Morgunblaðið - 23.01.1988, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988
1
félk í
fréttum
ÆTTARMÓT
Hans Jakobs Beck minnst
ann 17. þessa mánaðar
komu afkomendur Hans
Jakobs Beek saman á Hótel
Sögu. Faðir Hans Jakobs var
Christian N. Beck, danskur
verslunarmaður á Eskifírði, en
móðir hans var María Elísabet
Long, dóttir Richards Long, sem
var enskur. Tilefni ættarmótsins
var að 150 ár eru nú liðin frá
fæðingu Hans Jakobs, en hann
var fæddur á Eskifírði þann 17.
janúar 1838. Hans Jakob réðist
sem vinnumaður að Karlsskála
við Reyðarfjörð tvítugur að aldri
og giftist Steinunni, dóttur Páls
Jónssonar, bónda á Karlsskála,
og Helgu Ámadóttur, konu
hans.
Hans Jakob og Steinunn bjuggu
á Karlsskála og á býlinu Eski-
fírði, en fiuttu til Sómastaða við
Reyðarfjörð árið 1870. Áttu þau
saman þrettán böm. Steinunn
lést árið 1897, en Hans Jakob
hélt áfram búskap og sjósókn.
Hann giftist síðan aftur 1906,
Mekkínu Jónsdóttur frá Vöðlum
í Vöðlavík, og eignuðust þau tíu
böm og komust átta til fullorð-
insára. Síðasta bam Hans
Jakobs eignaðist hann árið 1919,
en hann lést árið 1920, 82 ára
að aldri. Mekkín kona hans lést
árið 1974, 91 árs að aldri.
Frá Hans Jakobi og fyrri konu
hans er nú að vaxa upp sjötti
ættliður, en fjórði og fímmti úr
seinna hjónabandinu, enda ald-
ursmunur hálfsystkina allt að
sextíu ár.
w Morgunblaðið/Helena
Dr.Jakob Jónsson flutti, ásamt fleirum, ræðu til
minningar um Hans Jakob Beck, afa sinn.
Eysteinn Jónsson, fyrrv. alþingis-
maður, ásamt börnum og barna-
börnum. Eysteinn er sonur
Sigriðar Hansdóttur Beck
Afkomendur Steinunnar Beck.
Afkomendur Þórunnar Beck.
Alls komu saman tæplega þijú hundruð afkomenda Hans Jakobs Beck á ættarmótið.