Morgunblaðið - 23.01.1988, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988
Morgunblaðið/Þorkell
Krístinn E. Hrafnsson við verðlaunatillögu sína.
Samkeppni um gerð
umhverfislistaverks
Myndlist
BragiÁsgeirsson
Eins og kunnugt er þá efndi
Menningarmálanefnd Reylq'avíkur
til samkeppni um gerð umhverfís-
listaverks á torgið norðan við
Borgarleikhúsið. Var öllum íslenzk-
um myndlistarmönnum heimil
þáttaka í samkeppninni og var þeirri
hugmynd beint til þeirra, að þeir
hugleiddu samspil höggmyndar við
sírennandi vatn — heitt og/eða kalt.
Dómnefnd hefur nú lokið störfum
og verðlaunað tvær tillögur, eins og
upphaflega var gert ráð fyrir, en
alls bárust 35 tillögur og þar af
nokkrar eftir sama aðilann. Eru til-
lögumar allar til sýnis í Austursal
Kjarvalsstaða fram til sunnudags-
kvölds 24. janúar.
— Einhvem veginn virðist hafa
verið takmarkaður áhugi á þessari
samkeppni meðal myndlistarmanna
af þekktari gráðunni, og eiginlega
kannast ég ekki við helming þátttak-
enda. Hér veldur sennilega, að
verðlaunaupphæðin er merkilega lág
miðað við mikilvægi samkeppninnar
og það, að vinna og heilabrot flestra
þeirra, sem þátt tóku i keppninni,
mætti meta fyrir sömu upphæð á
almennum vinnumarkaði.
Verkeftiið er mjög áhugavert og
spennandi og þvi undrar það mig,
að ekki skyldu fleiri þekktir mynd-
listarmenn spreyta sig á því. Enn
meira undninarefni er mér það, að
flestir þátttakendanna virðast hafa
verið úti að aka við gerð tillagna
sinna, því að of mörg þeirra virka
sem sjálfstæð skúlptúrverk og án
beinna tengsla við vatn, gufu og
hvað þá byggingamar allt í kring.
Og að auki er ákaflega lítið um frum-
lega hugsun í þeim og þann upp-
hafna kraft, sem nauðsynlegt er að
sé í slíku verki. Jafnvel verðlaunatil-
lagan er ekki ýkja frumleg, þótt hún
sé án vafa mest í anda upprunalegu
hugmyndarinnar kringum þessa
samkeppni.
Það er ljóst, að þeir, sem hyggj-
ast taka þátt í slíkum samkeppnum,
þyrftu að geta einbeitt sér að verk-
efninu einu í nokkra mánuði og helst
leggja land undir fót og skoða með
eigin augum beinar hliðstæður í út-
löndum.
Það eru til mörg hrífandi lista-
verk, sem tengjast vatni, og mögu-
leikamir em ótæmandi og jafnvel
er mögulegt að láta vatnsflauminn
sjálfan verða að hluta listaverksins,
tengjast því og umvefja. Hér var
þannig ekki alveg rétt staðið að
verki, áhugi takmarkaður jafnt með-
al myndlistarmanna sem almenn-
ings, sem lætur ekki sjá sig á
sýningunni — umræður engar né
reynt að koma þeim í gang, því að
þeir, sem fjalla um myndlist í fjöl-
miðlum, vom ekki kallaðir á vett-
vang.
íbúð í Hafnarf irði
Nýkomin til sölu 3ja herb. íbúð um 70 fm á jarðhæð
við Hringbraut. Engar skuldir. Laus strax. Einkasala.
Opið í dag frá Árni Gunnlaugsson, hrl.,
kl. 13.00-16.00 Austurgötu 10, sími: 50764.
Til sölu
við Bergþórugötu 3ja herb. íbúð á 1. hæð í nýju húsi.
íbúðin selst fullbúin til afhendingar í maí í vor.
Örn ísebarn, byggingameistari,
sími31104.
ItoffigfM máö
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
í 418. þætti var rætt um mis-
munandi fleirtölu af hringur.
Ljóst er af heimildum að upphaf-
lega var hún hringar. Við það
bætti ég: „En gömul held ég líka
að fleirtalan hringir sé. Vera
má að máli skipti um hvers kon-
ar hringa/hringi talað sé.
Kannski finn ég eitthvað um það
seinna."
Nú hef ég kannað þetta mál
eilítið betur með góðri aðstoð
þeirra hjá Orðabók Háskólans
(OH). Elstu dæmi um fleirtöluna
hringir, sem OH hefur úr
íslenskum bókum, er að finna í
Guðbrandsbiblíu (1584). Sig-
urður Breiðfjörð (1798-1846)
notaði þessa fleirtölumynd í
rímum sínum, og set ég tvö
dæmi því til staðfestingar. Hið
fyrra er úr Númarímum (4,22)
og er skáldið að lýsa skjaldmey
er Númi sá liggja sofandi:
Húðin skæra hönd og fótinn
hægt í kringum vafin er.
Um sívöl lærin liðamótin
litla hringi marka sér.
Þessi vísa er langhenda, en
svo eru hér stikluvik (þríhend)
en þar er skáldið að lýsa hjátrú
í mansöng fjórðu rímu af Aris-
tómenesi og Gorgi:
Ýmsir sjá um háa heið
hringi, ljós og sólir.
Tunglið spáir skaðaskeið,
skatnar fá ei varast neyð.
í Nýrri sumargjöf handa
bömum, sem prentuð var í
Káupmannahöfn 1841, eru m.a.
leiðbeiningar um skrift, og segir
þar [stafsetningu haldið]:
„Það er kostur skriffegurðar-
innar, að menn eiga hægra með
að lesa viðstöðulaust og skilja
það, sem vel er ritað og skil-
merkilega, enn skrift þá, sem
eigi er annað enn hlikkir, rófur
og hringir."
Fleiri slík dæmi eru til, og
sést af þessu að orðmyndin
hríngír er gömul. En upphaf-
lega fleirtalan hringar lifði og
ágætu lífi.
Mér datt í hug að kannski
væri aðeins önnur fleirtölumynd-
in höfð, ef orðið 'hringur væri
notað í mjög yfírfærðri merk-
ingu eins og þegar mönnum
hugkvæmdist að nota það orð
um fyrirbæri sem á ensku er
nefnt trust (=auðhringir/-
hríngar). En sama tilbreytingin
virðist vera þar. í Andvara
1910, bls. 201, segir Bjöm Þórð-
arson, síðar dr. juris og forsætis-
ráðherra:
„Þeir ætla, að þar sem þeirra
er mest þörf, sje svo háttað, að
þeir kaupmenn sem verzla með
íslenzkar afurðir myndi svo
sterka hringa (trusts).“
Tveimur ámm seinna segir
Guðmundur á Sandi í Skími (hér
tekið upp úr ritsafni hans, 6.
bindi, bls. 419-420):
„En samtakafésýslumenn
mynda hringi og hvirfingar til
fjárbragða og taka á þann hátt
strandhögg og ræna byggðimar,
þótt öðmvísi sé að farið en að
fomu fari, þegar víkingar vom
á ferðinni."
Sem sagt hringar hjá Bimi
Þórðarsyni 1910, en hringir hjá
Guðmundi Friðjónssyni 1912,
þegar þeir skrifa um auðmanna-
félög (tmsts).
Niðurstaðan af þessu öllu
saman verður þá sú, að fleirtalan
hringar sé tvímælalaust upp-
hafleg, hringir sé og gömul
mynd, en nú sé engin regla um
notkun þessara orðmynda.
Órannsakað er hér vissulega
hvemig stærðfræðingar fara
með þetta orð í fræðum sínum,
og er fræðsla um það vél þegin.
Þá ætlar umsjónarmaður að
gefa orðið um sinn Kristjáni frá
Snorrastöðum:
„Heill og sæll Gísli...
1. Sammála er ég um fölið,
en það stappar nærri að mér
fínnist kvenkynið, fölin, engin
Ú'arstæða, og mig minnir fast-
lega að ég hafi heyrt það, en
segi það aldrei.
421. þáttur
2. Gor — úr kindarvömb t.d.
— er víðsfjarri að ég hafí heyrt
í karlkyni.
3. Jógúrt. Um það get ég
sætt mig við hvort tveggja, hvor-
ugkyn og kvenkyn, en ég heyri
það svo lítið á orði haft að mér
er óljós venjan í því sambandi.
4. Kók vildi ég helst aldrei
þurfa að nefna, slík hryllingar
yfírráð sem það hefur í mannlíf-
inu, en ekki myndi ég biðja um
tvo kóka, heldur tvær flöskur
af kóki.
5. Um kögur er ég sammála
ykkur Bemharði [Haraldssyni]
og hef ekki annað heyrt.
6. Sama máli gegnir um mör-
inn.
7. Regnskúr er í mínum huga
ævinlega kvenkyns. Raunar er
alger óþarfí að nefna regn- eða
rigningarskúr. Skúr er væta sem
styttir upp — skiptir skúrum.
Skúr, karlkyns, er bygging upp
við annað hús með hallandi þaki
á einn veg...
Vertu margblessaður."
Bestu þakkir til Kristjáns fyr-
ir hressileg bréf fyrr og síðar.
Umsjónarmaður hefur um
sinn ekki jagast mikið út af
málfari á opinberum vettvangi,
en kemur ekki úr hörðustu átt,
svo að ekki verði um þagað,
þegar fréttamaður ríkissjón-
varpsins segir (kvöldfréttir 15.
jan. sl.): „vegna breytingu"? Hér
á auðvitað að segja vegna
breytingar, og er þetta svo
„bamaleg" villa að furðu má
gegna.
En Hlymrekur handan kvað
af engu tilefni:
Vort líf er þvi lögmáli háð,
að líkjast mun uppskera og sáð.
í Kana þó breyttist
það vatn, sem þar veittist,
í vín fyrir guðs sonar náð.
Prufu-hitamælar
-r 50 til + 1000 C
í einu tæki meö elektrón-
ísku verki og Digital sýn-
ingu.
Sfiiumteiiugiiuiir. oJkS>ini©®(S)irD
VESTURGOTU 16 - SfMAR 14630 -21480
Til sölu
sláturhús og frystihús á Svalbarðseyri við EyjaQörð.
Nánari upplýsingar veitir bankastjóm Samvinnubankans,
Bankastræti 7, Reykjavík.
Samvinnubanki íslands hf.
SOIUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0N H0L
SIMAR 21150-21370
Til sölu og sýnis auk annarra eigna:
Einstaklingsíbúð í lyftuhúsi
2ja herb. innarlega v/Kleppsveg, 36,1 tm nettó á 3. hæð. Skuldlaus.
Laus í júnf nk.
4ra herb. íbúðir við:
Vesturberg 3ja, hæð 99 fm. Ágæt sameign. Laus 1. júli nk.
Austurberg 1. hæð, 99,6 fm. Sérþvh. Bílsk. Vinsæll staöur.
Eyjabakka 89,2 fm. Sérþvh. Stór og góður Bilskúr 47,7 fm. Selst ein-
göngu í skipt. f. rúmg. 3ja herb. íb. í nágr.
2ja herb. einstaklingsíbúð
Á vinsælum stað i Túnunum i kj. 44,3 fm samþykkt. Sturtubað. Nýtt
verksmgler. Ræktuö lóð með trjám. Ákv. sala. Tilboð óskast.
Með útsýni og siglingaaðstöðu
Á fögrum útsýnisstað á Álftanesi. Steinhús. Ein hæð 155,5 fm nettó.
Vel byggt og vandað. Stór og góður bílsk. 42,7 fm nettó. Stór sjávar-
lóð m. frábærri siglingaaðst. Skuldlaus eign.
Garðabær - Hafnarfjörður
3ja-4ra herb. ib. óskast til kaups f. fjárst. kaup.
Teigar - Hlíðar - nágrenni
Til kaups óskast 4ra-5 herb. íb. Góð útborgun strax við kaupsamn.
kr. 2 millj.
Fjöldi fjársterkra kaupenda
margskonar eignask. Mikil milligjöf f boöi strax við kaupsamn. Ýms-
ir bjóða útborgun á öllu kaupverði f. rétta eign.
Opið í dag
kl. 11.00-16.00.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Marmarafíísar
Karsnosbia.: 106. Sini 46044