Morgunblaðið - 23.01.1988, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988
Minning:
Theódór Grímur
Guömundsson
Theodór Grímur Guðmundsson
er látinn, langt um aldur fram.
Fráfall hans var okkur, félögum
hans hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna, mikið áfall.
Theodór kom inn í stjóm Lána-
sjóðs síðastliðið vor. Fljótt kom í
ljós einlægur áhugi hans á lífskjör-
um námsmanna. I starfi stjómar-
innar er iðulega tekist kröftuglega
á. Theodór reyndist þar ötull mál-
svari námsmanna, hugrakkur og
fylginn sér. Hann lagði sig allan
fram, var fímur í málflutningi á
fundum og hafði gaman af rökræð-
um. Theodór var hugsjónamaður,
sem bar hag lítilmagnans mjög fyr-
ir brjósti. Hann hreif jafnaldra sína
með sér og þeir höfðu valið Theo-
dór til að gegna margvíslegum
trúnaðarstörfum.
Sárt er að sjá á eftir góðum dreng
svo alltof, alltof fljótt. Stjóm og
starfsmenn Lánasjóðs íslenskra
námsmanna munu ætíð minnast
Theodórs Gríms Guðmundssonar
með hlýhug. Foreldrum hans og
ástvinum sendum við samúðar-
kveðjur.
Fyrir hönd stjómar og starfs-
manna Lánasjóðs íslenskra
námsmanna.
Árdís Þórðardóttir,
Elín Pálsdóttir.
Kveðja frá Vöku
Theodór Grímur Guðmundsson
útskrifaðist frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 1986. Þaðan lá leið
hans í Háskóla íslands þar sm hann
hóf nám í sagnfræði.
Theódór varð fljótt virkur í Fé-
lagi vinstrimanna í Háskóla íslands
og var fyrir þess hönd kosinn í Stúd-
entaráð HÍ síðastliðið vor. Hann tók
þátt í myndun meirihluta Félags
vinstrimanna og Félags umbóta-
sinna og var í kjölfar þess kosinn
fulltrúi SHÍ í stjóm Lánasjóðs
íslenskra námsmanna og ráðinn
framkvæmdastjóri Stúdentaráðs.
í síðustu viku barst sú harma-
fregn að Theódór Grímur væri
látinn. Menn setti hljóða við þessa
fregn, enda ávallt sárt þegar menn
deyja á unga aldri.
Þó að kynni Vökumanna af Theó-
dóri hafí.verið stutt, þá er það ljóst,
að þar fór starfsmaður og áhuga-
+
Ástkær eiginmaður minn,
JÓIM JÚLÍUSSON
prentari,
Laugarásvegi 30,
verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 25. janúar kl. 13.30.
Guðný Valgeirsdóttir.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför dóttur minnar, stjúpdóttur og systur,
GRÉTU BIRGISDÓTTUR.
Birgir Jónsson, Guðmunda Hjálmarsdóttir
og systkini.
fullur maður. Skarð er fyrir skildi
hjá Félagi vinstrimanna og í Stúd-
entaráði. Vaka þakkar Theódóri
fyrir samfylgdina og vottar ættingj-
um hans og félögum í Félagi
vinstrimanna innilega samúð.
Benedikt Bogason, formað-
ur Vöku, félags lýðræðis-
sinnaðra stúdenta.
Kveðja frá félögum í
Félagi vinstrimanna HÍ
Það var í ársbyijun 1987 að Fé-
lagi vinstrimanna í Háskóla íslands
barst öflugur liðsauki. Þá kom til
starfa Theodór Grímur Guðmunds-
son, nemi á 1. ári í sagnfræði. Fyrir
dyrum stóð hörð kosningabarátta
hér í háskólanum og vatt Teddi sér
beint í slaginn.
Það duldist engum, sem vann
með Tedda, að hann hafði mjög
ákveðnar skoðanir og hugsjónir,
sem hann var reiðubúinn að leggja
sig allan fram við að vinna að.
Hann varð því fljótt einn af virk-
ustu félögunum í baráttunni fyrir
hagsmunum námsmanna og ávann
sér mikið traust allra þeirra, sem
kynni höfðu af honum. Eftir kosn-
ingamar tók Teddi að sér hið erfiða
starf fulltrúa. stúdenta í stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna og
framkvæmdastjóra stúdentaráðs.
Það er óvanalegt að nýliði í stúd-
entaráði og 1. árs nemi gegni slíkri
stöðu en Teddi setti sig gaumgæfí-
lega inn í öll mál og undirbjó störf
sín vandlega. Hvergi var komið að
tómum kofunum hjá honum varð-
andi málefni LÍN.
Það átti ekki við Tedda að vinna
störf sín með látum eða hávaða.
Hann leit á sig sem starfsmann
allra stúdenta og sóttist ekki eftir
athygli og viðurkenningu heldur
árangri. Eljusemi og nákvæmni
vom þau vopn í hagsmunabar-
áttunni, sem honum var eðlislægast
að beita.
Teddi var hugsjónamaður og
hafði stundum á orði, þegar á bratt-
an var að sækja, að honum fyndust
stúdentar almennt ekki skoða mál-
efni sín í nógu víðu pólitísku
samhengi eða taka nægilega virkan
þátt í baráttunni fyrir eigin hags-
munum og bama sinna.
Teddi var líka góður vinur og
félagi. Hann lét sig aldrei vanta þar
sem vinstrimenn komu saman til
að gera sér glaðan dag. Á slíkum
stundum átti hann það gjaman til
að varpa fram frumsömdum spak-
mælum eða orðatiltækjum. Margar
þessara setninga urðu fleygar innan
okkar raða og lifa enn góðu lífi,
líkt og verk hans og allar minning-
amar um ánægjulega samvem-
stundir í starfí og leik.
Eftir Tedda liggur geysimikil
vinna, sem bæði er haldgott vega-
nesti’í átökum framtíðarinnar og
gmnnur að mörgum góðum málum.
Nú, þegar við kveðjum fallinn
félaga og vin, er það okkur helst
til huggunar að mega taka upp
merki hans og halda áfram að beij-
ast fyrir þeim hugsjónum, sem hann
lifði fyrir.
Fjölskyldu Tedda sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Félag vinstrimanna HÍ
Það var að kvöldi 12. janúar, að
bróðir minn hringir til að tilkynna
lát einkasonar síns. Við slíka
óvænta harmafregn setur mann
hljóðan og verður mjög tregt um
tal, og erfitt með að viðurkenna
staðréyndir fyrir sjálfum sér.
Theodór Grímur Guðmundsson
fæddist á Blönduósi 9. mars 1966,
sonur hjónanna Elínar G.
Grímsdóttur og Guðmundar Kr.
Theodórssonar, fjórða bam þeirra
í röðinni. Þijár dætur eldri, en tvær
bættust við í þennan myndarlega
og vel gerða bamahóp.
Theodór Grímur fæddist nokkr-
um dögum eftir lát Theodórs afa
síns og sem nærri má geta auga-
steinn foreldra og systra. Þessi
fallegi drengur með dökka hárið og
mikið okkur kær allra í fjöldskyld-
unni, en þá vorum við nýlega flutt
suður, en margar eru ferðimar sem
famar hafa verið á milli og oft
hefur verið gist á Húnabrautinni
hjá bróður mágkonu og bömum
þeirra. Árin líða í faðmi fjölskyldu,
námi lokið sem hægt er að stunda
heima og þá er farið í menntaskól-
ann á Akureyri, en þar býr elsta
systir Theodórs Gríms og var hann
námstímann inn á heimili systur
sinnar og manns hennar, en þau
reyndust honum sem bestu foreldr-
ar. Snemma kom fram áhugi hans
á félagsmálum og tók virkan þátt
í þeim, samviskusamur svo af bar
við þau störf sem og annað sem
hann tók að sér, hægur, prúður og
elskulegur drengur, en samt ákveð-
inn í skoðunum. Þegar voraði fór
hann heim og vann á sumrin í
mjólkursamlaginu á Blönduósi, en
þar starfaði Theodór afí hans til
æfiloka og faðir hans er búinn að
vinna þar mörg árin. Theodór
Grímur útskrifast stúdent frá
menntaskóla Akureyrar af félags-
fræðibraut, 17. júní 1986 og innrit-
ast í Háskóla Islands í sagnfræði
um haustið sama ár. Þá var orðið
styttra á milli og kom hann oft inn
á okkar heimili og höfðum við
ánægju af. Alltaf var sama hlýja
viðmótið og þakka ég nú þær sam-
verustundir sem við fjölskyldan
áttum með honum.
Hann var fulltrúi vinstri manna
í Lánasjóði íslenskra námsmanna á
vegum stúdentaráðs. Sumarvinnu-
starf var hann búinn að fá í Finn-
landi síðastliðið vor, en hætti við
það og tók að sér starf á skrifstofu
stúdentaráðs, vegna áhuga síns á
félagsmálum og hagsmunamálum
stúdenta. Lífð er tilviljunarkennt,
hann deyr sama dag og Stefanía,
amma hans, 12. janúar, en hún dó
árið 1982. Það er mikil eftirsjá í
svo efnilegum og vel gerðum ung-
um manni, en við geymum öll
minninguna um góðan dreng.
Jarðarför hans fer fram laugar-
daginn 23. janúar frá Blönduóss-
kirkju.
Megi góður guð styrkja og styðja
bróður minn, mágkonu, dætur,
tengdasyni og böm þeirra, í þeim
miklu sorg og almáttugur guðs frið-
ur fylgi frænda mínum til nýrra
heimkynna.'
Ragnhildur A. Theodórsdóttir
+
Þökkum innilega hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar og afa,
ÁRNA SIGURÐSSONAR
fyrrverandi hafnsögumanns,
Álfaskeiði 64, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starsfólks deildar 5-A Borgarspítalanum.
Ólafía Kristjánsdóttir,
Sigurlfna Árnadóttir, Eydis Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum öllum þeim er sýnt hafa okkur samúð og vinarhug við
fráfall og útför hjartkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar
míns og bróður okkar,
HILDIMUNDAR GESTSSONAR,
Lágholti 9,
Stykkishólmi,
Guð blessi ykkur öll.
Þórhildur Halldórsdóttir,
Hólmfríður Hildimundardóttir,
Halidór Hildimundarson,
Hólmfriður Hildimundardóttir
og systkini hins látna.
+
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför
ÓLAFS ÁGÚSTS ÓLAFSSONAR
bónda, Valdastöðum í Kjós.
Ásdis Steinadóttir,
Unnur Ólafsdóttir, ÁsgeirOlsen,
Ingi Steinar Ólafsson, Ninna B. Sigurðardóttir,
Ólafur Þór Ólafsson, Þórdís Ólafsdóttir,
Tómas Ólafsson, Sigfríð Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Námskeið í sjáJfsvitund
ÞRÍDRANGUR gengst fyrir
námskeiði í sjálfsvitund í dag og
á morgun. Leiðbeinandi verður
Gísli Þór Gunnarsson sálfræð-
ingur.
Gísli Þór Gunnarsson sálfræðing-
ur hefur varið lokaritgerð sína The
Revolution of Consciousness við i
ríkisháskóla Kalifomíu í San Fran-
cisco. í fréttatilkynningu frá
Þrídrangi segir að hann hafi sett
saman helgamámskeið sem Ieiði
þátttakendur í gegnum völundarhús
sjálfsvitundarinnar. Námskeiðið
verður haldið þessa helgi, 23.-24.
janúar, í Þrídrangi, Tryggvagötu
18, frá kl. 11-18 báða dagana.
Gísli Þór
Gunnarsson
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt ermeð greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tek-
in til birtingar fmmort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð
eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir
ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist
undir fullu nafni höfundar.
Sár er sá missir, þegar stúdentar
missa svo skyndilega einn helsta
fulltrúa sinn í baráttunni fyrir rétt-
látum kjömm. Sárara er þó að svo
ungur maður sem Thedór, með alla
þá möguleika sem framtíðin kann
að fela, skuli hverfa af lífsins braut
jafn snemma.
Theodóf, eða Teddi eins og hann
kallaðist okkur á meðal, starfaði
sem framkvæmdastjóri stúdenta-
ráðs og fulltrúi stúdenta í stjóm
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Við sem sitjum í stjóm stúdenta-
ráðs áttum því náið samstarf við
Tedda, jafnframt því sem okkur
gafst kostur á að fylgjast með
starfí hans í lánasjóðnum. Setan í
stjóm lánasjóðsins er án efa það
starf sem mikilvægast er fyrir hags-
muni stúdenta og nauðsynlegt að
sá sem þar situr hafí skilning á lífi
og lífskjömm stúdenta. Þessum
skilningi bjó Teddi yfír og á þessum
skilningi, ásamt djúpri réttlætis-
kennd, byggði hann starf sitt.
Þannig lagði hann með starfi sínu
lóð á vogaskálar jafnréttis og auk-
inna menntunarmöguleika öllum til
handa. Jafnframt var Teddi óþreyt-
andi við að sjá til þess að hinir
fjölmörgu umbjóðendur hans fengju
réttláta afgreiðslu á sínum málum
innan lánasjóðsins.
Stjóm stúdentaráðs kveður
Theodór með söknuði, hlýhug og
þakklæti fyrir hans framlag til
bættra námsmöguleika, við munum
einbeita okkur að því að halda
áfram starfí í hans anda. Fjölskyldu
hans og vinum vottum við okkar
innilegustu samúð í þeirra miklu
sorg.
Stjórn stúdentaráðs
Háskóla íslands