Morgunblaðið - 23.01.1988, Síða 2

Morgunblaðið - 23.01.1988, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988 Forseti íslands í Washington Washington, frá ívari Guðmundssyni fréttaritara Morgunblaðsins. FRÚ Vigdís Finnbogadóttir for- dóttir til bústaðar seti Íslands kemur hingað til Washington siðdegis í dag með flugvél frá London. Lendir vél forsetans á Dulles-flugvelli en þaðan heldur Vigdis Finnboga- Ingva S. Ingvarssonar, sendiherra, þar sem hún býr meðan á dvöl henn- ar hér stendur. 2,35% hækk- un láns- kjaravísitölu Lánskjaravisitalan hækkar um 2,35% um næstu mánaðamót. Hækk- un hennar samsvarar 32,2% hækkun á ári. Hækkun lánskjaravísi- tölunnar síðustu þrjá mánuði samsvarar 27,9% hækkun á ári. Samkvæmt útreikningi Seðlabankans gildir lán- skjaravísitalan 1958 fyrir febrúarmánuð. Hækkun vísitölunnar síðustu sex mánuði samsvarar 26,2% verðbólgu en undanfama tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 22,8%. Á morgun, sunnudag, hittir forseti íslands forvígismenn íslendinga- félagsins og fleiri gesti í sendiherra- bústaðnum. Á mánudag skoðar hún söfn I höfuðborg Bandaríkjanna og fer í leikhús. Klukkan 13.45 á þriðjudag á Vigdís Finnbogadóttir fímmtán mínútna fund með Ronald Reagan, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu í Washington. Þaðan heldur hún síðan til New York. Morgunblaðið/Ámi Sœbeig Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra flytur lokaávarp á alþjóðlegu ráðstefnunni um nýtingu sjávarspendýra. Alþjóðlegu ráðstefnunni um nýtingu sjávarspendýra lokið: Þátttökuþjóðirnar ákváðu ALÞJÓÐLEGU ráðstefnunni um nýtingu sjávarspendýra lauk í Reykjavík í gær. I lokaávarpi sínu á ráðstefnunni sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra meðal annars að ákveðið hefði veríð að halda samstarfi þátttökuþjóðanna áfram. Og í Formlegur viðræðurfundur á Vestfjörðum í dag: Ueynt að ná kjara- ^jnningi til eins árs fsafirði. Frá Huga Ólafssyni, blaðamanni Morgun samtali við Morgunblaðið að lok- inni ráðstefnunni sagði ráðherr- ann, að til tals hefði komið að halda fund íslendinga og Banda- ríkjamanna um samkomulagið sem gert var í Ottawa í septem- ber 1987. Halldór sagði að liklega yrði fundurínn í næsta mánuði og hann mæti á hann fyrir hönd íslands. í fréttatilkynningu sem gefín var út að lokinni ráðstefnunni kemur fram að þátttakendur á ráðstefn- unni staðfestu að hlutverk sjávar- spendýra í lífríkinu væri mikilvægt og voru sammála um að markmið stjómunar væri að viðhalda jafti- vægi f lífríkinu um alla framtfð. 3irði það næsta sumar. Ákveðið var að Islendingar héldu þessu máli vakandi. . Halldór var spurður hvort það væri rétt að ákveðið hefði verið að halda annan fund sérstakrar nefnd- ar í Reykjavík innan 45 daga, þar sem rætt yrði hvemig haga ætti upplýsingamiðlun um hvalveiðar og selveiðar. Hann sagði að þetta væri ekki ákveðið, en það hafí verið rætt og ákveðið að hafa samband um þetta á næstunni. Sjá frásögn bls. 30. FYRSTI formlegi viðræðufund- urinn milli Alþýðusambands Vestfjarða og Vinnuveitendafé- lags Vestfjarða hefst I Alþýðu- húsinu á ísafirði i dag kl. 10.00. Aðalsamninganefnd ASV hélt undirbúningsfund í Alþýðuhús- inu í gær, en Pétur Sigurðsson, forseti ASV, vildi ekki tjá sig um niðurstöður fundaríns, sem lauk seint í gærkveldi. Pétur sagði að rætt yrði út frá Nýtegund ferða- þjónustu NÝ tegund ferðaþjónustu, svonefndar hvatningarferð- ir, er talsvert farin að skjóta upp kollinum á íslandi, en engar upplýsingar Iiggja fyrir um það hve margir hópar slíkra ferðamanna hafa komið til landsins. Al- gcngasta stærð hópa virðist vera 30-40 manns sem koma hingað til lands um eina helgi og eyða oft jafn miklu og ferðamenn sem eru hér I 2-3 vikur. Þetta kemur meðal annars fram í grein um hvatningar- ferðir í Ferðablaði Lesbókar, sem fylgir Morgunblaðinu í dag. Þar kemúr einnig fram að slíkar ferðir er nýtískuleg aðferð „stjómenda fyrirtækja til að ná viðskiptalegum mark- miðum. Þeir umbuna starfs- mönnum sínum sem hafa náð ákveðnum markmiðum, eru söluhæstir, hafa náð bestri kynningu á vörutegundum o.fl., með einstakri upplifun á ferðalögum". þeim ramma sem undimefnd ASV hefði samþykkt og að reynt yrði að ná „alvörusamningi", en ekki bráðabirgðasamningi til átta vikna. í sama streng tók Jón Páll Halldórs- son, formaður Vinnuveitendafélags VestQarða; hann sagði að reynt yrði til þrautar að ná samningi til eins árs, áður en aðrar leiðir yrðu kannaðar. Viðræðumar áttu upphaflega að heQast í gær, föstudag, en vegna samgönguerfíðleika var þeim frest- að um einn dag. Samningamenn ASV frá Hólmavík og sunnanverð- um Vestijörðum komusttil ísafjarð- ar síðdegis í gær og vantar aðéins fulltrúa frá félögunum á Reyk- hólum og Drangsnesi til að aðal- samninganefndin sé fullmönnuð. Ekki em allir fulltrúar Vinnuveit- endafélagsins komnir til ísafjarðar, en þeir em væntanlegir fyrir fund- inn í dag. Pétur Sigurðsson sagði að Al- þýðusambandsmenn væm ekkert of bjartsýnir á að samningar myndu nást í dag og Jón Páll Halldórsson vildi ekkert tjá sig um stöðu samn- ingamálanna að svo stöddu, enda væri þetta fyrsti formlegi samn- ingafundurinn, þótt óformlegar viðræður hefðu farið fram áður. óvíst er hvenær samningavið- ræðum verður haldið áfram, ef ekki næst að semja í dag, en Pétur Sigr urðsson sagði að hugsanlega myndu aðilar þá ræðast við eftir messu á sunnudag. Viðræður um möguleika á kjara- samningi til skamms tíma vom í •biðstöðu í gær, nema hvað fundur var með verkalýðsfélögunum og vinnuveitendum á Suðurnesjum. Búast má við að framkvæmdastjóm Verkamannasambands íslands verði kölluð saman fljótlega og far- ið yfír stöðu samningamálanna. Bjöm Bjömsson við- skiptafræðingur banka- sljóri Alþýðubankans Á FUNDI bankaráðs Alþýðu- bankans í gær var einróma samþykkt að ráða Björn Björns- son, viðskiptafræðing, banka- stjóra Alþýðubankans frá og með1. mars næstkomandi. Bjöm Bjömsson er fæddur á Akureyri 24. ágúst 1949 og lauk prófí frá viðskiptadeild Háskóla Islands haustið 1973. Hann hefur síðan starfað fyrir verkalýðshreyf- inguna, fyrst hjá Kjararannsókn- amefnd og sfðan lengst af sem hagfræðingur Alþýðusambands íslands. Frá 1. september síðast- liðnum hefur hann verið aðstoðar- maður fjármálaráðherra. Þátttökuþjóðir sem em aðiiar að alþjóðlegum stofnunum er Qalla um veiðistjómun á stórhvölum vom sammála um að núverandi fyrir- komulag tæki ekki á viðunandi hátt tillit til nútímaviðhorfa er lúta að nýtingu auðlinda og ekki hafí verið tekið tillit til þróunar sem orðið hefur í vemdun og stjómun stofn- anna. Jafnframt skorti skilning á mikilvægi eflingar nauðsynlegra vfsindarannsókna. Þessir aðilar telja fullá þörf á að kanna gaumgæfilega fyrirliggjandi tillögur um breytingar á alþjóða- sáttniálanum um stjómun hvalveiða frá 1946 og ræddu möguleikana á að koma á fót sérstökú samstarfi á þessu sviði. Þá var bent á að samvinna sé nauðsynleg til að fást við þau vandamál er varða veiðistjómun og vemdun sela og rætt um leiðir til að bæta vísindalegt samstarf á því sviði. Einnig kemur fram í fréttatil- kynningunni að talið var umhugs- unarvert að koma á svæðisbundnu samstarfí vegna þess hve stofnar sjávarspendýra eru dreifðir. Komist var að þeirri niðurstöðu að efla beri vísindarannsóknir á sjávarspendýrum. Kannað var hugsanlegt hlutverk Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins eða annarra ijölþættra svæðisstofnana. Mælt var með aukinni alþjóðlegri rann- sóknasamvinnu um hlutverk sjávar- spendýra í lífríkinu og tengsl þeirra við mannlegar þarfír. Á blaðamannafundi að lokinni ráðstefnunni sagði Halldór Ás- grímsson að umræðumar á ráð- stefnunni hafí verið jákvæðar og vinsamlegar og var samþykkt að gagnlegt væri að hafa áfram sam- ráð um þau málefni sem rædd voru þar. Sagðist hann ekki búast við að strax yrði ljóst hvenær annar fund- ur verður haldinn, en hugsanlega Skákeinvígin I Kan- ada hefjast á morgun: Friðrik Olafsson kos- inníyfir- dómnefndina SKÁKEINVÍGIN í St. John í Kanada hefjast á morgun, sunnu- dag. Margeir Pétursson er aðstoð- armaður Jóhanns Hjartarsonar í einvígi hans og Viktors Kortsnoj en Fríðrik Ólafsson er talsmaður þeirra f Kanada. Margeir sagði í gærkvöldi að vel hefði veríð tekið á móti þeim og ágætlega að þeim búið. Hins vegar væru þeir enn ekki búnir að sjá salinn þar sem teflt verður, þvf undirbúningur værí þar enn í fullum gangi. „Friðrik Ólafsson var kosinn hér í yfírdómnefnd," sagði Margeir. Kanadamenn eru allir af vilja gerðir en þeir eru ekki vanir að halda svona mót. Það snýst allt um skák hér í St. John þessa dagana og blöðin skrifa mikið um einvígin," sagði Margeir. Þeir sem tefla saman í St. John, aðrir en Jóhann og Svisslendingur- inn Viktor Kortsjnoj, eru Englend- ingurinn Nigel Short og Ungveijinn Gyula Sax, Kanadamaðurinn Kevin Spraggett og Sovétmaðurinn Andrei Sokolov, Englendingurinn Jonathan Speelman og Bandarílqamaðurinn Yasser Seirawan , Sovétmaðurinn Artur Jusupov og Sovétmaðurinn Jann Ehlvest, Hollendingurinn Jan Timman og Sovétmaðurinn Valery Salov og Ungveijinn Lajos Portisch og Sovétmaðurinn Rafael Vaganjan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.