Morgunblaðið - 23.01.1988, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988
9
Kynning á Hyundai—
bílum um helgina
ISCAN hf. kynnir um helgina
nýja bílategund, Hyundai Exc-
el, í sýningarsal Sveins Egils-
sonar hf. i Skeifunni,
Reykjavik. Sýningin verður
opin laugardag frá 10 til 17 og
sunnnudag frá kl. 13 til 17. Til
að byrja með verður um þijár
gerðir að ræða, 3, 4 og 5 dyra,
með 1500 rúmsentmetra og 68
hestafla vél. Hyundai-verk-
smiðjuraar bjóða fimm ára
ábyrgð á bilunum og mun hún
einnig verða gild hérlendis.
í frétt frá Iscan hf. segir að
bílamir séu framleiddir í Suður-
Kóreu af Hyundai-samsteypunni,
sem framleiði einning skip, bygg-
ingarvörur, rafeindatæki, fatnað
og ýmislegt fleirá.
Iscan mun flytja inn bíla frá
Kanada en þar hafa Hyundai-bílar
verið á markaðnum frá 1984.
Þeir bílar sem seldir verða hér-
lendis eru með styrktu rafkerfi
og aukaryðvöm frá verksmiðjun-
um. Verðið er á bilinu 428.000
kr. til 588.000 kr. og em ryðvöm
og skráning ekki meðtalin.
Spilakvöld
Félagsvist verður spiluð ífélagsheimili Fáks, Víði-
völlum, mánud. 25. janúar kl. 20.30.
Fjölmennum!
Fákur.
Fræðslufundur
verður ífélagsheimili Fáks, Víðivöllum\ þriðjudag-
inn 26. janúar og hefst kl. 20.30.
Dagskrá kvöldsins verður:
„Meðferð og hirðing hófa"
erindi sem Þorvaldur Þórðarson dýralæknir og
Alfreð Jörgensen járningamaður flytja.
Fræðslunefnd Fáks.
Húsi verslunarinnar sími 686988
VEXTIR Á
VERÐBRÉFAMARKAÐI
Vikan 17. — 23. janúar 1988
Vextirumfram Vextir
Tegund skuldabréfa verðtryggingu % aiis%
Einingabréf
Einingabréf 1 12.3% 44,2%
Einingabréf2 8.2% 39.7%
Hningabréf3 12.6% 44,6%
Lífcyrisbréf 12,3% 44,2%
Spariskírteini ríkissjóðS
laegst 7.2% 37,7%
haesi 8.5 39,3%
Skuldabréf banka og sparisjóða
laegst 9.3% 40.4%
hæst 10,0% 41.3%
Skuldabréfstórra fYrirtækja
Lindhf. 11.0% 42,6%
Glitnir hf. 11,1% 42,7%
Sláturfélag Suðuriands
1.11. 1987 11,2% 42,8%
Verðtryggð veðskuldabréf
laegst - 12,0% 43,8%
haest 15,0% 47,7%
Fjárvarsla Kaupþíngs mismunandi eflir samsetn-
ingu verðbréfaeignar.
Heildarvextir annarra skuldabréfa en einingabréfa eru sýndir
miðað við hækkun lánskjaravísitöiu síðastliðna 3 mánuði.
Raun- og nafnávöxtun Einingabréfa og Lífeyrisbréfa er sýnd
miðað við haekkun þeirra síðastiiðna 3 mánuði.
Flest skuldabréf er hægt að endurselja með litlum fyrirvara. Ein-
ingabréf er innleyst samdægurs gegn 2% innlausnargjaldi hjá
Kaupþingi og nokkrum sparisjóðanna. Spariskírteini eru seld á
2-3 dögum og fiest önnur skuldabréf ínnan tveggja vikna. Fé í
Fjárvörsiu Kaupþings er oftast hægt að losa innan viku.
Mishár fasteignaskattar sveitarfélaga
Staksteinar staldra í dag við frásögn Alþýðublaðstns af mis-
þungum fasteignasköttum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Þar sker Kópavogur sig úr með „vinstri-stjórnar-skatta". Gluggað
verður í fleira bitastætt í Alþýðublaðinu.
Skattagleði í
Kópavogi
Síðastliðinn miðviku-
dag kemst Aiþýðublaðið
svo að orði i forsíðufrétt:
„Fasteignagjöld {
Kópavogi eru samkvæmt
athugun Aiþýðublaðsins
18,76% hærri en á jafn-
dýrri íbúð i Reykjavík og
33,3% hærri en á sam-
bærilegum ibúðum í
Garðabæ, Seltjarnarnesi
og Mosfellsbæ ...
Heildarfasteignagjöld
á einbýlishúsi i Vesturbæ
í Kópavogi voru 60.667
krónur, en 43.328 á svo
til jafndýru húsi í
Reykjavík, eins og fram
kemur & meðfylgjandi
töflu.
Samanburður og sund-
urliðun gjaldanna sýnir
að i Kópavogi eru álögð
gjöld sem ekki eru til í
Reykjavík, það er hol-
ræsagjald og sorpgjald."
Það vekur athygli að
Hafnarfjörð vantar í
samanburð Alþýðublaðs-
ins af fasteignagjöldum
á höfuðborgarsvæðinu.
Álögnm Kópa-
vogskaupstað-
ar mótmælt
Halldór Björnsson
birtir opinbert bréf til
bæjarstjórnar Kópavogs
í Þjóðviljanum í gær und-
ir yfirskriftinni: Álögum
mótmælt Þar segir:
„Ég undirritaður, sem
er greiðandi fasteigna-
gjalda og ibúi í Kópavogi,
fékk um daginn inn-
heimtubréf vegna fas-
teignagjalda af ibúð við
Furugrund 62. Þegar ég
sá seðilinn þá brá mér
illilega í brún þvi við sam-
anburð við gjöld 1987
höfðu þessi gjöld hækkað
um ca. 62%.
Ég verð að segja að
þrátt fyrir að þegnar
þessa lands séu ýmsu
vanir í hæklfiinum álaga
nú þessa mánuði, þá tek-
ur steininn úr með
þessari ósvifnu hækkun
fasteignagjalda hjá bæj-
arstjórn Kópavogs. Þær
skýringar sem forseti
bæjarstjómar gefur til
réttlsetingar i Alþýðu-
blaðinu eru svo fáránleg-
ar að engu tali tekur —
í þvi sambandi er rétt að
benda á að ekki rekur
Kópavogur slökkvilið eða
sjúkrahús og til þessa
dags hefur varla verið
hægt að tala um að i
Kópavogi væri sundlaug.
Þá er rétt að benda ykk-
ur á, ef þið skylduð ekki
vita það, að til skamms
tima var varla hægt að
taia um frambærilegt
gatnakerfi í bænum.
Ég hefði nú haldið að
flokkar sem kenna sig
við félagshyggju gengju
ekki fremstir i þvi að
hiplfltfl álögur á fbúana í
slíkum mæli og gert er
með þessari hækkun.
Ég vil harðlega mót-
mæla þessari ósvífnu
hækkun og krefst þess
að hún verði tekin til
endurskoðunar til lækk-
nnar álagningnnni “
„Hækkuní
samræmi við
Ú1gjöld“
Rannveig Guðmunds-
dóttir, forseti bæjar-
stjórnar Kópavogs, segir
í viðtali við Alþýðublaðið
í gær, að hækkun fasteig-
nagjalda í kaupstaðnum
sé f samræmi við útgjöld.
Hún segir og að félagsleg
þjónusta f bæjarfélaginu
réttlæti aukna gjaldtöku.
Orðrétt segir forseti bæj-
arstjómar:
„Til að koma til móts
við jafna skattgreiðslu
fólks í staðgreiðshi býður
Kópavogsbær 10 gjald-
daga á greiðslu fast-
eignagjalda, vaxtalaust,
þ.e. frá janúar til nóvem-
ber, en júli og desember
eru greiðslufríir. Auk
þess er boðinn 15% stað-
greiðsluafsláttur fyrir
þá, sem kjósa að greiða
gjöldin að fullu fyrir 1.
febrúar...
Þá segir Rannveig að
ellilífeyrisþegar f Kópa-
vogi fái niðurfellingu,
eða lækkun fasteigna-
gjalda eftir ákveðnu
fyrirkomulagi...
Bent hefur verið á að
Kópavogsbær leggi gjöld
á sem þekkist ekki viða
annars staðar eins og
holræsagjöld, sem hækka
töluvert frá árinu á und-
an. Rannveig segir að
Kópavogur sé með áæti-
un í gangi sem sé byggð
á samþykkt Alþjóða heil-
brigðisráðsins um hreins-
un sjávar. Þessi áætlun
felur í sér algjöra hreins-
un Voganna og þar með
nokkurra ára fram-
kvæmdaáætlun sem
byrjaði fyrir þremur
árum upp á töluvert á
annað hundrað milljónii'.
Forseti bæjarstjóraar
Kópavogs bendir og á að
kaupstaðurinn reki heil-
sugæzlu, endurhæfingar-
stöð og „sambærilega
strætisvagnaþjónustu og
Reykjavík". Þar sé að
auki „verið að byggja
eina fullkomnustu sund-
laug í landinu“.
Eftir stendur sú stað-
reynd að fasteignagjöld
í Kópavogi eru 18,76%
hærri en i Reykjavík og
33% hærri en i Garðabæ,
Mosfellsbæ og SeHjarn-
arnesi.
spurt og svarad
I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI
Staðgreiðslu-
kerfi skatta
HÉR á eftir fara spurningar sem lesendur Morgunblaðsins
hafa beint til þáttarins Spurt og svarað um staðgreiðslu-
kerfi skatta og svör við þeim. Þjónusta þessi er í því fólgin
að lesendur geta hringt í .síma 691100, milli klukkan 10 tU
12 virka daga og borið upp spuraingar um skattamál. Morg-
unblaðið leitar svara hjá starfsmönnum embættis ríkisskatt-
stjóra og birtast þau síðan í þessum þætti.
Meðlög
Gunnar Gunnarsson spyr: Mér
skilst að þeir sem greiða meðlög fái
ekki skattafslátt þeirra vegna, en
meðlög séu skattlögð sem tekjur
hjá því foreldri sem þau fær. Er
ekki verið að skattleggja sömu pen-
ingana tvisvar í þessu tilfelli?
Svar:
Meðlög sem eru jafnhá eða lægri
en bamalífeyrir sem greiddur er af
Tryggingastofnun rikisins eru und-
anþegin skattskyldu.
Ónýttur persónu-
afsláttur
Ágúst Karlsson spyr: Hvað
verður um ónýttan persónuafslátt?
Vegna náms undanfarin ár á ég
ónýttan persónuafslátt næstu fimm
árin, hvað verður um þennan ónýtta
persónuafslátt f nýja skattkerfinu?
Svar:
Úrskurðaður frádráttur vegna
eftirstöðva ónýtts námsfrádráttar
vegna fyrri ára heldur gildi sínu í
staðgreiðslukerfinu. í tilviki fyrir-
spyijanda kemur hann að vísu ekki
til álita fyrr en við álagningu, fyrst
nú í júlí 1988.
Skattleysismörk
Karl Þórðarson spyr: Hvað má
ég þéna mikið án þess að greiða
skatt ef ég nýti að fullu persónuaf-
slátt konu minnar?
Svar:
Skattleysismörk í þessu tilviki
eru við kr. 75.665.
Haildóra Einarsdóttir spyr:
Ber launþega að greiða skatt af
launum sem eru eftirágreidd frá
því í desember á sfðasta ári?
Svar:
Lög um gildistöku staðgreiðslu
gera ráð fyrir slíku svo fremi sem
laun frá viðkomandi launagreið-
anda á árinu 1986 hafi verið talin
með tekjum skattlausa ársins 1987.
Ef laun frá sama launagreiðanda á
árinu 1986 voru talin með tekjum
ársins 1986 og því greiddur af þeim
skattur, er'ekki í samræmi við lög
að telja laun frá árinu 1987 sem
greidd eru út á árinu 1988 með
staðgreiðsluskyldum launum.
Reiknað endurgjald
Sigríður Guðmundsdóttir
spyr: Ég tek að mér þvott og þvæ
hann heima. Hvemig á ég að gefa
upp tekjur og kostnað? Á ég að
greiða skatt af öllu mánaðarlega
eða fæ ég einhvem frádrátt vegna
kostnaðar?
Svar:
Fyrirspyijanda ber að tilkynna
sig til launagreiðendaskrár ríkis-
skattstjóra og að reikna sér endur-
gjald (laun) að lágmarki í samræmi
við viðmiðunarreglur ríkisskatt-
stjóra. Þá ber að skila mánaðarlega
staðgreiðslu af Ijárhæð endur-
gjaldsins. Ef reiknað endurgjald
fyrirspyijanda verður mjög lágt,
eða undir 100.000 kr. á ári, er hann
undanþeginn staðgreiðslu af því
endurgjaldi og að skattar verði
gerðir uþp með álagningu næsta
árs á eftir staðgreiðsluári.