastöðin í Vogum. Á hinni myndinni sést færeyskur togari (tíl vinstri) og sovéskur togari sem kominn er til við- gerðar í skipasmíðastöðinni í Skálum. Bretland: Sameinast fijáls- lyndir og sósíal- demókratar? Lundúnum, Reuter. FRJÁLSLYNDI flokkurinn í Bretlandi heldur einn stærsta og þýðingarmesta fund í sögu flokksins í dag. Á fundinum verður tekin ákvörðun um það hvort flokkurinn muni mynda nýjan flokk með Sósíaldemó- krataflokknum. Fijálslyndi flokkurinn sem var sterkasta aflið í breskum stjóm- málum frá því um 1860 fram til 1920, hefur verið í skugga ann- arra flokka í meira en hálfa öld. Miklar vonir eru bundffar við sam- einingu þessara tveggja flokka. Yfír 2.500 fulltrúar munu sitja fund flokksins sem hefst í Black- pool í dag. Eru það helmingi fleiri en alla jafna sitja árleg flokks- þing. Mun verða gengið til atkvæða um hvort sameinast eigi sósíaldemókrataflokknum. Verði það samþykkt mun verða kosið um það meðal allra flokksmeð- lima, sem em yfír 90.000 talsins, hvort af sameiningunni verði. Sósíaldemókratar munu greiða atkvæði um sameininguna í Shef- fíeld í næstu viku. Fmnland: Koivisto tapar fylgi Helsinki, Reuter. SAMKVÆMT , skoðanakönnun sem birt var í Finnlandi í gær hefur fylgi Koivistos forseta Finnlands fallið niður fyrir 50% frá fjTri könnunum. Ef enginn forsetaframbjóðenda fær yfir 50% fylgi í kosningum kjósa sér- stakir kjörmenn forseta. Skoðanakönnunin fór fram í síðustu viku, en niðurstöður hennar voru kynntar í fínnska útvarpinu í gær. Samkvæmt skoðanakönnun- inni styðja 48% Finna Koivisto í komandi forsetakosningum. Er það 7% færri en sögðust styðja hann í skoðanakönnun sem gerð var fyrir mánuði. Aðrir frambjóðendur hafa tölu- vert minna fylgi en Koivisto. Næstur honum að fylgi er fcrsætis- ráðherra landsins Harri Holkeri sem nýtur stuðnings 15% kjósenda og hefur bætt við sig 1% frá síðustu skoðanakönnun. ALMENNUR GEGNÁFORMUMUM RAÐHUS I TJORIMIIMNI HÓTEL B0RG SUNNUDAGINN 24. JANUAR KL. 15.00 KAFFIVEITINGAR Á B0ÐSTÓLUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.