Morgunblaðið - 23.01.1988, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1988
LÍF 20 ára
Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
Landssamband _ íslenzkra
frímerkjasafnara (LÍF) verður
tuttugu ára 5. febrúar næstkom-
andi. Ekki getur það talizt hár
aldur, enda eru samtök frímerkja-
safnara hér á landi mjög ung,
þegar tekið er mið af sams konar
samtökum á öðrum Norðurlönd-
um. Eins og menn vafalaust
muna, varð Félag frímerkjasafn-
ara hér í Reykjavík þrítugt á liðnu
ári, og var þess minnzt með ýms-
um hætti, m.a. frímerkjasýningu,
FRÍMEX 87.
merki LÍF
Stofndagur LÍF er 5. febrúar
1968, og var aðalhvatamaður að
stofnun þess Sigurður H. Þor-
steinsson, núverandi skólastjóri
Klúkuskóla í Strandasýslu. Segja
má, að sambandið hafi í reynd
fremur verið félag fárra manna
fyrstu árin en samtök safnara
hérlendis, þar sem stærsta félag
safnara, Félag frímerkjasafnara,
' gerðist ekki aðili að því fyrr en
1976. Til þess lágu ýmsar ástæð-
ur, sem kunnar er flestum íslenzk-
um frímerkjasöfnurum. En eftir
inngöngu FF í sambandið tók það
algerum stakkaskiptum, enda of-
ur skiljanlegt, þar sem því bættust
um leið á þriðja hundrað félagar.
Þessi félög eru nú í LÍF auk FF:
Klúbbur Skandinavíusafnara, sem
hefur aðsetur í Breiðholtshverfí í
Rvík. Enda þótt hann sé kenndur
við Skandinavíusafnara, mun
•* söfnun félagsmanna engan veginn
bundin Norðurlöndum sérstak-
lega. Frímerlqaklúbburinn Askja
á Húsavík, en hann nær einnig
til sveita innan S.-Þingeyjarsýslu.
Hefur sá klúbbur verið ótrúlega
mikilvirkur úti á landsbyggðinni.
Þá er Félag safnara á Dalvík og
í næsta nágrenni, Akka. Loks er
svo Frímerkjaklúbburinn Selfoss
á Selfossi, en hann er í raun félag
ungra frímerkjasafnara þar. Hafa
þeir verið áhugasamir undir leið-
sögn Emsts Sigurðssonar. Um
allmörg ár var svo Félag
frímerlcjasafnara á Akureyri í
Landssambandinu, en það kaus
að draga sig úr sambandinu fyrir
fáum árum.
Af því, sem hér hefur verið
rakið, sést, að engin samtök safn-
ara eru nefnd af Vesturlandi,
Vestfjörðum, Austfjörðum eða
Suðurlandi, þegar Selfossi sleppir.
Er það að vonum, þar sem þau
munu engin til. Hins vegar er
öruggt, að á öllum þeim svæðum
eru einhveijir frímerkjasafnarar.
Er að sjálfsögðu æskiiegt, að þeir
myndi með sér félagsskap, ef þess
er nokkur kostur, og gangi í
Landssambandið. Má öllum ljóst
vera, að heildarsamtökum safnara
er fengur í hveijum nýjum liðs-
manni. Þá er ég ekki í minnsta
vafa um, að það er hveijum þeirra
til framdráttar við söfnun sína að
eiga þess kost að kynnast öðrum
söfnurum og eiga við þá skipti.
Hér má líka benda á, að einstakir
safnarar geta orðið beinir aðilar
að LÍF, ef ekkert félag er til á
þeim stað, þar sem þeir eiga bú-
setu. Þetta ættu þeir safnarar,
sem svo er ástatt um og lesa þess-
ar línur, að hafa í huga. Þeir þurfa
ekki annað en setja sig í samband
við stjóm LÍF. Þess vegna set ég
hér heimilisfang sambandsins.
Það er: Síðumúli 17, 108
Reykjavík.
Eins og áður segir, var Sigurð-
ur H. Þorsteinsson hvatamaður
að stofnun LÍF, og var hann for-
seti þess til 1976. Sigurður P.
Gestsson var síðan forseti í eitt
ár, en þá tók Sigurður R. Péturs-
son við og sat í því sæti til 1982.
Jón Aðalsteinn Jónsson settist svo
í sætið sem formaður 1982 og
gegndi formennsku til 1987. Nú-
verandi formaður er Þór Þor-
steins. Með honum sitja í stjóm:
Hálfdan Helgason varaformaður,
Sverrir Einarsson ritari, Sigtrygg-
ur R. Eyþórsson gjaldkeri og
Jóhann Guðmundsson blaðafull-
trúi. Meðstjómendur em Benedikt
Antonsson, Eiður Amason, Jón
Egilsson og Jón Aðalsteinn Jóns-
son. Varamenn em Guðni
Gunnarsson og Sigfús Gunnars-
son. Ýmsar nefndir em starfandi
á vegum LÍF, þótt þær verði ekki
raktar hér. En óhætt er að full-
yrða að starfsemi sambandsins
er allöflug og hefur farið vaxandi
á undanfömum áram.
Eftir inngöngu FF í Landssam-
bandið var sérstöku málgagni
hleypt af stokkunum, sem nefnist
Grúsk. Hefur það komið nokkuð
reglulega út frá árinu 1976, og
þar hafa birzt áhugaverðar grein-
ar um frímerki og annað þeim
skylt. Eins hafa myntsafnarar og
kortasafnarar haft aðgang að
tímariti þessu með greinar um
áhugamál sín.
Samvinna við frímerkjasamtök
erlendis hefur aukizt vemlega,
einkum þó á Norðurlöndum. Um
leið hefur LÍF tekið æ oftar þátt
í þingum Alþjóðasambands frí-
merkjasafnara (FIP) og á nú
fulltrúa í flestum nefndum þess.
Enginn efí er á, að þetta samband
við samtök safnara erlendis kem-
ur íslenzkum frímerkjasöfnumm
að notum á ýmsa vegu. Hinu má
svo ekki gleyma, að starf LÍF
hlýtur fyrst og fremst að verða á
innlendum vettvangi til- eflingar
og styrktar frímerlqasöfnun á ís-
landi. Það hefur sambandið líka
gert á margan hátt, m.a. með
frímerkjasýningum og leiðbein-
ingarstarfí.
Merkasti atburður í sögu þessa
tuttugu ára Landssambands
íslenzkra frímerlqasafnara er án
efa norræna frímerkjasýningin
NORDLA 84, sem haldin var hér
í Laugardalshöilinni sumaríð 1984
í samvinnu við Póst- og símamála-
stofnunina. Sú sýning varð
íslenzkum söfnumm mikill lær-
dómur á marga lund, enda
framraun þeirra í að halda svo
mikla sýningu. Þegar á allt er lit-
ið, heppnaðist þessi sýning mjög
vel. Hún skilaði einnig umtals-
verðum hagnaði, svo að LÍF gat
fest sér húsnæði í Síðumúla 17 í
Reykjavík. Ég held ég megi full-
yrða, að menn sjái nú, að sú
ráðstöfun fjármuna var hyggileg,
enda er mikils virði, að safnarar
eigi tryggt athvarf, þar sem þeir
geti hitzt og rætt áhugamál sín.
Að sjálfsögðu er enn á brattann
að sækja í þessum húsnæðismál-
um, en þau leysast ömgglega
farsællega með samstilltu átaki.
Næsti stóri áfangi í sögu LÍF
verður svo NORDIA 91, því að
nú hefur verið ákveðið að halda
aftur samnorræna frímerkj'asýn-
ingu hér á landi það ár. Kosin
hefur verið sýningamefnd, en eins
og er er ekki unnt að íjölyrða hér
um þessa væntanlegu sýningu.
Til þess gefst áreiðanlega tæki-
færi síðar meir.
Afmælissýning
LIF í marz
Stjóm LÍF ákvað að minnast
afmælis síns á þessu ári með
landssýningu svokallaðri og
freista þess að fá sem flesta nýja
sýnendur úr röðum íslenzkra safn-
ara til þátttöku. Þessi sýning
verður haldin dagana 18.—20.
marz í sýningarsal Listasafns al-
þýðu að Grensásvegi 16. Hefur
henni verið gefíð nafnið LÍFÍL 88.
Gert er ráð fyrir rúmlega 200
römmum á sýningunni, en í hveij-
um ramma em oftast 16 albúm-
blöð. Stefnt er að því, að sýningin
verði sem fjölbreyttust að efni,
svo að hún höfði sem bezt til al-
mennings. Kemur vonandi ýmis-
legt áhugavert mótífefni á
sýninguna erlendis frá. Get ég
þegar nefnt eitt slíkt safn, sem
ætti einmitt að vekja athygli ís-
lendinga. Kemur það frá Svíþjóð
og nefnist Víkingamir. Þá hefur
verið leitað eftir góðum unglinga-
söfnum frá öðmm Norðurlöndum.
Ættu þau að geta sýnt íslenzkum
unglingum hveiju og hvemig
safna megi og það án þess það
þurfí að kosta of mikla fjármuni.
Þar sem umsóknarfrestur um
þátttöku rennur ekki út fyrr en
um næstu mánaðamót, er ekki
hægt að fjölyrða nánar um LÍFIL
88 f þessum þætti. Það verður
gert betur síðar. Þessar línur em
einungis skrifaðar til þess að
vekja bæði athygli á afmæli
Landssambands íslenzkra
frímerkjasafnara og svo afmælis-
sýningu þess í marz.
Ekki þykir mér ólíklegt, að ein-
hveijir hafí áhuga á að vita meira
um væntanlega landssýningu en
hér kemur fram. Þess vegna vil
ég greina frá nöfnum þeirra, sem
skipa sýningamefndina, en til
þeirra má leita eftir nánari upplýs-
ingum. Þessir em í nefndinni: Jón
Aðalsteinn Jónsson formaður,
Guðmundur Ingimundarson,
Guðni Gunnarsson, Sigurður R.
Pétursson og Þór Þorsteins, nú-
verandi formaður LÍF.
Brids
Arnór Ragnarsson
Hreyfill — Bæjarleiðir
Sjö kvöld em búin af 9 í aðal-
sveitakeppni bílstjóranna og bítast
tvær sveitir um efsta sætið.
Staðan:
Anton Guðjónsson 168
Cyms Hjartarson 160
Birgir Sigurðsson 142
Skjöldur EyQörð 104
Þorsteinn Sigurðsson 88
Næstsíðasta umferðin verður
spiluð í Hreyfílshúsinu á mánudags-
kvöld kl. 19.30.
Næsta keppni verður baromet-
er-tvímenningur og er skráning
hafín.
Bridsfélag Akraness
Hörkukeppni er í Akranesmótinu
í tvímenningi. Spilaður er baromet-
er og er staða efstu para þessi eftir
10 umferðir af 19:
Bent — Tryggvi 88
íÍMWur — Kjartan 83
Ólafur — Guðjón 58
Karl — Jón 53
Einar —Ingi 49
Ámi — Erlingur 48
Skúli — Óskar 43
5 umferðir vom spilaðar 21. jan-
úar.
Bridsfélag
Breiðfirðinga
Fimmtudaginn 21. janúar lauk
sveitakeppni félagsins. Sigurvegar-
ar urðu sveit Hans Nielsen, óskum
vií þeim til hamingju með sigurinn.
Alls tóku 22 sveitir þátt í þessu
móti og varð röð efstu sveita þessi:
Hans Nielsen 405
Dröfn Guðmundsdóttir 382
Guðlaugur Karlsson 373
Ólafur Týr Guðjónsson 369
Helgi Nielsen 365
Hulda Steingrímsdóttir 364
Guðlaugur Sveinsson 364
Elís Helgason 362
Næsta keppni félagsins, baró-
metertvímenningur, hefst næsta
fímmtudag. Nokkur sæti em enn
laus en þegar hafa 50 pör skráð
sig til keppni. Notuð verður tölva
við útreikning og spilin verða tölvu-
gefín. Keppnisstjóri, Isak Sigurðs-
son. Skráning í síma 50212,
Guðlaugur, og 32482, ísak.
Bridsfélag Vestur-
Húnvetninga,
Hvammstanga
Þijár sveitir tóku þátt í hrað-
sveitakeppni 15. desember sl.
Úrslit:
Sveit Einars Jónssonar/
Flemmings Jessen, Ragnars K.
Ingasonar/Egils Egilssonar
39 stig.
Sveit Eggerts Ó. Levy/Sigurðar
Þorvaldssonar, Braga Arasonar/
Bjama Brynjólfssonar
34 stig.
Meðalskor 30.
Þá var spilaður eins kvölds
tvímenningur 22. desember og urðu
úrslit þessi:
Eggert Ó. Levy —
Bjami Brynjólfsson . 71stig
Öm Guðjónsson —
EinarJónsson 52stig.
Meðalskor 50.
Nýja árið hófst svo með tvímenn-
ingi 5. janúar og þá urðu úrslit
þessi:
Jóhannes Guðmannsson —
Aðalbjöm Benediktsson 63 stig
Ragnar K. Ingason —
Bragi Arason 57 stig
Hallur Sigurðsson —
Marteinn Reimarsson 51 stig
Meðalskor 50.
Firmakeppni félagsins er lokið
og tóku mjög mörg fyrirtæki þátt
í keppninni.
Úrslit urðu þessi:
KVH 43
(Jóhannes Guðmannsson) Flugleiðir, Hvt-umboð (Aðalbjöm Benediktsson) 40
Leikskólinn Hvt. 40
(Jómnn Jóhannesdóttir) VSP 40
(Erlingur Sverrisson)
Gifs-mynd 39
(Unnar A. Guðmundsson)
Rafeindsverkst. Odds Sig. 39
(Ragnar Karl Ingason)
Heilsugæslust. Hvt. 37
(Egill Egilsson)
Utgerðarfél. V-Hún. 36
(Aðalbjöm Benediktsson)
Leigubílaakstur Braga 35
(Bragi Arason)
Skrúðvangur 34
(Erlingur Sverrisson)
Gullsmiðimir Sigtryggur og Pét-
ur á Akureyri gáfu verðlaunin í
þessa keppni.
Bridsfélag* Kópavog’s
Síðastliðinn fimmtudag hófst að-
alsveitakeppni félagsins með þátt-
töku 16 sveita. Að loknum tveimur
umferðum em þessar sveitir efstar.
Sveit:
Ármanns J. Lámssonar 42
Gríms Thorarensens 40
IngimarsValdimarssonar 38
Haraldar Ámasonar 36
Jóns Andréssonar 36
Þorsteins Berg 33
Reykjavíkurmótið
í sveitakeppni
Nú er lokið 15 umferðum af 21
og er staða efstu sveita þessi:
Verðbréfamark. Iðnaðarbanka 295
Pólaris 286
Flugleiðir 280
Jón Þorvarðarson 264
Samvinnuferðir 262
Fataland 254
Bragi Hauksson 246
Sigurður Steingrímsson 235
Jón Steinar Gunnlaugsson 233
Atlantic 225
Mótinu lýkur um helgina. Hefst
spilamennskan kl. 13 báða dagana.
Spilað er í húsi Bridssambandsins.
Úrslitakeppni fjögurra efstu sveita
verður svo um aðra helgi.
Bridsfélag Reykjavíkur
Nk. miðvikudag hefst úrslita-
keppnin í vetrartvímenningnum,
fyrsta umferð af þremur. Spilað er
í fjórum riðlum.
Ferðavinningur er fyrir hæstu
skor pars óháð því í hvaða riðli er
spilað. Þá má einnig geta þess að
4 pör geta komist í D-riðilinn,
þ.e.a.s. það er háð því að 4 pör
skrái sig. Sævar tekur við þessari
skráningu í síma 75420.
Spilað er í húsi Bridssambandsins
kl. 19.30.
BINGÖ!
Aóalvinninqur að verömagti
_________kr.40bús._________
Heildarverðmaeti vinninga
________kr.180 bús._______
TEMPLARAHOLLIN
Eiríksgötu 5 — S. 20010